Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
á Kringlukránni í kvöld
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil, s. 568 0878
Dúndur dansleikur
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
4. sýn fi 3/6 kl 20 - græn kort
5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort
Su 13/6 kl 20
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Í kvöld kl 20
Fö 4/6 kl 20,
Lau 5/6 kl 20,
Lau 12/6 kl 20,
Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Su 6/6 kl 20, Su 13/6 kl 20
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 3/6 kl 20,
Síðasta sýning
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Mi 2/6 kl 20 - UPPSELT
Fi 3/6 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/6 kl 20 - UPPSELT
Mi 9/6 kl 20, fi 10/6 kl 20, fö 11/6 kl 20
THIS IS NOT MY BODY
Norræn gestaleiksýning
Í kvöld kl 20 - kr. 1.900
HUGSTOLINN - KAMMERÓPERA
Marta Hrafnsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Daníel Þorsteinsson
Mi 2/6 kl 20
BRODSKY KVARTETTINN
Sjón, Ásgerður Júníusdóttir, Skólakór Kársness
Í dag kl 16 - Miðasala Listahátíðar
TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING
í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL
Á LISTAHÁTÍÐ:
Takk fyrir
komuna í vetur
Gleðilegt sumar
Nýtt spennandi leikár verður
kynnt í ágúst.
Sala áskriftarkorta hefst þá.
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is
Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT
Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.39
Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 10.30
Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30
Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00
Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30
Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30
Gospeltónleikar
í Fíladelfíu, Hátúni 2
í dag, laugardaginn 29. maí, kl. 21.00.
Gospel Factor frá Kaupmannahöfn
og Gospelkór Reykjavíkur.
Aðgangur ókeypis. Fórn verður tekin.
Hjálpræðisherinn á Íslandi - www.herinn.is
TÓNLEIKAR
Kaplakriki
PIXIES
Fyrri tónleikar hinnar goðsagnakenndu
rokksveitar Pixies, sem var endurreist
fyrr á þessu ári. Ghostigital hitaði upp.
Þriðjudagurinn 25. maí, 2004.
ÞAÐ er nú einu sinni svo að það
er annaðhvort eða með svona tón-
leika eins og landinn upplifði á
þriðjudagskvöldið en þá sneri hin
mikilhæfa sveit Pixies aftur á sjón-
arsviðið. Endurreistar sveitir ná
þessu eða ekki og því miður, þá náðu
Pixies þessu ekki. Tónleikarnir voru
ekki góðir, vægast sagt.
En þegar fyrsta lagið, „Bone
Machine“ hóf að hljóma hríslaðist
gæsahúðin um mig þveran og endi-
langan. Djö… er þetta flott lag og
Surfer Rosa, en þetta er opnunarlag
plötunnar sem hiklaust er ein besta
rokkplata sem nokkru sinni hefur
verið gerð. Í snöggu leiftri mundi ég
af hverju ég steinlá fyrir nýbylgj-
unni á sínum tíma. En vermirinn var
skammgóður.
Lagaskráin byggðist nær ein-
göngu upp á fyrstu þremur plötun-
um. Hinni átta laga stuttskífu Come
on Pilgrim og svo Surfer Rosa og
Doolittle. Snilldarlög eins og „Vam-
os“, „Caribou“, „Wave of Mutil-
ation“, „Monkey Gone To Heaven“,
„Tame“, „Gouge Away“, „Where Is
My Mind“ og svo framvegis. Og auð-
vitað partílagið sem „venjulega“
fólkið „fílaði“; „Hey“.
Það var auðvitað frábært að heyra
þessi geðveiku lög en sú litla gleði
sem hægt var að hafa af þeim var
bara sú að „heyra“ þau. Framreiðsl-
an var gjörsamlega freðin. Þetta var
líkt og með Strokes-tónleikana á
Broadway hér um árið, þú hefðir al-
veg eins getað verið heima hjá þér
og botnað græjurnar í stað þess að
flækjast upp í Hafnarfjörð.
Þegar ég hugsa til baka var þetta
meira eins og að sjá tökulaga-
sveitina Dixies spila Pixieslög frekar
en að þetta væri sveitin sjálf. Í and-
dyrinu vantaði svo ekki Pixiesvarn-
inginn og á einum bolnum stóð
„Pixies sellout“, kaldhæðinn brand-
ari sem er eftir þessa reynslu
óþægilega nærri sannleikanum. Og
þegar ég horfði upp á grautfúlan
Frank Black og félaga hans keyra í
gegnum 30 lög á fimmtíu mínútum
með engum kynningum, líkt og þau
væru að verða of sein í strætó, gat
maður ekki annað en hugsað: „Er
þetta þá bara „take the money and
run“?“ Hvar var gleðin og metnað-
urinn? Var þetta ískaldur bissness
til að stemma af bankareikningana
hans Black!? Auðvitað varð maður
hundfúll og svekktur en eftir þetta
er ég enn ákveðnaðari í að nálgast
svona endurkomur af ýtrustu var-
færni. Og skilja væntingarnar eftir
heima (sem er þó ekki hægt, eðli
málsins samkvæmt).
Ég ornaði mér við það að sjá flott-
ustu rokkgellu allra tíma, Kim Deal,
holdi klædda. Jú, svo voru flottir
Ghostigitalbolir til sölu líka. Þetta
voru hápunktar kvöldsins.
Ég hreinlega botna ekki í því á
hvaða forsendum þessi endurkoma á
að vera. Svo er maður að heyra að
tónleikarnir fram að þessu, sem
haldnir hafa verið í Bandaríkjunum,
séu búnir að vera býsna góðir. Og
seinni tónleikarnir hérlendis voru
víst fínir er ég að heyra. En þessir
tónleikar sem ég er að skrifa um
voru glataðir. Alveg glataðir.
Og bara svo allt sé á hreinu, fyr-
irsögnin vísar á kaldhæðinn hátt í
safnplötuna Death to the Pixies
1987–1991 sem gefin var út árið
1997. Því ekki óska ég því sómafólki
sem skipar Pixies dauða en vona þó
innilega að Frank Black og félagar
leyfi nú þessari merku sveit að hvíla
í friði. Því Pixies var svo sannarlega
frábær hljómsveit.
Tónlist
„Pixies
deyi“!
Morgunblaðið/Árni Torfason
„Þegar ég hugsa til baka var þetta meira eins og að sjá tökulagasveitina
Dixies spila Pixieslög frekar en að þetta væri sveitin sjálf,“ segir gagnrýn-
andi um fyrri tónleika Pixies og er langt í frá sáttur.
Arnar Eggert Thoroddsen
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is