Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 23
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 23
Alltaf
25%
ódýrari
gleraugu
og linsur*
í stað 19,68% vsk. áður
Hagstæð gleraugnakaup
Þjónustu- og ábyrgðaraðilar:
SMÁRALIND: OPTICAL STUDIO RX / OPTICAL STUDIO SÓL
KEFLAVÍK: GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
OPTICAL STUDIO
DUTY FREE STORE
LEIFSSTÖÐ - KEFLAVÍKURFLUGVELLI • SÍMI 425 0500 - FAX 425 0501
ERTU Á LEIÐ Í LEIFSSTÖÐ?
* Innifalið er virðisaukaskattur, 19,68%, og afsláttur 5,32%,
miðað við verðlagningu í neðangreindum verslunum.
Vestmannaeyjar | Framhaldsskól-
inn í Vestmannaeyjum útskrifaði á
dögunum tuttugu og einn stúdent
og hafa nú yfir þúsund manns út-
skrifast frá skólanum, sem fagnar
25 ára afmæli sínu á þessu ári.
Ólafur H. Sigurjónsson skóla-
meistari flutti ávarp við athöfnina.
Rut Haraldsdóttir hélt ræðu fyrir
hönd þeirra sem áttu 20 ára stúd-
entsafmæli og færði skólanum fyr-
ir hönd hópsins málverk eftir
Bjarna Ólaf Magnússon. Þá talaði
Njáll Ragnarsson fyrir hönd ný-
stúdenta og þakkaði skólanum fyr-
ir ánægjuleg og árangursrík ár.
Tólf af útskriftarnemunum í ár
hafa nú þegar ákveðið að fara í
framhaldsnám, átta í Háskóla Ís-
lands, einn ætlar í Hússtjórnar-
skóla Reykjavíkur, einn á Bifröst,
einn í Kennaraháskólann, einn í
Borgarholtskóla, einn í Háskólann
í Reykjavík, einn í Tækniháskól-
ann og einn ætlar til Írlands í Há-
skóla.
Stúdent-
ar út-
skrifaðir
í Eyjum
Selfoss | Fyrirtækið Jötunn Vélar
hefur keypt rekstur og lager Bújöf-
urs búvéla- og véladeildar Ingvars
Helgasonar og sameinað undir
merki Jötuns Véla með höfuðstöðvar
á Austurvegi 69 á Selfossi.
Jötunn Vélar er alhliða innflutn-
ingsfyrirtæki sem býður mikið úrval
véla og tækja fyrir landbúnað og
verktaka. Meðal þekktra vöru-
merkja sem Jötunn Vélar er um-
boðsaðili fyrir eru: Massey Fergu-
son og Valtra dráttarvélar, Pöttinger
og Vicon heyvinnutæki og Schaffer
Lader vinnuvélar. Jötunn Vélar er í
samstarfi við fjölda verkstæða vítt
og breitt um landið sem annast þjón-
ustu við viðskiptavini fyrirtækisins.
Á Selfossi er fyrirtækið í samstarfi
við Vélaverkstæði Þóris sem er sér-
hæft landbúnaðar- og vinnuvéla-
verkstæði og er í sömu byggingu.
Fyrirtækið Jötunn Vélar er í eigu
fjárfesta sem tengjast landbúnaði og
starfsmanna félagsins og er hlutafé
félagsins 80 milljónir. Áætluð velta
Jötuns Véla er um 700 milljónir og
starfsmenn fyrirtækisins eru 8.
Finnbogi Magnússon framkvæmda-
stjóri sagði í athugun að útibú yrði í
Reykjavík, í samvinnu við aðra aðila,
til að þjóna viðskiptavini.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötuns Véla, við höfuðstöðvarnar.
Fyrirtækið Jötunn Vélar
ehf. stofnað á Selfossi
Þorlákshöfn | Landsbankinn bauð
fyrir stuttu til sumarfagnaðar í
Ráðhúsinu í Þorlákshöfn fyrir
rekstraraðila í Sveitarfélaginu Ölf-
usi til að kynna fyrir þeim við-
skipti og þjónustu bankans. Boðið
var upp á léttar veitingar og gestir
fengu tækifæri til að hitta og ræða
við stjórnendur bankans sem voru
á staðnum.
Við þetta tækifæri skrifuðu
stjórnendur Landsbankans, Sigur-
jón Þ. Árnason, Halldór J. Krist-
jánsson og Ægir Hafberg, útibús-
stjóri í Þorlákshöfn, annars vegar
og bæjarstjóri Sveitarfélagsins
Ölfuss, Ólafur Áki Ragnarson,
ásamt bæjarstjórnarmönnunum
Maríu Sigurðardóttur og Sigurði
Bjarnasyni, hins vegar undir 290
milljón króna lán. Af þessari upp-
hæð eru 90 milljónir gömul lán
sem verið var að endurfjármagna.
Sveitarfélagið Ölfus stendur í
miklum framkvæmdum um þessar
mundir eins og viðbyggingu
grunnskólans, gatnagerð í nýju
hverfi sunnan Berga gegnt grunn-
skólanum, en þar er gert ráð fyrir
að byggðar verði 56 íbúðir. Einnig
má nefna byggingu íbúða fyrir
aldraða, stækkun hafnarinnar, lag-
færingar og endurbætur á frá-
veitukerfi bæjarins og bætta
íþróttaaðstöðu s.s. gerð gervigras-
vallar.
Ölfus tekur
lán í Lands-
bankanum
Lántaka bæjarsjóðs | Bæjarráð
Árborgar hefur samþykkt að taka
tilboði Landsbankans í kjölfar
skuldabréfaútboðs og heimila lán-
töku að fjárhæð 270 milljónir króna í
samræmi við fjárhagsáætlun. Lánið
er verðtryggt með 4,30% föstum
vöxtum. Lántökugjald er 1% með
sölutryggingu innan 5 daga og
stimpilgjald er 0,5%. Bæjarstjóra er
veitt heimild til að kanna hvort
Landsbankinn getur selt 60 milljónir
í viðbót á sömu kjörum.
Bæjarráð hefur einnig samþykkt
að taka lán til 15 ára að fjárhæð 85
milljónir hjá Lánasjóði sveitarfé-
laga. Lánið er í ísl. krónum, verð-
tryggt skv. vísitölu neysluverðs með
föstum 4,23% vöxtum. Bæjarráð
samþykkti að veita Lánasjóðnum
tryggingar fyrir láninu í tekjum
sveitarfélagsins.