Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 16
RÍKISSJÓÐUR var rekinn með 6,1
milljarðs króna halla á síðasta ári
samkvæmt nýrri skýrslu Ríkisend-
urskoðunar. Hallarekstur ríkisjóðs
árið 2002 var 8,1 milljarður. Auk-
inni lánaþörf á síðasta ári var mætt
með tekjum frá sölu eigna og af-
borgunum veittra lána auk nýrra
lána.
Eignir ríkissjóðs minnkuðu um
18,4 milljarða á síðasta ári og
skuldir um 5,8 milljarða. Eiginfjár-
staða versnaði um 12,6 milljarða í
fyrra samanborið við 2,8 milljarða
bata á árinu 2002.
Skýrslu Ríkisendurskoðunar má
finna á Netinu:
http.//www.rikisendurskod-
un.is/files/skyrslur_2004/rikis-
reikningur_2003.pdf
6,1 millj-
arðs halli
ríkissjóðs
16 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Komdu í næsta útibú,
kanna›u máli› á kbbanki.is
e›a hringdu í síma 444 7000.
KYNNTU fiÉR HVERNIG
fiÚ GETUR LÆKKA‹
GREI‹SLUBYR‹I fiÍNA
ME‹ KB ÍBÚ‹ALÁNI
– kraftur til flín!
HAGNAÐUR Flugleiða og 13 dótt-
urfélaga fyrir skatta á fyrstu níu mán-
uðum ársins nam tæpum 2,7 milljörð-
um króna, en fyrir skatta nam
hagnaðurinn 3,3 milljörðum króna. Á
sama tímabili í fyrra var hagnaður
fyrir skatta 2,1 milljarður króna. Í
fréttatilkynningu frá Flugleiðum seg-
ir að aðeins einu sinni á sl. tíu árum
hafi félagið náð betri afkomu af reglu-
legri starfsemi á fyrstu níu mánuðum
ársins.
Í tilkynningunni segir að afkoma
nú sé betri í flestum rekstrargreinum
en á sama tíma í fyrra, fjármuna-
myndun hafi verið sterk og handbært
fé hafi aldrei verið meira. Farþegum í
millilandaflugi fjölgaði um 18% frá
fyrra ári samkvæmt tilkynningunni
og áfram er stefnt að öflugum vexti.
Betra en bráðabirgðauppgjör
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, segist í tilkynningunni vera
mjög ánægður með niðurstöðuna.
„Þetta er ívið betra en kom fram í
bráðabirgðauppgjöri sem félagið birti
í tengslum við hlutabréfaútboð fyrr í
mánuðinum. Í þessu uppgjöri kemur
fram sá styrkur sem byggður hefur
verið inn í reksturinn undanfarin ár.
Félagið hefur sótt fram í mjög fjöl-
þættum rekstri í flugi og ferðaþjón-
ustu og hefur náð góðum tökum á
þessari starfsemi með því að skipta
henni í sjálfstæðar rekstrareiningar.
Flugleiðir eru að ná góðum rekstr-
arárangri þriðja árið í röð á sama tíma
og flugfélög í okkar heimshluta eiga
flest mjög á brattann að sækja. Þetta
hefur skapað félaginu grundvöll til að
sækja fram og stefna á bæði innri og
ytri vöxt,“ segir Sigurður.
Velta Flugleiða á tímabilinu var 34
milljarðar króna, sem er 14% aukning
frá fyrra ári, og rekstrarkostnaður
var 31 milljarður króna sem einnig er
14% hækkun.
Flugleiðir setja arðsemismörk
Í tilkynningunni segir að öll starf-
semi Flugleiða fari fram í 13 dóttur-
fyrirtækjum, en móðurfélagið, Flug-
leiðir, setji þeim arðsemismörk, stýri
áætlanagerð og fjárfestingastefnu.
Icelandair er langstærsta dótturfélag
samstæðunnar með um helming veltu
á árinu í heild. Í tilkynningunni segir
að Icelandair vinni náið með öðrum
fyrirtækjum samstæðunnar, sem
tengjast alþjóðaflugrekstri. Icelanda-
ir sinni t.d. öllum flugrekstri fyrir
Loftleiðir Icelandic, sem starfar á al-
þjóðlegum leiguflugsmarkaði, og fyr-
ir Flugleiðir Frakt, sem starfar á al-
þjóðlegum fraktmarkaði. Starfsemi
Flugleiðasamstæðunnar á þessum
tveimur sviðum, hefur vaxið umtals-
vert síðustu misseri samkvæmt til-
kynningunni, leiguflugið um hér um
bil 50% og fraktflugið um liðlega 20%
og afkoman hafi verið góð. Ætlar fé-
lagið að halda áfram sókn á þessum
vettvangi.
Flugleiðir gera ráð fyrir betri af-
komu af starfseminni á þessu ári en
árið 2003. Því bendi allt til þess að
2004 verði annað besta rekstrarár í
sögu félagsins.
Í markmiða- og rekstraráætlun
fyrir árið 2005 sem félagið vinnur nú
að er gert ráð fyrir áframhaldandi
hagnaði af starfseminni, áframhald-
andi vexti í öllum helstu fyrirtækjum
samstæðunnar og nýjum landvinn-
ingum í fjárfestingum. Þá verður mik-
ið kapp lagt á að stýra framboði hvar-
vetna í samstæðunni í takt við
arðbæra eftirspurn, að því er segir í
fréttatilkynningu Flugleiða.
Flugleiðir hagnast um
2,7 milljarða króna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Næst best Flugleiðir hafa aðeins einu sinni á sl. tíu árum hagnast meira.
FLUGLEIÐIR munu hugsanlega
auka við hlut sinn í breska lág-
gjaldaflugfélaginu easyJet, sem fé-
lagið á nú 10,1% hlut í. Þetta er
haft eftir Hannesi Smárasyni,
stjórnarformanni Flugleiða, á
fréttavefnum Bloomberg.
Segir Hannes í samtali við
fréttavefinn að Flugleiðir verði að
leita út fyrir Ísland ætli fyrirtækið
að eiga möguleika á því að vaxa. Þá
sé ljóst að það muni verða sam-
þjöppun á lággjaldamarkaðnum á
næstunni og stoðir easyJet séu
styrkar.
Óháður sérfræðingur á sviði flug-
félaga með aðsetur í London, Chris
Tarry að nafni, segir í samtali við
Bloomberg, að samlegðaráhrifin af
samruna Flugleiða og easyJet séu
engin. Hann segir að Íslending-
arnir eigi peninga en spyr jafn-
framt hvað annað þeir hafi fram að
færa. „Kannski þurfa þeir aðeins að
koma peningunum sínum fyrir,“
segir hann.
Hlutabréf í easyJet hafa hækkað
um 33% frá því Flugleiðir keyptu
fyrst 8,4% hlut í félaginu hinn 22.
október síðastliðinn, en fjórum dög-
um síðar jók félagið hlut sinn um
1,7%. Flugleiðir eru fjórði stærsti
hluthafinn í easyJet. Grikkinn Stel-
ios Haji-Ioannou, stofnandi easy-
Jet, er stærsti hluthafinn ásamt
fjölskyldu sinni með 41% hlut.
Heppileg
landfræðileg staða
Bloomberg fjallar einnig um
kaup Air Atlanta á breska leigu-
flugfélaginu Excel, sem félagið á nú
84% hlut í. Segir Bloomberg að
bæði Hannes Smárason og Magnús
Þorsteinsson, aðaleigandi og
stjórnarformaður Atlanta, veðji á
að hagstæð landfræðileg staða Ís-
lands, mitt á milli Bandaríkjanna
og Evrópu, geri íslenskum flug-
félögum kleift að ná til sín fólks- og
fraktflutningum milli meginland-
anna.
Þá segir Bloomberg að þeir
Hannes og Magnús séu af nýrri
kynslóð íslenskra athafnamanna,
sem hafi fylgt á eftir Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, forstjóra Baugs
Group, sem hafi komið víða við í
fjárfestingum erlendis, m.a. á Bret-
landi.
Frekari kaup
hugsanleg
ÍSLENDINGARNIR sem keyptu
83% hlut í dönsku verslanakeðjunni
Magasin du Nord í síðustu viku fengu
keðjuna á útsölu, að því er segir í
Berlingske Tidende í gær. Í grein í
blaðinu segir að Baugur Group,
Straumur Fjárfestingarbanki og B2B
Holding, félag í eigu Birgis Þórs
Bieltvedt, sem stefni nú að því að
eignast Magasin du Nord að fullu,
hafi áður kannað möguleg kaup á
keðjunni en horfið frá. Hins vegar
hafi kaupendurnir ekki staðist mátið
þegar Magasin bauðst á 4,8 milljarða
króna.
Hefur BT eftir Jóni Ásgeiri Jó-
hannssyni, forstjóra Baugs, að
Magasin hafi haft samband við Baug
fyrir tveimur árum þegar greint var
frá því að fyrirtækið ætlaði að opna
Debenhams-verslun í Danmörku. Þá
hafi Baugur kynnt sér Magasin, en
niðurstaðan orðið sú að ekki væru for-
sendur fyrir því að kaupa keðjuna.
Segir Jón Ásgeir að síðan þá hafi
efnahagsástandið batnað, og í sept-
ember síðastliðnum hafi málið aftur
verið tekið til skoðunar.
BT segir Jón Ásgeir ekki draga dul
á það að með kaupunum á Magasin
komi íslensku fjárfestarnir höndum
yfir eignir keðjunnar, sem séu meira
virði en nemur kaupverðinu á henni.
Magasin
á útsölu?
● FYRSTA rafræna lyfjapöntunin frá
Landspítala – háskólasjúkrahúsi til
Lyfjadreifingar ehf. var send í gær.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
ANZA hf. fór pöntunin í gegnum Raf-
rænt markaðstorg sem rekið er af
ANZA hf. í samstarfi við Ríkiskaup.
Tenging fjárhagskerfis ríkisins og
markaðstorgsins er sagður stór
áfangi, sem auðveldi ríkinu að ná
hagræðingu í innkaupum.
Rafræn lyfjapöntun
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
! "# $
% "&
' ("& )"
* )"
+"& )" ' ("&
,!(
,!&
! (#
-#
- " ! ./0!
./ ! "#)$
1
/ ' ("&
(#(!
%/ "
%() 2 3")$
% 4 $ 52 0 "
6)"
*(&)
*#"
+7 8" 2 ""
9:0!
.'
.( ;(# .("&
.(/ 0 4 0$
<"#
<4## "#/ "
= "" ( "
5/2 // >.8)!#
! "#
)
!(& ?4
+"& 7/ ' ("& <8 8
=4## "# ;(# ' ("& .7
$!
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
!4 "#
4 $!
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
@ >
AB
@
AB
>
>
@ >
AB
@ >
AB
@ >AB
@ AB
>
@ >AB
@ >
AB
>
>
@
AB
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
%! (&
&# "
< () 7 ( &# C
* .(
$ $ $
$ $
>
$
$
$
$
$ $ $ $
$ $
>
$ >
$
>
>
>
>
>
$ >
>
>
>
>
>
>
>
>
$
>
>
>
= 7 D3 $ $
<%$ E 0#"( (&
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði í gær
um 0,46% og var lokagildi hennar
3.396,11 stig. Mesta lækkun varð á
bréfum Landsbankans, eða 1,7%,
en mesta hækkun varð á bréfum
Marel, eða 1,5%.
Úrvalsvísitalan
lækkaði
9 &F
.GH
A
A
<.?
IJ
A
A
KK
-,J
A
A
*J
9 !
A
A
LK?J IM 6"!
A
A