Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Page 18
Hann unni LoftleiSum og félögum
sínum þar af alhug.
Þormóður var í Dulspekifélagi
íslands. Trúin á annað líf varð hjá
honum að staðreynd. Að fara yfir
mörkin til lands eilífðarinnar. —
Það var í hans augum jafn eðli-
legt og skipta um föt.
Þormóður var góður loftsiglinga
fræðingur. Hann hafði oft stjörn-
ur himinsins að leiðarljósi. Víðátt-
ur Atlantshafsins eru miklar og
þegar himininn var heiður í skini
nætur, þá var oft gott að eiga
himintungl að einkavini.
Ég vil Ijúka þessum orðum með
því að hafa yfir niðurlag á kvæði
því, eftir Davíð, sem ég hef vitnað
i.
„Ég fagna með þeim, sem fljúga
hátt.
Fagurt er loftið draumablátt,
og hættunni hetjur gleyma.
Gef þeim faðir meiri mátt,
lát magn þitt um brjóstin
streyma,
svo þeir get flogið djarft og dátt
um draumanna undraheima."
Fyrir hönd starfsbræðra minna
hjá Loftleiðum, votta ég fjölskyldu
og aðstandndum Þormóðs Hjörv-
ars djúpa og innilega samúð.
Við þökkum honum fyrir sam-
fylgdina.
Halldór Ó. Ólafsson.
f
Að morgni síðasta dags þess árs
sem var að kveðja okkur, kvaddi
þennan heim Þormóður Hjörvar
loftsiglingafræðingur, eftir harða
baráttu við skæðan sjúkdóm. Þor-
móður fæddist í Reykjavík þann
24. maí, 1922, sonur hjónanna
Rósu og Ilelga Hjörvar rithöfund-
ar.
Að loknu almennu námi lærði
Þormóður loftskeytafræði í Loft-
skeytaskóla íslands og starfaði að
þeim fræðum á skipum og i landi.
Árið 1948 hóf hann störf hjá
Loftleiðum sem loftskeytamaður á
flugvélum og síðar loftsiglinga-
fræðingur, eftir að hafa lokið því
námi. Hann var því einn af þeim
sem störfuðu hjá félaginu á mesta
e-’fiðleikatímabili þess um 1950 og
lagði þar með fram sinn skerf þeg-
ar verst gekk.
Við Þormóður voru samstarfs-
menn allan þann tima sem hann
starfaði hjá Loftleiðum, frá því að
vera á flugbátum til DC-8 þota og
samstarfið mér ávallt hið ánægju-
legasta. Maðurinn var léttur í
skapi, en samvizkusamur og vand-
virkur í sínu starfi og vann félagi
sínu vel.
Þormóður var gæddur sérstæðí
um persónuleika sem einkenndist
af samblandi af kímni og speki
sem ekki var á allra færi að skilja
í fljótu bragði og skopaðist að til-
verunni á heimspekilegri hátt en
menn almennt gera. Hann var einn
ig gæddur listrænum hæfileikum,
sem einkum komu fram í hinum
snjöllu skopteikningum hans og
naut kímnigáfa lians sín þar vel.
Þormóður var því einn þeirra
manna sem skera sig úr fjöldan-
um og verða manni minnisstæðir.
Ég vil votta eiginkonu, börnum
og öðrum ástvinum Þormóðs sam-
úð mína og fjölskyldu minnar, um
leið og ég þakka honum samfylgd-
ina í lofti og á jörðu.
Jóhannes Markússon.
t
Þá er stund umbreytingarinnar
hefir á brott kvatt góðan dreng, er
hollt að minnast þess að: Föður-
land vort er á himnum.
Samruni hins eilífa lífs er hin
fullkomna hringferð er stefnir
stöðugt að fíngerðara og fullkomn
ara litrófi sérhvers pílagríms á
göngu sinni í gegnum jarðvistirn-
ar.
För eftir för unz hæsta takmarki
er náð, en síðan eftir það sem
þjónn í framvindu þróunarinnar.
Þú hafðir, kæri bróðir og vinur,
þroskað dyggilega með þér þá eig-
inleika, er greiddu mjög götu þína
og flýttu för þinni að þessari leið.
Jarðvist þá, er þú hefir nú lokið
hefur þú nýtt ítarlega, af vökulli
dómgreind og fyrirhyggja.
Til þessa hafðir þú þroskað með
þér þá réttlætiskennd, er var ætíð
vökul öllum öðrum en sjálfum þér
til handa, og hún var svo fast mót
aður- eðlisþáttur þinn, að helsjúk-
ur varst þú að velta fyrir þér rétt-
lætismálum gg velferð annarra.
Einnig var kímnigáfa þín af
þeim fínleik og lífgjafir þær, er
þú stráðir um þig yfir umhverfi
þitt, af þeim toga, að öllum er
nutu návistar þinnar þótti þar
gott að dveljast er þú varst nærri.
Við Yoga-systkin þín er áttum
þess kost að kynnast þér náið, og
nutum þíns opna og vökula huga,
við erum þér þakklát fyrir þá
djúpu fræðslu er þú fluttir með
þínum sérkennilega létta blæ.
Hógværð þín og auðmýkt
var þér svo eðlileg, að þú hafðir til
fullnustu numið hinn yogiska anda
að auðmýkt þín var slík, að þú leizt
ekki niður á nokkurn mann.
Þú gerðist einn af stofnendum
Yoga-bræðralagsins og dvaldir með
okkur eftir getu úti á Arnarstapa
undir Jökli þau þrjú sumur er
sumarskólinn hefur starfað þar.
Eins og þú sjálfur sagðir í ræðu
sumarið 1969: ,,Ilvarf veröldin og
allt hennar amstur er komið var
vestan í Axlarhyrnuna og Breiða-
víkin, Arnarstapi og sjálfur Jökull-
inn blasti við. Að nálgast hann er
sem að ganga á vit eiílfðarinnar,
en amstur daganna hverfur
eða verður eftir fyrir austan Öxl“.
Einnig sagðir þú s.l. sumar:
„Svo miklir töfrar hvíla yfir
Yoga-skólanum að ég, sem á þess
kost að gista stórhótel stórborg-
anna, þrái það framar öllu öðru að
slá upp tjaldi mínu hér hjá ykkur
úti á Stapa og lifa þar við skrínu-
kost“.
Að hafa eignazt vináttu þína er
að eiga dýrmætan fjársjóð og þann
ig munum við Yoga-systkin og
fjölskylda þín hneigja til þín huga.
Zóphónías Pétursson.
f
KVEÐJA.
Er hugþekkur drengur héðan varð
heimtaður fyrr en varði,
þá stendur ófullt og opið skarð
í ágætum frændagarði.
Við skulum hrinda harmi úr lund
því helstríð ei varir lertgur,
og þú ert genginn á guðs þíns fund
góði og prúði drengur.
Við ferðir og dvöl á fjarri strönd
fengum við oft að reyna,
að vinátta þín og hlýja hönd
var hjálpin og stoðin eina.
S
Þótt forlögin ströng þig felldu af
grund
fríði og trausti hlynur,
þinn orðstír mun lifa langa stund
Ijúfi og tryggi vinur. ^
Hafðu þökk fyrir allt.
Guðrún og Vilhjálmur.
18
íslendingaþættir