Morgunblaðið - 26.05.2004, Qupperneq 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 23
Borgartúni 28 • símar 520 7901 & 520 7900
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
ARTISAN
5 gerðir - 7 litir
stærri skál, hveitibraut fylgir
Yfir 60 ára frábær reynsla
Sími 533 2660
www.hafsulan.is
HAFSÚLAN
Hvalaskoðun frá Reykjavík
- frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
með viðkomu í Lundey
Brottför frá Ægisgarði alla daga kl. 9,13 og17
16 hótel
allan hringinnSími: 444 4000
Hvalaskoðun
með Moby Dick
Sími: 421 7777 & 800 8777
Farsími 896 5598 - Fax 421 3361
Pósthólf 92, 230 Kefl avík
www.dolphin.is - moby.dick@dolphin.is
Daglega frá
Kefl avíkurhöfn
frá apríl til október.
Sjóstangveiði - Skemmtisiglingar.
10 ára
1994 - 2004
Frábær tilboð fyrir 10 manns eða fl eiri
www.esja. is
Dugguvogi 8
Sími 567 6640
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Því nær sem efnið latexkemst slímhúð, því meirilíkur eru á því að menngeti áunnið sér latex-
ofnæmi, segir Anne Mette Ped-
ersen, formaður fagdeildar bráða-
hjúkrunarfræðinga, en hún starfar
á slysadeild Landspítalans auk þess
sem hún hefur unnið við forvarnir
og flutt fyrirlestra um latexofnæmi
um nokkurt skeið. „Latexofnæmi
eða óþol getur verið grafalvarlegt
mál enda getur það birst í mörgum
myndum, allt frá kláðaútbrotum
upp í alvarlegri afbrigði, sem leitt
geta til dauða. Vægustu afbrigðin af
latexóþoli má t.d. rekja til roða og
kláða eftir að hafa notast við
gúmmíhanska við uppvaskið. Aftur
á móti í alvarlegustu tilfellunum
koma óyggjandi ofnæmisviðbrögð
gjarnan fram innan hálftíma frá la-
texsnertingu. Bjúgur myndast í
hálsi og á fleiri stöðum og getur
lokað fyrir öndunarveg.“
Anne Mette segir að efnið latex
sé að finna mjög víða og eiga þeir,
sem umgangast latexið mikið, helst
á hættu að fá latexofnæmi. „Þetta á
við heilbrigðisstarfsfólk, sem notar
svokallaða latexhanska og önnur
teygjanleg áhöld við störf sín. Iðn-
aðarmenn í fjöldamörgum starfs-
greinum eru því miður líka farnir að
taka latexhanska í sína þjónustu.
Sjúklingar, sem þurfa að und-
irgangast margar aðgerðir, eru í
áhættuhópi þar sem heilbrigð-
isstarfsfólk verður að nota hanska
við skurðaðgerðir. Blöðrur í barna-
afmælum geta verið stórhættulegar
latexofnæmissjúklingum því þegar
þær eru blásnar upp losna litlar la-
texagnir út í loftið sem hægt er að
anda að sér. Móðir drengs með
latexofnæmi hefur bent sérstaklega
á hættuna samfara vöru-
kynningum í
verslunum
fyrir þá sem
hafa latex-
ofnæmi, ef
kynnir vörunnar
notar latexhanska
við að handfjatla
vöruna. Sonur
hennar hefur lent í
því að fá ofnæm-
iskast við slíkt tæki-
færi.“
Álfabikar í slímhúð
Netverslun www.femin.is hefur
auglýst alllengi svokallaðan álfa-
bikar eða „Keeper“ úr náttúrulegu
gúmmíi eða latexi, þar sem fullyrt
er að konur með latexofnæmi geti
auðveldlega notað hann. Í auglýs-
ingunni segir m.a.: „Keeper er
mjúkur margnota gúmmíbikar til
innsetningar í leggöng meðan blæð-
ingar standa yfir og er notaður í
stað binda og/eða tíðatappa. Hann
tekur allt að 30 ml af tíðablóði.
Magn tíðablóðs meðalkonu er 80–
100 ml á hverjum blæðingum.“
Áfram segir: „Keeper er unninn úr
náttúrulegu gúmmíi og er latexfrír.
Því hafa konur, sem þjást af latex-
ofnæmi auðveldlega getað notað
legir latexofnæmissjúklingum. „Eft-
ir að ég sá fullyrðingar á femin.is
um að konur með latexofnæmi gætu
notað bikarinn sér að meinalausu,
hafði ég samband við bandaríska
söluaðilann og alþjóðleg samtök um
latexofnæmi og varnir. Á báðum
stöðum fékk ég skýr svör um að
vítavert væri að auglýsa álfabik-
arinn fyrir konur með latexofnæmi
enda er það sérstaklega tekið fram
á heimasíðu bandaríska söluaðilans,
www.thekeeper.com, að bikarinn sé
alls ekki ætlaður konum með of-
næmi fyrir gúmmíi eða latexi. Ég
hef komið þessum upplýsingum
áleiðis til íslenska söluaðilans, en
ekki fengið nein svör,“ segir Anne
Mette.
Gera má ráð fyrir því að latex-
ofnæmissjúklingum fari fjölgandi
með almennri notkun latexvara.
Anne Mette segist hafa
verið að viða að sér
alls konar fræðslu um
þetta efni og hafi
hún greinar undir
höndum allt frá
árinu 1979 þar
sem varað hafi
verið við þeirri
hættu í banda-
rískum fagtíma-
ritum að latex-
ofnæmi gæti áunnist
í kjölfar mikillar latexsnertingar.
„Vekja þarf fólk til vitundar um
þetta vaxandi heilbrigðisvandamál
þar sem latexofnæmi getur heft
daglegt líf verulega mikið. Latex er
í svo fjölmörgum hlutum sem við
umgöngumst dagsdaglega, hönsk-
um og jafnvel smokkum og blöðrum
og afleiðingarnar geta orðið virki-
lega alvarlegar.“
Fleiri konur en karlar
Samkvæmt upplýsingum frá
Astma- og ofnæmissamtökunum er
tíðni latexofnæmis afar mismunandi
eftir löndum, allt frá núlli til 9,4%.
Útbreiðsla ofnæmisins hefur ekki
verið könnuð á Íslandi, en gera má
ráð fyrir því að af þeim sem grein-
ast séu um 80% konur. Það helgast
af því að þær verða fyrir meira
áreiti en karlarnir enda starfa mun
fleiri konur en karlar í starfs-
greinum, sem krefjast útbúnaðar á
borð við latexhanska.
OFNÆMI | Efnið er t.d. í sumum hönskum, smokkum, barnablöðrum og álfabikar
Latexofnæmi vaxandi
heilbrigðisvandamál
Morgunblaðið/ÞÖK
Bráðahjúkrunarfræðingurinn: Afleiðingar latexsnertingar geta
orðið virkilega alvarlegar, segir Anne Mette Pederson.
Latex er náttúrulegt
100% gúmmí og á að
vera umhverfisvænt.
Anne Mette Pedersen,
formaður fagdeildar
bráðahjúkrunarfræð-
inga, varar hins vegar
við því og segir að með
tíðri snertingu við slím-
húð, geti menn áunnið
sér latexofnæmi.
join@mbl.is
hann. Það þarf ekki að fella gúmmí-
tréð til að vinna hann heldur er
tappað af trénu, ólíkt því sem gerist
þegar unninn er pappír, en þá eru
tré felld til að vinna úr þeim pappír.
Keeper endist í tíu ár og er því
ekki um að ræða mánaðarleg úr-
gangsefni eins og við binda- og
tappanotkun, en það er talið að yfir
sjö milljörðum tíðatappa og umbúða
utan af þeim sé hent árlega og hafa
plasthólkar sumra framleiðenda
haft alvarleg áhrif á umhverfið og
valdið skaða á lífríki stranda og
stefnt dýralífi í hættu og eru þá
ótalin öll þau dömubindi og innlegg
sem hent er í náttúruna árlega.“
Anne Mette segist telja álfabikar
í leggöngum í 5-7 daga í mánuði
jafnhættulegan latexofnæm-
issjúkum konum og latexhanskar
heilbrigðisstarfsfólks eru hættu-
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Vöggusett
barnasett
www.thumalina.is