Morgunblaðið - 07.07.2004, Side 14
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ungmenni starfa saman | Tíu ung-
menni frá félagsmiðstöðvunum Óríon í
Húnaþingi vestra og Gimli í Dalvík-
urbyggð eru þessa dagana á Rota á Spáni.
Þau taka þátt í samstarfsverkefninu
Youth for Europe sem stendur yfir dag-
ana 1. til 10. júlí.
Fram kemur á vef viðskiptaþjónust-
unnar Forsvars ehf. á Hvammstanga, for-
svar.is, að þetta er í annað sinn sem ung-
menni úr sveitarfélaginu taka þátt í
verkefni sem þessu því á síðasta ári hafi
svipaður hópur farið til Danmerkur.
Sex Evrópulönd taka þátt í verkefninu.
Haft er eftir Gunnari Sveinssyni far-
arstjóra á vefnum að veður hafi verið afar
gott í Rota og mikið verið til gamans gert.
„Er þetta kærkomið tækifæri fyrir þetta
unga fólk að kynnast menningu og fólki
annarra landa,“ segir ennfremur á vefn-
um.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Byggja í Súðavík |
Hreppsnefnd Súðavík-
urhrepps hefur falið
sveitarstjóra að bjóða
út byggingu tveggja
einbýlishúsa við Holta-
götu í Súðavík.
Fram kemur hjá
Ómari Má Jónssyni
sveitarstjóra á vef Súðavíkurhrepps að
verið sé að leggja lokahönd á hönnunina
og síðan verði ráðist í útboð. „Við erum
að horfa á að það verði hægt að hefja
framkvæmdir við húsin með haustinu og
stefnum á að þau verði tilbúin í febrúar
eða mars á næsta ári,“ segir Ómar á vef
hreppsins. Spurður um hvort hreppurinn
hafi kaupendur að húsunum sagði hann,
að ekki hefði reynt á það á þessu stigi
málsins, og tíminn yrði að leiða það í
ljós.
Selja Skúlagarð |
Hreppsnefnd Keldu-
neshrepps hefur
samþykkt að fela
oddvita sínum að
hefja undirbúning að
sölu félagsheimilisins
Skúlagarðs í Keldu-
hverfi ásamt skóla-
stjórabústað. Í fundargerð hreppsnefnd-
arinnar segir að mikill meirihluti þeirra
hreppsbúa sem þátt tók í skoðanakönnun
um málið hafi lýst yfir vilja til að selja
húsið.
„Sumstaðar
er geld-
ingahnapp-
ur einsog
vin í eyði-
mörk. Það
er ótrúlegt
hvar hann holar sér niður, gjarnan
þar sem lítill annar gróður er fyrir.
Á þeim stöðum gleður hann augað
ósegjanlega,“ segir Þuríður Sigurð-
ardóttir listmálari og bæjarlista-
maður Garðabæjar. Geldingahnapp-
urinn þrífst helst og best í sendnum
malarjarðvegi. „Fyrir vikið sker
þetta bleika blóm sig oft býsna mikið
úr í umhverfinu. Rétt einsog hið
smáa og litla í umhverfinu gerir yf-
irleitt, bara ef við gefum okkur tíma
til að líta í kringum okkur. Oft látum
við hjá líða að huga að því.“
Sem fyrr er landslag og náttúra
ósjaldan viðfangsefni þeirra ís-
lensku myndlistarmanna sem í dag
eru helst í kastljósinu. „Í dag eru
listamenn fæstir að mála landslags-
verk einsog gömlu meistararnir
gerðu. Samtímalistamenn nálgast
viðfangsefni sín með öðrum hætti.
Sjálf hef ég hinsvegar mikið sótt í
nærmyndir, meðal annars af blóm-
um. Ég er ekki í vafa um að þar hef-
ur uppvöxtur minn í gróðursælu
Laugarnesinu í Reykjavík haft áhrif.
Þar spruttu m.a. sóleyjar og fíflar á
sumrin – og svo auðvitað líka geld-
ingahnappurinn góði,“ segir Þur-
íður Sigurðardóttir.
Geldingahnappur sker sig úr
Þuríður Sigurðardóttir
myndlistarmaður.
Geldingahnappurinn
góði. „Gleður augað
ósegjanlega,“ segir
Þuríður Sigurðardóttir
Blómin eru fölbleik, fremursmá og standa þétt samaní hnöttóttum kolli þannig
að fljótt á litið líkist kollurinn
stöku blómi. Blöðin sem eru neðst
eru striklaga og mynda oft litla
þúfu. Blómstilkurinn er hinsvegar
alltaf blaðlaus. Geldingahnappur
finnst víða í Evrópu og er þá oft-
ast bundinn við strandsvæði.
Hann er mjög algengur hér á
landi við strendur, á melum og
söndum bæði á láglendi og ekki síst á hálendi, þar sem hann finnst einnig í sendnum
víðimóum. Hann finnst einnig í þurru gras- eða mólendi. Hann blómgast í júní.
Heimild: Hörður Kristinsson 1986. Plöntuhandbókin. Blómplöntur og byrkningar. Íslensk náttúra II. Örn
og Örlygur, Reykjavík. 306 bls.
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Geldinga-
hnappur
(Armeria maritima)
af gullintoppuætt
Mikið hefur veriðrætt um umhverf-
isauglýsingu á Gunnars-
mæjónesi við þjóðveg-
inn. Baldur Garðarsson
velti fyrir sér hvort
þetta sé til marks um
hnignandi bændamenn-
ingu:
Þar sem áður þjóð- við braut
á þúfu stóð ein rolla,
er nú jarðföst oní laut
auglýsinga dolla.
Jón Ingvar Jónsson yrk-
ir líka um nesið Gunn-
ars-mæjónes.
Prúðlega Kampholtskeldan bar
klæðin sín græn sem golan blés,
Urriðafossinn fagur var
en fegurst þó Gunnars mæjónes.
Jón Ingvar átti leið um
Hvalfjarðargöngin og
varð að orði:
Órahátt á himni ský
hlæja einum munni
glaðir hrappar geysast í
gat á Fjallkonunni.
Auglýsingadolla
pebl@mbl.is
Kópasker | Páfagaukur tók við
stjórn bíls á meðan eigandinn
brá sér í búð á Kópaskeri á dög-
unum. Er þetta afrískur grápáfi
sem Gúru heitir en þeir geta
orðið allt að hundrað ára gam-
all. Til eru nokkrir fuglar af
þessari gerð hér á landi. Grá-
páfinn getur lært að tala og
komið sér upp þónokkrum orða-
forða. Þannig urðu vísindamenn
agndofa yfir hæfileikum páfa-
gauks af þessari gerð til að tjá
sig. Sá býr í New York og hefur
orðaforða upp á 950 orð, talar í
nútíð, þátíð og framtíð og virð-
ist hafa gott skopskyn. Ekki
mun þó hinn þingeyski Gúrú
vera svo gáfaður að hann geti
rabbað við bílstjórann á ferð um
Melrakkasléttuna, eftir því sem
næst verður komist, og er því
frekar hafður til skrauts á
heimilinu.
Morgunblaðið/Kristbjörg
Gúrú við stýrið
Páfagaukur Fljót | „Starfið hér fyrir norðan leggst
mjög vel í mig. Það hefur verið tekið alveg
yndislega á móti okkur hjónunum eftir að
við fluttum norður rétt fyrir hvítasunnuna.
Síðan höfum við verið að kynnast fólkinu í
söfnuðunum,“ segir séra Gunnar Jóhann-
esson, sem tók við starfi sóknarprests í
Hóla- og Hofsósprestaköllum hinn 1. júní.
Svæðið sem séra Gunnar þjónar nær yfir
sex kirkjusóknir. Hann segist munu reyna
að fara í heimsóknir á sem flest heimili á
næstu vikum í þeim tilgangi að hitta fólk og
kynnast því. Á myndinni er séra Gunnar
ásamt konu sinni, Védísi Árnadóttur, og
syninum Sölva á Hofsósi.
Nýr prestur
tekinn til starfa
♦♦♦
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
HAFIN er vinna við stikun gönguleiðar
milli þéttbýliskjarnanna þriggja á Skaga,
Blönduóss, Skagastrandar og Sauðárkróks.
Leiðin sem stikuð er liggur um fjalllendið
sem skilur að Austur-Húnavatnssýslu og
Skagafjörð og er miðað við að upphafs- og
endapunktur leiðarinnar geti verið sem
næst þéttbýliskjörnunum sjálfum. Kemur
þetta fram á vef Atvinnuþróunarfélags
Norðurlands vestra, anv.is.
Leiðin er stikuð með það í huga að betri
er krókur en kelda og jafnframt er tekið mið
af göngukorti sem gert var af leiðinni fyrir
nokkrum árum. Fram kemur á vefnum
að nú þegar er lokið við stikun leiðar úr
Kálfárdal í Tröllabotna. Frá Tröllabotnum
hafa verið stikaðar tvær leiðir, annars vegar
í Víðidal yfir Tröllaháls og hinsvegar að
Þverárfjallsvegi um Skálahnjúksdal. Leið-
irnar frá Sauðárkróki í Kálfárdal, frá
Blönduósi í Víðidal og frá Skagaströnd að
Þverárfjalli verða stikaðar í lok mánaðarins.
Atvinnuþróunarfélagið fékk styrk til efn-
iskaupa hjá Ferðamálaráði Íslands til að
stika gönguleiðina. Þá hefur Landsvirkjun
lagt málefninu lið með því að leggja til
vinnuflokk sem hefur gengið og stikað
fyrsta áfanga leiðarinnar.
Stika gönguleið-
ir milli þéttbýlis-
staða á Skaga