Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FEÐGUM BJARGAÐ
Feðgum var bjargað eftir að bátur
þeirra, Svanborg VE 53, 12 tonna
eikarbátur, sökk þrjár mílur austur
af Bjarnarey í fyrrinótt. Feðgunum
tókst að bjarga sér í gúmbjörg-
unarbát þar sem þeir höfðust við í
um tæpan hálftíma uns þeim var
bjargað í björgunarbátinn Þór.
Gott veður var á þessum slóðum
þegar slysið varð.
Telja al-Qaeda hafa eflst
Innrás Bandaríkjamanna í Írak
hefur orðið til þess að al-Qaeda-
hryðjuverkanetið hefur eflst. Má bú-
ast við að hryðjuverkamenn herði
enn á árásum sínum á vestræn skot-
mörk. Þetta er niðurstaða árs-
skýrslu Alþjóðaherfræðistofnunar-
innar sem birt var í gær.
Sjálfstæðisflokkur 75 ára
Sjálfstæðismenn fögnuðu 75 ára
afmæli Sjálfstæðisflokksins í gær og
sagði Davíð Oddsson forsætisráð-
herra við það tækifæri að frelsið ætti
að vera allra en ekki fyrir fáa, stóra
og sterka sem notuðu afl sitt og auð
til að traðka miskunnarlaust á öðr-
um.
Engin svör um undirskrift
Hvorki fengust svör í forsæt-
isráðuneytinu né á skrifstofu forseta
Íslands í gær hvenær lög um eign-
arhald á fjölmiðlum kæmi til stað-
festingar hjá forsetanum. Lögin
komu úr prentsmiðju í gærmorgun
til Alþingis.
Áhrif Skaftárelda
í Englandi
Breskir vísindamenn hafa sett
fram þá kenningu að um tíu þúsund
manns á Englandi hafi látist vegna
eiturgufa og öskufalls sem barst yfir
hafið frá Íslandi í Skaftáreldunum
árið 1783.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Úr verinu 13 Minningar 33/36
Viðskipti 14 Skák 39
Erlent 15/17 Brids 39
Minn staður 18 Bréf 40/41
Höfuðborgin 19 Dagbók 42/43
Akureyri 20 Staksteinar 42
Suðurnes 21 Kirkjustarf 43
Landið 22 Íþróttir 44/47
Daglegt líf 23 Fólk 48/53
Listir 24/25 Bíó 50/53
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 54
Umræðan 27/32 Veður 55
* * *
Kynningar – Tímaritið Lifun fylgir
Morgunblaðinu í dag til áskrifenda.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
GEIR H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði í eldhúsdagsumræðum
á Alþingi á mánudag að gera yrði
Ríkisútvarpinu kleift að standa
hallalaust undir sínum skyldum
sem jafnframt yrði að endurskil-
greina og draga úr. Einnig þyrfti
að búa þannig um hnútana að
einkaaðilar geti staðið að arðbær-
um rekstri ljósvakamiðla „án óeðli-
legra tengsla við stórar fyrir-
tækjasamsteypur í öðrum
atvinnugreinum. Ég er ekki í vafa
um að í landinu eru ýmsir fjár-
festar sem vilja vera með í slíku,“
sagði ráðherrann.
„Allt frá því að útvarpsrekstur
var gefinn frjáls hefur ekki tekist
að búa þessum rekstri þannig um-
hverfi að bæði hann og Ríkisút-
varpið fái þrifist og dafnað saman
með eðlilegum hætti. Næsta verk-
efni á þessu sviði hlýtur að vera að
skilgreina þetta umhverfi upp á
nýtt,“ sagði fjármálaráðherra.
Fjármálaráðherra
Endurskil-
greina þarf
skyldur RÚV
ÞAÐ MÁ segja að sumarið hafi brostið á á Austurlandi í
gær með yfir 20 stiga hita og hægri suðvestangolu, sem
sótti þó heldur í sig veðrið er leið á daginn. Hitinn fór í
21 stig á Hallormsstað. Veðrátta hefur undanfarið ver-
ið heldur of margbrotin fyrir smekk þeirra sem telja að
nú eigi sumar að vera gengið í garð. Þannig hefur inn-
an um þokkalega góðviðrisdaga brostið í hraglanda og
gjóstur og menn þá gjarnan sagt að snemma vetraði
norðaustanlands þetta árið. En nú bendir sem sagt flest
til að sumar sé komið til að vera næstu mánuði.
Svo heitt var í gær að klæðning, sem lögð var á veg-
arkafla á Kaupvangi á Egilsstöðum, ásamt tengingu við
þjóðveg eitt, tók að bráðna. Klæðningin glitrar í aftan-
sólinni og tjaran skvettist upp á bíla sem fóru um veg-
inn. Ástæða þessa mun vera sú að klæðningin var lögð í
köldu veðri sl. haust og er nú að „sjóða niður“. Segja
fróðir malbiksmenn að þetta þorni smám saman þegar
hiti jafnast.
Veðurspá gerir ráð fyrir hlýindum og suðvestlægum
áttum næstu daga.
Yfir 20 stiga hiti á Austurlandi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Soffía Tinna Hjörvarsdóttir og Eva Beckmann undir heitri hádegissólinni á Egilsstöðum í gær. Hitinn mældist þá
tæpar tuttugu gráður og mátti hvarvetna sjá lifna yfir mönnum, skepnum og gróðri.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær að veita héraðs-
dómstólum landsins 35 milljóna
króna aukafjárveitingu.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra segir að þessi ákvörðun hafi
verið tekin í kjölfar könnunar á
fjárhagslegri stöðu héraðsdómstóla
í landinu. Hann segir að ríkis-
stjórnin hafi samþykkt að beina því
til fjárveitingarvaldsins, Alþingis,
að tekið verði á vanda dómstólanna
með þeim hætti, að fjárlagahalli
síðustu ára hefti ekki starfsemi
þeirra. Síðan verði að skapa dóm-
stólunum þann starfsgrundvöll að
með skilvirkum rekstri nái endar
saman. „Það þarf að komast að nið-
urstöðu um það, hver þessi fjár-
hagsrammi er. Það er ekki viðun-
andi, hvorki fyrir ríkisstjórn né
aðra, að það sé fjárhagsleg óvissa
um starf dómstólanna,“ segir
Björn.
Talsvert hefur verið rætt um
fjárhagsstöðu héraðsdómstólanna
síðustu mánuði og að t.d. væri ekki
mögulegt að ráða laganema til
starfa í sumar eins og venja hefur
verið. Björn segir að hann hafi ekki
talið að réttarörygginu væri ógnað
vegna fjárskorts hjá dómstólunum,
en að hann hafi talið sjálfsagt að
fjárhagsmál héraðsdómstólanna
yrðu skoðuð til hlítar.
„Það var staðfest að það hefði
safnast upp halli og það yrði að
taka á þessum málum. Dómstóla-
ráð hefur einnig gripið til hagræð-
ingaraðgerða, sem eru skynsam-
legar og auðvelda eiga framhaldið,“
segir Björn.
35 milljóna aukafjárveit-
ing til héraðsdómstóla
KOSTNAÐUR Tryggingastofnunar
ríkisins af reglubundinni súrefnis-
gjöf í heimahúsum vegna lungna-
sjúkdóma nam 136 milljónum frá
árinu 2000 til ársins í fyrra. Þar af
var kostnaður TR tæpar 44 milljónir
árið 2003. Fram kom í Morgun-
blaðinu í gær að tæplega 300 þurftu
á þessari aðstoð að halda í fyrra en
um 150 árið 2000.
Kristján Guðjónsson, forstöðu-
maður sjúkratryggingasviðs TR,
segir að innifalið í tölunum sé allur
kostnaður við þjónustu og kaup á
súrefni og viðhald á tækjum fyrir
einstaklinga í heimahúsum. TR sé
með samning við ÍSAGA ehf. varð-
andi súrefni, súrefnissíur og allan
tækjabúnað og við Landspítala – há-
skólasjúkrahús varðandi faglega
þjónustu.
Breytt þjónustustig
Að sögn Guðlaugar Rakelar Guð-
jónsdóttur, sviðsstjóra á lungnadeild
LSH í Fossvogi, hefur Landspítalinn
haft súrefnisþjónustu TR undir
höndum frá því hún var flutt frá
Reykjalundi að Vífilsstöðum í sept-
ember árið 2000. Þjónustustigið hafi
breyst á liðnum árum og meðal ann-
ars dvelji veikara fólk inni á heim-
ilum sínum en áður sem nýtur þjón-
ustunnar.
Kostnaður tæpar
44 milljónir í fyrra
Reglubundin súrefnisgjöf í heima-
húsum vegna lungnasjúkdóma
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt rúmlega tvítugan mann
í fimm mánaða fangelsi fyrir 13
þjófnaði og tilraun til þjófnaðar í
Reykjavík í ár og í fyrra. Verðmæti
þýfisins í heild var áætlað rúmar
760 þúsund krónur, þar af stærstur
hluti þess úr íbúðarhúsi en þangað
hafði ákærði komist inn um ólæstar
dyr.
Í dómi héraðsdóms segir að brot-
in nú tengist fíkniefna- og áfeng-
isneyslu ákærða. Við uppkvaðningu
dóms yfir honum í janúar í fyrra
var til þess litið við ákvörðun refs-
ingar að hann hygðist taka á þeim
vanda sínum. Væri hins vegar ekki
séð að nokkurt lát hafi verið á af-
brotum hans nema á þeim tímabil-
um sem hann afplánaði fangelsis-
refsingu.
Ákærði á að baki langan sak-
arferil og hefur frá árinu 1997 hlot-
ið samtals 14 refsidóma aðallega
fyrir auðgunarbrot en einnig skjala-
fals, umferðarlagabrot og fíkniefna-
brot. Málið var dæmt 21. maí af
Sigríði J. Hjaltested, settum hér-
aðsdómara. Verjandi ákærða var
Brynjar Níelsson hrl. og sækjandi
Dagmar Arnardóttir, fulltrúi lög-
reglustjórans í Reykjavík.
5 mánaða
fangelsi fyrir
þjófnaði
♦♦♦