Morgunblaðið - 07.07.2004, Qupperneq 27
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2004 27
✝ Vilhjálmur Þor-steinsson var
fæddur í Reykjavík
15. mars 1934. Hann
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans í Foss-
vogi aðfaranótt 28.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Þorsteinn Vilhjálms-
son, f. 2. maí 1899, d.
5. júlí 1987, og María
Eyvör Eyjólfsdóttir,
f. 24. febrúar 1904,
d. 29. apríl 1982.
Bróðir Vilhjálms er
Eysteinn Jóhann
Þorsteinsson, f. 3. maí 1936. Hálf-
bróðir hans samfeðra er Björn
Þorsteinsson, f. 6. júní 1923, d. 1.
júlí 1999. Uppeldissystir Vilhjálms
er María Eyvör Halldórsdóttir, f.
12. janúar 1951.
Vilhjálmur kvæntist 4. febrúar
1971 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Ingibjörgu Ólafsdóttur, frá Akra-
nesi, f. 26. apríl 1932. Börn þeirra
eru: 1) Þorsteinn, f. 30. júní 1957.
Fyrrverandi kona hans er Dröfn
Gunnarsdóttir, sonur þeirra er
Óskarsson. Börn þeirra eru: Ró-
bert Eyvar, f. 6. apríl 1985, Ingi-
björg, f. 12. júlí 1989, og Arnar, f.
9. júní 1993. Stjúpsonur Vilhjálms
og sonur Ingibjargar er Pétur Óð-
insson, f. 17. desember 1951. Fyrr-
verandi kona hans er Margrét S.
Traustadóttir, sonur þeirra er
Þorkell, f. 11. júní 1971, maki Guð-
rún E. Snorradóttir. Sonur Þor-
kels er Patrekur Sveinn, f. 23. des-
ember 1994. Maki Péturs er
Laufey Skúladóttir. Börn þeirra
eru: Ólafur Pétur, f. 3. janúar
1985, og Arna, f. 29. október 1991.
Vilhjálmur ólst upp í Efstabæ í
Skorradal og þar á eftir í Hvammi
í sömu sveit. Hann fluttist til Akra-
ness vorið 1951 með foreldrum sín-
um og bjó þar til 1963, þar sem
hann stundaði sjómennsku og al-
menna verkamannavinnu. Árin
1963–64 bjuggu Vilhjálmur og
Ingibjörg á Kvígsstöðum í Anda-
kíl. Vilhjálmur hóf búskap árið
1964 á Kambshóli í Svínadal í
Hvalfjarðarstrandarhreppi, ásamt
konu sinni. Þau bjuggu á Kambs-
hóli þar til árið 1995 en þá fluttu
þau á Skagabraut 33 á Akranesi,
þar sem Vilhjálmur bjó til dánar-
dags.
Útför Vilhjálms verður gerð frá
Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Vilhjálmur, f. 6. ágúst
1982, uppeldisdóttir
Þorsteins og dóttir
Drafnar er Rósa
Björk. Maki Þorsteins
er Ingibjörg E. Sig-
urðardóttir, börn
þeirra eru: Steinar, f.
6. desember 1997, Sig-
urður Hrannar, f. 19.
apríl 2000, og Selma
Dögg, f. 9. ágúst 2002.
Fósturdóttir Þor-
steins og dóttir Ingi-
bjargar er Anna Guð-
rún. 2) Hallfreður, f. 3.
desember 1959, maki
Kristný Vilmundardóttir. Dætur
þeirra eru Linda Dagmar, f. 24.
júní 1980, og Heiður, f. 20. nóv-
ember 1986. 3) Hugrún Fanney, f.
16. september 1962. Sonur hennar
er Heiðar Logi, f. 11. maí 1980.
Dóttir Heiðars er Sædís Ósk, f. 7.
september 1998. Maki Hugrúnar
er Eyþór Arnórsson, börn þeirra
eru: Fannar Þór, f. 24. október
1982, og Sigurbjörg, f. 10. septem-
ber 1990. 4) Jóhanna Sigríður, f. 1.
janúar 1964, maki Ólafur Haukur
Elsku pabbi. Okkur langar að
kveðja þig með fáum orðum. Það var
þinn stíll, ekki of mikið. Það er skrít-
in tilfinning að hugsa til þess að fá
aldrei að sjá þig eða heyra í þér aft-
ur. Við þökkum þér samfylgdina af
öllu hjarta og af virðingu. Margs er
minnast, góðra daga og gullkorna
þinna. Þau geymast í huga okkar og
verða sögð á góðum stundum með
hlýju. Þú unnir dalnum þínum og
varst náttúrubarn og bóndi af guðs
náð. Þegar við lítum um öxl viljum
við þakka þér allt sem þú kenndir
okkur og varst okkur. Þú kenndir
okkur heiðarleika og samviskusemi.
Með söknuð í hjarta viljum við segja:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Þínar dætur,
Jóhanna Sigríður og
Hugrún Fanney.
Elsku afi, nú hefur þú kvatt þenn-
an heim eftir erfitt veikindastríð síð-
astliðnar vikur. Þegar við fjölskyld-
an héldum upp á sjötugsafmælið þitt
15. mars s.l. óraði okkur ekki fyrir
því að mánuði síðar myndir þú veikj-
ast alvarlega og hverfa frá okkur nú.
Það hefur verið erfitt að horfast í
augu við þá staðreynd að komið er að
kveðjustund. Við hugsum til þín með
söknuði en við eigum margar góðar
minningar um þig og eru árin sem
við áttum með þér og ömmu heima í
Kambshól einkar minnisstæð. Seinni
ár var það meðal annars gífurlegur
fótboltaáhugi þinn sem tengdi þig
við okkur barnabörnin og voru ófáar
hringingar til okkar til að spá í ým-
islegt varðandi boltann. Alltaf varstu
áhugasamur um að vita hvað væri að
gerast í okkar lífi og þykir okkur
mjög vænt um það.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Sveitin átti hug þinn allan og hafð-
ir þú mest gaman af þegar mikið var
að gera yfir sumartímann. Það voru
ófá skiptin sem að Ladan var þanin
upp afleggjarann í heyskap þegar
mikið lá við og þú sagðir að það gæti
farið að rigna. Þá var yfirleitt við-
kvæðið hjá þér að „drífa sig“.
Það eru margar góðar minningar
sem við eigum um þig, þú varst mjög
sérstakur maður og áttir oftast til
þín eigin orð yfir flesta hluti.
Við vottum elskulegri ömmu okk-
ar dýpstu samúð okkar og biðjum að
guð veiti henni og allri fjölskyldunni
styrk í sorginni.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
Þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Takk fyrir allar okkar skemmti-
legu stundir saman, við kveðjum þig
með miklum söknuði.
Guð geymi þig, elsku afi.
Þín barnabörn,
Linda Dagmar og Heiðar Logi.
Elsku afi minn. Ég trúi því ekki
ennþá að þú sért horfinn frá mér og
býst alltaf við að sjá þig heima við
eldhúsborðið eða fá stutta símhring-
ingu frá þér. Ég hef ekki enn vanist
þeirri hugsun að ég muni aldrei sjá
þig aftur. En ég verð víst að trúa
þeirri staðreynd.
Elsku afi, þú lifir enn í minning-
unni og ég á fullt af frábærum minn-
ingum um okkur saman. Þú og
amma voruð alltaf svo góð við mig
þegar ég kom í heimsókn upp eftir til
ykkar þegar þið bjugguð í sveitinni.
Amma gat alltaf fundið eitthvað fyrir
mig að gera og þú gast spilað við mig
í marga klukkutíma.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elskulegi afi minn, þú varst algjör
gullmoli og áttir engan þinn líka.
Takk fyrir okkar frábæru sam-
verustundir.
Þitt barnabarn,
Heiður.
Vilhjálmur Þorsteinsson frá
Kambshóli í Svínadal er látinn.
Ég kynntist nafna mínum Villa
fyrir einum 35 árum þegar ég ungur
maður fór að koma reglulega í sveit-
ina, í sumarbústað sem tengdafor-
eldrar mínir áttu, og varð það fljót-
lega ljúf regla að koma við hjá þeim
sómahjónum Villa og Ingu til að fá
sér kaffi og spjalla.
Þarna yfir kaffibolla voru mörg
landsmálin brotin til mergjar og
lausnir fundnar á mörgum vanda-
málum sem hrjáðu land og þjóð, oft á
þann húmoríska hátt sem Villa var
einum lagið.
Villi var nefnilega gæddur þeim
kosti að sjá spaugilegu hliðina á
mörgum málum og geta á skemmti-
legan hátt gert grín að sjálfum sér,
alltaf var stutt í brosið.
Það hefur sjálfsagt oft kostað
mikla vinnu og þrautseigju að búa á
Kambshóli á þessum tíma og ekki
verið verra að hafa sér við hlið góða
eiginkonu sem lét sitt ekki eftir
liggja þegar á þurfti að halda, og
duglega krakka sem fóru snemma að
vinna við búskapinn, eins og gerist í
sveitinni.
Það sýnir hug Villa til sveitarinnar
og búskaparins að eftir að þau hjónin
fluttu út á Akranes þá fylgdist hann
vel með veðurfréttum á sumrin og
hringdi í soninn, sem tók við bú-
skapnum, ef vætutíð eða góður
þurrkur var framundan.
Villi minn, það var sérstakur heið-
ur að fá að kynnast þér, þjóðin mætti
eiga fleiri góðmenni eins og þig, þá
færi ýmislegt betur.
Ég kveð þig nú á sama hátt og þú
svo oft kvaddir mig í bæjarhlaðinu á
Kambshóli: Vertu sæll, elsku vinur,
og megi allar góðar vættir fylgja þér.
Í huga mér kemur hending úr
kvæði eftir Davíð Stefánsson:
Ó, hafið lágt við litla gluggann hans,
og lofið dagsins þreytta barni að sofa.
Elsku Inga, Pétur, Halli, Steini,
Hugrún, Sigga og fjölskyldur, við
hjónin vottum ykkur okkar innileg-
ustu samúð.
Vilhjálmur.
Elsku Villi. Okkur langar með
fáum orðum að minnast þín sem góðs
vinar, sem reyndist okkur alltaf vel.
Þegar við komum í sveitina með son
okkar sem þið leyfðuð að vera hjá
ykkur í góðu umhverfi og sýnduð
honum umhyggju og þökk sé ykkur
fyrir það. Þú varst traustur vinur
vina þinna en hafðir ekki um það
mörg orð. Alltaf fannst okkur gaman
að koma að Kambshóli og var þá oft
slegið á létta strengi og margt rætt
sem við varðveitum í minningunni.
Þú háðir erfiða baráttu í veikindum
þínum þar til yfir lauk. Það er alltaf
sárt að missa góðan vin og við höfum
svo margs að minnast með þér, Villi
minn, eins og þú varst alltaf kallaður,
en gamlar minningar gleymast ei.
Þegar aldurinn færist yfir finnst
okkur stundum lífið vera allt of stutt
og við eiga svo margt eftir ógert, en
kannski fáum við að ljúka við þau
verkefni á öðrum stað. Elsku Inga
mín og fjölskylda. Við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð. Guð blessi
minningu Vilhjálms Þorsteinssonar.
Margrét og Jóhann.
VILHJÁLMUR
ÞORSTEINSSON
Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern reit
komið er sumar og fögur er sveit.
Sól er að kveðja við bláfjalla brún
brosa við aftanskin fagurgræn tún.
Seg mér hvað indælla auga þitt leit
íslenska kvöldinu í fallegri sveit.
(Guðm. Guðm. skólaskáld.)
Takk fyrir allt, elsku Villi.
Blessuð sé minning þín.
Margrét Jóhannsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
ÖRN INGOLFSSON
leðursmiður,
Skólavörðustíg 17A,
Reykjavík,
lést aðfaranótt sunnudagsins 4. júlí.
Hjördís Ingolfsdóttir,
Ýr Margrét Gunnarsdóttir.
Lokað
Vegna útfarar ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR verður fasteignasalan
lokuð frá kl. 12.00 í dag.
Fasteignasalan Lundur,
Suðurlandsbraut 10.
Frænka okkar,
SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hlíð í Skaftártungu,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum mánudaginn 28. júní.
Jarðsett verður frá Grafarkirkju í Skaftártungu laugardaginn 10. júlí kl. 14.
Systrabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN GÍSLASON
frá Nýjabæ,
Vestur-Skaftafellssýslu,
lést á Landspítala Hringbraut mánudaginn 5. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Jónína Herdís Jónsdóttir,
Gísli Þorsteinsson, Hrefna Steinarsdóttir,
Þorsteinn Gíslason.
Okkar ástkæra
JÓRUNN PÁLMADÓTTIR,
Suðurgötu 49,
Keflavík,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 3. júlí.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 9. júlí kl. 14:00.
Halla Tómasdóttir, Pálmi B. Einarsson,
Linda Björk Pálmadóttir, Þórdís Halla Gunnarsdóttir,
Finna Pálmadóttir, Guðjón Á. Antoníusson,
Tómas Pálmason, Jón N. Hafsteinsson,
Halldís Bergþórsdóttir, Tómas Tómasson,
Finna Pálmadóttir
og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og bróðir,
GUNNAR CHRISTIANSEN,
Prestastíg 11,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi mánudaginn 5. júlí.
Hólmfríður Kristinsdóttir,
Elísabet A. Christiansen, Svavar Örn Guðjónsson,
Judith E. Christiansen
og barnabörn.
Móðir okkar,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
lyfjafræðingur,
lést þriðjudaginn 6. júlí.
Geirlaug Þorvaldsdóttir,
Skúli Þorvaldsson,
Katrín Þorvaldsdóttir.