Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 15

Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 15 www.toyota.is Corolla Verso. Hversu Verso viltu vera? Sjaldan hefur einn bíll boðið upp á jafn marga möguleika með jafn einföldum hætti. Með einu handtaki breytirðu Corolla Verso úr 2 manna flutningavagni í 7 manna fjölskyldubíl. Hvert sæti er sjálfstæð eining sem leggst alveg niður svo gólfflöturinn verður rennisléttur og jafn. Þetta þýðir að þú getur á einu augnabliki lagað innra rými bílsins algjörlega eftir þörfum hverju sinni. Aksturinn er léttur og lipur, hönnunin glæsilega rennileg og bíllinn hlaðinn öllum þeim hágæða- og öryggisþáttum sem kröfuharðir ökumenn ganga að sem vísum. Corolla Verso er byltingarkenndur 7 manna fjölskyldubíll. Í honum má finna Toyota-Full Flat 7 kerfið þar sem með einu handtaki má breyta Corolla Verso úr 2ja manna flutningavagni í 7 manna fjölskyldubíl. Corolla Verso er búinn 1,8 lítra VVT-i vél sem skilar 129 hestöflum við 6.000 snúninga. Hann er búinn VSC stöðugleikakerfi, 9 loftpúðum sem hlífa öllum farþegum bílsins, ABS hemlakerfi með BA. Corolla Verso er fáanlegur með hefðbundinni beinskiptingu eða rafstýrðri beinskiptingu og kostar frá kr. 2.229.000. Sportbíll að utan - 7 manna ættarmót að innan. Easy Flat-7® ÍS LE N SK A A U G L SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 24 40 6 0 4/ 20 04 RÚMLEGA 250 manns, hið minnsta, hafa látið lífið og þúsundir flúið heim- ili sín á eyjunni Hispaniola í Karíba- hafinu. Gríðarlegar hitabeltisskúrir hafa gengið yfir svæðið undanfarnar tvær vikur. Í gær hafði verið staðfest að 151 hefði týnt lífi á Haítí og í nágranna- ríkinu, Dóminíska lýðveldinu, hermdu fréttir að 104 hefðu farist. Verst varð bærinn Jimani í Dómin- íska lýðveldinu úti, þar var í gær vitað um 94 sem týnt höfðu lífi í náttúru- hamförunum. Í Dóminíska lýðveldinu hefur her- inn verið kallaður til björgunarstarfa og leitar nú eftirlifenda við skelfilegar aðstæður. Fólk grefur örvæntingar- fullt í aurnum í leit að ástvinum og ættingjum og líkin hrannast upp í bráðabirgðalíkhúsum. Tuga er sakn- að og líklegt að tala látinna muni hækka mikið á næstu dögum. Að minnsta kosti 14 bæir urðu rafmagns- lausir og hafa aurskriður valdið mikl- um spjöllum á uppskeru og drepið bú- fénað. Flóðin á Hispaniola eru þau mann- skæðustu frá því 1994 en þá létust rúmlega 800 Haítíbúar þegar fellibyl- urinn Gordon gekk yfir landið og gróf fólk í aurskriðum. Nágrannaeyjur hafa líka fengið að kenna á óveðrinu og létust í það minnsta fjórir á Púertó Ríkó.Veðurfræðingar spá áframhald- andi vatnsveðri á svæðinu í dag. AP Hundur gengur að húsi sem eyðilagðist í flóðum á eyjunni Hispaniola. Rúmlega 250 manns láta lífið í flóðum Dóminíska lýðveldinu. AP.   ! " #    !$   ## % &    ' (     )$ #  .( 3 0     !$! 4 84$ ! 89 + '(' ' (,-./ 012/+12 34563( .5 1"&  # ! " # $ % &  '# $ ( ) * # 7 8   :!! 4 " 4! "2&$) 5" ,(( &;&&$ 4 ! !  &!3!< =>;; ? 5; &$< HLÝNUN andrúmsloftsins er tvisvar sinnum hraðari við Norð- urskautið en annars staðar á jörðinni, að sögn bandaríska vís- indamannsins Roberts Corells. Hann er formaður starfshóps Norðurskautsráðsins sem falið var að fjalla um loftslagsbreyt- ingar á norðurslóðum og líklegar afleiðingar þeirra. Starfshóp- urinn mun skila lokaskýrslu sinni á fundi ráðsins á Íslandi í nóv- ember. Sagt er frá væntanlegri skýrslu á fréttavef bandarísku ABC- sjónvarpsstöðvarinnar. Tekið er á áhrifum sem breyt- ingarnar hafa á náttúruna en einnig samfélag manna. Hópurinn safnar upplýsingum frá fjölda staðkunnugra ínúíta og nokkur hundruð vísindamönnum á ýms- um sviðum. Ínúítar segja að nú sé orðið mun algengara að þeir rekist á vakir í ísnum og einnig kemur fram að miklar breytingar eru að verða á lífríkinu. Plöntur og dýr færast stöðugt lengra til norðurs en dýr sem hafa lagað sig að miklum kulda geta þurrkast út. Þannig er talið að hvítabirnir muni ekki lengur finnast við Hudsonflóa í Kanada eftir 20 ár. Einnig er ísinn farinn að þiðna á stöðum þar sem frost fer aldrei úr jörðu, svokölluðum sífrerasvæðum. Hafa hús og olíu- leiðslur orðið fyrir skemmdum af þessum sökum þar sem undir- staðan hefur raskast. Loftslagsbreytingarnar geta hins vegar að sögn Corells haft ýmsar jákvæðar afleiðingar. Sigl- ingaleiðir sem nú eru ónothæfar megnið af árinu vegna íssins verða auðar mun lengur en núna og því hægt að fara styttri leið með varning milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Einnig getur orðið auðveldara fyrir Rússa að nýta sér olíu- og gaslindir ef heim- skautaísinn bráðnar og sífrerinn einnig. Talið er að útblástur koldíoxíðs frá farartækjum og verksmiðjum eigi mikla sök á hlýnandi veð- urfari víða á jörðinni. Eitt af því sem veldur hraðari hlýnun á Norðurskautssvæðinu en annars staðar er að þegar dökkblátt haf- ið á köldu svæðunum losnar við ísinn dregur það mun meiri hita í sig en hvítur ís. Skýrslan sem senn verður tilbúin mun vera um 1.800 síður. „Ef menn vilja vita hvað muni gerast á allri jörðinni innan nokkurra áratuga ættu þeir að fylgjast með því sem gerist við Norðurskautið næstu fimm til tíu árin,“ segir Corell. Spá hraðri hlýnun við Norðurskautið Ítarleg skýrsla um afleiðingar lofts- lagsbreytinga á norðurslóðum verð- ur lögð fram á fundi á Íslandi í haust

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.