Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKA breikbítgengið, sem
heldur úti vefsíðunni breakbeat.is,
sér um skipulagningu viðburða
tengdum breikbíttónlistinni og held-
ur almennt lífi í íslensku breikbít- og
„drum’n’bass“-senunni heldur upp á
fjögurra ára afmæli sitt í kvöld.
Til að fagna þessum árangri al-
mennilega hefur sjálfur DJ Bailey
verið fenginn til að spila, en hann er
hiklaust einn heitasti trommu- og
bassasnúðurinn í dag.
Bailey heitir fullu nafni Michael
Bailey og er búsettur í London. Hann
á nokkuð langan feril að baki en það
er einungis á allra síðustu árum sem
frægðarsól hans hefur tekið að rísa –
en það hefur hún gert giska hratt.
Eitt af því sem hefur stuðlað að því er
þáttur hans á BBC, Intabeats, sem
var valinn besti trommu- og bassa-
þátturinn á Knowledge-verðlaunahá-
tíðinni 2003 (Knowledge er breskt
tímarit um „drum’n’bass“, breikbít,
hipp hopp og skylda hluti). Bailey
lagði þar ráðsetta menn eins og Fabio
og Grooverider m.a. að velli.
Bailey byrjaði í hipphoppi og
„elektrói“, eitthvað sem hann hlustar
enn á í dag af
áfergju þótt hans
aðall sé auðvitað
breikbít og
„drum’n’ bass“.
Þetta var fyrir
tuttugu árum en
svo sogaðist hann
inn í sýruhúsið,
tæknóið frá
Detroit og þeirri harðkjarnadanstón-
list sem fylgdi „sumri ástarinnar“ í
Bretlandi árið 1988. Þetta færði hann
svo í áttina að breikbíti og „drum’n’-
bass“ og eftir að hafa kynnst hinum
goðsagnakenndu snúðum, Storm og
Kemistry, fór hann að spila á Metal-
headz kvöldum og hefur leiðin legið
upp á við síðan.
Bailey hefur lítið gert af því að
semja tónlist sjálfur en hefur gert
meira af því að setja saman syrpur,
m.a.fyrir Ministry of Sound, Break-
beat Science og Renegade Hardware
útgáfurnar.
Í þessum fræðum er Bailey svo
sannarlega á heimavelli og fá afmæl-
isgestir væntanlega að kynnast því í
kvöld. Blaðamaður ræddi stuttlega
við Bailey vegna heimsóknar hans
hingað.
Plötur í pósti
Þarf maður ekki að vera afskap-
lega vel skipulagður þegar maður
þeytist svona heimshorna á milli eins
og þú gerir, reka útgáfu og stjórna
útvarpsþætti?
„Jú. Maður þarf að vera mjög
skipulagður. Ég er með fjóra um-
boðsmenn t.d. sem sjá um að bóka
fyrir mig. Svo þarf plötusafnið líka að
vera vel skipulagt. Stundum er ég
beðinn um að spila eldri danstónlist
og þá þarf ég að geta gengið beint í
hana.“
Þú átt væntanlega mikið plötu-
safn?
„Humm… jú, það er ansi stórt. Það
spannar líka svo mörg ár.“
En er þetta ekki orðið ódýrara
áhugamál eftir að þú fórst að vinna
við þetta?
„Jú. Nú fæ ég allar plötur í pósti
(hlær). Það er fínt. Ég er svo latur að
ég nenni ekki lengur út í plötubúðir.“
Þú einbeitir þér nær eingöngu að
skífuþeytingum en ert minna í að
gera eigin tónlist…
„Já, ég er reyndar aðeins byrjaður
að búa til tónlist núna. En ef satt skal
segja er ástríða númer eitt að þeyta
skífum. En mín eigin tónlist fer þó
örugglega að fæðast þar sem nú kann
ég loksins á græjurnar.“
Eru foreldrar þínir stoltir af þér?
„Jaa…núna eru þau það. Það var
auðvitað þetta venjulega framan af,
mamma að spyrja mig hvort ég ætl-
aði ekki að fara að fá mér alvöru
vinnu! En þegar þau sjá hvernig
þetta er að virka í dag eru þau glöð.
Eldra fólk á líka bágt með að skilja
að maður hafi allar sínar tekjur af því
að vera plötusnúður. Þau halda að
maður geri þetta eftir vinnu. Að mað-
ur þeytist þá út á land með vörubíl
fullan af plötum og diskóljósum
(hlær).“
Breakbeat.is fagnar fjögurra ára afmæli sínu á Kapital
DJ Bailey stýrir fögnuðinum
Afmælishátið breakbeat.is á
Kapital hefst klukkan 22.00 og
kostar 500 krónur inn til klukk-
an 3.00. Eftir það er aðgangs-
eyrir 1000 kr.
DJ Gunni Ewok, DJ Kalli og DJ
Lelli hita upp fyrir Bailey. Aldurs-
takmark er 20 ár. www.break-
beat.is
arnart@mbl.is
Lau. 24. apríl kl. 14.00 Uppselt
Sun. 25. apríl kl. 18.00 Uppselt
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Lau 24/4 kl 20
Fi 29/4 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 30/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 1/5 kl 15 - ATH: 1. MAÍ TILBOÐ
Lau 1/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 7/5 kl 20 - UPPSELT, Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT
Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 14/5 kl 20, - UPPSELT, Lau 15/5 kl 20,
Su 23/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20, Lau 29/5 kl 20,
Fö 4/6 kl 20, Lau 5/6 kl 20
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams
Lau 24/4 kl 20, Fö 30/4 kl 20
SÍÐUSTU AUKASÝNINGAR
Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst
PARIS AT NIGHT - KABARETT eftir ljóðum
Jacques Prévert - Í samvinnu við Á SENUNNI
Su 25/4 kl 15, Su 25/4 kl 21
Mi 28/4 kl 20:15 - Síðasta sýning
Ath. breytilegan sýningartíma
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 25/4 kl 14, Su 2/5 kl 14,
Su 9/5 kl 14, Su 16/5 kl 14,
Su 23/5 kl 14
Síðustu sýningar
GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Su 25/4 kl 20, Su 2/5 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LEIKHÚSTVENNA:
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
DRAUGALEST e. Jón Atla Jónasson
Su 25/4 kl 20
Aðeins þetta eina sinn - kr. 1.900
Laus sæti
Laus sæti
loftkastalinn@simnet.is
miðasalan opin kl. 16-19
Fös. 23. apríl kl. 20 laus sæti
Fös. 30. apríl kl. 20 laus sæti
„Frábært-drepfyndin-átakanlegt“
Ekki við hæfi barna -
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Leiklistarfélag
Seltjarnarness
sýnir leikritið
Saumastofan
eftir
Kjartan Ragnarsson
í Félagsheimili
Seltjarnarness.
Leikstjóri: Bjarni Ingvarsson.
Frumsýning mið. 21. apríl kl. 20:00
2. sýning fös. 23. apríl kl. 20:00
3. sýning lau. 24. apríl kl. 20:00
4. sýning sun. 25. apríl kl. 15:00
Miðapantanir í síma 696 1314
SÍGAUNABARÓNINN
Johann Strauss
nemendasýning
Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar sýnir gamanóperuna Sígaunabaróninn
eftir Johann Strauss yngri í styttri gerð í Íslensku óperunni.
Aðgangur ókeypis fyrir nemendur tónlistarskóla, framhaldsskóla og háskóla, Vinafélag Íslensku
óperunnar og aðra áhugasama. Ónúmeruð sæti, allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Frumsýning fös. 23. apríl kl. 20
2. sýning lau. 24. apríl kl. 20
3. sýning sun. 25. apríl kl. 20
Leikhúsgestir! Munið spennandi matseðil!
Dansleikur í kvöld
Eyjólfur Kristjánsson
og Íslands eina von
Stúdentaleikhúsið kynnir
Skáldsaga
eftir Hallgrím Helgason
Aukasýningar
9. sýn. – föstud. 23. apríl.
10. sýn. – sunnud. 25. apríl.
Sýningar hefjast kl. 20:00.
Sýnt í Grýtuhúsinu,
Keilugranda 1.
Miðapantanir í síma 881 0155
Secret Face
Fös .23. apríl. k l . 21:00
Sellofon
Lau. 24. apríl. k l . 21:00
Allra síðasta sýning
Tenórinn
Sun. 25. apríl. k l . 20:00
Sun. 02. maí. kl. 20.00
Yndislegt kvöld
Eftir Pál Hersteinsson
Síðdegissýninar
lau. og sun. 24. og 25.apríl kl. 15.00
Sjá nánar á
www.dramasmidjan.is
Opið frá kl. 18 fim. - sunnudagskvöld.
Miðasala í síma 562 9700
www.idno.is
Miðasala í síma 555-2222
theater@vortex.is
Lau. 24. apríl örfá sæti laus
Síðasta sýning
eftir Bulgakov
Sun. 25. apríl kl 21
Fim. 29. apríl kl 21
Fös. 30. apríl kl 21
Síðustu sýningar
Fantagott stykki...frábær skemmtun
sem snerti margan strenginn
-Ómar Garðarsson Eyjafréttir
eftir Jón Atla Jónsson
Draumalandið
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Leikstjóri Þorsteinn Bachmann.
í kvöld kl. 20.00. NOKKUR SÆTI
Allra síðasta sýning.
Sveinsstykkið
eftir Þorvald Þorsteinsson.
Leikstjóri Þorleifur Arnarsson.
Lau. 24/4 kl. 20.00.
Sun. 25/4 kl. 20.00.
Aðeins þessar sýningar.
Vörðufélagar Landsbanka Íslands
fá 25% afslátt gegn framvísun
gulldebetkorts.
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is