Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 47
ÚR VESTURHEIMI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 47
DR. T. Kenneth Thorlakson, læknir
í Winnipeg, fékk æðstu viðurkenn-
ingu Þjóðræknisfélags Íslendinga í
Norður-Ameríku, The Lawrence
Johnson-viðurkenninguna, á þingi
félagsins á Heclu í Manitoba fyrir
skömmu.
Viðurkenningin er veitt fyrir frá-
bær störf í þágu „íslenska“ sam-
félagsins í Norður-Ameríku. Dr.
Safnaði til styrktar
íslenskudeild háskólans
Ken Thorlakson hefur mikið látið
að sér kveða á þeim vettvangi og
var meðal annars formaður söfn-
unarnefndarinnar Metið íslenska
nærveru, Valuing Icelandic Pres-
ence, sem lauk störfum á liðnu
hausti. Hún safnaði meira en tveim-
ur milljónum kanadískra dollara til
styrktar íslenskudeild Manitobahá-
skóla í Winnipeg og íslenska bóka-
safninu við háskólann. Ken Thor-
lakson er annar einstaklingurinn til
að hljóta þessa viðurkenningu en
hún var fyrst veitt á þjóðrækn-
isþinginu í Edmonton í fyrra og var
Neil Bardal, þáverandi aðalræð-
ismaður í Gimli, verðlaunaður.
Fékk æðstu viðurkenn-
ingu Þjóðræknisfélagsins
Morgunblaðið/Steinþór
Eitt af síðustu verkum Pauls Westdals sem forseti Þjóðræknisfélags Íslend-
inga í Norður Ameríku, var að veita dr. T. Kenneth Thorlakson æðstu við-
urkenningu félagsins á þingi þess í Manitoba fyrir skömmu.
DÆGURKÓRINN og Regnboga-
kórinn voru á söngferðalagi í Mani-
toba á dögunum og fengu góðar
viðtökur.
Stjórnandi kóranna, Esther
Helga Guðmundsdóttir, lagði
áherslu á að fá hlustendur til að
syngja með og tókst það bærilega
en kórarnir sungu bæði á íslensku
og ensku við undirleik Katalin Lör-
incz.
Kórarnir sungu meðal annars í
Ráðhúsi Winnipeg að viðstöddum
borgarstjóra og í þinghúsinu, þar
sem Peter Bjornson, menntamála-
ráðherra Manitoba, tók á móti
þeim.
Þá komu þeir fram á Þjóðrækn-
isþinginu á Heclu.
Morgunblaðið/Steinþór
Ester Helga kórstjóri kynnir dagskrá Dægurkórsins og Regnbogakórsins.
Söngurinn
í fyrirrúmi
Ársfundur Lífeyrissjó›s verzlunarmanna ver›ur haldinn
mánudaginn 17. maí 2004 kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sjó›félagar og lífeyrisflegar sjó›sins eiga rétt til setu á ársfundinum.
Fundargögn ver›a afhent á fundarsta›.
Reykjavík 17. apríl 2004
Stjórn Lífeyrissjó›s verzlunarmanna
Sími: 580 4000 • Myndsendir: 580 4099 • Netfang: skrifstofa@live.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
IY
D
D
A
•
1
1
8
4
2
•
si
a
.i
s
Ársfundur 2004