Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Skipin Reykjavíkurhöfn: Svanur kemur í dag- .Wiesbaden fer í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Allt félags- starf liggur niðri um helgina. Gerðuberg, félags- starf. Miðvikudaginn 2. júní kl. 10. er boðið í fræðslu- og kynnisferð í Fella- og Hólakirkju, kaffiveitingar í boði, umsjón sr. Svavar Stef- ánsson. Skráning hafin, sími 575 7720. Gjábakki - Gullsmári. Vegna forfalla eru tvö sæti laus í ferð sund- hóps Jóhönnu og fé- lagsstarfsins til Fær- eyja 24. júní til 1. júlí. Upplýsingar hjá Jó- hönnu, sími 564 1829, og í afgreiðslu Gjá- bakka, s. 554 3400. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Sunnuhlíð, Kópavogi. Söngur með sínu nefi á laugardögum kl. 15.30. Íbúar, aðstandendur og gestir velkomnir. Vestfirðingafélagið í Reykjavík. Fyrirhuguð er ferð um Vestfirði 21. til 25 júlí. Ekið Barða- ströndina til Patreks- fjarðar þar sem verður gist í tvær nætur, og m.a. litast um á Látra- bjargi, Rauðasandi, Hnjóti, Hvallátrum í Örlygshöfn, Selárdal og Hesteyri og gist í tvær nætur á Ísafirði. Fararstjóri verður Sig- urbjörg Björgvins- dóttir. Upplýsingar og skráning hjá Guðríði í s. 566 6500 eða Hauki í s. 554 3774. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis. Fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. GA-Samtök spilafíkla. Fundarskrá: Þriðjud: Kl.18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnesi. Miðvikud: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogi og Egils- staðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud.: Kl.20, Víðistaðakirkja, Hafnarfirði. Laugard: Kl.10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl.19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888. Oa-samtökin. Átrösk- un/Matarfíkn/Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og í síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Fífan, Dalsmára 5 í Kópavogi, tartan- brautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabíllinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blodbank- inn.is. Minningarkort Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort, vinsamlega hringi í s. 552 4994 eða 553 6697. Minningarkortin fást líka í Háteigskirkju við Háteigsveg. Minningarkort Kven- félags Langholts- sóknar fást í Lang- holtskirkju, s. 520 1300, og í blómabúðinni Holtablómið, Lang- holtsvegi 126. Gíró- þjónusta er í kirkjunni. Minningarkort ABC- hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC-hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík, í s. 561 6117. Minning- argjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslu- korti. Allur ágóði fer til hjálpar nauðstöddum börnum. Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í s. 561 0545. Gíróþjónusta. Minningarkort Barna- spítalasjóðs Hringsins fást í Barnaspítalanum í s. 543 3724 eða 543- 3700. Kortin er hægt að panta með tölvu- pósti, hringurinn@simnet.is. Innheimt er með gíró- seðli. Kortin fást einnig í flestum apótekum á höfuðborgarsvæðinu. Í dag er laugardagur 29. maí, 150. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Gleðjist samt ekki af því, að andarnir eru yður undirgefnir, gleðjist öllu heldur af hinu, að nöfn yðar eru skráð í himnunum. (Lk. 10. 20.)     Valgerður Sverrisdóttiriðnaðar- og við- skiptaráðherra íhugar að fara út í handstýrðar að- gerðir ríkisvaldsins til að tryggja jöfn kynjahlutföll í atvinnulífinu, segir Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir, og hefur skipað nefnd sem ætlað er að skoða hvort rétt sé að setja reglur um þátt- töku kynjanna í stjórnun íslenskra fyrirtækja til að fjölga konum.     Svo segir hún: „SemHeimdellingur og formaður jafnrétt- isdeildar Heimdallar hafna ég slíkum tillögum og bendi á að þær ganga gegn raunverulegu jafn- rétti. Jafn réttur ein- staklinga fyrir lögum og gegn ómálefnanlegri mis- munun á ekkert skylt við jöfnun hlutfalla milli ein- stakra hópa samfélags- ins. Slíkar jöfnunar- aðgerðir geta þvert á móti brotið gegn jafn- rétti með því að draga inn (kven)kyn sem sér- stakan verðleika í stjórn- un fyrirtækja.     Jafnréttisbarátta fyrrialda snerist að miklu leyti um að litið væri á konur sem hæfa starfs- krafta þrátt fyrir kyn þeirra. Hún snerist um að uppræta allar þær forneskjulegu hugmyndir um konur sem leiddu til þess að lítið var gert úr verðleikum þeirra. Í dag eru slík viðhorf úreld og ekki nema einstaka flón sem heldur því fram að konur geti ekki sinnt störfum jafn vel og karl- ar sökum þess að þær séu svo miklar tilfinn- ingaverur eða kunni ekki rökhugsun.     Leyfum flónunum aðvera flón! Ef stjórn- endur eða eigendur fyr- irtækis líta framhjá hæf- um einstaklingum sem af kvenkyni eru þá hljóta þeir á endanum að tapa í samkeppni á markaði. Lagasetning sem þvingar slík flón til að velja kon- ur gegn sínum vilja er einmitt til þess fallin að halda uppi fordómum gagnvart konum á vinnu- markaðnum. Það er síst konum til hagsbóta að gefa svona flónum ástæðu til að ætla að konur í stjórnun fyr- irtækja séu þarna ekki á eigin forsendum heldur kynferðis síns vegna.“     Helga segir að lög semþvingi fram jöfn kynjahlutföll stjórnenda myndu setja ýmis fyr- irtæki í klípu sem ein- faldlega hafi ekki um neinar konur að velja. „Það sér hver heilvita maður að slík lagasetn- ing er út í hött og ein- ungis til þess fallin að friða samvisku þeirra sem telja sig berjast fyrir jafnrétti en mæla „árang- urinn“ í jöfnum kynja- hlutföllum. Nema hvað, slíkt jafnrétti heitir á góðri íslensku jöfnuður!“ segir Helga á frelsi.is. STAKSTEINAR Leyfum flónunum að vera flón! Víkverji skrifar... Víkverji var staddur í flugvél Ice-landair, á leið heim frá útlönd- um. Hafði þá á ferðum sínum flogið með a.m.k. tveimur stórum og virt- um flugfélögum en bæði höfðu upp á verri þjónustu að bjóða þegar kom að afþreyingu meðan á ferð stóð, maturinn var síðri og þjónustulund starfsfólks um borð minni. Vel af sér vikið, Icelandair. x x x En fyrirtækið er þó síður en svofullkomið. Langt því frá. Tvennt stakk Víkverja t.d. nú í viðskiptum sínum við þetta óskabarn háloftanna. Þrátt fyrir hátt flugmiðaverð virðast stjórnendur fyrirtækisins hafa bitið í sig þá ranghugmynd að það þurfi ekki að bjóða upp á meiri fríðindi en hvert annað lággjaldaflugfélag. Þannig er farið að rukka fyrir allar veitingar um borð í vélinni, að und- anskilinni máltíð og vatni. Víkverji er vanur að þiggja ávaxtasafa með mál- tíðinni og í fyrsta skipti var hann nú rukkaður fyrir, heilar 100 krónur. Ekki það að Víkverji sé ekki hlynntur því að geta borgað minna fyrir flugmiðann gegn því að sleppa öllum þessum óþarfa fríðindum. Þannig regla gildir hjá lággjalda- flugfélögum, en Icelandair er ekki eitt af þeim og er varla stætt á að rukka aumar 100 krónur fyrir ávaxtasafa þegar þeir smyrja svona duglega á fargjöldin fyrir þær flug- leiðir þar sem ekki ríkir samkeppni. x x x Hitt atriðið sem fór óskaplega ítaugarnar á Víkverja er þessi yfirgengilega mikla og sjálfumglaða kynning á Íslandi, náttúru landsins og þjóð. Það er vissulega af hinu góða að nota tækifærið til að veita erlendum ferðamönnum gagnlega leiðsögn og benda á hvað hægt sé að gera sér til dundurs á Íslandi. Mynd- ir sem kynna tollareglur og um- gengni um Flugstöðina annars vegar og um akstursskilyrði á íslenska þjóðveginum hins vegar, eru lofsam- legt framtak. En restin keyrir alveg um þverbak. Alveg er Víkverji viss um að erlendu ferðamennirnir um borð í Icelandair-vélunum vissu þetta fyrir, en ef ekki, þá komast þeir hreint ekki undan eftirfarandi prédikun: Á Íslandi rennur hreint vatn úr krönum og heitt vatn gýs úr ólgandi jörðu; Bláa lónið er allra meina bót og hálendið er ævintýri líkast. Amen. x x x Þeir íslensku matreiðsluþættirsem boðið hefur verið upp á í sjónvarpi í vetur hafa sína kosti og galla. Kostirnir eru að þeir sýna fram á að það geti verið leikur einn að elda góðan mat og að ekkert sé að óttast í þeim efnum. Einn áberandi galli er hins vegar sá að þeir virka á stundum miklu fremur sem langar auglýsingar en matreiðsluþættir. Þættirnir eru styrktir í bak og fyrir af matvælaframleiðendum og heild- sölum og fyrir vikið keppast stjórn- endur við að mæra vörur þeirra í bak og fyrir – ekkert sé betra en að nota þær. Þarf ekki einu sinni að búa til sósur lengur, bara kaupa þær til- búnar í krukkum, alveg jafn gott. Einmitt. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ísland. Líklega besta land í heimi! Hvað varð um Hjalla? MIG langar til að vita hvað varð um húsið Hjalla sem stóð á Sogavegi 112, lítið timburhús sem faðir minn, Helgi Jónsson húsgagna- smiður byggði. Fyrir skömmu var það reist upp af grunninum og flutt brott. Nú er verið að reisa þarna sex íbúða blokk. Þeir sem hafa upplýsingar um hvað varð um húsið og hvert það var flutt, svo ég geti skoðað það í nýju umhverfi eru vin- samlegast beðnir að hafa samband í síma 557 4098 eða 847 4098. Herdís Helgadóttir, Eyjabakka 5. Röng skilaboð í Toppauglýsingum UNDANFARNAR vikur hefur birst auglýsing í sjón- varpinu frá Vífilfelli. Þar er verið að auglýsa Topp. Í auglýsingunni situr stelpa í saunaklefa eftir æfingu. Rödd Ragnhildar Gísla- dóttur heyrist hljóma: „Þú ferð að hreyfa þig, lærin hætta að snertast.“ Nú er ég ekki feitlagin og ég hreyfi mig 4–6 sinnum í viku og tel sjálfa mig í fremur góðu formi. Ég æfi venjulega með nokkrum vinkonum mínum og erum við allar í góðu formi og á bilinu 50–60 kíló. Ég fór að ræða við þær um þessa auglýsingu og við gerðum okkur fulla grein fyrir að þrátt fyrir það hversu góðu formi við erum í snertast læri okkar. Við höfum allar náð þeim þroska að geta litið þessa auglýsingu gagnrýnum augum og vitum því að þetta á ekki við rök að styðjast. Hins vegar efast ég um að 12–14 ára stelpur hafi náð þessum þroska og því er ég hrædd um að þær gætu talið að takmark allra með hreyfingu væri þetta. Þetta gæti því hæglega ýtt undir ýmiss konar átrask- anir hjá þeim. Ásta Laufey. Hrós til Kattholts ÉG FÓR og heimsótti Kattholt nú á dögunum og verð að hrósa þeirri nauð- synlegu starfsemi sem þar fer fram. Það fór þó fyrir brjóstið á mér að sjá alla þessa heimilislausu ketti og finnst mér algerlega kominn tími á það að fólk fari að sýna ábyrgð, þroska og skynsemi þegar það kemur að gæludýrahaldi. Annars mæli ég með því að þeir sem að hafa upp á gott heimili að bjóða og mikla ást kíki í heimsókn í Kattholt og kynnist þess- um frábæru og kelnu kött- um sem þar búa. Lesandi. Dýrahald Köttur í Birkigrund ÞESSI myndarlegi grá- bröndótti köttur hefur í nokkrar vikur verið viðloð- andi Birkigrund í Kópa- vogi. Kötturinn er gæfur en ber enga ól. Upplýsingar í síma 554 2540. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 rýr, 4 stendur höllum fæti, 7 verkfærin, 8 bert, 9 beita, 11 gefa mat, 13 tvístíga, 14 mergð, 15 brjóst, 17 borðar, 20 spíri, 22 hljóðfæri, 23 hæð, 24 skrika til, 25 sól. LÓÐRÉTT 1 rekjan, 2 sjávardýr, 3 skylda, 4 þyngdarein- ing, 5 böggull, 6 rugla, 10 öldruð, 12 sár, 13 skjól, 15 erfiður, 16 ill- kvittin, 18 fleinn, 19 byggja, 20 snemma, 21 vonds. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 strekking, 8 gárur, 9 rétta, 10 ill, 11 afans, 13 agnir, 15 lúsug, 18 særði, 21 Rín, 22 tuggu, 23 ölinu, 24 Bragagata. Lóðrétt: 2 terta, 3 eyris, 4 kerla, 5 nótin, 6 egna, 7 gaur, 12 níu, 14 glæ, 15 líta, 16 sigur, 17 grugg, 18 snögg, 19 reitt, 20 iður. Krossgáta   Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.