Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Blaðsíða 30

Íslendingaþættir Tímans - 30.07.1971, Blaðsíða 30
ATTR/EÐUR: GUÐJÚN F. DAVlÐSSON En hvað tíminn lílíur fljótt! Mér finnst ekki langt síðan, að við átta ungir Dýrfirðingar fórum 1 atvinnuleit til Bolungarvíkur, snemma vors og fengum vinnu þar, við sjóroðra eða eyravinnu fyr ir 25 aura í kaup á hvern klukku- tíma, og þótti gott! Við hittumst oft um vorið og var þá jafnan glatt á hjalla. Þessa glöðu æskuvini man ég vel, þó nú séu sex áratugir liðnir, siðan þetta var. í þessum vinahópi voru bræður tveir frá Álfadal á Ingjaldssandi, Kristján og Guðjón Davíðssynir. Þeir voru frændur mínir, en ég hafði ekki kynnzt þeir fyrr. Mér féll strax mjög vel við þá. Þeir voru ágæt- lega greindir menn og skemmti- legir félagar. Báðir voru þeir ung- mennafélagar og hrifnir af hug- sjónum félagsskaparins. Þeir vildu verða að nýtum mönnum og vinna fyrir landið sitt. Þeim tókst það líka sannarlega bræðrunum frá Álfadal, bæði þeim sem ég nefndi hér og svo þeim Jóhannesi og Guð- bergi. — Kristján er nú horfinn yfir móðuna miklu. Hans hefir ver- ið minnzt í íslendingaþáttum Tím- ans, mjög að verðleikum. Hann var óvenjulega heilsteyptur dreng- skaparmaður, fórnfús og vilja- sterkur. — Guðjón verður áttræð- ur 28. þ.m. og vegna þess gríp ég nú pennann til þess að senda hon- um afmæliskveðju, því að ég mun ekki geta tekið í hönd hans á afmælisdaginn. Ég mun því rifja hér upp, að hefðbundnum hætti, nokkur atriði úr ævisögu hans, því ég hef ekki séð það áður gert. Guðjón fæddist að Álfadal á Ingjaldssandi, 28. júní 1891. For- eldrar hans voru búandi hjón þar, Davíð Davíðsson og Jóhanna Jóns- dóttir. Bæði voru þau af vestfirsk- um ættum, sem ekki verða hér raktar. Þau voru mikil sóma hjón og í fremstu röð búenda í sveit sinni. Fimm voru böm þeirra, sem ég man eftir, bræðurnir fjórir, sem ég þegar hefi nefnt og ein systir, Vilborg, húsfreyja í Fremstuhúsum, sem dó á bezta aldri. Davíð og fjölskylda hans fluttist að Neðri-Hjarðardal í Mýrahreppi árið 1912 og þar hefir þessi fjöldskylda síðan gert garð- inn frægan, fyrst gömlu hjónin síðan bræðurnir, Kristján og Jó- hannes, og nú síðast Bjarni, sonur Kristjáns og konu hans, Magða- lenu Össurardóttur frá Kollsvík: Guðjón og systkini hans fengu hið bezta uppeldi hjá ágætum for- eldrum og nutu öll einhverrar skólagöngu, sem ekki verður nán- ar rakin. Guðjón stundaði nám í Hvann- eyrarskóla árin 1912—1914, ásamt Jóhannesi bróður sínum. Þar vor- um við saman einn vetur og er þaðan margs 'góðs að minnast, svo og frá haustinu 1915, þegar við unnum saman hjá búnaðarfélagi sveitar okkar og dvöldum á mörg- um bæjum. Guðjón var harðdug- legur maður, lagvirkur og vinnu- fús. En þetta haust skildu íeiðir okkar. Ég fékk eiiga atvinnu í sveit minni og varð að leita á önn- ur mið, en Guðjón hafði tekið við búi foreldra sinna um vorið, ásamt Kristjáni bróður sínum. Ég hefi ekki átt heima í sveit minni síðan nefnt haust, en vináttutengslin milli mín og nefndra bræðra hafa aldrei slitnað. Þeir bræður bjuggu saman 2 ár, en vorið 1917 kvæntist Guðjón, Borgnýju Hermannsdóttur í Fremstuhúsum og tók við búi þar, en Jóhannes, bróðir hans, fór aftur að búa í Neðri-Hjarðardal með Kristjáni. Borgný, kona Guðjóns var dótt- ir þeirra hjóna Hermanns Jónsson ar og Guðbjargar Torfadóttur, sem bjuggu lengi góðu búi í Fremstu- húsum og voru hin mestu merkis- hjón, mjög vel metin af sveitung- um sínum. Þau áttu 5 börn, sem öll eru enn á lífi. Hið elsta er 90 ára, en það yngsta nær hálf- áttræðu. Samanlagður aldur þeirra mun vera nær 416 ár. Það sýnir að enn eru til sterkir stofnar á Vestfjörðum og svo mun lengi verða. Þau Guðjón og Borgný bjuggu í Fremstuhúsum til vors 1953. Þá tók Drengur, sonur þeirra við búinu, en foreldrarnir dvelja áfram á heimilinu hjá syni sínum og tengdadóttur. Fremstuhús eru lítil jörð en notaleg. Guðjón er búmaður góður og bætti jörð sína eftir mætti, fór vel með allar skepnur, sem aftur gáfu honum góðan arð. Mér er tjáð, að þau hafi verið mjög samhent í búskapn um og komizt vel af alla tíð. með sinn stóra barnahóp. Þau eiga 8 börn, sem öll eru á lífi, vel gefin og vel metnir borgarar, víðsvegar um landið og bera foreldrum sín- um vitni um gott uppeldi. Þessi systkini munu og flest hafa dvalið við nám í einhverjum framhalds- skólum, að því er ég bezt veit. Hér eru þau talin í aldursröð: 1. Vilborg, húsfreyja í Reykja- vík, gift Guðmundi Þorlákssyni, loftskeytamanni. . 2. Laufey, húsfreyja í Reykja- vík, gift Magnúsi Kristjánssyni, verzlunarmanni, fyrrv. Kaupfé- lagsstjóra á Hvolsvelli. 3. Guðrún, fóstra, forstöðukona barnaheimilisins við Dalbraut í Rvík, gift Kristjáni Jóhannssyni. ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.