Morgunblaðið - 07.07.2004, Side 36
MENNING
36 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sumarkvöld við orgelið
í Hallgrímskirkju
8. júlí kl. 12.00:
Jörg Sondermann orgel
10. júlí kl. 12.00:
Christian Schmitt orgel
11. júlí kl. 20.00:
Þýski orgelsnillingurinn
Christian Schmitt leikur
verk m.a. eftir Bach,
Jón Ásgeirsson og Lizst.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008.
lau. 10. júlí kl. 16.30 upps.
fim. 15. júlí kl. 19.30
fim. 22. júlí kl. 19.30
Yfir 8000 miðar seldir
lau. 10. júlí kl. 19.30 upps.
fös. 16. júlí kl. 19.30
M i ð 07 .07 20 :00 UPPSELT
F im 08.07 20 :00 UPPSELT
Fös 09.07 20 :00 UPPSELT
Lau 10 .07 20 :00 UPPSELT
F im . 15 .07 20 :00 ÖRFÁ SÆTI
Fös . 16 .07 20 :00 LAUS SÆTI
Lau . 17 .07 20 :00
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VETRARDROTTNINGIN eftir
hinn snjalla rithöfund Boris Akúnin
er þriðja bókin um leynilögreglu-
manninn Fandor-
in sem kemur út
á íslensku, en áð-
ur voru komnar
Ríkisráðið og
Krýningarhátíð-
in. Í Vetrar-
drottningunni
segir frá Fandor-
in ungum og
óreyndum þar
sem hann fæst
við sitt fyrsta lögreglumál og lendir í
ýmsum ævintýrum áður en tekst að
leiða málið til lykta. Skemmtileg
samtöl og húmor í bland við hæfileg-
an óhugnað og fyrirtaks persónulýs-
ingar setja sinn svip á bókina, og að
því leyti sver hún sig í ætt við þessa
seríu, en bækurnar um Fandorin
eru víst orðnar 11 talsins og nýtur
höfundurinn gríðarlegra vinsælda í
heimalandi sínu. Fléttan í Vetrar-
drottningunni er smellin og rennur
saman við frábæran stíl Akúníns.
Sagan gerist nokkru fyrir aldamótin
1900 og við skulum ekki ímynda
okkur að þá hafi ekki verið til flottir
töffarar í rússnesku löggunni. Hér
segir frá viðureign Fandorins við
lafði Astair sem á 40 ára starfsferli
sínum elur upp hátt í 17 þúsund
munaðarleysingja og gerir úr þeim
snillinga á hinum ýmsu sviðum.
Uppeldisaðferðirnar eru áhrifaríkar
og árangurinn skilar sér í sannri
heimsbyltingu að hennar eigin sögn
og í sjálfu sér er það ekki fjarri lagi.
Við Fandorin fullyrðir hún að börn
hennar bjargi heiminum á hverjum
degi, en skóli hennar starfar þó und-
ir sakleysislegra yfirskini en raun
ber vitni. Kannski mætti skoða út-
spekúleraðar uppeldisaðferðir henn-
ar og þar með drifkraft sögunnar í
ákveðnu samhengi við umræðu um
vald vísindamanna nútímans sem
eiga að búa yfir þekkingu til að „búa
til“ einstaklinga þessarar og hinnar
gerðar. Og er það ekki dásamlegt að
það skuli vera kona sem er heilinn í
þessu öllu saman? Vel að merkja;
þessu fylgja morð og þar kemur til
kasta lögreglunnar.
Það er á vissan hátt huggulegt að
kynnast Fandorin tvítugum í þess-
ari sögu eftir að hafa lesið um hann
harðfullorðinn í Ríkisráðinu og
Krýningarhátíðinni. Þegar maður
hefur sögurnar þrjár fyrir framan
sér maður ákveðna þróun í þeim og
áttar sig á því að Vetrardrottningin
er vísir að öðru og meira. Smellin
saga verður að þrumureyfara með
öðrum orðum. Þá er Vetrardrottn-
ingin mun styttri en hinar tvær og
nú er komið að því að viðurkenna að
hún stendur þeim lítillega að baki.
Engu að síður er gaman að sjá
Fandorin svona reynslulítinn en
hæfileikamikinn takast á við glæpa-
hyski. Nettur hégómaskapurinn í
honum er óborganlegur og manni
þykir hreinlega vænt um hann frá
fyrstu síðu. Spennan verður nánast
óbærileg snemma í sögunni, en síð-
an er eilítið slakað á og framvinda
sögunnar látin njóta sín án þess að
yfirkeyra hlutina.
Ég er svolítið fúll yfir því að lesa
þessar bækur í rangri röð. Ef ég
kynni rússnesku, hefði ég kosið að
byrja á fyrstu bókinni og síðan koll
af kolli. En það hljóta að hafa verið
gild rök fyrir því að þýða fyrst Rík-
isráðið, enda vinsæl og góð bók og
næsta örugg söluvara sem slík. En
nú er um að gera að hella sér í að
þýða þær bækur sem eftir eru. Ætli
Árni Bergmann sé ekki þegar byrj-
aður á næstu bók?
BÆKUR
Glæpasögur
Boris Akúnin. Árni Bergmann þýddi. Mál
og menning. Reykjavík 2004.
VETRARDROTTNINGIN
Örlygur Steinn Sigurjónsson
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
er atorkukona sem flestir mynd-
listarunnendur ættu að kannast við
eftir umfangsmikla sýningaröð
hennar í fyrra þegar hún opnaði 40
myndlistarsýningar á 40 dögum
víðsvegar um landið. Þar á meðal
var sýning í kaffistofu menningar-
miðstöðvarinnar Skaftfells á Seyð-
isfirði, tileinkuð Dieter Roth.
Aðalheiður er nú mætt aftur í
Skaftfell, í tilefni listahátíðarinnar
„Á seyði“, að þessu sinni í aðal sýn-
ingarsal menningarmiðstöðvarinn-
ar, með sýningu sem einmitt nefn-
ist „Aftur“. Býr yfirskriftin yfir
tvímerkingu. Annars vegar er það
staðreyndin að listakonan er að
sýna þar aftur en hins vegar er hún
að horfa aftur til baka með sýning-
unni og endurskapa minningar.
Skúlptúrarnir eiga sér nefnilega
fyrirmyndir í æsku listakonunnar,
nánar tiltekið, því mannlífi sem
hún ólst upp við á Siglufirði sem
hún færir nú um set til Seyðisfjarð-
ar. Sýningarsalurinn er staðgengill
torgsins á Siglufirði þar sem mann-
eskjur, eða réttara sagt manngerð-
ir, sem eru listakonunni eftirminni-
legar eru staðsettar eins og hún
minnist þeirra á torginu. Efniviður
Aðalheiðar er fundnar spýtur sem
hún sagar til og formar fígúrur sín-
ar úr. Auk fígúranna er svo mynd-
bandsupptaka frá fiskbúðinni á
torginu þar sem menn hittast og
spjalla yfir kaffisopa. Er upptakan
sýnd í hálflokuðum kassa sem er
staðgengill fiskbúðarinnar á torg-
inu.
Skúlptúrar Aðalheiðar eru gróf-
lega unnir, minna sitthvað á al-
þýðulist og hefur listakonan gott
auga fyrir þyngdarpunkti líkamans
sem gerir fígúrurnar einkar trú-
verðugar í sýningarsalnum. Virkar
heildarmyndin álíka og leiksvið
fyrir stórt brúðuleikhús sem mað-
ur stendur í miðju og væntir þess
að sýning hefjist á hverri stundu.
Þetta er ánægjuleg sýning að sjá,
sérstaklega ef maður leyfir ímynd-
unaraflinu að taka yfirhöndina og
skapa sín eigin tengsl við mann-
gerðirnar, sem eru, þegar á heild-
ina er litið, varla bundnar við
Siglufjörð einan og sér.
MYNDLIST
Skaftfell – Seyðisfirði
Sýningin er aðgengileg á afgreiðslutíma
kaffihússins. Sýningu lýkur 8. ágúst.
INNSETNING – SKÚLPTÚR
AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR
Morgunblaðið/Ransu
Aftur, sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Skaftfelli.
Jón B.K. Ransu
Boris Akúnin