Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRUMVARP félagsmála- ráðherra sem felur í sér verulegar breytingar á út- lánum Íbúðalánasjóðs var tekið til annarrar umræðu á Alþingi í gær. Í því er gert ráð fyrir að í stað þess að kaupendur fasteigna fái afhend húsbréf, eins og nú tíðkast, verði íbúðabréf boðin út á markaði og lán- takendur fái andvirði verð- bréfsins greitt út í pening- um. Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði grein fyrir nefnd- aráliti meirihluta félagsmálanefndar. Í máli hans kom fram að meginmarkmið breyting- anna, sem lagðar eru til á starfsemi Íbúða- lánasjóðs, er að gera sjóðnum kleift að bjóða hagstæðari lánakjör til viðskiptavina sinna og bæta þannig hag almennings í landinu. Vextir útlána sjóðsins muni verða mismunandi á milli tímabila þar sem þeir verða ákvarðaðir á grundvelli vaxtakjara sem ráðist í útboðum sjóðsins og fjármagnskjara vegna uppgreiðslu lána sjóðsins. Þannig megi gera ráð fyrir að aukinn áhugi og eftirspurn fjárfesta eftir skuldabréfum Íbúðalána- sjóðs skili sér í hagstæðari vöxtum til lántakenda að mati Guðlaugs. Skipt verði úr skuldabréfaskiptakerfi yfir í peningalánakerfi. Í greinargerð með frum- varpinu segir að með þess- um breytingum sé stefnt að því að bæta hag lántakenda sjóðsins bæði með lægri fjármögn- unarkostnaði og áhættuminni fasteignavið- skiptum. Húsbréfakerfið hafi verið við lýði í tæp fimmtán ár og almennt gefist vel þótt fyr- irkomlag viðskiptanna þyki flókið. Ávöxtunar- krafa fjárfesta á hverjum tíma hafi ráðið af- föllum eða yfirverði húsbréfanna sem hafi orsakað töluverða áhættu í fasteignaviðskipt- um sem íbúðakaupendur hafi borið. „Með þeirri kerfisbreytingu sem lögð er til í frum- varpinu er gert ráð fyrir að íbúðalán verði greidd út í peningum og áhrif affalla við sölu verðbréfa verði þar með úr sögunni. Lánin munu bera fasta vexti í samræmi við ávöxt- unarkröfu hverju sinni,“ segir í greinargerð- inni. Jákvæð kerfisbreyting Í nefndaráliti minnihluta félagsmálanefnd- ar, sem Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti fyrir segir að þó minnihlutinn sé jákvæður gagnvart þessari kerfisbreytingu séu gerðar athugasemdir við ýmis framkvæmdaratriði. Auk þess gagnrýnir minnihlutinn hversu stuttan tíma nefndin hafði til að fjalla um málið. Í máli Jóhönnu kom fram að óvíst sé hver vaxtaáhættan af nýjum íbúðabréfum verði fyr- ir Íbúðalánasjóð. Vaxtakjörin ráðist í útboði hverju sinni að viðbættu vaxtaálagi sem skapi mikla óvissu um hver lánskjör kaupenda og seljenda húsnæðis verði. Ljóst sé að vaxtaálag á lántakendur verði meginstýritækið til að verja Íbúðalánasjóð. Ekki sé hægt að slá því föstu að þessi breyting leiði til hagkvæmari húsnæðislána, ekki síst í ljósi óvissu um vaxta- álagsgreiðslur og framkvæmd á uppgreiðslu- ákvæðunum. Minnihluti félagsmálanefndar gagnrýnir harðlega ákvæði frumvarpsins um uppgreiðslu lánanna og vísar í umsögn Seðlabanka Íslands og Alþýðusambands Íslands. Er þar lýst að- stæðum, sem geta komið Íbúðalánasjóði illa, ef margir lántakendur greiða upp lán sín og end- urfjármagna með hagstæðari lánum. Gat komi þá í fjármögnun Íbúðalánasjóðs sem hann þyrfti að verjast með sérstöku uppgreiðslu- gjaldi. Erfitt að byggja Minnihlutinn vekur einnig athygli á því álitaefni hvenær þeir sem sækja um lán til ný- bygginga fái lánin greidd út. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fram hafi komið hafi verið uppi hugmyndir um að greiða lán til nýbygg- inga í nýju kerfi með eingreiðslu þegar fram- kvæmdum sé að fullu lokið. Verði það nið- urstaðan gæti það verið mjög íþyngjandi fyrir þá sem fá lán til nýbygginga sem á fram- kvæmdatímanum þyrftu að leggja í verulegan fjármagnskostnað með skammtímalántökum. Íbúðalán verði greidd út í peningum MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Björk Bjarnadóttur, fyrrverandi yfirlandverði í Herðu- breiðarlindum og Öskju. Í tilkynningunni segir: „Vegna þeirra orða sem höfð eru um mig í Morgunblaðinu í dag eftir Árna Bragasyni stjórnanda á Umhverf- isstofnun, vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Fánamálið, sem svo hefur verið kallað, kom ekki til umræðu að mínu frumkvæði á Alþingi. Ég tel það hins vegar til góðs að málið fái opna og málefnalega umræðu. Framlag Árna Bragasonar verður þó varla talið málefnalegt, því hann gerir tilraun til þess að drepa mál- inu á dreif með því að reyna að sverta mína persónu með dylgjum um óskyld efni. Það er rétt sem fram kom hjá Ögmundi Jónassyni alþingismanni að Umhverfisstofnun hafði í hótunum um að veita mér áminningu vegna fánamálsins og var það mál manna að þetta skyldi gert öðrum til viðvörunar. Síðan lék grunur á að þeir sem flögguðu í hálfa stöng 19. júlí í fyrra, yrðu ekki endurráðnir. Á þetta hefur nú reynt í einu tilviki og var viðkom- andi starfsmaður ekki endurráðinn. Það er í sjálfu sér fagnaðarefni að forsvarsmenn Umhverfisstofnunar blandi sér í opinbera umræðu, en óskandi væri að það yrði framvegis gert til að styðja við bakið á starfs- fólki en ekki til að níða niður æru þess.“ Björk vill bæta því við að þeir tveir landverðir, sem Árni Braga- son segir að hafi fengið vinnu, hafi ekki verið á meðal þeirra sem flögguðu í hálfa stöng, en Dagný Indriðadóttir hafi tekið þátt í því og ekki fengið vinnu. Yfirlýsing frá Björk Bjarnadóttur landverði EKKI liggur fyrir hvenær Alþingi lýkur störfum, en viðræður stjórn- ar og stjórnarandstöðu um það mál hafa enn ekki skilað nið- urstöðu. Í gær voru mörg mál á dagskrá, en ekki var þó sami hiti í umræðum og verið hefur síðustu daga meðan tekist var á um fjöl- miðlafrumvarpið. Hér sitja saman þingmenn Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson og Jón Gunnarsson. Enn er óljóst hve- nær þinglok verða Morgunblaðið/Árni Torfason ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna, segir að yfirvöld umhverfsimála á Íslandi hafi hótað landvörðum sem flögguðu í hálfa stöng 19. júní í fyrra til að lýsa hryggð sinni yfir óafturkræfum nátt- úruspjöllum við Kárahnjúka. Einum þeirra hafi verið hótað áminningu í starfi í bréfi frá Umhverfisstofnun sem ekki varð af eftir að starfsmað- urinn hafi snúið sér til síns verka- lýðsfélags. „Síðan kemur það á dag- inn núna að þeir landverðir, sem tóku þátt í þessum aðgerðum, og að- gerðirnar eru að flagga íslenska fán- anum í hálfa stöng, þeir fá ekki ráðn- ingu,“ sagði Ögmundur við upphaf þingfundar í gær. Siv Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra sagði þessa umræðu frá- leita og Ögmundur hefði hlaupið á sig þegar hann fjallaði um þetta í eldhúsdagsumræðunum í fyrra- kvöld. „Málið er þannig vaxið að það voru fimm landverðir í Herðubreið- arfriðlandinu. Tveir þeirra voru ráðnir, annar í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum, hinn í þjóðgarð- inum Snæfellsjökli. Tveir sóttu ekki um vinnu. Þá er einn eftir sem fékk ekki vinnu. Þetta eru nú allar ofsókn- irnar. Það fékk enginn áminningu eftir þetta svokallaða fánamál. Það var hins vegar litið á það svo, að það væri ámælisvert en það fékk enginn áminningu,“ sagði Siv. Hún vitnaði í bréf annars þeirra sem ekki sóttu um og sagði að hvergi hefði verið minnst á þetta fánamál. Þar væru tilgreindar ástæður sam- starfsörðugleikar milli landvarða og Ferðafélags Akureyrar. Einnig minnti hún á að ráðningar landvarða væru í höndum þjóðgarðsvarðar, Sigþrúðar Stellu Jónasdóttur. Eftir samtal við hana í gærmorgun hefði komið í ljós að þetta fánamál var ekki ástæðan fyrir því að einn land- vörður var ekki endurráðinn. Nokkrir stjórnarandstæðingar tóku þá til máls og sögðu þessar skýringar Sivjar ótrúverðugar. Vís- uðu þeir í bréf Umhverfisstofnunar, sem heyrir undir umhverf- isráðherra, skrifað af Davíð Egils- syni forstjóra, til landvarðar þar sem skýringa var óskað á atburðinum þegar landverðir flögguðu í hálfa stöng. Spurðu þingmenn hvort starfsmenn þessarar stofnunar mættu ekki tjá skoðanir sínar í sín- um frítíma. „Hvers konar þjóðfélag er þetta eiginlega? Hvað er að gerast á Íslandi?“ sagði Magnús Þór Haf- steinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Fundur í umhverfisnefnd Mörður Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar, sagði málið alvarlegt ef rétt væri. Því hefðu fulltrúar stjórnarandstöðunnar í umhverf- isnefnd ákveðið að krefjast fundar um þetta mál og boða ráðherra eða undirmann hans til að skýra málið betur. Segir landvörðum refsað fyrir að flagga í hálfa stöng Fráleit umræða, segir umhverfis- ráðherra ureyrar. Tveir þeirra hafi veriðráðnir við stofnunina í sumar, tveir sóttu ekki um og einn hafi ekki fengið vinnu. Inn á háskalegar brautir skoðanakúgunar „Ég fæ ekki betur séð en það sé í fyrsta lagi verið að reyna að drepa þessu máli á dreif. Og í öðru lagi og það er alvarlegur hlutur að sverta mannorð þessa fólks. Eins og greinilega kemur fram í gögnum í málinu þá stóð til að veita því fólki sem tók þátt í að flagga íslenska fánanum í hálfa stöng til að lýsa til- finningum sínum vegna Kára- hnjúkavirkjunar áminningu sem er undanfari brottreksturs úr starfi en eftir mikla rekistefnu þar sem lög- fræðingar verkalýðssamtakanna komu að var fallið frá því en þó gef- ið mjög streklega til kynna að stofnunin liti athæfi þeirra mjög al- varlegum augum. Og nú hefur það komið á daginn að landvörður sem tók þátt í þessum aðgerðum er ekki ráðinn til starfa. Þetta er morg- unljóst og ég fæ ekki betur séð en hér séu menn komnir inn á mjög háskalegar brautir við að beita fólk skoðanakúgun,“ segir Ögmundur. ÖGMUNDUR Jónasson, þingmað- ur VG, segir viðbrögð umhverfisyf- irvalda við ummælum sínum í eld- húsdagsumræðum í fyrrakvöld mjög alvarleg og dapurleg. Ög- mundur greindi frá því að land- vörðum sem í fyrrasumar hörmuðu Kárahnjúkavirkjun með því að draga fána í hálfa stöng hefði verið neitað um vinnu í sumar. For- stöðumaður náttúruverndarsviðs hjá Umhverfisstofnun vísar um- mælunum á bug og að einn af fimm starfsmönnum sem málið varði hafi ítrekað óhlýðnast fyrirmælum og átt í deilum við Ferðafélag Ak- Ögmundur Jónasson segir viðbrögð Umhverfisstofnunar í máli landvarðanna mjög alvarleg „Verið að reyna að drepa þessu máli á dreif“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.