Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Sundhöll Selfoss er samkomustaður Sel- fossbúa sem eru duglegir að sækja sund. Á hverjum morgni mætir góður hópur manna og kvenna klukkan 6.40, stendur á útitröpp- unum og spjallar. Öðru hverju er gefið létt bank á hurðina, einkum ef kalt er í veðri. Þessi árrisuli hópur kallar sig Húnana og er nafnið dregið af því að menn grípa fast í hurðarhúninn. Aðrir koma þarna líka svo sem allar konurnar sem mæta í vatnsfimi sem er gríðarlega vinsælt sport á Selfossi en það er Elísabet Kristjánsdóttir íþróttafræð- ingur sem er með þá útgerð í lauginni. Húnarnir hafa gert það á hverju sumri að fara saman í ferðalag. Fyrr í þessum mánuði fór hópurinn til Austurríkis á skíðasvæðin, ekki til að renna sér heldur til þess að njóta rólegheita og skoða sig um. Í einni dagsferð- inni heimsótti hópurinn skíðakonu síðustu aldar, Ann Marie Moser Pröll, á veitingastað hennar þar sem skoða má verðlaunasafn hennar. Þetta var sönn upplifun og afreks- konan kom úr eldhúsinu.    Eins og menn vita er Selfoss ekki útgerð- arstaður en samt má finna þar bryggjuspjall eða kannski er rétt að kalla það bæjarspjall, þessa stund þegar menn hittast á götu og spyrja tíðinda. Auðvitað eru búsettir hér sjó- menn en hér er umræðuefnið þó ekki fiskafl- inn heldur reyna menn að spá í það hvernig gangi á Hótel Selfoss sem er mikill ferða- mannastaður. Til marks um góðan afla er bílafjöldinn á planinu, þá eru menn ánægðir enda er það hér eins og annars staðar að allir vilja að vel gangi hjá nágrannanum.    Atvinnulífið á Selfossi er um margt sér- stakt. Hér eru mörg verktakafyrirtæki, stór og smá, og má vel líkja þeim við útgerðina til dæmis í Vestmannaeyjum. Þessi fyrirtæki sækja út um landið og bjóða í verk og fara þá með mannskapinn þangað. Mikið er um að vera á Selfossi í bygging- arvinnu enda stöðug fjölgun undanfarin ár. Þetta kallar á skýra hugsun og skarpa sýn bæjaryfirvalda því það þarf að byggja skóla og sjá öllum fyrir þjónustu. Og svo þarf auð- vitað að passa að fara ekki fram úr fjárhags- áætlunum sem fyrirliggjandi eru um rekst- urinn en stórframkvæmdir eru fjármagnaðar með lánum. Úr bæjarlífinu SELFOSS EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA Biskup Íslands,herra Karl Sig-urbjörnsson, vígir endurbyggða kapellu í sjúkrahúsi Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja í Keflavík þriðjudaginn 1. júní kl. 15. Þjónandi prestar á Heil- brigðisstofnuninni taka allir þátt í athöfninni ásamt Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra og starfsfólki stofnunarinnar. Félagar úr kirkjukórum á Suðurnesjum syngja við athöfnina. Organisti og stjórnandi er Natalia Shou. Kapellan, sem fyrir var, var vígð af Pétri Sig- urgeirssyni biskupi á árinu 1982. Kapellan hefur nú verið stækkuð í nýju rými. Opið hús verður á Heil- brigðisstofnuninni milli kl. 17 og 19 þennan dag. Þar geta íbúar svæðisins skoð- að kapelluna og nýuppgert anddyri og húsnæði slysa- og bráðamóttöku sem opn- að verður fyrr um daginn. Kapella vígð Aðalsteinn L. Valdi-marsson var syfj-aður og lúinn þeg- ar hann sendi frá sér oddhenda sauðburð- arkveðju: Margt er sporið mitt um vorið, margt er skorar á. Margt er borið, minnkar þorið, margt er slorugt þá. Innrímið veldur því að vísan er oddhend, sem er dýrt rímað, en at- kvæðafjöldi hverrar línu veldur því að hún er skammhend. Varð skammhenda sjálfstæður rímnaháttur á 17. öld og algengur síðan með ýms- um tilbrigðum. Svein- björn Beinteinsson orti einnig oddhenda skamm- hendu í „Bragfræði og háttatali“, sem kom út ár- ið 1953: Ástin meðan öllu réði okkar geði hjá allt var kveðið eins og gleði entist héðan frá. Hugrún Björg fylgist eins og fleiri með þjóðmála- umræðunni á skjánum: Á þingi er malað og malað, og mikið um ekkert talað. Það kommana kætir er Kastljósið mætir; þá er sýningarþörfinni svalað. Af sauðburði pebl@mbl.is Bolungarvík | Veðrið hefur leikið við Bolvíkunga undanfarna daga og hefur hitinn náð komist upp í 15 til 20 stig yfir hádaginn Unga fólkið kunni vel við sig og notaði tækifærið til að busla svolítið í Hólsánni sem rennur í gegnum bæinn. Sumum þeirra þótti vatnið í ánni þó í kaldara lagi. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Buslað í Hólsánni Galsi Keflavíkurflugvöllur | Ingólfur Eyfells, framkvæmdastjóri verkfræðideildar varn- arliðsins, hlaut nýlega viðurkenningu Bandaríkjaflota fyrir framúrskarandi ár- angur í starfi. Er hann á myndinni ásamt yfirmanni flotastöðvar varnarliðsins, Mark S. Laughton kafteini og Frederick R. Broome yfirmanni Stofnunar verklegra framkvæmda. Í greinargerð kafteinsins með viður- kenningunni segir að Ingólfur sé mikilhæf- ur stjórnandi og með framsýni sinni hafi hann gert verkfræðideildina að framúr- skarandi fyrirtæki sem veiti alhliða verk- fræðiþjónustu á heimsmælikvarða. Ingólfur tók við starfi framkvæmda- stjóra verkfræðideildarinnar fyrr á þessu ári, en þar áður var hann aðstoðarfram- kvæmdastjóri deildarinnar í 12 ár. Sautján Íslendingar starfa í verkfræðideildinni, þar af tíu verkfræðingar. Varnarliðið heiðrar verkfræðing LANDGRÆÐSLA ríkisins og Kolkuós ses., félag um varðveislu og uppbyggingu Kolkuóss í Viðvíkursveit, undirrituðu á dögunum samkomulag um samstarf um endurheimt landgæða á landi jarðarinn- ar. Framkvæmdir við friðun svæðisins sem tiltekið er í samkomulaginu eru þeg- ar hafnar og er reiknað með að landið verði alfriðað fyrir ágangi búfjár um miðjan júní. Vinna við skipulagningu svæðisins hefst í sumar og síðsumars verður nokkur þúsund birkiplöntum plantað á svæðið þar sem talið er að hinn svonefndi Brimnesskógur hafi verið. Samkomulag um endurheimt land- gæða Kolkuóss ♦♦♦ Hveragerði | Það fylgir vorinu að fara út og njóta blíðunnar. Grunn- skólanemendum hér í Hveragerði var nýlega boðið upp á vorsprell í Sund- lauginni að Laugaskarði. Eftir próf í skólanum sem stóðu fram að hádegi var þeim yngstu boðið í sund fram að kaffi. Meðan þau voru í bleyti komu fé- lagar úr hljómsveitinni Á móti sól og spiluðu og sungu fyrir krakkana. Eft- ir kaffi kom miðhópurinn og synti bæði í hefðbundnum sundfötum og sínum venjulegu fötum. Upp úr klukkan sex var svo komið að elstu krökkunum að njóta sín í sundinu. Eftir kvöldmat var haldið mikið ball í skólanum þar sem hljómsveitin Á móti sól spilaði fyrst fyrir aldurshóp- inn tíu til tólf ára og síðan fyrir þau elstu. Það var mikil stemning og greinilegt að lög sveitarinnar eru vel þekkt hjá krökkunum, enda nokkrir Hvergerðingar sem skipa hljómsveit- ina. Krakkarnir tóku því hraustlega undir í hverju einasta lagi. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Hálfdán Helgi stingur sér listilega í laugina á vorsprelli nemenda. Vorsprell í sundlauginni Grindavík | Það er eins með kríuna og Grinda- víkurdeild RKÍ, báðar láta vita af sér kröft- uglega í lok maí. Grind- víkingar verða að vísu varir við Rauða kross- deildina allt árið. For- varnarstarf þeirra er orðið fastur liður í skólastarfi Grunnskóla Grindavíkur því þá fá krakkarnir í 1. bekk hjólahjálm að gjöf. „Þetta er orðinn ár- viss viðburður eins og hjá mörgum deildum. Það er alltaf jafn gaman að mæta í skólann fær- andi hendi og krakk- arnir eru líka svo skemmtilegir. Meirihluti starfsins er yfir vet- urinn en auðvitað eru ýmis verkefni sem unnið er að allt árið. Þar má nefna heimsóknarþjón- ustuna okkar, fatasöfn- unina og ýmis nám- skeið,“ sagði Guðfinna Bogadóttir, formaður deildarinnar. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Allir með hjálm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.