Heimilistíminn - 28.11.1974, Side 29

Heimilistíminn - 28.11.1974, Side 29
að Worth hefði sloppið, en hann vantaði lausnargjaldið. Þá skrifaði hann varlega orðað bréf og stakk i það smápjötlu af striganum sem myndin var máluð á til að sanna, að hann hefði hana. Hann krafðist 3000 punda og sagði, að um leið og hann kæmist að þvi að lögreglan hefði fengið málið i sinar hendur, yrði myndin eyði- lögð. Mánuðum saman skiptust siðan Worth og Agnew’s á skilaboðum, bæði i pósti, skeytum og auglýsingum i Times. Agnew’s neitaði skilyrðislaust að semja við þjófa og fékk lögreglunni málið, en allt kom fyrir ekki. Loks komust báðir aðilar að þvi að þeir væru einungis að sóa tima sinum. Agnew’s ákvað að afskrifa hertogaynjuna og Worth hélt áfram glæpaiðju sinni. En nokkrum árum siðar var hann hand- tekinn i fyrsta sinn, en hann var þá að reyna að ræna póstvagn. Hann var dæmd- ur i sjö ára fangelsi. Viö það brotnaði hann niður bæði á sál og likama og þegar hann var látinn laus, tæplega fimmtugur að aldri, komst hann að raun um, að menn undirheimanna vildu ekkert við hann kannast. En hann hafði hertogaynjuna ennþá. Þá hafði hún verið geymd á töskubotninum i 15 ár og hann lét hana eiga sig þar um sinn. gn árið 1901 var hann i peninga- vandræðum og ákvað loks að fá Pinkerton til að semja um skil á myndinni gegn þvi að hann yrði ekki sakfelldur. Það var svo 28. marz 1901 að þrir menn sátu i þremur samliggjandi herbergjum á hóteli i London. 1 endaherberginu kom fulltrúi Pinkertons til Worths og tók hjá honum brúnan pakka. Siðan fór hann með pakkann inn i þriðja herbergið og afhenti Agnew hann, sem lét . af hendi lausnar- gjaldið eftir að hafa séð myndina. Fáum vikum eftir að hertogaynjan var komin aftur i rammann sinn, keypti bandariskur kaupsýslumaður, Pierpont Morgan hana. En um Worth er það að segja, aðhann lést i sárri fátækt i London, aðeins ári siðar, vinaiaus og niðurbrotinn maður. — Annað hvort á : skrjóðurinn von á sér, eða sonur þinn hefur sett bilinn sinn undir vélarhlifina. — 6g hélt að ég hcfði bannað að standa uppi á stólum I skónum. ) \ 29

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.