Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGFUNDUM FRESTAÐ Þingstörfum lauk í gær og þing- fundum var frestað fram í sept- ember. Í ræðu forseta þingsins við þinglok kom fram að aldrei hafi fleiri þingskjöl verið lögð fram en í vetur, eða 1.890 skjöl. Skuldbindingar LSR B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins vantar 196 milljarða til að standa undir eigin skuldbindingum. Við síðustu áramót námu skuldbind- ingar sjóðsins 304 milljörðum en hrein eign var 108 milljarðar. Skuld- bindingar sjóðsins hafa aukist um 125% síðustu sjö ár. Tilnefna forsætisráðherra Framkvæmdaráðið í Írak til- nefndi í gær einróma sjía-múslím- ann Iyad Allawi til að gegna emb- ætti forsætisráðherra í væntanlegri bráðabirgðaríkisstjórn sem á að taka við völdum 30. júní. Var þess vænst að jafnt hernámsstjórnin sem Sameinuðu þjóðirnar myndu sam- þykkja val ráðsins. Allawi er 59 ára gamall, læknir að mennt og var í út- legð í rúma þrjá áratugi. Óttast að 2.000 hafi farist Líkur eru taldar á því að allt að 2.000 manns hafi farist í flóðum á eyjunni Hispaníólu í Karíbahafi en þar eru ríkin Haítí og Domíníska lýðveldið. Enn rigndi í gær en al- þjóðlegt björgunarlið og hermenn unnu að því að leita að fólki sem grafist hefur undir aurleðju eftir tíu daga úrhelli í ríkjunum tveim. Gagnrýnir Bush John Kerry, væntanlegt forseta- efni demókrata í Bandaríkjunum, gagnrýndi á fimmtudagskvöld harkalega stefnu George W. Bush forseta og sagði hann hafa sýnt mikla óvarkárni. Forsetinn hefði aukið hryðjuverkahættuna með því að ráðist inn í Írak. Y f i r l i t Kynning – Blaðinu í dag fylgir tímarit- ið Heilsa. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hefur dæmt hálffertugan karlmann til tveggja ára fangels- isvistar fyrir það að hafa numið fjögurra ára stúlku á brott af heimili hennar á Seyðisfirði um nótt í desember. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa numið stúlkubarnið á brott úr rúmi sínu sofandi um miðjan vetur. Snjór var úti og barnið í náttfötum einum klæða. Faðir barnsins varð var við um- gang og er hann kom út úr húsinu stóð mað- urinn með barnið í fanginu um fjóra metra frá húsinu. Segir í dómnum að gera verði ráð fyrir því að barnið hafi verið í mikilli hættu og að snarræði föður stúlkunnar hafi orðið til þess að hann náði henni af ákærða rétt fyrir utan húsið. Segir í dómnum að við ákvörðun refsingar beri að líta til þess að að brot ákærða beindust gegn mikilvægum hagsmunum, þ.á m. frjáls- ræði barnungrar stúlku og umsjá foreldra yfir henni. Enda þótt ganga verði út frá að ásetn- ingur ákærða til að nema stúlkuna á brott hafi ekki myndast fyrr en hann hafi verið kominn inn í húsið þykir hann ekki eiga sér málsbætur. Hann var einnig sakfelldur fyrir að fara í tví- gang inn í íbúðarhús um nóttina í heimildarleysi. Mundi ekkert Maðurinn er ofdrykkjumaður og bar við yf- irheyrslur að hann myndi ekkert eftir atburðum næturinnar. Samkvæmt vitnisburði geðlæknis eru í fari mannsins engin merki um afbrigðileg- ar kenndir í garð barna eða kvenna. Maðurinn á sakaferil að baki og þótti dóm- inum, sem var fjölskipaður, ekki ástæða til að skilorðsbinda refsingu hans. Tveggja ára fangelsi fyrir að nema stúlku- barn á brott KONUR fengu að meðaltali einung- is 56% af þeirri upphæð sem karlar fengu í viðbótarlaun, samkvæmt at- hugun sem Ríkisendurskoðun hefur framkvæmt á viðbótarlaunum í þeim tíu opinberum stofnunum sem greiða mest viðbótarlaun. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem unnin er að beiðni Jóhönnu Sig- urðardóttur alþingismanns, var sá hópur ríkisstarfsmanna einangraður sem miklar líkur eru á að fái viðbót- arlaun, þ.e.a.s. mánaðarlegar greiðslur ofan á grunnlaun án þess að sérstakt vinnuframlag liggi þar að baki. Með því móti var reynt að finna út hvernig þessar greiðslur hefðu skipst eftir kynjum þegar um sambærileg störf var að ræða og hversu há útgjöldin hefðu verið vegna þessa. Upphaflegt úrtak vegna athugun- arinnar var tæplega 1.100 manns, en hópurinn var síðan þrengdur niður í 506 starfsmenn hjá þeim tíu stofn- unum sem greiddu mest viðbótar- laun. Ekki var marktækur munur á fjölda karla og kvenna í því úrtaki, en konurnar voru tíu fleiri en karl- arnir. Samtals fékk þessi hópur 443 milljónir í greiðslur á árinu 2002 sem líklegt er talið að séu viðbót- arlaun að stærstum hluta og skipt- ust greiðslurnar þannig að karlar fengu 284 milljónir kr. og konur 159 milljónir kr. eða 56% að meðaltali af þeirri fjárhæð sem karlar fengu. Fram kemur að mjög mismun- andi var á milli stofnana hver launa- munurinn var á milli karla og kvenna. Þá reyndust fleiri konur en karlar undir fimmtugu fá viðbótar- laun öfugt við aldurshópinn yfir fimmtugu þar sem karlarnir voru fleiri. Hins vegar fengu karlar í öll- um aldurshópum hærri viðbótar- launagreiðslur en konur. Hæst settir fengu mest „Ljóst er að hæstu viðbótarlaunin runnu aðallega til þeirra starfs- manna sem voru hæst settir innan stofnunar. Einnig er ljóst að því hærri stöðu sem starfsmenn gegndu þeim mun minni var launamunur kynjanna. Minnstur var hann hjá þeim sem tóku laun skv. C-ramma BHM en í honum eru aðallega stjórnendur ríkisstofnana. Ríkisend- urskoðun bendir á að ekki séu til neinar samræmdar reglur um ákvörðun viðbótarlauna ríkisstarfs- manna og hvetur til þess að slíkar reglur séu settar. Slíkar reglur mætti þá taka upp í jafnréttisáætlun eða starfsmannastefnu stofnana,“ segir ennfremur í frétt Ríkisendur- skoðunar af þessu tilefni. Tíu ríkisstofnanir greiddu 443 milljónir króna í viðbótarlaun árið 2002 Konur fengu minna en karlar SKÍÐALANDSLIÐ Íslands í alpagreinum verður við æfingar á skíðasvæði Skagfirðinga í Tindastóli yfir hvítasunnuhelgina og að sögn Guðmundar Jakobssonar, formanns alpa- greinanefndar Skíðasambandsins, er þetta fyrsta sumaræfingin í mörg ár sem landsliðið nær að halda hér á landi. Jamie Dunlop lands- liðsþjálfari kom til landsins á fimmtudags- kvöld og stjórnar æfingunum í Skagafirði. Guðmundur sagði heimamenn á Sauð- árkróki aðstoða Skíðasambandið af fullum krafti, m.a. við að setja salt í skíðabrekkurnar, troða snjóinn og flytja landsliðsmenn upp fjall- ið á vélsleðum þar sem lyfturnar ganga ekki. Æfingarnar um helgina marka upphaf á nýju undirbúningstímabili næsta skíðavetrar. Næsta æfing hér á landi er áformuð á Snæ- fellsjökli í lok júní. Sagði Guðmundur stefnuna vera að ná 70 dögum í æfingar fyrir fyrstu skíðamót í Evrópu en fyrir síðustu áramót náðust eingöngu 25 æfingadagar. Renna sér á skíðasvæði Skagfirðinga í Tindastóli um hvítasunnuhelgina Fyrsta sumar- æfing skíðalands- liðsins í mörg ár Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson Landsliðsmenn í alpagreinum fengu far með snjótroðara skíðadeildar Tindastóls upp í fjallið. HRAFN Jökulsson freistar þess að setja heimsmet með því að tefla a.m.k. 200 hrað- skákir hvíldarlítið í Smáralind og safna fé til styrktar barnastarfi Hróksins. Hrafn hóf að tefla í gærmorgun og situr samfleytt við tafl- borðið til klukkan 16 í dag eða þar til tekist hefur að safna nægum fjármunum til að kosta 200 heimsóknir Hróksins í skóla vítt og breitt um landið, að eigin sögn. Læknar frá Landspítalanum rannsökuðu Hrafn í gærmorgun og var útkoman í góðu lagi. Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráða- læknir á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og sérstakur líflæknir Hróksins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að álagið væri farið að segja til sín, hann hefði hækkað í hvíldarpúls og blóðþrýstingi. Hrafn var þá búinn tefla 105 skák- ir, þar af tapa fjórum og gera sex jafntefli. Hrafn var um tíma tengdur við skjá og sást þá glöggt að þegar staðan snerist gegn honum rauk púlsinn upp. Hann sagðist í samtali við blaða- mann í gærkvöldi vera furðu brattur en eins og gæfi að skilja væru hæðir og lægðir í andlegu at- gervi hans. „Ég ætla að halda áfram að tefla þangað til við erum búin að safna nóg,“ sagði hann ákveðinn. Púlsinn hraðari í tapstöðu Morgunblaðið/Ómar Hrafn Jökulsson teflir við Íslandsmeistara kvenna, Hörpu Ingólfsdóttur, og lauk skákinni með jafntefli. Hrafn Jökulsson freistar þess að tefla 200 hraðskákir Í dag Sigmund 8 Forystugrein 32 Úr verinu 11 Viðhorf 42 Viðskipti 12 Þjónusta 35 Erlent 16/17 Minningar 36/39 Höfuðborgin 20 Kirkjustarf 45/47 Akureyri 20 Myndasögur 48 Suðurnes 21 Bréf 64 Árborg 22 Dagbók 50/51 Landið 23 Íþróttir 52/55 Daglegt líf 24 Leikhús 56 Ferðalög 25 Fólk 56/61 Úr Vesturheimi 27 Bíó 58/61 Listir 28/29 Ljósvakamiðlar 62 Umræðan 30/31 Veður 63 * * *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.