Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 35 KIRKJUSTARF 50. Tómasarmessan í Breiðholtskirkju ÞRIÐJA Tómasarmessan á þessu hausti og sú fimmtugasta frá upp- hafi verður í Breiðholtskirkju í Mjódd sunnudagskvöldið 21. nóv- ember, kl. 20. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu sjö árin og verður sami háttur hafður á í vetur. Að þessu sinni verður messan þó 3. sunnudag í nóvember, þar sem 28. nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu. Framkvæmdaraðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholts- kirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyr- irbænaþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd Tóm- asarmessunnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Tónlistarguðsþjón- usta í Árbæjarkirkju ÞRIÐJA sunnudag hvers mánaðar eru tónlistarguðsþjónustur í Ár- bæjarkirkju. Í þessum guðsþjón- ustum er tónlistinni gert hátt undir höfði í lofgjörð og gleði guðsþjón- ustunnar. Á sunnudag mun hinn lands- þekkti söngvari og tónlistamaður Þorvaldur Halldórsson sjá um tón- listina og flytja hugleiðingu. Ferm- ingarbörn lesa ritningarlestra og flytja bænir. Á sama tíma er sunnudagaskólinn í safnaðarheim- ilinu. Kaffi, ávaxtasafi og kex á eft- ir. Skagfirðingamessa í Grafarvogskirkju SKAGFIRÐINGAMESSA verður í Grafarvogskirkju á morgun kl. 14. Söngsveitin Drangey syngur undir stjórn Snæbjargar Snæbjarn- ardóttur. Sigurður Skagfjörð Sig- urðsson syngur einsöng. Sr. El- ínborg Gísladóttir prédikar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Braga- son. Unglingakór Grafarvogs- kirkju verður með kaffisölu að messu lokinni. Brottfluttir Skagfirðingar er hvattir til að mæta í þessa átt- hagamessu. Önfirðingar í Neskirkju GUÐSÞJÓNUSTA verður í Nes- kirkju sunnudaginn 21. nóv. nk. kl. 11 og er Önfirðingum sérstaklega boðið til þessarar messu. Prestur er Ísfirðingurinn séra Örn Bárður Jónsson og aðstoðarprestur er séra Toshiki Toma. Félagar úr Há- skólakórnum leiða safnaðarsöng og einsöng syngur Halla Dröfn Jónsdóttir, nemandi í Söngskól- anum í Reykjavík. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Ritning- arlestur les Inga Rún Björnsdóttir frá Flateyri sem nú býr á Eyr- arbakka. Að lokinni guðsþjónustu verður hið nýja og veglega kaffihús Nes- kirkju opið til kl. 14. Önfirðingar fjölmenni í Nes- kirkju sem er kirkja Önfirðinga í Reykjavík fjarri átthögunum og hefur svo verið lengi hvort sem er á gleði- eða sorgarstundum. Kópavogskirkja – heimsókn GERÐUBERGSKÓRINN kemur í sína árlegu heimsókn á sunnudag- inn og syngur í guðsþjónustu kl. 14 undir stjórn Kára Friðrikssonar. Gestirnir frá Gerðubergi annast ritningarlestra en þá lesa Anna Magnea Jónsdóttir og Gyða Örn- ólfsdóttir. Upphafsbæn les Margrét Eyjólfsdóttir og lokabæn Kristjana V. Jónsdóttir. Nemandi frá Söng- skólanum í Reykjavík, Hulda Jóns- dóttir, syngur einsöng. Organisti er Guðmundur Ómar Óskarsson og kór kirkjunnar syngur og leiðir safnaðarsöng. Samvera í Borgum að lokinni guðsþjónustu. Kvöldmessa með Þorvaldi í Seljakirkju KVÖLDMESSA verður sunnudags- kvöldið 21. nóvember kl. 20 í Selja- kirkju. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar að orði og borði. Þorvaldur Halldórsson leiðir söfnuðinn í söng og kirkjukórinn undir stjórn Jóns Bjarnasonar styður við. Njótum nálægðar Guðs og manna. Allir velkomnir. Kökubasar Safnaðar- félags Áskirkju SAFNAÐARFÉLAG Ásprestakalls var stofnað 16. maí 1976. Þann tíma sem félagið hefur starfað hef- ur markmið þess verið að styðja og styrkja kirkjulegt starf í Áspresta- kalli. Fjáröflun félagsins hefur verið með margvíslegum hætti á liðnum árum. Peningum sem safnast hafa hefur verið varið til þess að styðja kirkjustarfið. Safnaðarfélagið borgar það efni sem notað er í barnastarfinu, gefur ferming- arbörnum áritaðar Biblíur og sendir bíl einu sinni í mánuði að stærstu byggingunum í sókninni til þess að auðvelda fólki að komast til kirkju. Einnig keypti Safn- aðarfélagið nýja fermingarkyrtla, þegar þeirra var þörf og litla bik- ara til þess að nota við alt- arisgöngur. Má gera sér í hugarlund að fórn- fúst starf félaga í Safnaðarfélaginu hefur skipt Áskirkju miklu máli. Nú er komið að kökubasar vetr- arins, sem verður haldinn á sunnu- daginn kl. 15. Er það von Safn- aðarfélagsins og allra þeirra sem starfa við kirkjuna að sem flestir hafi tök á því að leggja leið sína í Áskirkju á sunnudaginn til þess að kaupa köku og styðja þannig verð- ugt framtak Safnaðarfélagsins. Fundur með fermingarbörnum Selfosskirkju MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 24. nóv- ember næstkomandi kl. 20 verður fundur haldinn í Selfosskirkju með fermingarbörnum vorsins 2005 og foreldrum þeirra. Fundarefnið er vímuefnavarnir og málefni þeim skyld. Á fundinn kemur Þorsteinn H. Þorsteinsson, fulltrúi hjá embætti Tollstjórans í Reykjavík og ræðir við börnin og foreldra þeirra, auk þess sem hann sest við flygilinn og tekur lagið! Í fylgd með Þorsteini er fíkniefnaleitarhundurinn Bassi. Ástæða er til þess að hvetja for- eldra til þess að koma með börnum sínum á fund þennan, því áreið- anlegt er, að allir hlutaðeigandi munu hafa af honum bæði gagn og gaman. Sr. Gunnar Björnsson. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð fólki sem leitar bata eftir tólf- sporaleiðinni, verður í Dómkirkj- unni sunnudaginn 21. nóvember kl. 20. Einhver mun segja þar af reynslu sinni úr baráttunni við áfengissýkina. Þóra Gísladóttir, Hjörleifur Valsson, Birgir og Hörð- ur Bragasynir sjá um stemmnings- ríka tónlist. Byndís Valbjarn- ardóttir guðfræðingur flytur hugleiðingu. Sr. Jóna Hrönn Bolla- dóttir leiðir samkomuna og sr. Karl V Matthíasson leiðir fyrirbæn. Sjá heimasíðu Dómkirkjunnar www.domkirkjan.is Frumflutningur sálmalags í Hafnar- fjarðarkirkju VIÐ guðsþjónustu í Hafnarfjarð- arkirkju á sunnudaginn kemur 21. nóvember kl. 11 verður frumflutt nýtt sálmalag eftir Finn Torfa Stefánsson við ljóð eftir sr. Gunn- þór Þ. Ingason, sóknarprest henn- ar. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, sókn- arprestur í Djúpavogi, prédikar og sr. Gunnlaugur Stefánsson, sókn- arprestur í Heydölum, eiginmaður hennar og bróðir tónskáldsins, þjónar fyrir altari ásamt sr. Gunn- þóri. Organisti er Antonia Hevesi og kirkjukórinn syngur. Morgunblaðið/Arnaldur Breiðholtskirkja. BRJÓSTMYND af Jóni Baldvins- syni, fyrrv. forseta sameinaðs Al- þingis og fyrrv. forseta Alþýðu- sambands Íslands og formanni Alþýðuflokksins, var afhent Alþingi við athöfn í sal efri deildar fyrir skömmu. Það voru ættingjar Jóns sem afhentu Alþingi brjóstmyndina að gjöf. Myndin er gerð af danska listamanninum Leif Jenssen 1998. Viðstaddir athöfnina voru forseti Alþingis, varaforsetar, formenn þingflokka, forustumenn Samfylk- ingarinnar á Alþingi, fyrrv. þing- menn Alþýðuflokksins og fleiri gestir. Við athöfnina flutti Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur erindi um Jón Baldvinsson. Jón Baldvinsson var alþing- ismaður frá 1920–1938. Á þeim tíma var hann forseti sameinaðs Al- þingis 1933–1938. Jón var forseti Alþýðusambands Íslands og for- maður Alþýðuflokksins 1916–1938. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tvö barnabarna Jóns, Jón Baldvinsson og Hlín Baldvinsdóttir, og tveir seinustu formenn Alþýðuflokksins, Guðmundur Árni Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis, og Sighvatur Björgvinsson sendi- herra, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Brjóstmynd af Jóni Bald- vinssyni afhent Alþingi MÁLÞING um fjarskipta- og fjöl- miðlasamsteypur verður haldið í dag, laugardag, kl. 10–12, í húsnæði RA við Hringbraut 121 (JL-húsinu). Mál- þingið er á vegum Fjölmiðlamiðstöðv- ar ReykjavíkurAkademíunnar (RA). Með hliðsjón af samtvinnun annars vegar Og fjarskipta og fjölmiðla Norðurljósa og hins vegar Landssím- ans og Skjás eins, í tvær fjarskipta- og fjölmiðlasamsteypur, er á mál- þinginu ætlunin að fjalla um hugsan- leg áhrif slíkrar samrunaþróunar á fjölmiðlun á Íslandi almennt. Framsögumenn verða: Elfa Ýr Gylfadóttir, fjölmiðla- og fjarskipta- fræðingur, Guðmundur Heiðar Frí- mannsson, heimspekingur og Þor- björn Broddason, félags- og fjölmiðlafræðingur. Að loknum erind- um verður pallborð með framsögu- mönnum ásamt Birgi Guðmundssyni, aðjúnkt og ritstjóra Blaðamannsins og Loga Bergmann Eiðssyni, frétta- manni RÚV. Opnað verður fyrir spurningar og athugasemdir úr sal. Aðgangur er ókeypis. Málþing um fjarskipta- og fjölmiðlasamsteypur DAGVIST og endurhæfing MS verð- ur með opið hús og jólabasar að Sléttuvegi 5, í dag, laugardag, kl. 13– 16. Munir sem unnir eru í dagvistinni verða til sölu. Einnig verður súkku- laði og rjómavöfflur á boðstólum. Jólabasar dagvistar MS FRÉTTIR ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.