Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ STJARNAN stefnir að því að senda kvennalið sitt í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik á næstu leiktíð, að sögn Halldórs Ingólfssonar, formanns kvennaráðs Stjörnunnar. „Það er á hreinu að við sendum lið til keppni, ann- aðhvort í EHF-keppnina eða Áskorenda- keppnina, það fer allt eftir því hvort Valur verður með eða ekki en Valur á réttinn á senda lið í EHF-keppnina sem er meira spenn- andi keppni,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær en hann reiknar með að endanleg ákvörðun liggi fyrir um næstu mán- aðamót. Halldór sagði að mikill áhugi ríkti innan kvennaliðsins og ráðsins vegna þátttök- unnar og sagðist hann ekki kvíða því að þátt- takan yrði fjárhagslegur baggi á deildinni. „Við erum með góða bakhjarla og erum auk þess þegar farnir að vinna í fjáröflun,“ sagði Halldór sem einnig hefur sett stefnuna á að fara með fjölmenna og vaska sveit kvennaliðs Stjörnunnar í æfinga- og keppnisferð til Ála- borgar í lok ágúst. „Það var einnig farið í fyrra og sú ferð heppnaðist einkar vel.“ Kristín til liðs við Stjörnuna Kristín Guðmundsdóttir, landsliðsmaður í handknattleik, hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna, en hún hefur leikið í Danmörku undanfarin ár, fyrst með Virum og nú síðast Tvis/Holstebro. „Við erum mjög ánægð með að fá Kristínu í okkar raðir, í henni er mikill liðsstyrkur,“ segir Halldór sem horfir björtum augum fram á næstu leiktíð í kvennahand- knattleiknum. Hann reiknar með að halda þeim mannskap sem lék með liðinu á síðustu leiktíð, en þá féll Stjarnan úr keppni í undan- úrslitum Íslandsmótsins eftir hörkuleiki við Val. Stjörnustúlkur stefna á þátttöku í Evrópukeppninni ÞAÐ má með sanni segja að sagan endurtaki sig. Fyrir 26 árum léku tveir ungir handknattleiksmenn sinn fyrsta landsleik gegn Færeyingum, 1978. Það voru þeir Atli Hilmarsson, Fram, og Andrés Kristjánsson, Haukum – Atli lék sem skytta vinstra megin, Andrés á línunni og í horni. Um sl. helgi í Antwerpen í Belgíu léku tveir ungir leikmenn saman með landsliðinu – Arnór, sonur Atla, og Kristján, sonur Andrésar, sem léku sinn fyrsta landsleik. Arnór leikur sem skytta vinstra megin, Kristján sem leikstjórnandi. Kristján er leikmaður með sænska liðinu GUIF í Eskilsstuna, en þess má geta til gamans að þegar Andrés lék sinn síðasta landsleik fyrir 20 árum, þá var hann leikmaður með GUIF. Þá lék hann gegn Ísrael í Pol- ar Cup í Drammen í Noregi – kom hann þá inn í landsliðið fyrir Atla. Andrés lék sjö landsleiki á árunum 1987–1984, Atli lék 133 landsleiki á árunum 1978–1989. Þess má einnig geta að bróðir Andrésar lék með landsliðinu á árum áður – Logi, fyrrverandi markmaður Hauka og FH. Arnór og Kristján í fótspor feðranna RÓBERT Gunnarsson var fyrirliði íslenska landsliðsins í handknatt- leik á mótinu í Belgíu um sl. helgi, í leikjum gegn Túnis, Serbíu/ Svartfjallalandi og Danmörku. Hann var í fyrsta skipti með fyr- irliðabandið og skoraði 10 mörk í fyrsta leiknum, sem hann bar band- ið – gegn Túnis. Róbert er fyrsti landsliðsmaðurinn sem skorar 10 mörk í leik gegn Túnis og Ásgeir Örn Hallgrímsson varð fyrstur til að skora 10 mörk í leik gegn Serb- íu/Svartfjallalandi. 28 landsliðs- menn hafa skorað tíu eða fleiri mörk í landsleik. Róbert var fjórði línumaðurinn til að vinna það afrek, en áður höfðu línumennirnir Stefán Gunn- arsson, Val, Birgir Sigurðsson, Fram, og Sigfús Sigurðsson, Magdeburg, skorað tíu mörk eða fleiri í landsleik. Ásgeir Örn var fjórða vinstri- handarskyttan til að skora 10 mörk í landsleik. Áður hefur Ólafur Stef- ánsson skorað 11 sinnum tíu mörk eða fleiri í leik, Kristján Arason níu sinnum og Sigurður Valur Sveins- son fimm sinnum. Róbert var fyrirliði KNATTSPYRNA Landsbankadeild Fram – ÍA ..................................................0:2 Ríkharður Daðason (sjálfsmark) 21., Stef- án Þórðarson 53. Staðan: Keflavík 2 2 0 0 5:2 6 ÍA 3 1 2 0 3:1 5 Fram 3 1 1 1 4:3 4 Fylkir 2 1 1 0 2:1 4 KA 2 1 0 1 2:2 3 FH 2 1 0 1 1:1 3 ÍBV 2 0 2 0 2:2 2 Grindavík 2 0 2 0 1:1 2 KR 2 0 0 2 1:4 0 Víkingur R. 2 0 0 2 0:4 0 1. deild kvenna A Haukar – Ægir ..........................................0:0 1. deild kvenna C Fjarðabyggð – Sindri................................3:3 Vináttulandsleikur Austurríki – Rússland...............................0:0 HANDKNATTLEIKUR Austurríki – Ísland 26:27 Aþena, vináttulandsleikur karla, þriðju- daginn 25. maí. Mörk Íslands: Jaliesky Garcia 6, Guðjón Valur Sigurðsson 5, Einar Ö. Jónsson 5, Patrekur Jóhannesson 3, Snorri S. Guð- jónsson 3, Róbert Sighvatsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1, Ólafur Stefánsson 1. KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Indiana – Detroit .................................. 67:72  Staðan er 1:1. ÚRSLIT Aðalfundur Fram Aðalfundur knattspyrnufélagsins Fram verður haldinn í íþróttahúsi Fram við Safa- mýri fimmtudaginn 3. júní kl. 18. FÉLAGSLÍF Fram 0:2 ÍA Leikskipulag: 3-5-2 Landsbankadeild karla, 3. umferð Laugardalsvöllur Þriðjudaginn 25. maí 2004 Aðstæður: Austan kaldi, skýjað og 11 stiga hiti. Völlurinn þokka- legur. Áhorfendur: 1.213 Dómari: Kristinn Jakobsson, KR, 3 Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson, Gunnar Gylfason Skot á mark: 6(0) - 13(7) Hornspyrnur: 5 - 9 Rangstöður: 0 - 2 Leikskipulag: 4-4-2 Gunnar Sigurðsson Andrés Jónsson Hans Fróði Hansen Eggert Stefánsson M Ragnar Árnason Fróði Benjaminsen Þorvaldur Makan Sigbjörnsson (Viðar Guðjónsson 59.) Ingvar Ólason M Andri Steinn Birgisson Ríkharður Daðason (Heiðar Geir Júlíusson 78.) Andri Fannar Ottósson (Tómas Ingason 53.) Þórður Þórðarson Hjálmur Dór Hjálmsson M Reynir Leósson M Gunnlaugur Jónsson Andri Lindberg Karvelsson M Julian Johnsson M Pálmi Haraldsson Kári Steinn Reynisson Haraldur Ingólfsson M (Guðjón H. Sveinsson 68.) Grétar Rafn Steinsson M (Alen Marcina 82.) Stefán Þ. Þórðarson M (Hjörtur J. Hjartarson 63.) 0:1 (21.) Haraldur Ingólfsson tók hornspyrnu frá hægri. Reynir Leósson skall- aði knöttinn í átt að marki en Ríkharður Daðason rak fótinn út og af honum fór boltinn í netið. 0:2 (55.) Stefán Þór Þórðarson skoraði með skalla eftir hornspyrnu Kára Steins Reynissonar. Gul spjöld: Hans Fróði Hansen, Fram (34.) fyrir brot  Julian Johnsson, ÍA (80.) fyrir brot  Rauð spjöld: Gunnar Sigurðsson, Fram (53.) fyrir brot  Austurríkismenn höfðu undirtökinlengi vel í leiknum. Þeir höfðu 14:11 yfir í leikhléi og náðu mest fimm marka forskoti en Íslendingar náðu að knýja fram sigur undir lokin. „Það verður bara að segjast eins og er að þetta var alls ekki góður leik- ur af okkar hálfu. Það vantaði mikinn neista í strákana og hugarfarið hjá þeim var ekki rétt,“ sagði Einar Þor- varðarson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, við Morgunblaðið í gær. Einar sagði að leikur íslenska liðs- ins hafi verið undir meðallagi á flest- um sviðum. Sóknin hafi verið mistæk, vörnin gloppótt og markvarslan fremur slök. „Strákarnir verða bara að gera sér grein fyrir að þeir geta ekki spilað áfram á þessum forsendum. Við höf- um ekki verið allir saman síðan á EM og það er kannski ein skýring á að menn virtust vera hálfryðgaðir í sam- vinnu við hver annan og þá er kannski einhver þreyta hjá sumum leikmanna þar sem deildarkeppni er nýlokið á mörgum stöðum. Ég held að menn átti sig alveg á því að þeir spiluðu undir getu og vonandi koma þeir betur stemmdir til leiks á móti Grikkjunum. Það verður erfiðara verkefni en leikurinn við Austurrík- ismenn enda þótt þeir hafi barist mjög vel gegn okkur og verið skipu- lagðir. Grikkir eru á mikilli uppleið og ég held að þeir geti gert skemmti- lega hluti á ólympíuleikunum,“ sagði Einar. Jaliesky Garcia var markahæstur í íslenska liðinu með 6 mörk og horna- mennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson skoruðu 5 mörk hvor. Birkir Ívar Guðmunds- son stóð lengst af í markinu og náði sér ekki á strik frekar en Björgvin Gústavsson sem fékk að spreyta sig hluta af leiknum. Róbert Gunnars- son, Gylfi Gylfason og Ragnar Ósk- arsson komu ekkert við sögu í leikn- um. Landsliðið hitar upp fyrir HM-leiki gegn Ítölum í Aþenu Slakt en sigur gegn Austurríki ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik bar sigurorð af Austurrík- ismönnum, 27:26, í vináttuleik í Aþenu í Grikklandi í gær. Þetta var fyrri undirbúningsleikur íslenska liðsins fyrir leikinn á móti Ítölum í undankeppni HM, sem fram fer um næstu helgi, en í kvöld mætir liðið Grikkjum í æfingaleik í Aþenu. Morgunblaðið/Sverrir Jaliesky Garcia og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu flest mörk gegn Austurríkismönnum í Aþenu. VIÐAR Guðjónsson leik- maður Fram fór líklega úr axlarlið í leik liðsins gegn ÍA í gær. Viðar kom inná sem varamaður á 59. mínútu en meiddist undir lok leiksins eftir samstuð við einn leikmann ÍA. Við- ar var fluttur á slysa- móttöku í sjúkrabifreið eftir leikinn í gær og benti allt þess að Viðar verði frá keppni og æfing- um í einhvern tíma vegna meiðslanna. Ríkharður Daðason framherji Fram meiddist á ökkla í leiknum gegn ÍA og gat hann ekki tekið þátt í leiknum eftir að hann meiddist, en meiðsli hans eru ekki talin vera alvarleg. Viðar úr axlarlið FRAKKINN Fabrice Santoro fór með sigur af hólmi í lengsta tenn- isleik sögunnar sem hófst á mánu- dag en lauk í gær. Viðureign hans við Arnauld Clement var hluti af fyrsta stórmóti ársins í tennis, Opna franska meistaramótinu á Roland Garros-vellinum í París. Það tók Santoro 6 tíma og 33 mín- útur að leggja Arnauld Clement að velli en hann er einnig franskur. Reyndar hófst leikurinn á mánudag en fresta þurfti leiknum í stöðunni 5:5. Þegar þeir félagar tóku upp þráðinn í gær var enn mjótt á mun- unum og það var ekki fyrr en í stöð- unni 14:14 að Sontoro náði yf- irhöndinni og landaði sigri. Gamla metið var frá árinu 1982 í Davis-Cup keppninni þar sem að Bandaríkjamaðurinn John McEnroe og Svíinn Mats Wilander áttust við. Sú viðureign stóð yfir í 6 tíma og 22 mínútur. Á Opna franska meistaramótinu fyrir nokkrum árum áttust við Alex Corretja og Tim Henman í leik sem stóð yfir í 5 tíma og 31 mínútu. „Ég hafði ekki hugmynd um að met væri í uppsiglingu. Þessi leikur hefði getað orðið enn lengri þar sem við vorum gríðarlega jafnir í dag. Við fengum báðir tækifæri til þess að tryggja okkur sigur en það var ég sem hafði heppnina með mér í dag,“ sagði Santoro. Lengsti tennisleikur sögunnar í París
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.