Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 26
UMRÆÐAN 26 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ HVATNING til að skrifa undir beiðni um lýðræðislega stjórn- arhætti og opna umræðu; hvatnig til að skrifa undir beiðni til borgaryf- irvalda um að fresta færslu Hringbrautar og skipuleggja kosn- ingar um málið í tengslum við forseta- kosningarnar næst- komandi. Hægt er að skrifa undir á forsíðu www.mbl.is undir liðn- um Áhugavert efni: Færsla Hringbrautar. Lýðræði er það stjórnarfyrirkomulag sem hefur reynst fela í sér mest frjómagn réttlætis. En það krefst þess að frjómagnið sé ræktað og virkjað með þátttöku borgaranna og gagnkvæmu aðhaldi ólíkra valdastofnana. Annars getur lýð- ræðið steingerst í stofnunum sínum og þær stofnanir síðan farið að vinna gegn þeirri hugsjón sem skapaði þær upphaflega. Lýðræði verður nefnilega ekki komið á í eitt skipti fyrir öll heldur verður sífellt að virkja hugsjónina um það með opinni umræðu, faglegri og póli- tískri, stofnanabundinni og borg- aralegri. Á vettvangi íslenskra stjórnmála hafa undanfarið komið til umræðu málefni sem virðast vera eins konar prófraun á virkni lýðræðis íslenska stjórnkerfisins. Hringbrautarmálið er ein af þessum prófraunum. En yfirvöld hafa því miður látið ónotað tækifærið til að endurskoða afstöðu sína til skipulagsmála og opna um- ræðuna í átt að borgurum og óflokksbundnum sérfræðingum en halda sig frekar við rúmlega þrjátíu ára gamla samþykkt og telja ótíma- bært að ræða hana frekar, segja að það sé orðið of seint að ganga úr skugga um hvort skipulagið stand- ist faglega skoðun og kröfur nýrra tíma. Samkvæmt borg- arstjórn hefur Hring- brautarmálið nú þegar „farið sína stofn- analeið“ enda sé ein- göngu um að ræða „tæknilegt úrlausn- arefni“ og því eigi íbúalýðræði ekki við. Ef lýðræðið er orðið að tæknilegu úrlausn- arefni og stofn- analeiðin að ferli sem borgararnir taka ekki þátt í, þá er ekki nema von að fátt sé um málefnaleg svör. Þeir sem standa nú fyrir undir- skriftum um beiðni um frestun á færslu Hringbrautar hafa lengi far- ið þess á leit við borgaryfirvöld að þau ræði þetta tiltekna skipulags- mál og réttlæti fyrirhugaðar fram- kvæmdir, en sú margítrekaða beiðni hefur verið afgreidd sem ótímabær. Í fyrstu var sagt að of snemmt væri að ræða málið og síð- an því svarað til að nú væri það því miður orðið of seint. Og nú veltir maður því líka vissulega fyrir sér hvort það sé ekki orðið of seint að gera eitthvað í málinu þar sem þeir eru nú þegar sestir upp á skurð- gröfurnar og byrjaðir að þjösnast við að gera að veruleika þetta hörmulega úrelta og óréttmæta skipulag sitt. En þá rifjar maður upp þá sögulegu staðreynd að oft hefur óheppilegum atburðum verið afstýrt á síðstu stundu. Því það er aldrei of seint að skipta um skoðun. En til þess þarf vissulega mikið hugrekki, hið svokallaða borg- aralega hugrekki sem öll pólitísk nýsköpun veltur á. Undirskriftir í mótmælaskyni eru mikilvæg lýðræðisleg athöfn jafnvel þótt þær séu hundsaðar. Því ef mótmælin eru ekki mynduð og skjalfest, þá er eins og þau hafi ekki átt sér stað. Hverju eigum við þá að svara börnunum okkar þegar þau spyrja okkur hvort við höfum virkilega horft orðalaust upp á eyði- leggingu borgarinnar? Og ef við slysumst til að svara þeim, þegar þau biðja okkur um málefnalega réttlætingu á gjörðum okkar: „Af því bara og spurðu nú ekki svona mikið litli grís“, þá munu þau ekki einu sinni hafa undirskriftalistann sem fordæmi um að hægt sé að gagnrýna slík svör! Það er aldrei of seint að krefjast opinnar og faglegrar umræðu. En það verður hins vegar orðið of seint að skapa gott lýðræðislegt fordæmi fyrir framtíðina þegar lýðræðið hef- ur þá þegar verið gert að stein- gerðu ginningarfífli. Ég vil hvetja alla þá sem láta sig varða opna um- ræðu um skipulagsmál og borg- armyndun nýrra tíma, til að virkja borgararétt sinn og skrifa undir mótmæli við ómálefnalega og ótímabæra færslu Hringbraut- arinnar og krefjast þess að þessi umdeilda framkvæmd verði borin undir atkvæði borgaranna í kjölfar kynningar á ólíkum sjónarmiðum um frekari framkvæmdir. Lýðræðið: Opið og frjótt ferli eða steingert ginningarfífl? Oddný Eir Ævarsdóttir fjallar um lýðræði og skipulagsmál ’Það er aldrei of seintað krefjast opinnar og faglegrar umræðu. ‘ Oddný Eir Ævarsdóttir Höfundur er rithöfundur og doktorsnemi í mannfræði og pólitískri heimspeki. FORMAÐUR Blaðamannafélags Íslands, Róbert Marshall, sendi fjölda kollega sinna í blaða- mannastétt tölvupóst á dögunum þar sem hann hvatti þá til að beita sér fyrir því að sem flestir tækju þátt í áskorun til forseta Ís- lands um að undirrita ekki fjölmiðlalögin svo- kölluðu. Formaðurinn fór mikinn í bréfinu og sagði meðal annars: „Sé fólk fylgjandi frumvarpinu, fáið það samt til að skrifa undir sem persónulegan greiða við ykkur.“ Það kemur sjálfsagt illa við flesta að sjá aðstand- endur undirskrifta- söfnunar hvetja til þess að niðurstöður hennar verði falsaðar með þessum hætti, en eftir að hafa starfað við blaðamennsku í nokkur ár og þar með greitt félagsgjöld til Blaðamannafélagsins kom þessi framganga formannsins sérstaklega illa við undirritaðan. Lét ég þetta þó yfir mig ganga eins og menn gera oft. Þegar ég svo las í Morgunblaðinu í gær að haft var eftir formanninum að eins og í öðrum undirskriftasöfn- unum sé treyst á heiðarleika manna, þá verð ég að viðurkenna að mér var öllum lokið. Formaðurinn hafði hvatt til þess að undirskriftalistarnir yrðu falsaðir, en var síðan svo ósvífinn að tala um að treysta yrði á heiðarleika við söfnun undirskriftanna. Undirskriftasöfnunin hefur aðallega farið fram á Netinu þar sem afar auðvelt er fyrir óvandaða menn að falsa niðurstöður. Hún fór hægt af stað þrátt fyrir mikla kynningu, en und- arlegur kippur – svo ekki verði meira sagt – kom í söfnunina á síð- ustu klukkustundum hennar. Þessari söfnun, sem formaður Blaða- mannafélagsins hefur með framgöngu sinni gert fullkomlega ótrú- verðuga, á svo að halda að forseta Íslands í því skyni að fá hann til að undirrita ekki fjölmiðla- lögin. Öll framganga formanns Blaða- mannafélagsins í þessu máli er með miklum ólíkindum og hefur vitaskuld orðið til þess að skaða trúverðugleika félagsins. Ég vona að Blaðamanna- félagið muni vinna traust mitt og ann- arra á ný, en á meðan félagið sættir sig með þögn og aðgerðarleysi við vinnubrögð formannsins get ég ekki annað en tekið mér hvíld frá stuðn- ingi við starfsemi þess. Formaðurinn og undirskriftasöfnunin Haraldur Johannessen skrifar um undirskriftasöfnun vegna fjölmiðlalaga Haraldur Johannessen ’Formaðurinnhafði hvatt til þess að undir- skriftalistarnir yrðu falsaðir.‘ Höfundur er blaðamaður á Morgunblaðinu. REYKJAVÍK skákhöfuðborg heimsins, hljómar spennandi og skemmtilega í eyrum, ekki síst vegna þess að nú virð- ist það raunhæfur möguleiki og innan seilingar. Ég held að það hafi ekki hvarflað að nokkrum manni, fyrir nokkrum árum síðan að slíkt gæti gerst hér í fámenninu á Íslandi. En nú virðist þetta vera að gerast fyrir tilstilli Hróksins með Hrafn Jökulsson í broddi fylkingar. Ef haft er í huga að árið 2003 voru haldin tíu of- urskákmót í heiminum og þrjú af þeim voru skipulögð af Hróknum þá hljómar „Reykjavík skákhöfuðborg heims- ins“ ekki lengur eins og fjarlæg óskhyggja heldur einmitt eitt- hvað sem gæti raun- verulega gerst. Til gamans má geta þess að eitt af þessum þremur skákmótum sem haldin voru árið 2003 var minning- armótið um Guðmund J. í Borg- arleikhúsinu, það var sterkasta at- skákmót heimsins í 2 ár Þetta vekur mikla og jákvæða athygli víða um heimsbyggðina og margt verið skrif- að í erlend blöð og tímarit um þessa merkilegu og einstöku skákvakn- ingu sem þetta unga skákfélag stendur fyrir. Þetta er allt gott og blessað, en það sem mér finnst mest um vert í þessu Grettistaki sem Hrókurinn lyftir í skák- menningu á Íslandi og víðar er að barnastarfið hefur alltaf verið í aðal- hlutverki. Edda útgáfa og Hrókurinn hafa gef- ið öllum 8 ára börnum á landinu bókina „Skák og mát“ að gjöf sl. 2 ár. U.þ.b. 11.000 eintök. Farið í hvern einasta grunnskóla á landinu og fært börnunum bókina og efnt til skákhátíðar þar sem stórmeistarar á vegum Hróksins heimsækja börnin, tefla fjöltefli og halda nám- skeið. Það er ástæða til að gleðjast þar sem skákin eflir marga jákvæða eiginleika, má þar nefna t.d. rökhugsun, yfirveg- un, þolinmæði, háttvísi (ekki síst gagnvart and- stæðingi sínum), kurt- eisi og fyrirhyggju. Ég óska Hróknum til hamingju með árang- urinn hingað til og vonast til að þetta skapandi og skemmtilega starf megi vaxa og dafna um ókomna tíð. Skákhöfuðborg heimsins Guðmundur Jónas Haraldsson skrifar um skák Guðmundur Jónas Haraldsson ’Ef haft er íhuga að árið 2003 voru haldin tíu ofurskákmót í heiminum og þrjú af þeim voru skipulögð af Hróknum …‘ Höfundur er leikari og leikstjóri. ÖLL þekkjum við orð um fyr- irbæri sem aldrei hafa verið til. Sem dæmi má nefna tröllskessur, Lagarfljótsorm og fljúgandi diska. Nú hefur nýtt hugtak bæst í þennan flokk, svigrúm til skatta- lækkana. Rauði þráð- urinn í áróðri stærstu stjórnmálaflokkanna fyrir síðustu Alþing- iskosningar reynist ef að er gáð sama eðlis og þráðurinn í klæð- um keisarans í æv- intýri H. C. And- ersens. Blekkingavefur spunninn úr trúgirni. Svigrúm til skatta- lækkana verður að skilgreina með hliðsjón af stöðu ríkissjóðs og sjóða sveitarfélaganna og því hvað þorri kjósenda vill láta það op- inbera annast. Miðað við fréttir síðustu vikna vantar a.m.k. tíu milljarða til þess að standa undir rekstri sem enginn ágreiningur er um. Mestu munar um fé sem vant- ar til þess að heilbrigðis- og menntakerfið geti svarað eft- irspurn með sama hætti og verið hefur. Ég leyfi mér að fullyrða að almennur vilji er til þess að sam- dráttur í rekstri sjúkrahúsa verði ekki varanlegur, hjúkrunarheim- ilum fjölgi og að tekið verði við öllum sem sækja um framhalds- og háskólanám í haust. Og vænt- anlega er góð samstaða um það að stöðva beri skuldasöfnun sveitar- félaga. Fréttir voru að berast af 1,2 milljarða halla á rekstri höf- uðborgarinnar árið 2003. Halla- rekstur borgarinnar og sveitarfé- laga almennt gæti aukist verulega ef samningar um laun grunnskóla- kennara enda nálægt nýjustu kröfum þeirra. Með því að líta bara á þessa útgjaldaliði blasir við þeim sem vilja sjá að svokallað svigrúm til skattalækkana er ekki til. Það sem hér hefur verið nefnt bendir fremur til nauðsyn hækkunar en svig- rúms til lækkunar á sköttum. Málið ber líka að skoða í því ljósi að fátt er nú eft- ir af eignum sem hið opinbera getur selt til að standa undir líf- eyrisskuldbindingum sem enn bíða úrlausn- ar. En fleira kemur til. Verkefni, sem líklegt er að mik- ill meirihluti fólks vilji að hið op- inbera leggi meira fé til, eru fjöl- mörg. Eitt hefur Morgunblaðið bent á í framhaldi af skýrslu um fátækt á Íslandi sem nýlega var dreift á Alþingi. Í leiðara 7. maí er tekið undir það sem segir í skýrsl- unni að „tekjutengja [mætti] leik- skólagjöld og létta þannig undir með fátæku barnafólki ...“. Í rök- stuðningi blaðsins er bent á gildi þess frá jafnréttissjónarmiði að létta þennan kostnað „því ein- stæðir foreldrar, að miklum meiri- hluta til konur, eru einn fjölmenn- asti hópurinn sem nýtur fjárhagsaðstoðar og því ljóst að ef létt væri undir með þeim varðandi leikskólagjöld mundi það skapa þeim mun betra tækifæri til náms eða þátttöku í atvinnulífinu“. Ég held að mikill meirihluti lands- manna hljóti að vilja stíga skref sem bæði eykur jafnrétti og dreg- ur úr fátækt. Enda þótt það kosti sitt. Sama gildir um það að efla stofnanir sem gæta almannahags- muna, allt frá Samkeppnisstofnun til Ríkisútvarps. Er ekki nauðsyn þess ljósari en nokkru sinni eftir að greint var frá því að Sam- keppnisstofnun væri farin að milda viðurlög sín vegna þess hve rannsóknir taka langan tíma? Og gildi Ríkisútvarps við að tryggja fjölbreytni og þjóna markmiðum sem tengjast lýðræði og menningu ætti að vera ljósara en nokkru sinni fyrr eftir umræðu undanfar- inna vikna um fjölmiðlalög. Að lokum ætla ég að biðja stjórnarandstöðuna lengstra orða að hætta að stríða stjórninni með því að ekki sé farið að framkvæma kosningaloforð um skattalækkanir. Það er mikilvægara að vernda vel- ferðarkerfið, draga úr fátækt og auka jafnrétti en að koma höggi á þann sem liggur. Virðing og trú- verðugleiki valdhafanna og stjórn- arandstöðunnar hlýtur að hvíla á raunsæju mati á því sem þjónar almannahag. „Svigrúm til skattalækkana“ – blekking eða veruleiki? Hörður Bergmann skrifar um skattamál ’Með því að líta bara á þessa útgjaldaliði blasir við þeim sem vilja sjá að svokallað svigrúm til skattalækkana er ekki til.‘ Hörður Bergmann Höfundur er kennari og rithöfundur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.