Morgunblaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2004 35
Mig langar til að
minnast þessa heiðurs-
manns og félaga að
bindindismálum
nokkrum orðum. Við kynntumst fyr-
ir nokkrum árum og hann varð mér
sérstakur vinur. Hafði haft af honum
umsagnir áður frá vinum hans. Þótti
mér gott að fá tækifæri til að kynn-
ast honum nánar síðar og ræða við
hann mitt áhugamál um Regluna og
áfengismálin.
Hann vildi leggja sitt lóð til varn-
aðar hinu mikla böli sem áfengis-
nautn hefir valdið og veldur ennþá
fjölda manns bæði hér og úti um all-
an heim.
Við vorum svo hjartanlega sam-
mála um að því meir sem slakað væri
á öllum hömlum gegn dreifingu
NJÁLL
ÞÓRARINSSON
✝ Njáll Þórarins-son heildsali,
Heiðargerði 122,
Reykjavík, fæddist í
Hamborg 10. ágúst
1908. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 17. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fríkirkjunni í
Reykjavík 5. maí.
þessara vímuefna,
þeim mun fleiri myndu
verða fyrir barðinu á
þessu böli. Við sátum
saman nokkur stór-
stúkuþing og það gaf
vináttu okkar meiri
styrk.
Njáll var ekki að
trana sér fram, en var
því mun sterkari sem
hugsjóna- og baráttu-
maður á vettvangi
bindindismálsins. Það
fann ég svo glöggt er
við ræddum saman.
Það var mér mikill
vegsauki að kynnast þessum góða og
trausta samherja og vil með þessum
fáu línum þakka honum samfylgd-
ina, sérstaklega hvað hann lagði til
bindindis og betri lífshátta landinu
til heilla. Við þurfum að eignast sem
flesta með hugarfari Njáls á þessum
alvarlegu tímum. Þar sem alltof
margir landsmenn þjóna því böli
sem leiðir af sér spillingu og jafnvel
dauða.
Því þakka ég Njáli vini mínum
fyrir samfylgdina og bið honum allr-
ar blessunar á nýjum leiðum. Fólki
hans sendi ég samúðarkveðjur.
Árni Helgason, Stykkishólmi.
✝ Friðrik Friðriks-son fæddist í
Keflavík 22. septem-
ber 1933. Hann lést
á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í Kefla-
vík 16. maí síðastlið-
inn. Foreldrar Frið-
riks voru Friðrik
Fischer Þorsteins-
son, forstjóri og org-
anleikari, f. í Kefla-
vík 1. sept. 1900, d. í
Keflavík 31. ágúst
1968 og Sigurveig
Sigurðardóttir hús-
freyja, f. í Keflavík
2. jan. 1905, d. í Reykjavík 26.
júní 1981. Systkini Friðriks eru
Ragnar, f. 16. maí 1927, d. 17.
apríl 1997, Þorsteinn, f. 24. nóv.
1928 d. 17. maí 2001, Björg Erna,
f. 5. des. 1931, Sigurður, f. 1. júní
1938 og Birgir, f. 23. sept. 1939.
Friðrik kvæntist Nönnu Ingva-
dóttur 1969, þau skildu 1972.
Dóttir þeirra er Erla Björk, f. 7.
sept. 1970, búsett í Svíþjóð, gift
Henrik Djerf, f. 16. feb. 1972,
börn þeirra eru Robin Djerf, f. 2.
maí 1994 og Simon Djerf, f. 18.
apríl 1997. Friðrik ættleiddi son
Nönnu, Sigurð Yngva, f. 28.
mars 1969, búsettur í Bandaríkj-
unum.
Hinn 17. nóv. 1973 kvæntist
Friðrik Ólafíu Bergþóru Guðna-
dóttur, f. 13. feb. 1946 d. 25. júní
1997, synir þeirra eru 1) Friðrik,
f. 24. maí 1974, í
sambúð með Ragn-
heiði Kristínu Ben-
ónýsdóttur, f. 1. maí
1968, sonur þeirra
er Stefán Jón, f. 12.
feb. 2004. 2) Brynj-
ar Emil, f. 29. sept.
1978, heitkona hans
er Sigurrós Antons-
dóttir, f. 18. des.
1980. Fóstursonur
Friðriks, sonur
Ólafíu, er Gylfi Þór
Markússon, f. 27.
feb. 1966, í sambúð
með Anitu Jo-
hannesen, f. 30. nóv. 1966, synir
þeirra eru Bergþór Mar, f. 29.
maí 1998 og Sindri Þór, f. 10.
des. 2003. Fóstursonur Gylfa,
sonur Anitu, er Brian Johann-
esen, f. 25. jan. 1989. Dóttir
Gylfa úr fyrra sambandi er Aldís
Ósk, f. 8. feb. 1987, búsett í Sví-
þjóð.
Friðrik ólst upp og bjó alla
sína ævi í Keflavík. Á löngum
starfsferli vann hann fjörutíu ár
hjá sama fyrirtækinu, en hann
hóf störf hjá Loftleiðum árið
1963 og lauk störfum hjá IGS,
dótturfyrirtæki Flugleiða, árið
2003. Fyrir þann tíma vann hann
ýmis störf við fiskvinnslu, mat-
reiðslu, siglingar o.fl.
Útför Friðriks fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 16.
Mig langar með þessum fátæk-
legu orðum að minnast fósturföður
míns Friðriks Friðrikssonar.
Friðrik var afskaplega hjarta-
hlýr og góður maður, honum leið
best í faðmi fjölskyldu sinnar og
lifði einfaldlega fyrir hana. Honum
leið aldrei vel í margmenni en
kaus heldur rólegar stundir með
vinum og fjölskyldu. Hann var
traustur, tryggur og heiðarlegur
og lagði fast að kenna börnum sín-
um þá góðu mannkosti.
Á þeim rúmlega þrjátíu árum
sem leiðir okkar lágu saman áttum
við bæði góðar og erfiðar stundir.
Er ég hugsa til baka til þess tíma
er hann gekk mér í föðurstað geri
ég mér grein fyrir því að fyrstu
árin var ég oft á tíðum afskaplega
erfiður honum. Aldrei lagði hann
þó að mér styggðaryrði, það var
einfaldlega ekki til í honum. Hann
mætti erfiðleikum með þrautseigju
og þolinmæði og vann mig á end-
anum með því. Með okkur tókst
því fljótlega djúp og góð vinátta,
væntumþykja og virðing.
Friðrik var ekki allra, það tók
tíma að kynnast honum en þeir
sem voru svo lánsamir að hafa átt
með honum samleið í einhvern
tíma hvort sem var í gegnum
vinnu eða fjölskyldubönd fundu
fljótlega hvern mann hann hafði að
geyma og áttu upp frá því vináttu
hans vísa. Friðrik var hlédrægur
maður en gamansamur og hafði
sérstakan en skemmtilegan húm-
or.
Hann elskaði börnin sín, Erlu
Björk, Friðrik og Brynjar, ákaf-
lega heitt og óskaði þess eins í líf-
inu að þeim farnaðist sem best. Öll
óskum við börnum okkar þess en
Friðrik óskaði einskis annars.
Móður mína elskaði hann af öllu
hjarta og er gott til þess að hugsa,
nú er hann er búinn að kveðja
okkur, að hann er loksins hjá
henni sem hann saknaði svo sárt
síðustu æviárin sín.
Ég þakka þér samfylgdina, kæri
Friðrik minn, ég kveð þig með
söknuði og þakklæti fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig.
Gylfi Þór.
Elsku Lilli minn, þá er komið að
kveðjustund. Ekki óraði mig fyrir
því sunnudaginn 1. febrúar síðast-
liðinn, þegar ég og mamma kom-
um til þín og við sátum við eldhús-
borðið þitt og drukkum kaffi, að
það yrði í síðasta skipti. Mamma
hafði keypt dúk á eldhúsborðið
handa þér og þú varst svo ánægð-
ur. Mamma dó 13 febrúar, á af-
mælisdaginn hennar Böddu og þú
þremur mánuðum seinna, 16. maí,
á afmælisdaginn hans Bóbó bróður
þíns. En svona er lífið, það getur
oft verið mjög dapurlegt.
Ég er búin að þekkja þig vel alla
ævi, enda ólst ég upp í sama húsi
og þú á Vallargötu 26. Þú varst
mér alltaf góður frændi. Margs er
að minnast frá Vallargötunni, mér
fannst þú alltaf vera svo mikill
gæi, oft með partí í herberginu
þínu. Stundum vöknuðum við Þóra
og fengum að vera með, þá feng-
um við gos og hlustuðum á stóra
segulbandið þitt, já, þetta voru
skemmtilegir tímar og ég tala nú
ekki um þegar Diddi bróðir ykkar
pabba kom í land. Amma alltaf í
eldhúsinu að elda en ég man að þú
varst henni hjálplegur þegar gera
þurfti hreint.
Þú kallaðir Þóru systur alltaf
litla skottið þitt, einu sinni fórst þú
í siglingu með Gullfossi. Þú keypt-
ir dúkkuvagn handa Þóru, en gafst
mér tyggjópakka. En það var svo
skrítið að ég var ekkert afbrýði-
söm, og er löngu búin að fyrirgefa
þér, og erum við fjölskyldan búin
að hlæja mikið að þessu, þú varst
alveg súper frændi.
Þú kynntist fyrri konunni þinni,
henni Nönnu, þegar ég var 10–11
ára gömul, hún átti dreng fyrir
sem heitir Yngvi, saman eignuðust
þið svo hana Erlu. Ég kom mikið
til ykkar og passaði og þið voruð
alltaf góð við mig. Leiðir ykkar
skildi. Svo kynntist þú seinni kon-
unni þinni henni Böddu, hún átti
dreng fyrir, hann Gylfa, svo eign-
uðust þið tvo drengi, Frikka og
Brynjar. Það var mikill samgangur
hjá okkur enda örverpið þitt og
frumburður minn fædd á sama ári,
það var alltaf gott að heimsækja
ykkur Böddu og urðum við Badda
góðar vinkonur.
Þér var margt til lista lagt,
elsku frændi. Þegar maður kom í
heimsókn varst þú alltaf eitthvað
að skollast í eldhúsinu. Þú varst
mjög mikill kokkur og flinkur að
baka brauð, þú hlúðir mjög vel að
fjölskyldu þinni í einu og öllu. Þú
og strákarnir misstuð mikið þegar
Badda dó fyrir tæpum 7 árum, rétt
rúmlega fimmtug.
Fyrir tveimur árum keyptir þú
litla fallega íbúð á Birkiteignum og
hjálpaði ég þér að flytja. Það var
aldeilis gaman og þú og strákarnir
svo ánægðir. Við mamma fengum
heilmikið að stjórna og það fannst
okkur ekki leiðinlegt. Þú hættir að
vinna fyrir um ári, en hefur alla tíð
unnið mjög mikið, og fékkst mik-
inn félagsskap í vinnunni. Þú varst
stoltur afi 12. febrúar síðastliðinn
þegar þú eignaðist barnabarn,
hann Stefán litla, þvílíkan gull-
mola. Ég veit að vel verður tekið á
móti þér.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
(Pétur Þórarinsson.)
Ég og fjölskylda mín biðjum guð
að styrkja Erlu, Frikka, Brynjar,
Gylfa, Yngva og fjölskyldur þeirra.
Guð geymi þig, þín
Sigurveig (Siddý).
Tómas borgarskáld sagði um
látinn vin „Þú hafðir fagnað með
gróandi grösum og grátið hvert
blóm, sem dó. Og þér hafði lærzt
að hlusta unz hjarta í hverjum
steini sló“. Þetta viljum við einnig
segja um vin okkar Friðrik.
Friðrik var hlédrægur, kyrrlát-
ur sómamaður sem fyrst og síðast
sinnti daglega brauðstriti í þágu
heimilis og barna sinna. Hann var
höfðingi heim að sækja, glaðlyndur
og gestrisinn, og hafði uppi lúmsk-
an húmor á vinafundum. Hann
kunni að finna til með þeim sem til
hlés eru settir. Hann bar ekki
virðingu fyrir valdafýsn eða öðru
brölti á kostnað náungans. Hann
var einn og einstakur og fannst sín
veröld ljúf og góð. Hann kann að
hafa sært einhvern, en það var
ekki hans lína að særa, hann vildi
gleðja á sinn kostnað en ekki ann-
arra. Hann gaf en tók ekki. Hann
bar virðingu fyrir mannkostum en
krafðist þeirra ekki. Hann kom sá
og sigraði, svo oft, en þurfti líka að
lúta, finna til og gráta gengin spor.
Hann gekk ekki um torg og syrgði
í annarra áheyrn, en var fyrstur til
að taka þátt í raunum annarra.
Maður sem kastaði birtu og yl á
allt sviðið hverja samverustund,
svo hún varð önnur og betri en
stundin sem var liðin, og sannaði
um leið í hverju lífsins spori að
maður getur verið manns gaman,
en samt notið alvöru lífsins. Slíkir
eru einherjar, gefandinn í samver-
unni. Bæta og blíðka og gera okk-
ur kleift að þola andstreymið í
tonna vís og forðast lífsháskann.
En sú stund sem var kemur ekki
aftur. Minningin er þar, gulli betri.
Auðæfi voru okkur gefin að hafa
fengið að njóta mannsins Friðriks
Friðrikssonar margar stundir í líf-
inu. En þær liðu of hratt, já alltof
hratt.
Guð blessi minningu Friðriks.
Hugheilar samúðarkveðjur send-
um við börnum hans, Gylfa, Frið-
riki, Binna, Erlu og fjölskyldum.
Guð styrki ykkur og blessi á þess-
um erfiðu stundum og um alla
framtíð.
Jóhanna og Erling Garðar.
FRIÐRIK
FRIÐRIKSSON
Mig langar til að
kveðja systur, Stein-
þóru Jóhannsdóttur,
sem lést þann 27. apríl
sl. og hefur jarðarförin
farið fram.
Við vorum elstar af sex systkinum
og áttum því láni að fagna að alast
upp á Jóffanum eða nánar til tekið á
Jófríðarstaðarvegi 10 í Hafnarfirði.
Þar ríkti einstakt samfélag með góðu
fólki, þar eignaðist hún traustar vin-
konur.
Steinþóra var ákaflega lagleg
stúlka og starfaði hún lengi við mód-
elstörf, í raun skipti ekki máli hvað
hún tók sér fyrir hendur, hún var
alltaf mikill dugnaðarforkur, ákaf-
lega lífsglöð og skemmtileg. Ung
kynntist hún Runólfi Guðjónssyni og
eignuðust þau tvö börn saman, Jón
og Hildi. Þau fluttust til Suður-Afr-
STEINÞÓRA
JÓHANNSDÓTTIR
✝ Steinþóra Jó-hannsdóttir var
fædd í Hafnarfirði
10. mars árið 1939.
Hún lést á heimili
sínu Húsatóftum í
Grindavík hinn 27.
apríl síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kirkju 6. maí.
íku en leiðir þeirra
skildu. Steinþóra bjó
áfram úti og giftist Þór-
arni Guðmundssyni og
eignuðust þau saman
Ingibjörgu Amelíu.
Leiðir þeirra skildu
einnig.
Mér er það ógleym-
anlegt þegar við hjónin
heimsóttum Steinþóru
og Didda og hversu frá-
bærar móttökur við
fengum og ferðuðust
þau með okkur í fimm
vikur um Afríku.
Við vorum alltaf
mjög nánar, þó heimsálfur skildu
okkur að, skrifuðumst við á og höfð-
um samband í síma.
Síðar fluttist systir mín heim og
giftist Barða Guðmundssyni og
bjuggu þau á Húsatóftum í Grinda-
vík og ráku þar golfskálann við góð-
an orðstír.
Steinþóra barðist við erfiðan sjúk-
dóm en kvartaði þó aldrei. Nú hef ég
kvatt góða systur.
Hvíl þú í friði.
Innilegar samúðarkveðjur sendi
ég Barða, Jóni, Hildi, Ingibjörgu og
fjölskyldum þeirra.
Þín systir
Hjördís M. Jóhannsdóttir.
MINNINGARGREINUM í
Morgunblaðinu hefur fjölgað
verulega á undanförnum árum.
Til að öllu efni Morgunblaðsins
verði haganlega fyrir komið
reynist nauðsynlegt að setja
minningargreinum, sem og öðru
efni, ákveðin lengdarmörk. Því
hefur verið ákveðið að fyrir utan
aðalgrein verði aðrar greinar
1.500 slög (með bilum), sem eru
um 50 línur í blaðinu (17 dálk-
sentimetrar) og í kringum 300
orð.
Hinsta kveðja
– nýtt form
Jafnhliða þessu verður tekin
upp nýjung sem kölluð er
HINSTA KVEÐJA þar sem
hægt verður að senda örstutta
kveðju (5–15 línur), þegar það á
við. Þetta form á við þegar votta
á virðingu án þess þó að það sé
gert með langri grein (sjá sýn-
ishorn).
Lengd minningargreina
Hæfileg lengd. Til þess að sjá
lengd minningargreinar í t.d.
Word-ritvinnslu, þá er valið
Tools-valblaðið og síðan Word
Count. Þá opnast þessi upplýs-
ingagluggi og sýnir orðafjöldann
(Words); slagafjölda án orðabila
(Characters (no spaces)); slaga-
fjölda með orðabilum (Characters
(with spaces)): 1.500.
g
fa
g
n
ar
n
k,
a
ð-
m
g
m
n-
r
ir
ð
r-
i.
m
r-
n-
í
ar
l-
u
í
ð
ð-
gg g
Sú hugsun að svo kynni að fara var
manni þó oftast fjarri, svo mikill var
lífsþróttur hennar, hugurinn vökull
og atorkan óbilandi.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj.
lkasdjf laksjf laks jdf.
Laksdjælaskdjfæalskjfaæls
kdjfaæl sk djfalæs kd.
Jón Jónsson og
Jónína Jónsdóttir
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs
kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh
dfgh dfgh dfh fdgh.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
HINSTA KVEÐJA