Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Laugarnes kemur í
dag, Selfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Jaxlinn kemur í dag.
Selfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrifstofa
s. 551 4349, fax.
552 5277, mataraðstoð
kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín, kl.13.30
leshringur í fund-
arsalnum. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–
16.30 bridge/vist.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl.
9–14 aðstoð við böðun,
kl. 10–10.45 leikfimi, kl.
14.40 ferð í Bónus, pútt-
völlurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 13 leikfimi,
kl. 14 sagan.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Postulíns-
málun, námskeið og
leirmótun, námskeið kl.
9–16.30.
Félagsstarfið Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Kl. 10.30 guðsþjónusta
fellur niður 2. júní en
verður í dag, 26. maí.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kvenna-
leikfimi kl. 9.30, 10.20
og 11.15, handa-
vinnuhornið kl. 13. Opið
í Garðabergi kl. 13–17.
María Helgadóttir og
Svava Valdimarsdóttir
með samsýningu í
myndlist. Opið virka
daga nema þriðjudaga
milli kl. 13 og 17.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Húsið
opnað kl. 9, kl. 11 línu-
dans.Viðeyjarferð.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Samfélagið í
nærmynd kl. 11, þáttur
um málefni eldri borg-
ara á RÚV. Ferð um
Norðurland 29. júní – 3.
júlí. Akureyri, Grímsey,
Vesturfarasafnið á
Hofsósi, Hólar í Hjalta-
dal, Þverárfjall o.fl. í
síma 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 sund-
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug, frá há-
degi spilasalur opinn,
kóræfing fellur niður.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 17 bobb. Kl.
15.15 söngur, Guðrún
Lilja mætir með gít-
arinn.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga kl.
9–17. Sumarfagnarður
hefst kl. 14. Handa-
vinnustofan er opin kl.
13–16. Alltaf heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
hárgreiðsla, fótaaðgerð
og banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10, kl. 10–11 og kl. 11–
12 jóga, kl. 10.30 sam-
verustund. Fótaaðgerð-
ir virka daga, hársnyrt-
ing þriðju- til föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun fimmtudag
pútt á Korpúlfsstöðum
kl.10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl. 10
sund, kl. 10–11.30
ganga, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 myndmennt, kl.
12.15–14.30 versl-
unarferð, kl. 13–14
spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður.
Vitatorg. Kl 8.45
smiðja, kl. 9 fótaaðgerð-
ir, kl. 10 bútasaumur og
hárgreiðsla, bókband,
kl. 13 föndur og kóræf-
ing, kl. 12.30 versl-
unarferð.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
föndur, kl. 15 bókabíll-
inn.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhússins, norð-
anmegin.
Í dag er miðvikudagur 26. maí,
147. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: Þú gafst honum vald
yfir öllum mönnum, að hann
gefi eilíft líf öllum þeim, sem
þú hefur gefið honum.
(Jh.. 17, 2.)
Egill Helgason, stjórn-andi Silfri Egils, seg-
ir frá því í spjalli á vef
sínum að hann hafi hitt
Gísla Martein Bald-
ursson, varaborgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins
og sjónvarpsmann, og
Helga Hjörvar, þing-
mann Samfylkingarinnar
og varaborgarfulltrúa, á
veitingastaðnum Jóm-
frúnni. Hann segir gott
þegar pólitískir andstæð-
ingar geti talað saman
og sleppt skærunum og
ruglinu. Fólk eigi að geta
verið vinir þó það aðhyll-
ist ekki skoðanir hvað
annars.
Svo segir Egill: „Éghvatti Gísla til að
fara í slaginn um borg-
arstjórann. Ég meina
það. Væri fínt að fá ung-
an mann eins og hann,
með lag á að geta látið
fólk vinna með sér, nægi-
lega víðsýni til að um-
gangast pólitíska and-
stæðinga af virðingu – og
nútímalegar hugmyndir
um hvernig fólk lifir í
borgum. Út með karl-
fauskana Alfreð og Vil-
hjálm, menn sem búa í
Breiðholti og hafa Breið-
holt í hausnum. Brátt
þurfa borgarbúar að
kjósa af sér hinn andlega
gjaldþrota R-lista. Öm-
urlegt að sjá hvernig
borginni hrakar undir
stjórn hans – og hvernig
gröfurnar eru byrjaðar
að grafa í hinni óþörfu
þríbreiðu Hringbraut.“
Egill segir að hannverði e.t.v. að endur-
skoða sumarfrí sitt neiti
forseti Íslands að skrifa
undir fjölmiðlalögin.
Hann rökstyður samt að
hann eigi ekki von á því.
Óvíst sé hvort lögin
brjóti í bága við stjórn-
arskrá. „Ég hef verið að
spyrjast fyrir um þetta
og sýnist svo ekki vera.
Ríkið setur ýmsar tak-
markanir á atvinnufrelsi
í öðrum greinum en fjöl-
miðlarekstri. Varla brýt-
ur þetta í bága við
ákvæði um eignarrétt,
því útvarpsleyfin fá að
renna út. Þá er spurning
um tjáningarfrelsið. Tak-
markanir á fjölmiðla-
rekstri hafa verið í lög
leiddar víða í Evrópu án
þess að það sé talið stríða
gegn tjáningarfrelsi –
hví þá ekki hér? Ólafur
Ragnar er heldur enginn
dómari um hvort lög
brjóti gegn stjórnarská.
Um það hljóta dómstólar
að fjalla,“ segir Egill.
Þá sé talað um að Ólaf-ur Ragnar hljóti að
taka tillit til þess að gjá
hafi myndast milli þings
og þjóðar. Það hafi þó
gerst í mörgum veiga-
meiri málum. „En er með
nokkru móti hægt að
halda því fram að þetta
mál sé merkilegra en til
dæmis aðildin að EES,
gagnagrunnurinn, kvóta-
kerfið, Kárahnjúkar og
öryrkjamálið? Það er erf-
itt að sannfæra mig um
það,“ segir Egill Helga-
son en tekur fram að
hann sé á móti lögunum
og telur þau vitlaus.
STAKSTEINAR
Hvatti Gísla Martein
í borgarstjórann
Víkverji skrifar...
Tilviljun er forvitnilegt fyrirbæriog endalaust rannsóknarefni fyr-
ir áhugamenn um tölfræði og lík-
indareikning. Í orðabókum er þetta
orð, tilviljun, skýrt sem hending,
eitthvað sem vill til að gerist.
Tilefni þess að Víkverji fór að
velta tilviljunum fyrir sér var frá-
sögn samstarfsfélaga af hótelferðum
þeirra hjóna út á land. Í fyrra skiptið
voru þau að spóka sig í heitum potti
við hótelið þegar nágrannahjón úr
bænum birtust óvænt á sundföt-
unum. Samstarfsfélagi Víkverja brá
sér síðan á hótel nýlega og hafði það
á orði við manninn sinn við morg-
unverðarborðið að nú vantaði bara
að nágrannarnir birtust. Og viti
menn. Orðinu hafði varla verið
sleppt þegar sömu nágrannahjónin
mættu í morgunverðinn. Skemmti-
leg tilviljun? Jú, Víkverji er ekki frá
því, nema ef vera skyldi að öflugar
nágrannanjósnir séu stundaðar í
þessu tilviki!
Öll höfum við eflaust upplifað
svipaðar aðstæður. Hverjar eru til
dæmis líkurnar á að mæta Íslendingi
á fyrsta götuhorni eftir komuna til
New York? Víkverji kann ekki svar-
ið í prósentum talið en hann lenti að
minnsta kosti í þessu um árið, í sinni
fyrstu ferð til Bandaríkjanna. Enn
fyndnara þótti hvaða Íslendingur
þetta var en það er nú annað mál.
Það var líka svolítið skondið á dög-
unum þegar góðan vin Víkverja bar
á góma í samræðum á heimilinu.
Mitt í því spjalli hringdi gemsinn í
höndum Víkverja og hver haldiði að
hafi verið hinum megin á línunni? Jú,
vinurinn góði. Tilviljun? Víkverji er
ekki frá því að svo hafi verið.
Þegar orðinu tilviljun er svo flett
upp í leitarvélum Netsins kemur
margt forvitnilegt í ljós. Meðal þess
er samanburður á ævi og örlögum
tveggja Bandaríkjaforseta, þeirra
Abrahams Lincolns og Johns F.
Kennedys. Eitt hundrað ár liðu frá
því að Lincoln og Kennedy voru
kjörnir á þing og síðar kjörnir for-
setar, báðir voru þeir myrtir á föstu-
degi, einkaritari Lincolns hét Kenn-
edy og einkaritari Kennedys hét
Lincoln, Lincoln var skotinn í Kenn-
edy-leikhúsinu og Kennedy skotinn í
Lincoln-bifreið. Þá mun morðingi
Lincolns hafa fundist í vöruhúsi eftir
að hafa flúið úr leikhúsinu en morð-
ingi Kennedys á að hafa flúið úr
vöruhúsi og fundist í leik- eða kvik-
myndahúsi. Allt er þetta harla ótrú-
legt og liggur við að sé eitthvað ann-
að og meira en tilviljun.
x x x
Víkverja fannst það líka eitthvaðannað og meira en tilviljun að
hryðjuverkaárásirnar í Madríd voru
gerðar 11. mars síðastliðinn, 911
dögum frá árásunum í Bandaríkj-
unum 11. september 2001. Hafi það
verið tilviljun var það í öllu falli ekki
skemmtileg tilviljun.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sumarkoman er engin tilviljun.
„Ég vill“
NÝLEGA las ég grein í
Fréttablaðinu þar sem
blaðakona þess skrifar um
það af mikilli vandlætingu
að alþingismaður nokkur
hafi sagt í ræðustól: „Ég
vill.“
Þetta kom mér ekki á
óvart; mér er ekki kunnugt
um að fólk þurfi að leggja
fram prófskírteini til þess
að geta tekið sæti á Alþingi.
Umræddur þingmaður veit
ekki betur; enginn hefur
sagt honum að rétt sé að
segja: „Ég vil.“
Hver kálfur getur sest á
Alþingi. Aðalatriðið er að
fólk láti vel að stjórn. Í
kvæði Gríms Thomsens „Á
Glæsivöllum“ minna nokk-
ur erindi mjög á Alþingi Ís-
lendinga, t.d. þetta:
Á Glæsivöllum aldrei
með ýtum er fátt,
allt er kátt og dátt;
en bróðernið er flátt mjög og
gamanið er grátt,
í góðsemi vegur þar hver annan.
Ég lýk svo þessu grein-
arkorni með orðum Gríms
Thomsens úr sama ljóði:
…og trúðar og leikarar leika þar
um völl,
en lítt er af setningi slegið.
201019-4359.
Tapað/fundið
Myndavél fannst
MYNDAVÉL í svartri
tösku með átekinni filmu
fannst á Geirsnefi sl. mið-
vikudag. Upplýsingar í
síma 554 6853.
Dýrahald
Páfagaukur fannst
PÁFAGAUKUR fannst hjá
Landspítalanum sl. mánu-
dag í gróðri fyrir utan
kvennadeildina. Hann var
frekar slappur en afskap-
lega gæfur. Fuglinn er
ljósblá/hvítleitur að lit.
Upplýsingar gefur Karen í
síma 692 3840.
Brandur er týndur
FRESSKÖTTURINN
Brandur slapp úr búri fyrir
utan Dýralæknastofuna,
Lyngási 18, í Garðabæ,
laugardaginn 22. maí sl.
Brandur er brúnbröndóttur
með svarta flekki á baki og
hvítar hosur og háls. Hann
var ómerktur og auk þess
hefur hann verið veikur og
þarf nauðsynlega að kom-
ast undir hendur dýralækn-
is. Ef einhver hefur upplýs-
ingar um hann, vinsamlega
látið vita í síma 898 0857
eða 551 1800. Einnig má
láta Dýralæknastofuna vita
í síma 565 8311/863 3131
eða koma honum í Kattholt.
Kettlingar af
skógarkattakyni
FIMM kettlinga af skógar-
kattarkyni vantar heimili.
Þeir eru í senn kassavanir
og gæfir. Upplýsingar í
síma 896 1488.
Barnelskur fress
og félagar
TVEIR yndislegir brönd-
óttir kettlingar og einn stór
barnelskur fress fást gef-
ins. Þeir eru kassavanir.
Upplýsingar hjá Láru í
síma 694 5368.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 Júðana, 8 hlemmarnir,
9 starfið, 10 umfram, 11
forföðurinn, 13 þekkja,
15 hlaupastörf, 18 gagns-
lausa, 21 þar til, 22 líf-
færin, 23 framleiðslu-
vara, 24 kompásar.
LÓÐRÉTT
2 kveða, 3 kvendýrið, 4
hrekk, 5 ferskan, 6 ljóma,
7 röska, 12 veiðarfæri,
14 bókstafur, 15 bráðum,
16 eftirskrift, 17 áma, 18
reykti, 19 fiskinn, 20
ójafna.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 trega, 4 hrauk, 7 kofan, 8 gunga, 9 set, 11
ráma, 13 orga, 14 fljót, 15 kufl, 17 assa, 20 arg, 22 tóm-
an, 23 atóms, 24 móður, 25 aflar.
Lóðrétt: 1 tekur, 2 elfum, 3 agns, 4 hægt, 5 annar, 6
krafa, 10 erjur, 12 afl, 13 ota, 15 kætum, 16 fumið, 18
stóll, 19 ansar, 20 anar, 21 gata.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16