Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar hf.,
FLE, hefur samið um kaup á öllu
hlutafé í Íslenskum markaði hf., ÍM.
Kaupverðið er 336 milljónir króna og
tekur Flugstöðin við rekstri félags-
ins 1. júní. FLE gerir ráð fyrir að
ekki komi til uppsagna starfsmanna
og þeim verði boðin önnur störf í
flugstöðinni ef grípa þarf til fækk-
unar.
„Þarna var fyrst og fremst verið
að leysa ákveðinn hnút sem var fyrir
hendi og skapa þær aðstæður að
Flugstöð Leifs Eiríkssonar geti
skipulagt verslunarrekstur og þjón-
ustu í stöðinni í samræmi við það
sem hugur stendur til,“ segir Stefán
Þórarinsson, varaformaður stjórnar
FLE, um kaupin.
Miklar breytingar standa fyrir
dyrum í flugstöðinni á næstu miss-
erum sem fela í sér stækkun innrit-
unarsals og móttökusals, stækkun
og endurskipulagningu verslunar-
og þjónusturýmis auk þess sem nýtt
skrifstofurými verður útbúið. Fyrir
tveimur árum var stofnað til forvals
vegna þessa verkefnis til að auka á
úrval verslunar og þjónustu í flug-
stöðinni. Vegna deilna FLE og Ís-
lensks markaðar hafa þessar fram-
kvæmdir frestast.
„Við erum mjög ánægð hjá FLE
með að hafa náð að leysa þetta mál
svona. Við vonumst nú til að fá frið til
að vinna að þeim breytingum sem
þarna eru nauðsynlegar,“ segir Stef-
án. „Það hefur allt verið steinfrosið í
tvö ár útaf þessum slagsmálum.“
Aðspurður hvort Íslenskur mark-
aður verði lagður niður í kjölfar
kaupanna segist hann ekki gera ráð
fyrir því. „Hugmyndir okkar snúa að
því að auka verulega verslunarrými
og vera með öðruvísi verslanir, meiri
sérhæfingu. Þetta hefur verið í
óbreyttri mynd í 15–16 ár. Það er því
kominn tími á breytingar.“ Hann
segir það stefnu núverandi stjórnar
FLE og stjórnvalda í landinu að hin-
ir hefðbundnu tollfrjálsu vöruflokk-
ar eins og áfengi, tóbak og snyrtivör-
ur, verði þó áfram hjá Flugstöðinni
enn um sinn. „Þetta er ein aðaltekju-
lindin og það sem greiðir fyrir alla þá
starfsemi sem þarna er og alla upp-
bygginguna,“ segir Stefán.
Seljendur sáttir við málalyktir
Hluthafar Íslensks markaðar voru
alls 41 talsins, flestir tengdir íslensk-
um framleiðendum iðnaðarvara.
Þeirra á meðal voru Osta- og smjör-
salan, Sláturfélag Suðurlands, ORA,
Nói-Síríus, Sproti, Ístex ullarvörur,
Eðalfiskur, Mál og menning, Bláa
lónið og Sjóklæðagerðin ásamt fleir-
um.
„Við sáum ekki okkar framtíð
þarna,“ segir Magnús Ólafsson,
stjórnarformaður ÍM. „Úr því að
samkomulag náðist við Flugstöðina
um þetta verð töldum við eðlilegast
að þeir rektu sig út úr þessu máli
sjálfir. Það þarf að gera miklar
breytingar í húsinu og nú hafa þeir í
hendi sér hvernig þeir gera það.“
Magnús segir það hluta af sam-
komulaginu við FLE að einstakir að-
ilar að Íslenskum markaði muni
áfram eiga rétt á að taka þátt í for-
valinu. Ennfremur var í samkomu-
laginu fjallað um málefni starfsfólks-
ins. „Ég tel að menn séu almennt
sáttir við þessar málalyktir. Flug-
stöðin ræddi við okkur í framhaldi af
uppsögn leigusamnings og úrskurrði
Samkeppnisstofnunar. Þá komust
menn að þessari niðurstöðu og á
endanum var orðinn vinsamlegur
blær á þessu öllu. Við óskum Flug-
stöðinni og Íslenskum markaði góðs
gengis í framtíðinni. Þetta er orðin
samleið í um 35 ár,“ segir Magnús.
FLE kaupir Íslenskan markað
Morgunblaðið/Sverrir
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
ÞÝZKA stjórnin
hefur lagt fram
tillögur um
rýmkun á um 30
ára gömlum lög-
um um eign-
arhald á fjöl-
miðlum.
Samkvæmt til-
lögunum verður
viðmið um veltu,
sem setur af
stað rannsókn samkeppnisyf-
irvalda á samruna fjölmiðlafyr-
irtækja, lækkað og útgáfufyr-
irtækjum verður auðveldað að
efna til samstarfs um auglýsingar
sín á milli.
Í Financial Times er greint frá
því að Wolfgang Clement efna-
hagsmálaráðherra hafi kynnt til-
lögurnar og um leið hvatt blaða-
útgefendur í Þýzkalandi til að
sameinast og verjast þannig
ásælni útlendinga í þýzk fjölmiðla-
fyrirtæki. Ráðherrann vitnaði til
þess er ProSieben-sjónvarpsstöðin
lenti í höndum bandaríska at-
hafnamannsins Haim Saban eftir
að Kirch-samsteypan hrundi í
fyrra. „Það var ekki eitt þýzkt
fyrirtæki í stakk búið að taka yfir
arftaka Kirch-samstæðunnar,“ er
haft eftir Clement. Hann sagði að
blaðaútgefenda biðu sömu örlög
og ProSieben, nema þeir hefðu
„styrk til að fást við vandamál í
okkar eigin landi.“
Nýlega hvatti Gerhard Schröder
kanzlari þýzka banka til að sam-
einast og verjast þannig erlendri
ásælni. Þessi ummæli ráðamanna
hafa valdið áhyggjum meðal fjár-
festa og eru sögð bera keim af
verndarstefnu, segir FT.
Wolfgang
Clement
Vilja rýmri
lög um eign-
arhald á
fjölmiðlum
Helgi Magnússon fram-
lengir vegna kaupa í ÍSB
FRAMVIRKUR samningur vegna
kaupa Helga Magnússonar á 9,3%
hlut í Íslandsbanka hefur verið
framlengdur um þrjá mánuði.
Landsbanki Íslands hefur keypt
1,8% eignarhlut í Íslandsbanka út
úr samningnum og eru því fram-
lengd kaup á 7,5% hlut til 1. sept-
ember.
Landsbankinn átti fyrir í veltu-
bók 6,8 milljón hluti en eftir við-
skiptin á Landsbankinn 96,8 milljón
hluti. Samhliða var gerður kauprétt-
ur um þá hluti sem seldir eru fram-
virkt og getur
Landsbankinn
nýtt kaupréttinn
á gjalddaga
framvirka samn-
ingsins á genginu
8,60. Gagnaðili á
sölurétt á sama
tíma á genginu
8,25.
Helgi Magn-
ússson keypti
bréfin í lok febrúar með framvirk-
um samningi af Landsbanka Íslands
hf. og Landsbanka Luxembourg
S.A. Hann sagðist þá vilja auka á
stöðugleika í kringum bankann með
kaupunum og stefndi að því að fá að
honum öfluga aðila.
„Ég hef unnið að því allan tímann
að fá með mér aðila að þessu verk-
efni. Það gengur vel en er ekki lok-
ið. Þetta er stórt verkefni og stórar
fjárhæðir og tekur heldur lengri
tíma en ætlað var í upphafi. En ég
vonast til að því verði lokið fyrir 1.
sept.,“ sagði Helgi í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Helgi
Magnússon
Hesteyri komin
með 31% í VÍS
HESTEYRI ehf. hefur samið um
kaup á 6% eignarhlut í Vátrygging-
arfélagi Íslands, VÍS, af Samvinnulíf-
eyrissjóðnum, fyrir rúman einn millj-
arð króna. Fyrir átti Hesteyri 24,7%
hlut í VÍS en VÍS á jafnframt þriðj-
ungshlut í Hesteyri á móti Fiskiðj-
unni Skagfirðingi og Skinney-Þinga-
nesi.
Gengið var frá kaupum Hesteyrar
á 2% eignarhlut í VÍS af Samvinnulíf-
eyrissjóðnum í gær og fóru kaupin
fram á verðinu 31 krónu á hlut. Hlut-
irnir voru rúmlega 10,9 milljónir tals-
ins og nam kaupverðið því rúmum 338
milljónum króna.
Jafnframt var gerður framvirkur
samningur milli sömu aðila um kaup á
4% eignarhlut í félaginu, eða rúmlega
21,8 milljónir hluta, á sama gengi og
nemur kaupverð þess eignarhlutar
því tæpum 677 milljónum króna.
Gangi þessi kaup eftir verður eign-
arhlutur Hesteyrar í VÍS 30,7%. og
eignarhlutur Samvinnulífeyrissjóðs-
ins verður 4,4% en hlutur hans var
fyrir 10,4%. Hesteyri er þá væntan-
lega orðin stærsti hluthafinn í VÍS en
KB banki á þar tæp 30% og Eign-
arhaldsfélagið Samvinnutryggingar á
tæp 26%. Ekki náðist í forsvarsmenn
Hesteyrar vegna kaupanna.
Straumur selur
Þekkingu
STEFÁN Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Þekkingar hf., hefur
ásamt KEA og fleiri fjárfestum keypt
allt hlutafé í Þekkingu af Straumi
fjárfestingabanka. Með kaupunum er
stefnt að því að efla félagið með
áframhaldandi sókn auk þess sem
starfsemi þess á Akureyri er tryggð,
að því er segir í tilkynningu. Stefnt er
að því að reka félagið áfram í núver-
andi formi með höfuðstöðvar á Ak-
ureyri og starfsstöð í Kópavogi.
„Óvissa hefur ríkt um eignarhald
félagsins í nokkurn tíma enda allt
hlutafé þess verið til sölu. Þetta
ástand hefur hefur verið óþægilegt
bæði fyrir starfsmenn og viðskipta-
vini félagins. Með þessum kaupum
hefur allri óvissu verið eytt, er haft
eftir Stefáni Jóhannessyni í tilkynn-
ingu félagsins.
Andri Teitsson, framkvæmdastjóri
KEA, segist líta á fyrirtækið sem góð-
an fjárfestingarkost og kaupin falli
vel að fjárfestingarstefnu KEA.
Þekking býður fyrirtækjum m.a.
upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerf-
isveitu, hýsingu, netþjónustu og
gagnaflutninga. Um 40 manns starfa
hjá fyrirtækinu.
ÞORKELL Sig-
urlaugsson, sem
verið hefur
framkvæmda-
stjóri hjá Burð-
arási, hefur ver-
ið ráðinn
framkvæmda-
stjóri þróun-
arsviðs Háskól-
ans í Reykjavík
(HR). Hann tek-
ur við nýja starfinu 1. ágúst næst-
komandi. Jafnframt mun Þorkell
vinna áfram að sérstökum verk-
efnum fyrir Burðarás, m.a. með
setu í stjórn fyrirtækja eins og
Marel, TölvuMyndum og Mari-
tech.
Hlutverk þróunarsviðs HR er
að stuðla að áframhaldandi vexti
og nýsköpun háskólans og er sér-
stök áhersla lögð á útrás og
tengsl við atvinnulífið.
Þorkell starfaði hjá Eimskipa-
félagi Íslands allt frá því á náms-
árum sínum, var m.a. fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs frá
árinu 1986 og vann að flestum
stórum þróunarverkefnum og um-
breytingum á Eimskipafélaginu í
um tvo áratugi, eftir því sem seg-
ir í tilkynningu Burðaráss. Þor-
kell var framkvæmdastjóri Burð-
aráss hf., sem var þá
dótturfyrirtæki Eimskipafélags-
ins, frá stofnun félagsins árið
1989 til ársins 1996, en eftir
skipulagsbreytingar hjá Eim-
skipum um síðustu áramót starf-
aði hann hjá Burðarási.
Þorkell
til HR
Þorkell
Sigurlaugsson
Í tilkynningu frá HR segist Þor-
kell m.a. fá tækifæri til að tengja
betur saman fræðin og raunveru-
leikann í nýju starfi. „En ég hef
ekki yfirgefið Burðarás og at-
vinnulífið. Ég er tilbúinn að sitja
áfram í stjórnum fyrirtækja með-
fram starfinu hjá Háskólanum í
Reykjavík, eins og verið hefur um
aðra starfsmenn háskólans. Þetta
er eitthvað sem þekkist mikið er-
lendis og er eftirsóknarvert, en
hefur verið minna um hér á
landi,“ segir Þorkell.
Hagnaður Kögunar
84 milljónir
● HAGNAÐUR varð af rekstri sam-
stæðu Kögunar hf. á fyrsta ársfjórð-
ungi sem nam 84 milljónum króna.
Árið áður var hagnaðurinn 38 millj-
ónir á sama tímabili.
Rekstrartekjur Kögunar voru 801
milljón króna á fyrsta fjórðungi sam-
anborið við 263 milljónir á sama
tímabili í fyrra. Rekstrargjöld voru
716 milljónir. Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði nam 85 milljónum,
eða 11% af rekstrartekjum en var
14% árið áður. Veltufé frá rekstri á
fyrstu þremur mánuðum ársins nam
samtals 69 milljónum samanborið
við 30 milljónir árið áður. Eiginfjár-
hlutfall í marslok var 53% og arðsemi
eigin fjár er 20%.
Það skal tekið fram að sam-
anburður á milli ára er ekki að fullu
marktækur enda keypti samstæðan
á sl. ári Ax hugbúnaðarhús, Hug og
Landsteina Streng og með fylgdi
meirihlutaeign í Aston Baltic í Lett-
landi. Þá hefur Navision Ísland horfið
úr samstæðunni. Starfsmönnum
Kögunar fjölgaði við þetta úr 110 í
334, auk 18 starfsmanna í Lettlandi.
Áfram er gert ráð fyrir 3 til 3,2 millj-
arða ársveltu og að EBITDA verði
15% af veltu innan tveggja ára.
SS tapar 100
milljónum
● Sam-
stæða Slát-
urfélags Suð-
urlands svf.
tapaði 99,8
milljónum
króna á fyrsta fjórðungi ársins eftir
skatta. Árshlutareikningurinn sam-
anstendur nú í fyrsta sinn af reikn-
ingum SS og dótturfélaganna SS
Eignum ehf. og Reykjagarði hf. Á
sama tímabili í fyrra tapaði SS eitt og
sér 43,2 milljónum króna. Í tilkynn-
ingu fyrirtækisins segir að verri af-
koma nú skýrist fyrst og fremst af 49
milljónum króna hærri fjármagns-
gjöldum milli ára og afkomu dótt-
urfélaganna, sem nú séu hluti af sam-
stæðuuppgjörinu.
Velta samstæðunnar jókst úr 747
milljónum á fyrsta ársfjórðungi í fyrra í
993 milljónir nú, einkum vegna inn-
komu dótturfélaga í samstæðuupp-
gjörið. Veltuaukningin var því 33% og
hækkaði rekstrarkostnaður um sama
hlutfall. Í tilkynningu SS segir að af-
koman sé óviðunandi og einkennist
af verðsamkeppni og offramboði á
kjöti á markaðnum. Afkoman hafi
jafnan verið þyngst framan af árinu en
bezt á síðasta ársfjórðungi.
Tap hjá Austurbakka
● TAP varð af
rekstri Austurbakka
hf. á fyrsta ársfjórð-
ungi sem nam 28
milljónum króna.
Rekstrartap án af-
skrifta var 6 millj-
ónir króna en á
sama tímabili í fyrra
var rekstrarhagnaður upp á 40 millj-
ónir.
Afkoma fyrsta ársfjórðungs er
sögð alla jafna lakari en síðari árs-
fjórðunga og sé ekki vísbending fyrir
árið í heild. Skýringar á tapinu eru
sagðar fyrst og fremst þær að
rekstrartekjur fyrstu þrjá mánuði árs-
ins hafi staðið í stað frá síðasta ári
á meðan útgjöld í fjármagnsliðum og
launaliðum hafi verið verulega hærri.
Rekstrartekjur voru á tímabilinu
533 milljónir króna, fjármagnsgjöld
voru 14 milljónir samanborið við 14
milljóna fjármagnstekjur árið áður.
Veltufé frá rekstri fyrstu þrjá mánuði
2004 var neikvætt um 17,5 milljónir
og eiginfjárhlutfall er 22%.