Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ársfundur Ársfundur Samvinnulífeyrissjóðsins verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 27. maí 2004, kl. 17:00. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf. • Önnur mál. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum. Þeir sem hyggjast sækja fundinn, eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku í síma 520 5500. Stjórnin. ENGINN teljandi munur virðist vera á fréttum Ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2 af fjölmiðlafrumvarpinu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem unnin var af Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri að beiðni Stöðvar 2. Í rannsókninni var leitast við að meta hvort munur væri á fréttaflutningi sjónvarpsstöðvanna tveggja og í hverju sá munur kynni að vera fólginn. Gagna var aflað frá tímabilnu 20. apríl, þegar frumvarpið var lagt fram, og fram til 7. maí. Á tímabilinu tók fréttaflutningur af fjölmiðlafrumvarpinu tæpar þrjár stundir samtals á báðum sjónvarps- stöðvunum. Tveir dómarar voru fengnir til þess að horfa á fréttirnar og færa mat sitt og aðrar upplýs- ingar inn á staðlað skárningarform. Dómararnir höfðu skýr fyrirmæli um að ræða ekki saman um frétt- irnar á meðan rannsókn stóð yfir. Frávik helst neikvæð Rannsóknin leiddi í ljós að lítill munur var á fréttaflutningi sjón- varpsstöðvanna tveggja af fjölmiðla- frumvarpinu á áðurgreindu tímabili. Stöð 2 varði meiri tíma til umfjöll- unar um málið og stærri hluta af fréttaútsendingartíma stöðvarinnar. Á móti kemur að Ríkissjónvarpið skipaði sínum fréttum af málinu framar og þær voru frekar hafðar með í yfirliti yfir helstu fréttir. Báðar sjónvarpsstöðvarnar virð- ast leitast við að fylgja einhvers konar hlutleysisstefnu í afstöðu sinni til málsins. Ef einhver frávik voru frá hlutlausum fréttaflutningi virtist það vera í þá átt að fjallað væri á neikvæðan hátt um frum- varpið. Helsta frávikið var hjá Rík- issjónvarpinu sem leitaði heldur til viðmælenda sem töluðu gegn frum- varpinu. Báðar sjónvarpsstöðvar ræddu þó við fulltrúa beggja sjón- armiða. Áherslur í umræðunni voru svip- aðar yfir tímabilið. Mest var fjallað um málsmeðferðina og takmörkun á eignarhaldi og en minnst áhersla var lögð á þjóðréttarlegar skuld- bindingar og takmörkun á málfrelsi. Samanburður á fréttaflutningi Stöðvar 2 og RÚV Lítill munur á fréttum Ef brugðið var út af hlutleysi í fréttaflutningi kom það fram í að fjallað var um fjölmiðlafrumvarpið á neikvæðan hátt.   !  ! "#$$ %$ "#$$!!& !!! $ !$ ' "#$$                   ()* ()( +(), +()* +()- +(). +()/     01 !&23!&$4" 0'&32!& ' 35 AXEL Jóhannes Schiöth skipstjóri lést á Heilbrigðisstofnun Suð- urlands, Selfossi, 14. maí sl., 74 ára að aldri. Axel fæddist á Siglu- firði 22. ágúst árið 1929. Foreldrar hans voru Aage R. Schiöth, lyfsali og konsúll á Siglufirði, og Guðrún Ellen Julsø Schiöth húsmóðir. Axel stundaði nám við Barna- og gagnfræða- skóla Siglufjarðar en hann tók gagnfræðapróf frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1948. Hann lauk far- mannaprófi frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík árið 1952 og skip- stjórnarprófi (B-5) frá Seefahrtschule í Cuxhaven árið 1970. Axel var skipstjóri á fyrsta íslenska skut- togaranum sem Ís- lendingar eignuðust, Siglfirðingur SI 150, sem var 300 tonna skuttogari er Axel keypti til landsins frá Noregi í félagi við aðra árið 1966. Axel var gerður að heiðursfélaga hjá Slysavarnafélagi Ís- lands árið 1942 fyrir frækilega björgun úr Siglufjarðarhöfn, þá aðeins 12 ára gamall. Eftirlifandi eiginkona Axels er Sigurbjörg Karlsdóttir Schiöth. Útför Axels var gerð frá Selfoss- kirkju laugardaginn 22. maí í kyrr- þey. Andlát AXEL J. SCHIÖTH HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær átta menn á aldr- inum 19–22 ára í tveggja til 14 mánaða fangelsi fyrir fjölda af- brota, aðallega innbrot og þjófnaði, sem framin voru á ár- unum 2002–2004 í Keflavík. Tveir mannanna, fæddir 1983 og 1984, fengu 12 og 14 mánuða dóm og þurfa að sitja refs- inguna af sér í fangelsi en refs- ing annarra var bundin skilorði til þriggja ára. Mennirnir voru ákærðir fyrir fjölda brota; m.a. vopnalaga- brot, umferðarlagabrot, fíkni- efnabrot, hylmingu, innbrot í verslanir, fyrirtæki og heimili þar sem þeir tóku alls kyns muni og varning ófrjálsri hendi; m.a. riffla, haglabyssur, skot, tölvur, myndbandstæki, arm- bandsúr, íþróttafatnað og íþróttaskó, sjónauka, og myndavélar. Þá voru tveir mannanna sak- felldir fyrir tilraun til ráns í söluturni við Kópavogsbraut í Kópavogi í nóvemberlok sl. Annar þeirra var og sakfelldur fyrir að hafa þrisvar tekið elds- neyti á bifreið sína, samtals fyr- ir um 14.000 krónur, á bensín- stöðvum í Hafnarfirði en ekið á brott án þess að greiða fyrir. Málið dæmdi Ólöf Péturs- dóttir dómstjóri. Verjendur ákærðu voru Hilmar Ingimund- arson hrl., Örn Clausen hrl., Lárentsíus Kristjánsson hdl., Sigmundur Hannesson hrl., Nökkvi Már Jónsson hdl. og Karl Georg Sigurbjörnsson hrl. Átta menn dæmdir fyrir fjölda afbrota “…enginn teljandi munur virðist vera á efnistökum eða afstöðu með eða á móti frumvarpinu.“ Þetta er niðurstaða Rannsóknastofnunar Há- skólans á Akureyri eftir að hafa borið saman fréttaflutning Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins af fjölmiðlafrum- varpinu á tímabilinu 20. apríl, þegar frumvarpið var fyrst kynnt í ríkis- stjórn, til 7. maí, þegar óskað var eftir rannsókninni. Undirrituð, frétta- stjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar, ósk- aði eftir þessari rannsókn vegna sí- endurtekinna fullyrðinga sumra stjórnmálamanna um að fréttamenn hér gengju erinda eigenda og stjórn- enda fyrirtækisins í umfjöllun um fjölmiðlafrumvarpið. Alhæfingum og dylgjum hefur ekki linnt. Ásökunum hefur verið kastað fram án þess að þær séu studdar rökum eða dæmum. Fréttamenn eru berskjaldaðir fyr- ir slíkum árásum. Þeir geta ekki var- ið hendur sínar á sama vettvangi. Þess vegna vildi ég fá óvilhalla rann- sókn á málinu og leitaði til Rann- sóknastofnunar Háskólans á Akur- eyri. Umfjöllun sjónvarpsfréttastof- anna var vegin og metin frá ýmsum hliðum, eins og sjá má í meðfylgjandi könnun. Sama er hvar á málið er litið. Hvergi er hægt að finna fyrrgreind- um fullyrðingum og ásökunum stað. Mér er það sönn ánægja að geta hreinsað fréttamenn hér af órök- studdum fullyrðingum um óheiðarleg vinnubrögð. Við kappkostum hér eft- ir sem hingað til að sinna starfi okkar af kostgæfni. Yfirlýsing frá Sigríði Árnadóttur Enginn teljandi munur SÍÐASTLIÐINN fimmtudag, upp- stigningardag, bauð Stangaveiði- félagið Lax-á, leigutaki Tungu- fljóts í Biskupstungum, félögum úr Stangaveiðifélaginu Ármönnum að veiða án endurgjalds í ánni. Var það liður í að kortleggja ána m.t.t. veiðistaða, en auk þess að geyma vænan silung hefur Lax-á uppi áform um að gera ána að laxveiðiá í anda Rangánna, þ.e.a.s. með sleppingu gönguseiða úr sleppi- tjörnum. Silungsveiði er í Tungufljóti, bæði urriði og bleikja, og er þar meira um gæði en magn, þ.e.a.s. fiskar eru frekar fáir en að sama skapi stórir og spennandi fyrir veiðimenn. Fáir hafa hins vegar veitt þar. Nokkur hópur Ármanna fór um ána á dögunum og eftir því sem komist er næst, þá var veiði nokkur. Lax-á sleppti gönguseiðum í fyrra og munu þær sleppingar verða margfaldaðar á næstu árum. Áætlað er að nota þann fisk sem veiðist fyrstu árin í klak og þannig koma upp heimastofni. Tungufljót er líkt og Rangárnar í kaldari kantinum og illa hentuð til uppeld- is á laxi. Þó hefur ávallt slæðst lax í ána fram að fossinum Faxa, sem er neðarlega í ánni. Í hann var gerður laxastigi fyrir fjölmörgum árum og þá stóð til undir forsjá Stangaveiði- félags Reykjavíkur, að rækta upp lax í ánni. Stiginn reyndist þó duga illa og seiði skiluðu sér illa. Verður stiginn lagfærður samhliða hinu nýja ræktunarátaki. Kortleggja Tungufljótið Morgunblaðið/Einar Falur ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.