Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 24
DAGLEGT LÍF 24 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ U ndanfarin sumur hefur Marentza Poulsen rekið kaffihús í Grasagarðinum í Laugardal. Það er öðruvísi að koma til hennar í Grasa- garðinn þar sem hún býður upp á kjarnmiklar súpur, heimabökuð brauð, salöt, nýstárlegar samlokur og ýmsar bökur innan um rósir og fuglasöng. Í tjörninni svamla fiskar og þegar sólin skín er eins og fólk sé statt einhversstaðar í sólarlöndum. Á hverju sumri bryddar Marentza upp á nýjungum á matseðlinum. Um helgar býður hún svo upp á dögurð eða „brunch“ og þá koma til hennar heilu fjölskyldurnar og njóta þess að sitja og borða saman í rólegheitum. Dögurðurinn er borinn fram í þremur hlutum en hann saman- stendur af skinkurúllum með pip- arosti, hráskinku, nokkrum teg- undum af osti, nýbökuðu brauði, grænmeti og ávöxtum, hrærðum eggjum, beikoni, marmelaði, sæta- brauð, kaffi og ávaxtasafa. „Það tók okkur tíma að koma Ís- lendingum á bragðið en þetta fyr- irkomulag er vinsælt víða erlendis, að fjölskyldan fari út að borða sam- an um hádegisbil um helgar og njóti samverunnar. Núna njóta þessar helgarveislur mikilla vinsælda hér á Café Flórunni.“ Kaffihúsið er opið alla daga frá tíu á morgnana og fram til tíu á kvöldin. Rétt við kaffihúsið er lítið garðhús. Marentza segir að fólk í róman- tískum hugleiðingum geti pantað húsið fyrir sig. Þá er dekkað upp borð þar, kveikt á kertum og þar sköpuð ljúf stemmning. Þar er líka haft að hafa fundi og litlar sam- komur. En hvernig á nú fólk að fara að því að búa til dögurð fyrir fjölskyld- una sína ef það vill hafa hann heima? „Aðalmálið er að vera búin að ákveða fyrirfram hvað bjóða á upp á og vera ekki að rjúka í það að morgni að skipuleggja og kaupa inn. Síðan er bara að leggja fallega á borð og njóta þess að spjalla og vera saman. Marentza gefur hér hugmyndir að nokkrum að réttum sem henta í dög- urð. Spænsk eggjakaka 500 g soðnar kartöflur 4 egg 1 peli rjómi 1 hvítlauksrif 2 marðir sólþurrkaðir tómatar salt og pipar timjan Skerið soðnu kartöflurnar í sneið- ar og raðið þeim í lausbotna köku- mót. Þeytið saman egg, rjóma, pressaðan hvítlauk og sólþurrkaða tómata. Kryddið með salti, pipar og timjan eftir smekk. Hellið eggjablöndunni ofan á kartöflurnar og bakið við 180°C í 30– 40 mínútur. Spínatbökur 10 brauðskeljar (fást í Gripið og Greitt) 500 g frosið spínat 3 egg dl matreiðslurjómi 1 bolli rifinn ostur salt og pipar Þíðið spínatið. Þeytið saman egg og rjóma, kryddið með salti og pip- ar. Bætið síðan rifnum osti og spín- ati saman við eggjablönduna og setj- ið með matskeið í skeljarnar (u.þ.b. 1–2 msk í skel, fer eftir stærð). Bakið í 20 mínútur við 180° C. Baguette með reyktum laxi og piparrótarrjóma Skerið brauðið í penar sneiðar og penslið með olíu eða smyrjið með smjöri. Skerið laxinn í þunnar sneið- ar og setjið eina sneið á hverja brauðsneið. Setjið síðan eina tsk af piparrótarrjóma á hverja sneið og hálfan ferskan mini-spergil þar ofan á. Piparrótarrjómi 1 box sýrður rjómi, 36% ½ bréf piparrótarmauk 1 tsk hlynsýróp smá salt og pipar Hrærið þetta allt vel saman. Ferskur aspas léttsoðinn í smá saltvatni. Eggjasamloka með döðlum og bönunum Samlokubrauð 250 g púðursykur bananar 1 dl döðlur 3 egg 6 msk matreiðslurjómi 2 tsk kanill olía til steikingar Skerið banana og döðlur í bita, hrærið saman við púðursykurinn og setjið á milli tveggja brauðsneiða, u.þ.b. 1 msk í hvern skammt. Þeytið saman egg, rjóma og kanil, veltið samlokunum upp úr eggjablöndunni og steikið á pönnu, báðum megin. Borið fram volgt. Döðlur með beikoni Hálfri beikonsneið er vafið um döðlu og fest með tannstöngli. Sett í ofn við 200°C uns beikonið fer að brúnast.  MATARKISTAN |Ljúfir réttir fyrir sannkallaðan veisludögurð með lítilli fyrirhöfn Létt og freistandi Blómailmur, fuglasöngur og angan af nýbökuðu brauði mætir þeim sem koma um helgar í dögurð á Café Flóru í Grasagarðinum. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir smakkaði á léttum kræsingum um síðustu helgi. Huggulegt: Það þarf ekki mikið að hafa fyrir dögurði. Ómissandi: Ferskur appelsínusafi tilheyrir.Sígilt: Beikon og pylsur. Morgunblaðið/ÞÖK Marentza Poulsen: Með starfsmanni sínum, Kristínu Eddu. Einfalt en gott: Reyktur lax og piparrótarrjómi. Café Flóra Grasagarðinum Laugardal. Opið alla daga í sumar frá 10– 22. Dögurður er borinn fram um helgar frá 11–14. Ferskt: Jarðarber eru tilvalin á hlaðborðið.Á gömlum meiði: Sýrópspönnukökur. Ljúffengt: Brie með pekanhnetum og marmelaði. Ný sending af Mac gallabuxum Fást í 5 lengdum Kringlunni Seltjarnarnesi LH-drykkurinn er gerður úr undanrennu sem sýrð er með venjulegum mjólkursýrugerli, Lacto- bacillus helveticus. Hann hefur þá eiginleika að geta klofið mjólkur- prótein í litlar prótein- einingar, lífvirk peptíð. Þessi peptíð geta hjálpað til við stjórn á blóðþrýstingi. Sjá nánar á www.ms.is Stjórn á blóð- þrýstingi Náttúruleg hjálp við stjórn á blóðþrýsting i H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA S k o ð i ð V i ð e y www . f e r j a . i s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.