Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 25

Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 25 Virðulegt og fallegt steinhús í hjarta borgarinnar. Húsið var allt endurnýjað fyrir nokkrum árum á vandaðan og smekklegan hátt og skiptist í þrjár hæðir og kjallara, samtals um 500 fm. 1. og 2. hæð eru 140 fm hvor, 3. hæðin 100 fm og kjallari er 140 fm. Þrjár íbúðir eru í húsinu og sérinngangur í hverja þeirra. Rósettur og gifslistar í loftum. Svalir út af efstu hæð, fallegt útsýni yfir borgina. Nýjar lagnir og nýtt hitakerfi. 6 sér bílastæði fylgja eigninni. Bílskúrsréttur. Húsið hentar t.d. fyrir stórfjölskyldu eða margs konar fyrirtæki, t.d. tannlækna, lögfræðinga eða gistiheimili. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Ingólfsstræti 12 Eign sem býður upp á ýmsa möguleika. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. Starfsári Söngskólans í Reykjavík lýkur ídag. Um 200 nemendur stunduðu námvið skólann í vetur. Í haust voru 30 árliðin frá stofnun skólans og hefur þessa verið minnst með ýmsu móti í vetur, m.a. komu allir nemendur skólans fram á afmælistónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem haldnir voru í tvígang fyrir fullu Háskólabíói í mars. 30 nemendur luku umsagnarprófum úr ung- lingadeild, 28 luku grunnprófum, 120 miðprófum og 34 áföngum til framhaldsprófs, þar af 5 bæði 8. stigs prófi og framhaldsprófii og 11 nemendur þreyttu próf á háskólastigi, ABRSMdip eða L.R.S.M. í einsöng eða söngkennslu. Söngskólinn fær árlega prófdómara á vegum „The Associated Board of the Royal Schools of Music“ í London. Að þessu sinni dæmdi prófess- or Mark Wildman prófárangur nemenda. Auk prófdómarastarfa fyrir ABRSM er hann yfirmað- ur söngdeildar Konunglegu tónlistarakademíunn- ar í Lundúnum. Wildman segir að söngnemend- urnir sem hann hlýddi á í ár, hafi verið á ýmsum aldri, og hafi átt það sameiginlegt að búa yfir góðum röddum, og hafa notið mjög góðrar kennslu. „Ég hlustaði á allt mögulegt, mér til mikillar ánægju; allt frá íslenskum þjóðlögum til óperuaría. Íslenskar raddir virðast mjög góðar frá náttúrunnar hendi og ánægjulegt að fá að koma til að hlusta á þær,“ segir Wildman. Þetta er í þriðja skipti sem hann kemur hingað, en prófdómarar konunglegu akademíunnar ferðast um allan heim til að dæma á söngprófum. All- staðar eru mælistikurnar þær sömu. „Ég held að prófin okkar og umsagnirnar njóti þessarar virð- ingar vegna þess að prófdómararnir eru mjög vel þjálfaðir, og eru auk þess algjörlega hlutlausir. Ég kem hingað, þekki enga þessara nemenda, - veit ekki heldur hverjir hafa kennt þeim – og það er trygging þeirra fyrir algerlega óhlutdrægu mati. Viðmið okkar eru líka útgefin; algerlega skýr og ljós, þannig að öllum á að vera nákvæm- lega ljóst hvernig matið fer fram; hvað er metið og hvernig.“ Mark Wildman hefur kennt nokkrum íslensk- um söngnemum þar; nemendum sem hafa að loknu námi fengið störf við góð óperuhús erlend- is. „Það verður að segjast eins og er, að það er tilkomumikil lesning að renna augum yfir nöfn fyrrum nemenda Söngskólans. Þar eru söngvarar sem hafa atvinnu af óperusöng á Íslandi, en líka í stærstu óperuhúsum Þýskalands, og svo allt til óperuhúsa á borð við Metropolitan í New York, og Scala í Mílanó. Það er mikil hvatning fyrir söngnema að fá tækifæri til að mennta sig er- lendis, ekki síst á stöðum eins og í stórborgunum, þar sem sönglífið stendur með miklum blóma. Ís- lensku nemendurnir sem komið hafa til Lundúna, hafa staðið sig mjög vel í samanburði við nem- endur annars staðar frá, bæði vegna þess hve raddirnar eru góðar frá náttúrunnar hendi, og hve góðan bakgrunn þeir hafa, en svo hafa þeir líka næmt eyra fyrir mótun sérhljóðanna, sem skiptir miklu máli í söngnum. Þar spilar tungu- málið ykkar auðvitað inní líka. Íslensku nemend- urnir ná því langt hjá okkur og eiga sjálfsagt met, ef tekið er tillit til þess hve fámenn þjóðin er, en þeir standa sig ekki bara vel á prófunum, þeim vegnar líka vel í starfi sem fullburða söngv- arar.“ Skólaslit og afhending prófskírteina fara fram í dag kl. 18.30 í tónlistarhúsinu Ými við Skóg- arhlíð. Kl. 20 í kvöld eru lokatónleikar skólans. Efnisskráin er afar fjölbreytt, íslensk og erlend sönglög og atriði úr óperum. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Íslenskar raddir mjög góðar Morgunblaðið/Árni Torfason Mark Wildman, prófdómari og prófessor við Konunglegu tónlistarakademíuna í Lundúnum. Kl. 20 Þjóðleikhúsið Kvöldstund með Jónasi Ingimundarsyni, Bjarna Thor Kristinssyni, Eteri Gvazava og Fóst- bræðrum. Kl. 17 Tónlistartorg Listahátíðar í Kringlunni Íslenska dægurlagið. Eg- ill Ólafsson og Tatu Kantomaa. Dagskráin í dag Listahátíð í Reykjavík 14.–31. maí FÍH, Rauðagerði 27 kl. 10 og kl. 19 fyrirlestrar um tónlistariðnaðinn og sjálfstæða útgáfu. Fyrirlestrarnir eru í samvinnu við Dansk Musiker Forbund. Í heimsókn kemur þeirra helsti sérfræðingur í útgáfumálum, Mikael Höjris. Fyrirlestrarnir standa í fjóra tíma með hléi og fara fram á ensku. Á MORGUN EVA Haraldsdóttir hefur opnað sína fyrstu myndlistarsýningu í Spari- sjóðnum Garðatorgi. Sýningin er í boði Sparisjóðsins og stendur fram á sumar. Eva er fædd 1954 á Akureyri og hefur sótt mörg myndlistarnám- skeið. Á sýningunni eru 35 olíu- málverk á striga. Eitt af verkum Evu Haraldsdóttur á sýningunni á Garðatorgi. Eva sýnir á Garðatorgi Í TILEFNI af reyklausum degi, 31. maí næstkomandi, efna Edda útgáfa og Guðjón Bergmann til samkeppni um bestu reynslu- söguna um hvernig fólk getur hætt að reykja. Þeir, sem tekist hefur að hætta að reykja, geta sent inn reynslusögu sína á reyklaus@edda.is. Um síðustu áramót kom út bókin „Þú getur hætt að reykja. Góð ráð frá fyrrverandi reyk- ingamanni“ eftir Guðjón Berg- mann. Guðjón er einnig höfund- ur bóka um jóga og jógafræði. Tilkynnt verður um vinnings- hafann 31. maí og hlutar úr sög- unni birtir í fjölmiðlum. Veitt verða bókaverðlaun fyrir bestu söguna. Samkeppni um bestu reynslusögu SNORRI Wium tenór syngur við undirleik Antoníu Hevesi á síðustu hádegistónleikum vetrarins í Hafn- arborg sem verða kl. 12 á morgun. Yfirskrift tón- leikanna er Ást í fyrirrúmi og verða flutt lög eftir Giuseppe Verdi, Rudolf Sieczynski og Ferenc Lehár. Snorri var fastráðinn við óperuna í Coburg í Þýskalandi á árunum 1992– 1996. Í Íslensku óperunni hefur hann sungið mörg óperuhlutverk, m.a. í Töfraflautunni, Leðurblökunni og Macbeth. Listrænn stjórnandi Hádegistón- leika Hafnarborgar er Antonía He- vesi. Aðgangur er ókeypis. Ástin í fyrirrúmi í hádeginu Snorri Wium DÓMNEFND Þjóðleikhússins hef- ur nú valið athyglisverðustu áhuga- leiksýningu leikársins 2003–2004 og varð sýning Leikdeildar Ungmenna- félagsins Eflingar í Reykjadal á Landsmótinu fyrir valinu. Lands- mótið verður sýnt á Stóra sviði Þjóð- leikhússins 19. júní nk. Tilkynnt var um valið á áhugasýn- ingu ársins á þingi Bandalags ís- lenskra leikfélaga sem haldið var í Svarfaðardal nú um helgina. Dóm- nefnd Þjóðleikhússins í ár var skipuð Stefáni Baldurssyni þjóðleikhús- stjóra, Melkorku Teklu Ólafsdóttur, leiklistarráðunauti Þjóðleikhússins, og Tinnu Gunnlaugsdóttur leikkonu. Tíu félög sóttu um að koma til greina við valið með ellefu sýningar. Handrit Landsmótsins er skrifað af heimamönnum, þeim Jóhannesi Sigurjónssyni og Herði Þór Benón- ýssyni. Leikstjóri er Arnór Benón- ýsson. Þetta er í annað sinn sem sýn- ing Eflingar í leikstjórn Arnórs er valin áhugasýning ársins, en félagið sýndi Síldin kemur og síldin fer í Þjóðleikhúsinu fyrir fjórum árum. Auk verðlaunasýningarinnar hlutu nokkrar sýningar sérstaka við- urkenningu dómnefndar: Draumur á Jónsmessunótt í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar hjá Leikfélaginu Sýn- um. Sýning Halaleikhópsins á Fíla- manninum í leikstjórn Guðjóns Sig- valdasonar. Sýning Stúdenta- leikhússins á leikgerðum sem unnar voru af leikhópnum eða aðstandend- um sýningar, 1984 – ástarsaga í leik- stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar og 101 Reykjavík í leikstjórn Hjálm- ars Hjálmarssonar. Sýning Leik- félags Dalvíkur á Svarfdælasögu eft- ir Hjörleif Hjartarson og Ingibjörgu Hjartardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Sýning Leikfélags Keflavíkur í leikstjórn Steins Ár- manns Magnússonar á Með álfum og tröllum. Kraftmikill leikur Í umsögn dómnefndar um verð- launasýninguna segir m.a.: „Sýning Eflingar á Landsmótinu er bráð- skemmtileg leiksýning, þar sem saman koma frábær tónlistarflutn- ingur og kraftmikill leikur. Leikritið gerist, líkt og titillinn bendir til, á Landsmóti ungmennafélaga sem haldið er í heimabyggð Eflingar, að Laugum. Leikfélagsfólk vinnur þannig á skemmtilegan hátt með til- vísanir til heimabyggðarinnar, en leikritið vísar jafnframt út fyrir sig þannig að fólk víðsvegar af landinu getur haft mikið gaman af. Vel tekst til með gervum, tónlist og leik að endurverkja þá gömlu, góðu tíma þegar ungmennafélagsandinn og vínandinn tókust á um sálir unga fólksins. Og auðvitað svífur ástin yfir vötnum, en hér geta ástarævintýrin orðið ærið óvænt. Leikstjórinn hefur náð að virkja leikgleði leikhópsins til hins ítrasta, og þessi gleði streymir óhindrað yfir til áhorfenda. Leik- mynd er einföld en rýmisnotkunin vel hugsuð, svo að fjöldasenur njóta sín vel. Í Eflingu koma saman ungir og aldnir, og er gaman að verða vitni að því hvernig margreyndir leik- félagar og ungt skólafólk vinnur saman að því að búa til kraftmikla og fjöruga sýningu með sterkan heild- arsvip.“ Landsmótið áhugasýning ársins Jón Fr. Benónýsson, „gamall kommúnisti“, hvetur hér keppanda á mótinu, Brynjar Mar Lárusson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.