Morgunblaðið - 20.11.2004, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 47
DAGBÓK
Austfirðingafélagið var stofnað 26. janúar1904, en var lagt niður árið 2002. Í árhefði það orðið 100 ára og því munuAustfirðingar blása til afmælisfagnaðar
á Grand hóteli á sunnudag kl. 15 þar sem stofn-
unar félagsins verður minnst. Þar verða bæði
ávörp og skemmtiatriði. M.a. mun Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir ávarpa samkomuna auk þess
sem Árni Benediktsson mun flytja erindi um
sögu félagsins. Þá mun Helgi Seljan minnast
Austurlands og Vilborg Dagbjartsdóttir lesa
frumsamið ljóð. Einnig verða fjölbreytt skemmti-
atriði, m.a. verður leikið á fiðlu og píanó og sung-
ið.
Guðrún Jörgensen, fyrrverandi formaður fé-
lagsins, hefur ásamt fleiri félögum unnið að und-
irbúningi samkomunnar, en hún segir átthaga-
félögin hafa skipt miklu máli fyrr á árum við að
tryggja böndin milli fólks sem ættað var frá hin-
um dreifðu byggðum. „Fólk hittist sem var fætt
og uppalið í sveitum landsins, eins og í þessu til-
felli á Austurlandi. Austfirðingafélagið í Reykja-
vík náði yfir báðar Múlasýslur, frá Lónsheiði og
norður að Gunnólfsvíkurfjalli á Langanesi. Átt-
hagafélögin voru með alls konar menningarmál á
sinni könnu, meðal annars blaðaútgáfu og ýmsa
menningarstarfsemi til að halda sambandinu á
milli fólksins. M.a. var stofnaður Sögusjóður
Austurlands 1944, sem hafði það hlutverk að gefa
út safnrit sem gekk undir nafninu Austurland,
eða Safn austfirskra fræða. Þar voru karlar eins
og Sigurður Baldvinsson, Halldór Stefánsson og
Þorsteinn M. Jónsson ásamt Benedikt Gíslasyni
frá Hofteigi.
Þá voru Austfirðingamótin vinsælar og fjöl-
sóttar samkomur. Til dæmis komu 520 manns á
70 ára afmælismóti félagsins í Súlnasalnum á
Hótel Sögu árið 1974. Á mótin komu skemmti-
kraftar að austan og skemmtu gestum með söng
og gamanmálum. Þar má meðal annars nefna
samkórinn Bjarma frá Seyðisfirði.
Eitt af því sem er áhugavert við félagið er m.a.
að Jón Ólafsson ritstjóri var einn af stofnendum
félagsins og sama dag var einmitt kvenfélagið
Hringurinn stofnað, en ein af stofnendum
Hringsins var Helga Ólafsson kona Jóns Ólafs-
sonar.“
Hvað kom í staðinn fyrir félagið þegar það var
lagt niður?
„Það kom ekkert í staðinn, það starfa enn
nokkur minni félög sem standa fyrir vissa
hreppa, en ég veit ekki hversu mikið. Það tala
margir um að það sé missir að því og hvort það
eigi ekki að reyna að mynda eitthvert félag aftur
til að halda uppi menningarstarfi fyrir brottflutta
Austfirðinga og fólk ættað af Austfjörðum.“
Átthagar | 100 ára afmæli Austfirðingafélagsins fagnað á Grand hóteli á sunnudag
Gegndi mikilvægu hlutverki
Guðrún Jörgensen
er fædd árið 1929 á
Löndum í Stöðv-
arfirði.
Hún lauk námi
frá Kvennaskólanum í
Reykjavík árið 1949.
Guðrún starfaði í
Kaupfélaginu á Stöðv-
arfirði til ársins 1954
en flutti þá til Reykja-
víkur og hefur starfað
við ýmis störf síðan þá, m.a. við versl-
unarstörf auk þess sem hún var ráðskona í
Álftamýrarskóla.
Guðrún var einnig formaður Austfirðinga-
félagsins frá 1974–1984. Hún er gift Bent
Bjarna Jörgensen bifvélavirkjameistara.
Martröð
grunnskólabarna
MENNTAMÁLARÁÐHERRA fór
mikinn á Alþingi í dag, 9. nóvember.
Hún ásakaði stjórnarandstöðuna
fyrir það að vilja dæla, eins og hún
sagði, peningum til sveitarfélaganna
og hneykslaðist á þeirra framkomu.
En er ekki komið að okkur að
hneykslast á hvernig þessi rík-
isstjórn heldur á peningum okkar
skattborgaranna í sambandi við all-
ar sínar flökkuferðir til útlanda, með
fríðu föruneyti, og láta okkur skatt-
borgarana borga brúsann? Þeir
segja okkur að það sé allt til þægðar
fyrir okkur, að ég tali nú ekki um
menningarför menntamálaráðherr-
ans til Frakklands með ísklumpinn.
Hvað kostar það okkur skattborg-
arana? Hvað höfum við að gera með
svona kynningar ef menntun grunn-
skólabarna er felld niður vegna fjár-
skorts? Það mætti nú fella niður
nokkur af sendiráðum hjá íslenska
ríkinu og nota þann pening til
menntamála grunnskólabarna.
Mér finnst ekki nógu skýr krafa
koma frá sveitarfélögum um að ríkið
leggi 40% á móti 60% til menntamála
grunnskólabarna. Það er hægt að
skera niður í sendiráðum og ferða-
lögum þessara manna til útlanda án
þess að það skaði okkur, eða þessi
börn, sem eru svipt lagalegum rétti
sínum til náms og nýta það á arð-
bærari máta sem eru skólamál. Þá
nýtast þeir peningar í þarfir allra
skattborgaranna.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir.
Hvítt veski týndist
LÍTIÐ hvítt leðurveski týndist sl.
þriðjudagskvöld, líklega í strætó,
leið 16, eða á Grensásveginum. Í
veskinu eru skilríki og strætókort.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
691 8533 eða skili veskinu í Ak-
urgerði 38.
Silfurlitað karlmannsúr
týndist
SILFURLITAÐ karlmannsúr tap-
aðist á þriðjudagskvöld á Miklatúni,
milli Kjarvalsstaða og Rauð-
arárstígs. Úrsins er sárt saknað.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band við Guðna í síma 895 2340.
Hvítir skór týndust
við Hamraborg
HVÍTIR strigaskór nr. 40 týndust
fyrir rúmum 2 vikum í eða við versl-
anirnar við Hamraborg í Kópavogi.
17. nóvember sl. týndust hvítir
heilsuinniskór nr. 40 í litlum græn-
um plastpoka á sömu slóðum. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
895 2288 eða 895 8520.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e3 e5 4. Bxc4 exd4
5. exd4 Rf6 6. Db3 De7+ 7. Re2 Db4+
8. Rbc3 Dxb3 9. Bxb3 Bd6 10. Bg5 Bf5
11. Bxf6 gxf6 12. 0-0 Rc6 13. Rd5 0-0-0
14. Hfd1 Hhe8 15. Rec3 Ra5 16. Ba4 c6
17. Re3 Bg6 18. Hac1 Kb8 19. g3 h5 20.
a3 b5 21. Bc2 Bxc2 22. Hxc2 a6 23. b4
Rb7 24. Re2 Hc8 25. Hdc1 a5 26. Hb1
Bf8 27. Rf5 axb4 28. axb4 Rd6 29. Rxd6
Bxd6 30. Kf1 Kb7 31. Hc3 Ha8 32. Hf3
He6 33. Rc3 Ha3 34. Kg2 Be7 35. h4 Bf8
36. Kh2 Be7 37. Kg2 Bf8 38. d5 cxd5 39.
Rxd5 Hxf3 40. Kxf3 He5 41. Rc3 Kb6
42. Hb2 Be7 43. Re2 Bf8 44. Rd4 Kb7
45. Hc2 Hd5 46. Ke4 He5+ 47. Kd3 Hd5
48. Hb2 f5 49. Ke3
Staðan kom upp í flokki stúlkna 12
ára og yngri á heimsmeistaramóti ung-
menna sem lauk fyrir skömmu á Krít.
Klaudia Kulon (1.918) hafði svart gegn
Nazi Paikidze (2.028). 49. ... Hxd4! 50.
Kxd4 Bg7+ 51. Kc5 Bxb2 52. Kxb5 Bd4
og hvítur gafst upp. Tvær umferðir fara
fram í dag í Íslandsmóti skákfélaga sem
haldin er í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð. Áhugasamir geta mætt á skákstað
og fylgst með miklum fjölda skáka.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Úlpur fyrir
ungu stúlkuna,
mömmuna, ömmuna
og langömmuna
Dúnúlpur -
Leðurúlpur -
Hattar -
Húfur
TILVALIÐ TIL JÓLAGJAFA!
Margar gerðir skúfhólka ásamt
hálsmenum, ermahnöppum
og bindisnælum.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
ÞAU Birta og Bárður úr Stund-
inni okkar gáfu á dögunum út
barnaplötuna Stóru Stundina
okkar með
nokkrum
helstu söng-
stjörnum
þjóðarinnar
og blésu af
því tilefni til
söngskemmt-
unarinnar
Stóra Stund-
in sem hald-
in er í Vetr-
argarðinum í
Smáralind.
Skemmt-
unin gekk svo vel, að sögn að-
standenda, að ákveðið var að
halda hana aftur nú um helgina,
bæði í dag og á morgun kl. 16.
Meðal þeirra skemmtikrafta
sem koma fram með Birtu og
Bárði eru þau Jónsi úr Svörtum
fötum, Birgitta Haukdal, Nylon
stúlkurnar, Sveppi úr 70 mín-
útum, Selma Björnsdóttir, Jón
Sig og Anna Katrín Idolstjörnur
og Felix Bergsson. Þótti skemmt-
unin heppnast afar vel á dög-
unum og var mikið dansað og
sungið með.
Hægt er að tryggja sér miða í síma
511 2255 eða
í verslunum Skífunnar.
Stóra stundin í
Smáralindinni