Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Eggjaverð ákveðið | Verðlagsráð Bjarg-
veiðimannafélags Vestmannaeyja hefur
komið saman og tilkynnt verð á eggjum og
lunda, að því er fram
kemur á fréttavefjum
blaðanna í Vest-
mannaeyjum. Sagt er
að um sé að ræða lág-
marksverð.
Fýls- og svartfugl-
segg munu kosta 95
krónur stykkið. Lundi
í fiðri mun kosta 95
krónur og hamflettur
verður boðinn á 125
krónur stykkið í öskju.
„Þess skal til gam-
ans getið að sambærileg villibráð sem kall-
ast rjúpa kostaði síðast þegar hún var á
opnum markaði 490 krónur stykkið,“ segir í
fréttatilkynningu frá Bjargveiðimanna-
félagi Vestmannaeyja.
Húsið | Haukur Hauksson hefur verið
ráðinn forstöðumaður Hússins á Egils-
stöðum, menningarhúss fyrir ungt fólk.
Haukur hefur starfað sem ungmennaráð-
gjafi hjá Rauða krossi Íslands í Reykjavík
undanfarin ár og m.a. lokið BA-prófi í sál-
fræði frá Háskóla Íslands. Haukur mun
flytja austur innan skamms með fjöl-
skyldu sinni og tekur við stöðunni 1. júní.
Á þriðjudagskvöld var boðað til opins
fundar ungs fólks á aldrinum 16–25 ára í
aðstöðu Rauða krossins við Miðás og
kynnti Haukur þar málefni hússins og sig
sjálfan. Þá voru einnig kjörnir fulltrúar í
húsráð Hússins.
Dagur hinna villtublóma verðurhaldinn um öll
Norðurlönd þann 13. júní
næstkomandi. Hér á landi
verður haldið upp á dag-
inn í fyrsta sinn. Fyr-
irhugað er að bjóða fólki
upp á tveggja tíma göngu-
ferð úti í náttúrunni með
leiðsögn um villtar plöntur
á ýmsum stöðum á land-
inu.
Flóruvinir sem halda
upp á daginn hér á landi
vonast til að hægt verði að
bjóða upp á leiðsögn sem
víðast um landið. Unnið er
að undirbúningi á nokkr-
um stöðum, meðal annars
á Flúðum, Hvanneyri,
Bolungarvík, Ísafirði,
Sauðárkróki, Dalvík og
Akureyri. Fleiri staðir
bætast örugglega við fljót-
lega. Frekari upplýsingar
á www.floraislands.is.
Dagur villtra
blóma
Í tilefni af degi aldr-aðra var haldin sýn-ing á handavinnu
eldri borgara í Dala-
byggð. Sýningin var hald-
in á Dvalarheimilinu Silf-
urtúni og var mikið af
fallegum munum þar að
sjá. Meðal þess sem hægt
var að skoða var mál-
verkasýning Haraldar
Árnasonar, fyrrv. sýslu-
skrifara í Búðardal, og
voru þar myndir málaðar
víðs vegar úr Dölum og
Borgarfirði. Kvenfélagið
Þorgerður Egilsdóttir
bauð upp á kaffi og með
því og komu margir í
heimsókn í tilefni dagsins.
Haraldur Árnason var með málverkasýningu.
Handverkssýning
eldri borgara
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Kristján Bersi Ólafs-son hefur sérstaktdálæti á vísum
með rímorðunum fórn og
stjórn, því vandfundin eru
fleiri orð sem ríma við
þau. Sjálfur notaði hann
rímið einu sinni í vísu á að-
alfundi félags, þar sem
sama stjórnin hafði setið
óbreytt um árabil og tals-
vert var rætt um end-
urnýjum í einkasamtölum
fundarmanna. En þegar
kom að kosningu var
stjórnin endurkjörin ein-
róma. Kristján orti:
Til yfirbóta er gott að færa fórn,
af fúsum vilja leggja um háls sér
klafa,
og endurkjósa einum rómi stjórn
sem enginn vill í raun og veru
hafa.
Í vísunni segir Kristján að
greina megi enduróm af
vísu, sem ort var í aðdrag-
anda stjórnarmyndunar
Stefáns Jóhanns Stef-
ánssonar 1947.
Marga skyldi ég færa fórn
til friðþægingar syndar,
en aldrei þá að styðja stjórn
sem Stefán Jóhann myndar.
Stjórn og fórn
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | „Hvað gera
bændur?“ spyrja Spaðarnir í
nýlegum slagara og smellnum
texta svo sem þeim er lagið.
Sauðburði er langt til lokið í
Mývatnssveit. Þegar aftur sér
til sólar og bregður til betri
veðráttu reka bændur lambféð
í beitarhólf. Hér er Vogafólk
að reka síðustu lambærnar.
Sauðburður hefur almennt
gengið vel og hagræðing hjá
sumum orðin slík að ærnar
bera mjög þétt. Þykir það til
bóta að þannig tekur sauð-
burðurinn skemmri tíma en
áður var. Svo lýkur einni önn
hjá bændum og annað bjástur
kallar. „Margs þarf búið við,
frændi,“ mælti Sighvatur á
Grund forðum.
Morgunblaðið/BFH
„Hvað gera bændur?“
Vorverkin
TVENNIR útskriftartónleikar hafa verið
haldnir að Heimalandi á vegum Tónlistar-
skóla Rangæinga.
14. maí sl. héldu söngnemendurnir Anna
Lilja Torfadóttir sópran og Helga Guð-
laugsdóttir sópran sameiginlega útskrift-
artónleika. Kennari Önnu Lilju er Margrét
Stefánsdóttir og Helga nam söng hjá
Hrólfi Sæmundssyni. Undirleikari var
Guðjón Halldór Óskarsson á píanó. Einnig
komu fram: Torfi Geir Símonarson saxó-
fónn, sem er sonur Önnu Lilju, Karen Ýr
Sæmundsdóttir þverflauta og Sigríður
Viðarsdóttir sópran.
Þá hélt Berglind Hilmarsdóttir útskrift-
artónleika á píanó. Berglind hefur um ára-
bil numið við Tónlistarskóla Rangæinga,
kennari hennar er Hédi Maróti. Hún flutti
verk m.a. eftir Bach og Mozart ásamt því
að leika undir söng og hljóðfæraleik. Á tón-
leikunum komu einnig fram: Nafnlausi
sönghópurinn undir stjórn Eyrúnar Jón-
asdóttur og Hannesar Birgis Hannessonar
við undirleik Hédi Maróti ásamt Guðríði
Júlíusdóttur sópran, László Czenek
franskt horn og Hédi Maróti sem spilaði
fjórhent með nemanda sínum.
Tvennir
útskriftar-
tónleikar
Útskrift: Guðjón Halldór Óskarsson und-
irleikari, Helga Guðlaugsdóttir sópran og
Anna Lilja Torfadóttir sópran.
Heiðin opnuð | Þorskafjarðarheiði hefur
verið opnuð bílaumferð en mokað var í
gegnum snjóskafla á heiðinni í fyrradag.
Ástand heiðarinnar er furðugott miðað við
árstíma, segir á fréttavef BB á Ísafirði.
Þorskafjarðarheiði er nokkuð fjölfarinn
sumarvegur.
Jón Hörður Elíasson, rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar á Hólmavík, segir í sam-
tali við vefinn að á næstu dögum verði
reynt að hefla yfir stærstu holurnar og eft-
ir það verði hún þokkalega fær. Þó verði
fimm tonna öxulþungi aðeins heimilaður
fyrst í stað.
Rætt um kaup á hitaveitu|Byggðaráð
Sveitarfélagsins Skagafjarðar ræddi á síð-
asta fundi sínum hugsanleg viðskipti með
hitaveitu Blönduóss. Á Heimaslóð Skagfirð-
ingsins kemur fram að svo virðist sem Skag-
firðingar hafi áhuga á að kaupa hitaveituna.
Byggðaráðið beindi því til stjórnar Skaga-
fjarðarveitna ehf. að kanna málið.
Á fundi hafnar- og veitunefndar Blöndu-
óss á dögunum var kynnt bréf rafmagns-
veitustjóra Rafmagnsveitna ríkisins þar sem
RARIK óskar eftir viðræðum við fulltrúa
Blönduóssbæjar um veiturekstur á Blöndu-
ósi og nágrenni. Í fundargerð kemur einnig
fram að hitaveitumálin voru einnig rædd frá
ýmsum hliðum, meðal annars áhuga nær-
liggjandi hreppa að tengjast hitaveitunni.
Mínstund frett@mbl.is