Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 17

Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 17 ABS diskahemlar EBD hemlajöfnun DSC spólvörn og stö›ugleikakerfi Sjálfvirk loftkæling Aksturstölva Sóllúga Hra›astillir (cruise control) Rafdrifnar rú›ur a› framan og aftan Rafdrifnir og upphita›ir hli›arspeglar Fjarst‡r›ar samlæsingar me› fljófavörn Velti- og a›dráttarst‡ri Útvarpsstillingar í st‡ri Upphitu› framsæti Le›urklætt st‡ri firiggja punkta öryggisbelti og stillanlegir hnakkapú›ar í öllum sætum 4 líknarbelgir a› framan ISOFIX barnastólsfestingar í aftursæti Gluggaöryggispú›ar vi› hli›arglugga Armpú›i milli framsæta me› tvískiptu hólfi Armpú›i í aftursæti me› glasahaldara Farmfestingar í farangursr‡mi Útvarp/geislaspilari 4 hátalarar 16" álfelgur Mottur Mazda6 SDN TS sjálfskipt ver› 2.430.000,- Ger›u samanbur› Komdu vi› hjá okkur og prófa›u Mazda6 fia› er opi› alla virka daga frá kl. 9-18 og frá kl. 12-16 laugardaga Sta›albúna›ur í Mazda6 TS LÖGREGLA í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi greip í gær- morgun til samræmdra aðgerða gegn notendum og seljendum barnakláms. Var lagt hald á tölvur með slíku efni og að sögn sænskra blaða var ráðist til atlögu á 118 stöðum í Svíþjóð. Að sögn Aftonbladet í Svíþjóð hafði lögreglan upp á fólkinu með því að fylgjast með umferð á klámsíðu og kanna hvaða krítarkort voru notuð. Notendur klámsíðna á Netinu borga oft fyrir aðganginn með korti. Að- gerðin hófst að sögn blaðsins klukkan sex að morgni og voru margir sak- borninganna því sofandi. Sumir neit- uðu að opna og braut lögregla þá upp dyrnar. Danska lögreglan réðst inn á að- setur meintra brotamanna í helmingi allra lögregluumdæma landsins og verða 43 kærðir, að sögn vefsíðu dag- blaðsins Jyllandsposten. Að sögn Søren Thomassen hjá dönsku ríkis- lögreglunni er fólkið sakað um að hafa skipst á barnaklámmyndum um Netið. Talsmaður samtakanna Björgum barninu, Mimi Jakobsen, fagnar frumkvæði lögreglunnar. „Það er gott að lögreglan skuli þann- ig senda öflug skilaboð um að það sé glæpsamlegt og hættulegt að leita uppi barnaklám á Netinu,“ segir Jak- obsen. Finnska lögreglan réðst inn á heimili 37 manna og í Noregi munu a.m.k. 20 hafa verið kærðir. Af þeim búa átta í Álasundi og mun hafa fund- ist hjá þeim barnaklám. Lögreglan rannsakar enn um 20 mál í Hörða- landi. Að sögn Helga Magnúsar Gunn- arssonar hjá efnahagsbrotadeild rík- islögreglustjóra tók lögreglan hér á landi ekki þátt í þessum samræmdu aðgerðum á hinum Norðurlöndunum. Samnorræn aðgerð gegn barnaklámi Tugir manna handteknir á heimilum sínum snemma morguns UM þúsund manns komu saman utan við dómhús í Kiev, höf- uðborg Úkraínu, í gær til að mót- mæla banni við útgáfu dagblaðs- ins Silski Visti, sem var gagnrýnið á stjórnvöld. Dómstóll í Kiev úrskurðaði í janúar að loka skyldi blaðinu þar sem það hefði birt greinar sem þóttu hvetja til gyðingahaturs, en margir full- yrða að stjórnvöld hafi nýtt sér tækifærið til að láta loka blaðinu og draga þannig úr gagnrýni á þau fyrir forsetakosningar sem haldnar verða í október. Hópurinn stóð utan við dóm- húsið í gær með spjöld sem á stóð: Látið Silski Visti vera. Alla Lazareva, yfirmaður stofnunar sem hefur haft samstarf við sam- tökin Fréttamenn án landamæra, sagði að útgáfubannið væri órétt- lætanlegt. Stjórnvöld hefðu nýtt „tækifærið til að loka stjórn- arandstöðublaði“ og koma þannig í veg fyrir að gagnrýnar greinar birtust fyrir kosningarnar. Á sama tíma komu um 500 manns saman á mótmælafundi sem gyðingar í Úkraínu stóðu fyrir. Þar var þess krafist að út- gáfa blaðsins yrði áfram bönnuð. Reuters Útgáfubanni mót- mælt í Úkraínu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.