Morgunblaðið - 26.05.2004, Side 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Frá Tónlistarskólanum á Akureyri:
SKÓLASLIT
Tónlistarskólans á Akureyri verða í sal
Tónlistarskólans að Hvannavöllum 14
miðvikudaginn 26. maí kl. 18:00 fyrir
nemendur á grunnstigi og kl. 20:00 fyrir
nemendur á mið- og framhaldsstigi.
Skólastjóri
UPPSTEYPU á rannsókna- og ný-
sköpunarhúsi við Háskólann á Ak-
ureyri er nú lokið og er húsið fokhelt.
Að byggingu hússins standa Íslensk-
ir aðalverktakar, Landsafl og ISS á
Íslandi. Um er að ræða einka-
framkvæmd, sem felur í sér fjámögn-
un, byggingu, viðhald og rekstur í 25
ár og er heildarkostnaður um 1,5
milljarðar króna. Rannsókna- og ný-
sköpunarhúsið er um 5.500 fermetr-
ar að stærð á fjórum og sjö hæðum
og á að skila því fullbúnu 1. okbóter
nk. Háskólinn á Akureyri leigir rúm-
lega helming húsnæðisins undir
starfsemi sína en þar verða einnig
fjölmargar aðrar stofnanir. Má þar
nefna Ferðamálasetur Íslands, Mat-
vælasetur, Byggðarannsókn-
arstofnun, veiðistjórnunarsvið Um-
hverfisstofnunar,
Náttúrufræðistofnun, skrifstofur
PAME og CAFF, Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar, Veðurstofuna, Ný-
sköpunarmiðstöð iðnaðarráðuneyt-
isins, rannsóknarsvið Orkustofn-
unar, Hafrannsóknastofnun,
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
og Jafnréttisstofu.
Samkvæmt upplýsingum Eyjólfs
Gunnarssonar hjá Íslenskum að-
alverktökum, hafa að jafnaði milli 30
og 60 starfsmenn ÍAV og und-
irverktakar unnið við byggingu húss-
ins frá því að fyrsta skóflustungan
var tekin 10. júlí síðastliðinn. Þessa
dagana er unnið við bygginguna á
flestum sviðum. Innivinna er vel á
veg komin og frágangur lóðar hafinn.
Á annan tug stofnana í húsinu
Morgunblaðið/Kristján
Uppsteypu lokið: Rannsókna- og nýsköpunarhúsið við Háskólann á Akureyri er orðið fokhelt.
Rannsókna- og nýsköpunarhús við HA fokhelt
ELLEFU starfsmenn frá þremur
fyrirtækjum luku 96 klukku-
stunda fjölvirkjanámi á dögunum.
Tveir starfa hjá Bústólpa, þrír hjá
Sandblæstri og málmhúðun og sex
hjá Skinnaiðnaði. Þetta er annar
hópurinn sem lýkur fjölvirkj-
anáminu og er stefnt að því að
bjóða upp á það aftur næsta haust.
Fjölvirkjanám er starfsnám,
ætlað sérhæfðum ófaglærðum lyk-
ilstarfsmönnum í iðnaðar- og
framleiðslufyrirtækjum.
Meginmarkmiðið með náminu
er að styrkja stöðu starfsmanns-
ins á vinnumarkaði og auka lífs-
leikni. Markmið fyrirtækjanna
með því að bjóða starfsmönnum
sínum upp á þetta nám er að
byggja upp mannauð þess og
verða þannig betur í stakk búin til
að mæta kröfum viðskiptavina
sinna.
Námið skiptist upp í þrjá hluta,
almenn fög (25%), fagleg fög
(56%) og sérhæfð fög (19%).
Fjölvirkjanámið er skipulagt af
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
í samvinnu við Einingu-Iðju og
Félag byggingamanna í Eyjafirði.
Ellefu ljúka
fjölvirkjanámi
FULLTRÚAR frá ProQuest-
gagnasöfnunum voru á ferð á Ak-
ureyri og kynntu það sem efst er á
baugi í Háskólanum á Akureyri.
ProQuest er safn yfir 5000 tímarita
sem birta greinar í fullum texta.
Kynning var bæði fyrir bókaverði og
eins kennara við framhalds- og
grunnskóla, en þá voru kynnt gagna-
söfn og námsefni sem nýtast við
kennslu, einkum í enskri tungu og
bókmenntum. Einnig var kynning á
vefnum hvar.is, en það er vefur með
aðgangi að gagnasöfnum og rafræn-
um áskriftum að tímaritum, alls 30
gagnasöfnum með meira en 8000 al-
texta að tímaritum, 350 þúsund raf-
ritum engilsaxneskra bókmennta, 3
alfræðisöfnum og einni orðabók. Að-
gangurinn er bundinn við notendur
á Íslandi, sem tengdir eru íslenskum
netveitum. Þetta er mikilvægur
hlekkur í upplýsingasamfélaginu og
veitir landsmönnum aðgang að upp-
lýsingum sem ekki finnast á sam-
bærilegan hátt í Evrópu. Aðgang-
urinn er mest notaður af skóla- og
rannsóknarsamfélaginu
Kynntu gagnasöfn
Nýr leikskóli | Á síðasta fundi
skólanefndar var kynntur gangur í
vinnu við skipulag á lóðinni við
Helgamagrastræti og vinnu við
hönnunarforsögn nýrrar leik-
skólabyggingar. Í hönnunarforsögn
er gert ráð fyrir 6 deilda leikskóla á
lóðinni. Er það gert til þess að geta
boðið sem flestum foreldrum, sem
búa á Brekkunni, pláss í leikskóla
fyrir börn sín. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem liggja fyrir eru nú 170
börn á leikskólaaldri á Suður- og
Norðurbrekku. Þá samþykkti skóla-
nefnd fyrirliggjandi tillögu um að
nýr leikskóli við Tröllagil fái nafnið
Tröllaborgir.
Fimm tilboð | Tilboð hafa verið
opnuð í byggingu íþróttamiðstöðvar
við Grenivíkurskóla, en fimm buðu í
verkið. Hagleiksmenn áttu lægsta
tilboð, rúmar 82,3 milljónir króna,
Trégrip bauð 87,1 milljón í verkið og
Þ.J. verktakar 87,2 milljónir. Sveit-
arstjórn samþykkti að fela bygging-
arnefnd umboð til að ganga til samn-
inga um hagstæðasta tilboðið.
STARFSFÓLKI hjá kjúklingabúinu
Íslandsfugli í Dalvíkurbyggð, um 30
manns verður sagt upp störfum nú
um mánaðamótin. Sundagarðar hf,
sem eiga kjúklingafyrirtækið Mat-
fugl hafa keypt allt hlutafé í Marvali
ehf. sem rekur kjúklingabú Íslands-
fugls á Dalvík, en nú er rétt ár liðið
frá því Marval tók við rekstrinum af
þrotabúi Íslandsfugls.
„Hlutirnir gerðust hratt, við stóð-
um frammi fyrir því að þurfa að
endurfjármagna reksturinn,“ sagði
Ragnar Harðarson, framkvæmda-
stjóri Marvals. Hann sagði þetta
hafa verið erfiðan tíma, þrátt fyrir
hagræðingu í rekstri og góðan ár-
angur í sölu afurða, „þá þurfti
meira til svo að vel færi, þetta er
geysiharður bransi,“ sagði hann og
vísaði þar til kjötmarkaðarins í
landinu. Hann nefndi að kjúklingar
hefðu lækkað í verði á sama tíma og
fóður hefði hækkað um 20%. „Þann-
ig að augljóst er að staðan er veik.“
Ragnar sagði að sú leið sem valin
var, að selja fyrirtækið til Sunda-
garða hefði verið sú besta fyrir alla
hlutaðeigandi. „Það var ekki hægt
að loka augunum og láta fyrirtækið
sigla sinn sjó, það varð eitthvað að
gera,“ sagði hann.
Gunnar Þór Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Sundagarða, sagði
stefnt að því að innan árs yrði búið
að flytja stofneldi félagsins, þ.e.
varpfuglana, norður og þar yrði það
í framtíðinni. „Stofneldið verður
fyrir norðan og hugsanlega setjum
við þar upp einangrunarstöð og tök-
um upp beinan innflutning á eggj-
um frá Svíþjóð,“ sagði Gunnar Þór
Hann benti á að þetta væri í
þriðja sinn sem rekstur kjúklinga-
bús á Dalvík kæmist í hann krappan
á jafnmörgum árum. „Það segir
manni að erfitt er að vera með
þennan rekstur þarna. Þar kemur
m.a. til fjarlægð frá markaði og eins
er þetta óhagkvæm stærðareining,
hún er of lítil,“ sagði Gunnar Þór.
„Ég tel að fullreynt sé með þennan
rekstur, af þessari stærð og á þess-
um stað.“
Framtíðarsýn nýrra eigenda er
að sögn hans sú að eftir ár verði bú-
ið að leggja niður sláturhús og
vinnslu á Dalvík, en stofneldi félags-
ins verði allt norðan heiða. „Von-
andi verðum við svo búin að koma
upp annari matvælaframleiðslu í
húsnæðið sem fyrir er á Dalvík,“
sagði Gunnar Þór, en hann sagði
það mál á frumstigi nú og tæki
nokkra mánuði í unndirbúningi.
Starfsfólk hefur flest eins mán-
aðar uppsagnarfrest, en gert er ráð
fyrir að vinnslan verði fyrst til að
leggjast af og síðan starfsemi slát-
urhúss. Ljóst er að eldi verður að
einhverju leyti fyrir norðan áfram
og að sögn Gunnars Þórs á eftir að
skoða hvort hagkvæmara sé að
slátra fuglinum þar eða flytja hann
suður í Mosfellsbæ. Þeim starfs-
mönnum sem starfað hafa við eldið
verður boðin vinna hjá Matfugli, en
þar verður líklega um að ræða þrjá
starfsmenn.
„Það átti enginn von á þessu,
þetta kom okkur í opna skjöldu,“
sagði Hólmfríður G. Jónsdóttir,
trúnaðarmaður starfsfólks. „Þetta
bar greinilega mjög brátt að, við
vorum grunlaus að skemmta okkur
saman á föstudagskvöldið og feng-
um svo fréttirnar á laugardags-
morgni.“
Hún sagði að starfsmenn hafi vit-
að af því að reksturinn væri erfiður,
en verið grunlaust um hvað í vænd-
um var. „Menn eru slegnir yfir
þessu. Flestir verða að vinna til loka
júní og vita þá ekkert hvað tekur
við. Það verður ekki hlaupið í vinnu
á þeim tíma, flestir eru búnir að
ráða sumarfólk og því sjálfsagt ekki
um annað að ræða en bíða haustsins
og sjá hvað býðst þá.“ Hólmfríður
sagði að margir starfsmanna fyr-
irtækisins hefðu verið hjá því frá
upphafi og væru nú að upplifa
þriðja áfallið á jafnmörgum árum.
„Þetta er auðvitað mjög mikið óör-
yggi og margir eru ekki búnir að
átta sig á stöðunni enn. Við reynum
að þjappa okkur saman, starfsfólkið
og vona það besta.“
Vonir hafa brostið
Guðrún Skarphéðinsdóttir,
starfsmaður Einingar-Iðju í Dalvík-
urbyggð, sagði fólk furðu lostið yfir
stöðunni, „ég hafði ekki grun um
hvað í vændum var, það var ekki bú-
ið að segja okkur neitt. Ég varð al-
veg miður mín þegar þessar fréttir
bárust og fyrir marga er þetta reið-
arslag,“ sagði Guðrún. Hún sagði
atvinnuástand ekki sérlega gott á
Dalvík um þessar mundir, um 25
manns væru skráðir atvinnulausir.
„Það höfðu allir svo miklar vænt-
ingar til þessa fyrirtækis þegar það
hóf starfsemi fyrir þremur árum,
þetta var nánast eins og að fá stór-
iðju í bæinn, en nú hafa þessar vonir
manna brostið,“ sagði Guðrún og
nefndi einnig að margir væru í sár-
um, fólk sem hefði upplifað alla þá
erfiðleika sem reksturinn hefði
gengið í gegnum, þrjú áföll á þrem-
ur árum. „Það fer mjög illa með
fólkið.“
Starfsfólki kjúklingabús Íslandsfugls í Dalvíkurbyggð sagt upp störfum
Vinnsla og sláturhús lögð niður
Stofneldi Mat-
fugls verður
flutt norður
Guðrún
Skarphéðinsdóttir
Hólmfríður
G. Jónsdóttir
Ragnar
Harðarson
Morgunblaðið/Kristján
Sláturhús og kjúklingavinnsla leggst af á Dalvík á næstu vikum, eftir kaup
Sundagarða á Marvali sem rekið hefur Íslandsfugl í um eitt ár.