Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 17 Til leigu í Holtagörðum vöruhús tilbúið til notkunar Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í síma 588 4477 eða 822 8242 www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30 Um er að ræða 4160 fm. þ.m.t. er 260 fm lestunarskýli og 108 fm skrifstofur á 2. hæð. Mjög gott athafna svæði, gott stæði fyrir gáma, góð aðkoma fyrir gámabíla. Húsnæðið hentar t.d. mjög vel fyrir heildsölur, lager og innflutnings fyrirtæki. Eignin er í eigu Landsafls sem er öflugt sérhæft fasteignafélag.  2 gámahleðslupallar ásamt afgreiðslu fyrir flutningabíla.  Vöruhúsið gerir ráð fyrir 3.000 eurovörubrettum.  Notaálag plötu 1.200 kg. pr fm.  Lofthæð 5 m við útveggi 7,6 m í mæni.  Fullbúið með rekkum í vöruhúsi. AÐKOMAN var svo óhugnanleg að jafnvel þaulvanir lögreglumenn urðu skelfingu lostnir. Þeir komu að börnum sem höfðu verið afhöfð- uð. Móðir barnanna, tveggja níu ára stúlkna og tíu ára pilts, kom að þeim á heimili þeirra í Baltimore í Bandaríkjunum eftir vinnu seint í fyrrakvöld. „Ég hef verið í lögreglunni í 35 ár og því miður fengið minn skerf af morðum en ég hef aldrei séð neitt í líkingu við þetta,“ sagði Kenneth Blackwell, aðstoðarlög- reglustjóri Baltimore. Fyrsti lögreglumaðurinn sem kom á vettvang varð svo miður sín að hann bað um að annar lögreglu- maður tæki við verkefninu. Vopn fannst fyrir utan húsið og lögreglan yfirheyrði mann sem móðir barnanna benti á. Hann fannst skammt frá morðstaðnum. Að sögn Blackwells var ekki vitað um tengsl mannsins við börnin. AP Lögreglumenn í Baltimore fyrir utan húsið þar sem börnin þrjú voru myrt. Óhugnanlegt morð á börnum Baltimore. AP. BANDARÍKJAMENN hafa lagt fram fjölda sam- særisákæra á hendur rót- tæka múslímaklerknum Abu Hamza al-Masri í London, en breska lög- reglan handtók hann á fimmtudagsmorguninn að beiðni Bandaríkjamanna, sem krefjast þess að hann verði framseldur. Masri er 47 ára, fæddur í Egyptalandi en nú bú- settur í Bretlandi. Hann barðist með skæruliðum í Afganistan gegn hersetu Sovétmanna, og missti á báðar hendurnar og annað augað í sprengingu. Hann varð alræmdur í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkj- unum 11. september 2001 fyrir eld- messur sínar í mosku í Finsbury Park í London þar sem hann vegsam- aði árásirnar og sakaði Bandaríkin og Bretland um að heyja stríð gegn Ísl- am. Síðan í upphafi síðasta áratugar hefur moskan í Finsbury Park laðað að sér róttæka íslamista hvaðanæva úr Evrópu. Meðal þeirra sem sóttu þar bænastundir voru ýmsir sem yf- irvöld sögðu síðar að tengdust hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda, þ.á m. „skósprengjumaðurinn“ svo- nefndi, Robert Reid, og Zacarias Moussaoui, sem ákærður hefur verið í tengslum við hryðjuverkin í Banda- ríkjunum. Undanfarin ár hafa yfirvöld talið að moskan gegndi hlutverki eins kon- ar skráningarskrifstofu fyrir samtök Osama bin Ladens í Evrópu. Aftur á móti hefur verið deilt um hvort Masri hafi átt beina aðild að hryðjuverkum – sem hann hefur sjálfur ætíð neitað að eiga – eða einungis rekið áróður gegn vestrænum viðhorfum. Fulltrúi Osama bin Ladens? Abu Hamza al-Masri hefur laðað til sín rót- tæka íslamista hvaðanæva úr Evrópu London. Washington Post, Los Angeles Times. Reuters Masri leiðir bæn fyrir utan moskuna í Finsbury Park í Norður-London um miðjan mars sl. TOM Brokaw, einn þekktasti frétta- þulur Bandaríkjanna, hyggst hætta því starfi í desem- bermánuði. Hann mun hins vegar vinna að gerð heimildamynda fyrir NBC-sjón- varpsstöðina næstu tíu árin. Brokaw er aðal- þulur NBC og birtist á skjánum á hverju kvöldi í fréttatímanum er nefnist „NBC Nightly News“. Hann hefur verið helsti fréttaþulur NBC frá árinu 1983. Brokaw hóf störf hjá NBC árið 1966. Hann hefur unnið til allra helstu verðlauna bandarískrar sjónvarps- fréttamennsku og hefur ritað fjórar bækur. Brokaw er fæddur 1940. Því hefur oftlega verið spáð að hans bíði frami á pólitískum vettvangi. Brokaw hættir Tom Brokaw FYRSTI stofnfrumubanki í heimin- um hefur verið opnaður í London. Í vikunni sem leið voru lagðar inn tvær svonefndar frumulínur sem þróaðar voru annars vegar hjá King’s College í London og hins veg- ar rannsóknastöð í Newcastle. Warner lávarður, aðstoðarráð- herra heilbrigðismála, sagði að með bankanum væri staðfest forystuhlut- verk Breta í stofnfrumurannsókn- um. „Rannsóknir á þessu sviði geta hugsanlega valdið byltingu og gagnast þúsundum sjúklinga sem þjást af skelfilegum sjúkdómum á borð við Parkinsons-veiki, heilablóð- fall og Alzheimer,“ sagði ráð- herrann. Stofnfrumur eru teknar úr nokk- urra daga gömlum fósturvísum. Þær hafa þann eiginleika umfram frumur úr fullvöxnu fólki að geta breyst í sérhæfðar frumur af margvíslegu tagi, til dæmis vöðvafrumur, lifrar- frumur eða taugafrumur. Fyrsti stofn- frumu- bankinn London. AFP. JOHN Kerry, forsetaefni demó- krata, réðst á fimmtudagskvöld harkalega á stefnu George Bush Bandaríkjaforseta í þjóðaröryggis- málum. Sakaði Kerry forsetann um að hafa aukið hættuna á hryðju- verkum í Bandaríkjunum með því að beita frekar valdi en samninga- viðræðum í Íraksmálinu. Kerry sagði forsetann hafa graf- ið undan því trausti sem Bandarík- in hefðu áunnið sér sem leiðandi þjóð í friðarmálum og vísaði meðal annars til heimsstyrjaldanna, kalda stríðsins, Bosníu og Kosovo. Þess í stað hefði Bush kosið að gera her- inn að miðpunkti utanríkisstefnu sinnar, beitt honum í bráðræði og hunsað vilja bandamanna. „Eitt lærði ég í flotanum, að það er gáfulegt að beygja ef skipið stefnir í átt að skeri,“ sagði Kerry og vísaði til ástandsins í Írak og reynslu sinnar úr Víetnam-stríðinu. Kerry hét því að bæta fyrir það tjón sem Bush hefði valdið á leiðtogaímynd Bandaríkjanna og losa þau undan því að vera háð olíu frá Mið-Austurlöndum. Kerry sagði að höfuðmarkmiðið nú væri að útrýma hryðjuverka- samtökunum al-Qaeda og öðrum samtökum sem tengdust þeim. Styrkja þyrfti herinn til að mæta hryðju- verkaógninni. Kerry sagði tíma til kominn að taka á málum Sádi-Arabíu sem hafi stutt al- Qaeda og önnur hryðjuverkasam- tök. Það væri hættulegt fyrir Bandaríkin að vera háð olíu frá slíkum löndum og því þyrfti að breyta. Kerry hvatti Bush til þess að sannfæra Atlantshafsbandalagið (NATO) um að senda þyrfti fleiri hermenn til Íraks og tryggja Bandaríkjunum stuðning frá bandalaginu þegar hann sækir fund með leiðtogum helstu iðnríkja heims í Georgíu innan skamms. Nýjustu skoðanakannanir sýna að meirihluti demókrata vill að bandarískar hersveitir verði kall- aðar frá Írak. Kerry er því kominn í þá stöðu að þurfa að sannfæra eigin flokksmenn um að tryggja þurfi frið í Írak áður en það verði gert. Segir Bush hafa aukið hættu á hryðjuverkum Seattle. Washington Post. John Kerry HNATTVÆÐINGIN hefur haft lítil áhrif á örbirgðina í fátækustu þróunarlöndunum og gæti jafnvel orðið til þess að viðskiptahalli þeirra ykist, að því er fram kemur í skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar birtu í gær. „Kenningin um að það sé nóg að laga efnahagslíf þróunarlanda að viðskiptakerfi heimsins og koma á frjálsræði gengur ekki upp,“ sagði Carlos Fortin, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um viðskipti og þró- un. Í skýrslu stofnunarinnar um 50 fátækustu lönd heims segir að við- skiptafrelsið í heiminum sé ekki nógu víðtækt til að stuðla að var- anlegum efnahagsframförum í löndum á borð við Súdan, Afgan- istan og Angóla. Þrátt fyrir veru- legan hagvöxt og aukinn útflutning í mörgum landanna hafi íbúarnir ekki notið góðs af því nema að litlu leyti. Hnattvæðingin dreg- ur ekki úr fátæktinni Genf. AP. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.