Morgunblaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 27
ÚR VESTURHEIMI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 27
SUMARVERTÍÐIN á Winnipegvatni í Manitoba,
Kanada, hefst í dag eftir tveggja mánaða hlé, en
vetrarvertíðinni lauk 31. mars. Fiskimennirnir
hafa að vanda notað hléið til að undirbúa næstu
átök, en þeir óttast að veiðin verði stöðvuð fljót-
lega verði ekki brugðist hratt og rétt við aukinni
mengun í vatninu.
Mikið hefur verið ritað og rætt um Winnipeg-
vatn að undanförnu og ekki síst aukna mengun í
vatninu. Sitt sýnist hverjum en nýlega var veittur
aukinn styrkur til frekari rannsókna á meng-
uninni og lífríkinu í vatninu.
Í liðinni viku var klukkutíma sjónvarpsþáttur
hjá National Geographic í Kanada um fiskveiðar á
Winnipegvatni. Feðgarnir Ted, Robert og Chris
Kristjanson frá Gimli voru í aðalhlutverki, en fjöl-
skyldan hefur fiskað á vatninu síðan fyrir 1900.
Sigurður Þorvaldur Kristjánsson, faðir Teds, sem
lést í haust sem leið, kom fimm ára til Nýja Ís-
lands 1885 og byrjaði fljótlega að stunda fisk-
veiðar á Winnipegvatni. Ted fæddist í Gimli 1912
og 12 ára hóf hann veiðar með föður sínum. Ro-
bert eða Bob, sem er 70 ára síðan í desember,
byrjaði líka veiðar á barnsaldri og Chris segist
muna eftir sér í vöggu úti á ísnum. „Veiðar á vatn-
inu hafa verið okkar líf í meira en hundrað ár og
nauðsynlegt er að halda því hreinu ef veiðarnar
eiga ekki að stöðvast,“ segir Bob.
Winnipegvatn var ein helsta ástæða þess að Ís-
lendingar settust að í Manitoba, en 21. október
1875 hófst landnám Íslendinga við vatnið. Það er
10. stærsta ferskvatn heims og sjötta stærsta
ferskvatn Kanada, um 24.400 ferkílómetrar að
stærð. Vegna kvikasilfursmengunar voru veiðar
bannaðar í vatninu veturinn 1970 til 1971 og er
það bann mörgum fiskimanninum í fersku minni
enda snerti bannið marga illa.
Fiskveiðar á Winnipegvatni í sviðsljósinu
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Feðgarnir Robert T. Kristjanson og Chris Kristjanson úti á ísnum.
GERT er ráð fyrir að á næsta ári
verði sýndur þáttur í þáttaröðinni
um Simpsons-fjölskylduna þar sem
Homer Simpson fer til Winnipeg í
Kanada. Kanadamaðurinn og lista-
maðurinn Hugh MacDonald, sem er
af íslenskum ættum, kom ýmsum
merkingum varðandi Nýja Ísland á
framfæri í þættinum og vonar að
Homer fái tækifæri til að fara til Ís-
lands áður en yfir lýkur.
Homer heitir í höfuðið á Homer
Groening, föður Matt Groening,
höfundar þáttaraðarinnar. Höfund-
urinn sagði í fyrra að faðir sinn
væri frá Winnipeg og í kjölfarið var
Homer Simpson gerður að heið-
ursborgara borgarinnar.
Þegar ákveðið var að gera þátt
um Homer í Winnipeg kom Hugh
MacDonald Gimli, höfuðborg Nýja
Íslands, á framfæri. ,,Homer og fað-
ir hans fara yfir landamærin frá
Bandaríkjunum til Kanada til að fá
lyfseðilskyld meðöl,“ segir Hugh
MacDonald um ósýnda þáttinn.
,,Þar sem ég er vel kunnugur í
Manitoba teiknaði ég ýmsar merk-
ingar þar sem Winnipeg, Gimli og
þjóðvegur númer 9 koma við sögu.
Vonandi fá þessar merkingar að
standa en Fox verður að samþykkja
allt sem ég geri.“
Hugh á margt skyldfólk í Gimli
og þar á meðal er afi hans, Joe
Arnason, sem rak lengi samnefnda
húsgagnaverslun í bænum. Hugh
vann í fimm ár við þáttinn Hey Arn-
old og kom þá meðal annars Gimli á
kortið. ,,Ég teiknaði verslun afa
með nafninu og hún var í einum
þættinum,“ segir hann hróðugur.
Þrjár kvikmyndir
Þáttaröðin um Simpsons-
fjölskylduna er á 16. ári. Hugh seg-
ir að nýlega hafi verið gerður
samningur til fjögurra ára og þá
megi gera ráð fyrir að þátturinn
hætti. Hins vegar hafi verið ákveðið
að gera þrjár kvikmyndir um fjöl-
skylduna og gerð þeirra taki að
minnsta kosti sex ár.
Hugh fæddist í Kaliforníu og býr
þar en hann hefur ekki gleymt ís-
lenska upprunanum. ,,Kona mín er
ánægð með íslensku ræturnar og
segir gjarnan að dóttir okkar sé ís-
lensk í útliti,“ segir hann. ,,Við höf-
um aldrei farið til Íslands en Simp-
son fer víða og vonandi fær hann að
fara til Íslands.“
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Hugh MacDonald við minnismerki við höfnina í Gimli um frænda sinn, Ted
Arnason, fyrrverandi bæjarstjóra í Gimli.
Vill sjá Homer
Simpson á Íslandi
BÓKIN Hnausa Reflections, The
History of Breiðavík District,
kemur út í haust en vinna við
þessa um 600 blaðsíðna bók hefur
staðið yfir í Manitoba í Kanada
síðan haustið 2000.
Fyrir tæplega fjórum árum var
stofnuð um 25 manna ritnefnd, en
Carol Gudmundson er ritstjóri og
Crystal Sigurdson aðstoðarrit-
stjóri. Sigurrós Pálsson í Hnausa
hefur hins vegar verið ein helsta
driffjöðurin, en margir hafa lagt
til efni í bókina.
,,Það eru til bækur um Gimli,
Arborg, Riverton, Geysir and Vid-
ir en mjög lítið hefur verið skrifað
um fólkið á þessu svæði,“ segir
Sigurrós.
Hnausa er rétt fyrir sunnan
Riverton við Winnipegvatn. Ís-
lendingar settust fyrst þar að
1876 og fljótlega myndaðist sterk-
ur kjarni fiskimanna og bænda.
Sigurrós segir að fyrstu íbúarnir
hafi verið mjög framtakssamir.
Afi hennar og amma hafi flutt
til Hnausa 1887 og skömmu síðar
hafi skóli verið stofnaður, kirkja
hafi verið byggð, verslun komið á
laggirnar og reist samkomuhús og
bókasafn. Árið 1894 hafi 32 krakk-
ar verið í skólanum og um 80 nem-
endur á eftir seinni heimsstyrjöld-
ina en síðan hafi íbúum tekið að
fækka. ,,En svæðið er vinsælt
sumarbústaðaland,“ segir Sigur-
rós.
Bók um Hnausa
nær tilbúin
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sigurrós Pálsdóttir með gögn um alla nemendur í Hnausa.