Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 21 MINNSTAÐUR AKUREYRI SUÐURNES Forsvarsmenn DNG og söluaðilar í Noregi og Færeyjum, hafa fundað norðan heiða í vikunni, þar sem farið hefur verið yfir stöðuna og næstu skref til sóknar. Norðmaðurinn Jan Lybekk er stjórnarformaður DNG en hann starfar hjá Mustad, sem á helmings- hlut í fyrirtækinu á móti Vaka í Kópa- vogi. Hann sagði að víða um heim væri markaður fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins en að það tæki töluverð- an tíma að kenna fólki að nýta bún- aðinn. „Við erum einnig að horfa til þessara svæða, þar sem mögulegt er að nýta okkar búnað við veiðarnar en þessi tækni er ekki fyrir hendi.“ Hermann sagði að forsvarsmenn fyrirtækisins horfðu hóflega bjart- sýnir á framtíðina enda væri vinna við markaðssetningu bæði tímafrek og kostnaðarsöm. Starfsmenn DNG í Hörgárbyggð eru 9 talsins en fram- kvæmdastjóri er Helgi Stefánsson. Hörgárbyggð | Fyrirtækið DNG í Hörgárbyggð hefur verið leiðandi í framleiðslu og sölu á færavindum fyr- ir sjávarútveg í rúma tvo áratugi, auk þess sem fyrirtækið framleiðir búnuð til línuveiða. Nú eru blikur á lofti varðandi sölu á framleiðsluvörum. Að sögn Hermanns Kristjánssonar stjórnarmanns eru helstu ástæður þess breytingar á sóknardagakerfinu hér á landi og breytingar á veiðum smábáta í Noregi. Vegna samdráttar í sölunni hefur fyrirtækið verið að leita nýrra mark- aða og um leið að auka markaðshlut- deild. Þá hafa starfsmenn fyrirtæk- isins verið að vinna að ýmsum sérhæfðum verkefnum í undirverk- töku. Helstu markaðir fyrirtækisins hafa verið á Íslandi, í Noregi og Fær- eyjum en einnig hafa framleiðsluvör- ur fyrirtækisins verið seldar til Norð- ur-Ameríku, Írlands, Hjaltlandseyja, Grænlands og Brasilíu. Stjórnendur DNG leita nýrra markaða vegna samdráttar Morgunblaðið/Kristján Framleiðsla Fulltrúar DNG og söluaðilar við færavindur á verkstæði fyr- irtækisins í Hörgárbyggð, f.v. Hermann Kristjánsson stjórnarmaður, Helgi Stefánsson framkvæmdastjóri, Terje Lindal frá Dyrkorn í Noregi, Jon Ragnar Larsen frá Mustad í Noregi, Jan Lybekk frá Mustad, stjórn- arformaður DNG, Geir Liaklev frá Mustad og Joanes Dhal frá Færeyjum. Dalvíkurbyggð | Miklar umræður urðu um skólamál á fundi sem Fram- farafélag Dalvíkurbyggðar efndi til á fimmtudagskvöld. Fyrr í haust var lögð fram skýrsla um hagkvæmni þess að færa starfsemi Húsabakka- skóla í Svarfaðardal í Dalvíkurskóla en skiptar skoðanir eru í sveitarfé- laginu um gildi þess. Alls eru reknir þrír grunnskólar í Dalvíkurbyggð en samkvæmt skýrslunni má ná fram umtalsverðum sparnaði með samein- ingu. Framsögu á fundinum höfðu Sveinn Jónsson, bóndi í Kálfsskinni, Dóróþea Reimarsdóttir, kennari í Húsabakkaskóla, Ívar Jónsson, pró- fessor við Viðskiptaháskólann á Bif- röst, og Svanfríður Jónasdóttir, fyrr- verandi alþingismaður. Þá tóku skólastjórnendur, skólafulltrúi, for- ystumenn í foreldrafélögum, leik-, grunn-, og tónlistarskólakennarar þátt í pallborðsumræðum. Ýmsar hugmyndir á sviði skólamála hafa verið ræddar í byggðarlaginu að undanförnu, svo sem að koma á fót námsveri, almennu listnámi, fullorð- insfræðslu, lýðskóla fyrir eftirlauna- þega, „Dvöl í Dal“ sem er grennd- arskóli svo eitthvað sé nefnt. Mikið var rætt á fundinum að efla þyrfti og auka skólastarf í byggðalaginu m.a. til að styrkja byggðina og standast kröfur nútímans. Áhersla var lögð á að nú þyrftu menn að taka til hend- inni og móta betur þær fjölmörgu til- lögur sem fyrir lægju svo koma mætti þeim í framkvæmd. Efla þarf skólastarf í Dalvíkurbyggð Styrkur vegna málþings | Bæj- arráð Akureyrar hefur samþykkt til- lögu menningarmálanefndar um að veita Zontaklúbbi Akureyrar 400 þúsund króna styrk til að hefja und- irbúning að alþjóðlegu málþingi sem stefnt er að því að halda árið 2007, á 150 ára ártíð Jóns Sveinssonar, Nonna. Fram kemur í bókun menn- ingarmálanefndar ánægja með sýn- inguna „Úr fjörunni til fjarlægra landa“ sem nú stendur yfir á Amts- bókasafninu og er Zontaklúbbi Ak- ureyrar færðar þakkir fyrir fram- takið. Leggur nefndin áherslu á að minning Nonna sé í heiðri höfð og mælti með styrkveitingunni. Skákmeistari | Stefán Bergsson sigraði Þór Valtýsson í einvígi um tit- ilinn skákmeistari Skákfélags Akur- eyrar. Stefán hlaut 1,5 vinninga á móti hálfum vinningi Þórs. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Stefán sigrar á hægskákmóti hjá SA. Atmót fór fram á vegum félagsins um síðustu helgi, þar sem tefldar voru 4 umferðir. Efst- ir og jafnir með 3,5 vinninga urðu þeir Þór Valtýsson og Unnar Þór Bach- mann, en Þór telst sigurvegari þar sem hann varð hærri á stigum. Lukkupakkar | Kvenfélag Ak- ureyrarkirkju verður með kaffihlað- borð og lukkupakkasölu í safn- aðarheimilinu kl. 15 á morgun, sunnudaginn 21. nóvember.       HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir að ráðast á ann- an mann á skyndibitastað á Akureyri í apríl sl. og kasta honum á skilrúm. Sá sem fyrir árásinni varð marðist á handlegg og var aumur á skrokkn- um. Sakborningurinn játaði brot sitt. Fram kemur að maðurinn hefur ekki brotið áður gegn hegningarlögum. Fangelsi fyrir líkamsárás Íþróttaaðstaða | Á fundi bæj- arráðs í vikunni var lögð fram skýrsla með niðurstöðum starfshóps um framtíð íþróttavallarins á Akureyri og uppbyggingu frjálsíþróttaaðstöðu vegna Landsmóts UMFÍ á Akureyri árið 2009. Bæjarráð samþykkti að óska eftir umsögn ÍBA, UMFA, KA og Þórs um þær tillögur sem þarna eru settar fram.    Helguvík | Hringrás ehf. opnaði í gær aðstöðu í iðngörðunum við Helguvíkurhöfn í Reykjanesbæ til endurvinnslu á brotamálmum. Þar er tekið við brotamálum frá Suður- nesjamönnum. Hringrás hefur verið að byggja upp móttöku brotajárns um land allt og er atvinnusvæðið í Helguvík liður í því. Þar er tekið við brotamálmi frá Sorpeyðingarstöðinni Sorpu sem er í nágrenninu og frá sveitarfélögunum á Suðurnesjum, fyrirtækjum og ein- staklingum, allt án endurgjalds. Einar Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri Hringrásar, segir að þetta fyr- irkomulag spari sveitarfélögum og fyrirtækjum veruleg útgjöld því þau þurfi framvegis ekki að kosta flutn- ing málmanna til Reykjavíkur til endurvinnslu. Hringrás hefur í þjón- ustu sinni þrjár færanlegar endur- vinnslustöðvar sem eru fluttar á milli móttökustaðanna á lands- byggðinni. Járnaruslið verður flokk- að og tækin notuð til að klippa það í sundur og þjappa saman þannig að hráefnið verði tilbúið til útflutnings. Beint á erlenda markaði Þá segir Einar fyrirhugað að skipa járninu út í Helguvík og flytja þaðan beint á erlendan markað. Hann vekur athygli á því að þessi starfsemi skapi ákveðin umsvif á svæðinu, auk þess að sparnaðar sem felist í því að taka við málmunum á svæðinu. Við athöfn á atvinnusvæði Hring- rásar vakti Árni Sigfússon bæjar- stjóri athygli á því að frágangur að- stöðu Hringrásar yrði öðrum fyrirtækjum í iðngörðunum til eft- irbreytni. Búið er að koma upp grunnaðstöðunni en Einar segir að þar verði einnig reist hús fyrir starfsmenn og skemma fyrir tækin. Árni nefndi að Hringrás hefði komið með myndarlegum hætti að umhverfisátaki sem Reykjanesbær hefur staðið fyrir undanfarin ár. Þar hafi þúsundum tonna af brotajárni og málmum verið safnað. „Hringrás- in verður að halda stöðugt áfram ef vel á að vera,“ sagði Árni sem fékk það verk að opna atvinnusvæði Hringrásar með því að skera í sund- ur rör með stórum klippum. Hringrás ehf. var stofnuð utan um endurvinnsludeild Sindrastáls hf. Einar vakti athygli á þeirri skemmtilegu tilviljun að í gær voru liðin nákvæmlega 55 ár frá því Sind- rastál var stofnað. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Formleg opnun Árni Sigfússon bæjarstjóri notaði stórar klippur til að opna atvinnusvæði Hringrásar við Helguvík á táknrænan hátt. Hringrásin heldur áfram Hringrás ehf. opnar endurvinnslustöð fyrir brotamálma í iðngörðunum við Helguvík Stofna sjálfshjálparhóp | Stofn-fundur sjálfshjálparhóps aðstand- enda geðsjúkra verður haldinn í húsi Sjálfsbjargar við Fitjabraut 6c í Njarðvík þriðjudaginn 23. nóvember og hefst klukkan 20. Sjálfshjálparhópur er samfélag þar sem fólk kemur saman vegna sameiginlegrar reynslu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félagsmálastjóranum í Reykja- nesbæ. Lögð er áhersla á stuðning og samkennd, að miðla reynslu, að hlusta og að eiga góða stund saman. Fólk hittist á jafningjagrunni og all- ar upplýsingar sem koma fram inn- an hópanna eru trúnaðarmál. Auður Axelsdóttir iðjuþjálfi og starfsmaður Hugarafls mætir á fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.