Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Evrópa logar á morgun ÚR VERINU Er fjölmenningarhyggja vond fyrir konur? VIÐRÆÐUR standa yfir um sam- runa sjávarútvegsfyrirtækjanna HB Granda hf., Tanga hf. á Vopnafirði og útgerðarfélagsins Svans RE-45 ehf. og er gert ráð fyrir að leggja til- lögu þar að lútandi fyrir stjórnar- fundi í félögunum 23. nóvember nk. Frá þessu var greint í tilkynningu til Kauphallar Íslands í gær. Verði af samrunanum mun HB Grandi ráða yfir ríflega 31 þúsund tonna kvóta eða 9% heildarkvótans. HB Grandi hefur nú þegar yfir að ráða mestum kvóta íslenskra sjáv- arútvegsyfirtækja. Félagið gerir út tólf skip, þar af fimm frystitogara, fjóra ísfisktogara og þrjú uppsjáv- arveiðiskip. Félagið rekur rekur fiskvinnslu- hús í Reykjavík og á Akranesi og þrjár fiskimjölsverksmiðjur, á Akra- nesi, í Reykjavík og á Þorlákshöfn. Við upphaf fiskveiðiársins fékk HB Grandi úthlutað um 28 þúsund þorskígildistonna kvóta eða um 8,08% heildarkvótans. Tangi hf. gerir tvö fiskiskip, Brett- ing NS og Sunnuberg NS, rekur fiskimjölverksmiðju, uppsjávar- frystingu og bolfiskvinnslu. Fyrir- tækið fékk á þessu fiskveiðiári út- hlutað 2.918 þorskígildistonna kvóta eða um 0,84% heildarkvótans. Svanur RE ehf. gerir út uppsjáv- arveiðiskipið Svan RE. Skipið hefur yfir að ráða 521 þorskígildistonna kvóta, þ.e. 4.413 tonnum í loðnu og 1.120 tonnum í síld. Vopnafjarðarhreppur, ásamt heimamönnum á Vopnafirði, keyptu á síðasta ári ráðandi hlut í Tanga hf. af Eskju hf. á Eskifirði. Ólafur Ár- mannsson, stjórnarformaður Tanga hf., segir að eftir kaup sveitarfé- lagins á Vopnafirði á ráðandi hlut í félaginu hafi þegar verið byrjað að leita að aðila til að koma að félaginu á einn eða annan hátt. „Eftir kaupin var okkur ljóst að aflaheimildir fyr- irtækisins voru ekki nægar til að standa undir fullum rekstri. Þess vegna vildum við styrkja stoðirnar með því að leita samstarfsaðila. HB Grandi er mjög öflugt félag en hefur ekki verið með starfsemi á Austur- landi og ætti því að hafa hag af sam- starfi. Ef við náum markmiðum okk- ar um að efla og treysta atvinnulífið á staðnum tel ég að samruninn sé góður kostur,“ segir Ólafur. Hann segir að þreifingar milli um- ræddra félaga hafi átt sér stað að undanförnu en afstaða verði tekin til samrunans á stjórnarfundi eftir helgi. Rætt um samruna Tanga og Svans RE við HB Granda Félagið réði yfir 31 þúsund tonna kvóta Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson Samruni Með samruna við Tanga myndi HB Grandi fá aðgang að fiski- mjölsverksmiðju á Austurlandi, nærri fengsælustu uppsjávarfisksmið- unum. Allar þrjár fiskimjölsverksmiðjur HB Granda eru á Suðvesturlandi. Hér landar Faxi RE loðnu hjá verksmiðju félagsins á Akranesi. HÁLFT tonn af klinki fór í gær með vél Iceland Express til London Stansted. Um var að ræða mynt sem farþegar Iceland Express hafa að undanförnu gefið í söfnun Rauða krossins til hjálpar stríðshrjáðum börnum. Peningarnir verða flokk- aðir og taldir hjá bresku fyrirtæki og andvirði þeirra afhent Rauða krossinum. Iceland Express dreifði söfn- unaröskjum Rauða krossins um borð í vélum sínum í sumar og voru söfnunaröskjurnar jafnt fylltar af klinki og seðlum. Á myndinni eru starfsmenn IGS á Keflavíkurflugvelli að hlaða tunn- um með klinki um borð í vél Iceland Express á leið til London Stansted.Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Hálft tonn af klinki fyrir Rauða krossinn HVERT er hið lýðræðislega umboð í starfsemi sem hið opinbera stendur fyrir og hver er ábyrgð stjórnenda opinbers rekstrar gagnvart stjórn- málamönnum og almennum borgur- um? Um þetta mun Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmála- fræði við Háskóla Íslands, fjalla í er- indi sem hann flytur á málþingi í HÍ sem ber yfirskriftina „Rekstrarfyr- irkomulag og ábyrgð – Þróun á til- högun opinbers rekstrar.“ Að málþinginu standa fjármála- ráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórn- sýslufræða og stjórnmála við Há- skóla Íslands. Á síðustu árum hafa verkefni bæði ríkis og sveitarfélaga í auknum mæli verið færð frá ráðuneytum til stofn- ana auk þess sem sjálfstæði þeirra í fjárhags- og starfsmannamálum hef- ur verið aukið. Jafnframt hafa op- inber verkefni verið falin sjálfseign- arstofnunum og einkaaðilum með samningum þó að ríkið greiði áfram fyrir þjónustuna. Þessi þróun hefur vakið upp ýmsar spurningar um stofnanakerfið sem og spurningar um hvort hinar klassísku aðferðir við eftirlit og taumhald í opinbera geir- anum, bæði lagalegar og pólitískar, sem mótuðust á 19. og 20. öld haldi enn fullu gildi. Auk Gunnars Helga flytja erindi, Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu og for- maður framkvæmdanefndar um stofnanakerfi og rekstur verkefna ríkisins, sem m.a. er ætlað að gera tillögur um „hugsanlegar breyting- ar“ á fyrirkomulagi og verkefnum út frá markmiðum um aukna hag- kvæmni, skilvirkni og betri þjónustu við borgarana. Arnar Þór Másson, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu og stundakennari í stjórnsýslufræð- um, mun kynna greiningaramma fyrir verkefni ríkisins þar sem metið er með hliðsjón af eðli verkefnanna, ábyrgð o.fl. hvaða aðilum mögulegt er að fela framkvæmd þeirra. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, mun fara yfir hvaða laga- legu þáttum þarf að huga að við breytingar á rekstrarformi, bæði innan og utan ríkiskerfisins; m.t.t. ábyrgðar og stjórnsýslureglna. Málþingið er ætlað öllum áhuga- mönnum um opinbera stjórnsýslu og þróun hennar. Það fer fram á Grand hóteli Reykjavík miðvikudaginn 24. nóvember kl. 8.45–10.45. Hver er ábyrgð stjórn- enda opinbers reksturs? MAÐUR sem ríkissaksóknari hefur ákært fyrir að flytja inn tæplega tvö kíló af hörðum fíkniefnum, eitt af amfetamíni og eitt af kókaíni, játaði á fimmtudag sök fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur. Tollverðir á Keflavíkurflug- velli fundu fíkniefnin í vösum mannsins þegar hann kom til landsins frá Amsterdam í lok maí á þessu ári. Flutti inn tvö kíló af hörðum fíkniefnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.