Heimilistíminn - 11.09.1975, Qupperneq 19
Fyllt agúrka
H
1 stór agúrka 1/2 tesk. salt, 1 tesk.
paprikuduft, 1 bikar hreinn smurostur,
125 gr. skinka I litlum teningum, 2 litiir
laukar, 1 búnt steinselja.
Skoliö agúrkuna úr köldu vatni og skerið
hana i tvennt eftir endilöngu. Takið fræin
úr og svolitið meira til að fyllingin rúmist
i. Stráið salti innan i agúrkuna.
Hrærið saman ostinn, skinkuna, fint
saxaðan laukinn og steinseljuna ásamt
paprikuduftinu. Fyllið annan agúrku-
helminginn með þessu og setjið hinn ofan
á, þannig að hann festist. Skerið agúrkuna
i fjóra hluta og berið fram með
hrökkbrauði og smjöri.
Letipottur
H
meðalstórar kartöflur, soðnar, 2
púrrur, ca. 400 gr. pylsur, tómatar,
basilikum, svartur pipar.
Plysjið kartöflurnar og skerið i þykkar
sneiðar. Skolið púrrurnar og skerið i 3 cm
langa bita. Skiptið pylsunum i 2-3 bita
hverri.
Leggið púrrurnar i botn á potti og siðan
kartöflurnar og pylsurnar. Skerið
tómatana i bita og leggið efst. Hrærið út
svolitið af tómatsósu með vatni og
ktTddið út i. Hellið þvi yfir að siðustu.
Látið þetta malla i 10 minúlur. Stráið vel
af steinselju yfir og berið fram strax.
19
J -i