Morgunblaðið - 20.11.2004, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 20.11.2004, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 49 DAGBÓK Kynning Prisma, miðstöð fyrir fólk með át- raskanir | Prisma er með á ein- staklingsviðtöl, hópmeðferð og fjöl- skylduvinnu fyrir fólk með átraskanir. Einnig geta foreldrar, makar og aðrir aðstandendur fengið upplýsingar og stuðning hjá starfsfólki Prismu. Nánari upplýsingar í símum: 692-2299, 690- 3569, 659-3463 og 895-6514. Reiðhöll Gusts | 20.–21. nóv. eru Hvuttadagar, sannkölluð hundahátíð. Um 30 tegundir verða á staðnum og gefst fólki kostur á fræðast um fjöl- breytta eiginleika þeirra. Áhugaverðar sýningar verða í boði alla helgina, m.a. hjálparhundur sem sýnir hvers hann er megnugur. Dagskrá á http:// www.hvuttadagar.net. Félagsstarf Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík | Bingó verður sunnudaginn 21. nóvember kl. 15, í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju, Hólabrekku 88, Reykjavík. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gönguhópur leggur af stað frá Kirkju- hvolskjallaranum kl. 10.30. Mæting tímanlega. Félagsstarf Gerðubergs | Mánudaginn 22. nóvember kl. 13.30 mætir Herdís Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslustöð við Hraunberg og býður upp á blóðþrýstingsmælingu og gefur holl ráð um heilsufar. Hrafnista Reykjavík | Basar milli kl. 13 og 17 í dag og á mánudaginn 22. nóv. milli kl. 10 og 16. Hæðargarður 31 | Fjölskylduganga Háaleitishverfis; Út í bláinn kl. 10. Hús- ið opnað kl. 9.30. Landsmálin leyst áð- ur en lagt er af stað. Boðið upp á vatn og teygjuæfingar að göngu lokinni. Dagblöðin liggja frammi. Allir vel- komnir ungir sem aldnir. SÁÁ félagsstarf | Tveggja kvöld dans- námskeið verður dagana 22. og 23. nóvember í sal I.O.G.T. að Stangarhyl 4. Námskeiðið hefst til 20 báða dag- ana. Kirkjustarf Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bæna- stund alla laugardaga kl. 20. Einnig eru bænastundir alla virka morgna kl. 06–07. Allir velkomnir. Njarðvíkurprestakall | Ytri- Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli 21. nóvember kl. 11 í umsjá Margrétar H. Halldórsdóttur og Gunnars Þórs Haukssonar og Natalíu Chow Hewlett organista. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnunum. Baldur Rafn Sigurðsson sóknarprestur. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Langar þig í nýtt heimili? Skipholti 29A 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili.is opið mánudaga til föstudaga 9-17 sími 530 6500 Heimili er öflug og fersk fasteignasala í eigu þriggja fasteignasala sem allir starfa hjá fyrirtækinu og hafa áralanga reynslu af fasteignaviðskiptum Við leggjum sérstaka áherslu á vönduð og traust vinnubrögð og úrvals þjónustu. Metnaður okkar er að allir viðskiptavinir finni heimili við sitt hæfi og verði sáttir og ánægðir með samskiptin við okkur. Einar Guðmundsson, Finnbogi Hilmarsson, Bogi Pétursson, löggiltir fasteignasalar Spaðasjöan. Norður ♠D753 ♥G74 S/Enginn ♦DG9 ♣863 Suður ♠1092 ♥ÁK ♦ÁK108743 ♣7 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 tígull 2 lauf Pass 4 lauf * 4 tíglar Pass Pass Pass * hindrun Vestur hefur vörnina gegn fjórum tíglum með laufás og kóng. Hvernig er best að spila? (Trompið er 2-1.) Vandinn er að gefa ekki nema tvo slagi á spaða. Það er hugmynd að læða út spaðaníunni og reyna að sleppa framhjá ÁGx eða KGx hjá austri (eða negla 8x í austur), en ekkert liggur á. Til að byrja með er rétt að hreinsa upp hliðarlitina. Innkomur blinds á tromp eru notaðar til að stinga lauf og hjarta, því það eru ýmsar stöður í 4-2 legunni í spaða þar sem liturinn er stíflaður og vörnin neyðist til að spila út í tvöfalda eyðu (til dæmis gæti austur átt ÁG eða KG tvíspil). Norður ♠D753 ♥G74 ♦DG9 ♣863 Vestur Austur ♠ÁG6 ♠K84 ♥D98 ♥106532 ♦52 ♦6 ♣ÁKD105 ♣G942 Suður ♠1092 ♥ÁK ♦ÁK108743 ♣7 Í þessari legu felst óvæntur ávinn- ingur í hreingerningunni – sjöan í spaða verður að stórveldi. Suður spilar spaðaníu og vestur lætur gosann rétti- lega. Drottningin fer úr úr borði og austur á slaginn á kóng. Austur verður að spila spaða um hæl frá áttunni, sem sagnhafi hleypir á sjöuna í borði. Það kostar ásinn og spaðatían verður slag- ur. Það borgar sig að sýna smáspilunum virðingu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is SÝNINGIN Þetta vilja börnin sjá, þar sem sjá má myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem komið hafa út á árinu verður opnuð í Gerðubergi í dag kl. 13.30. Í ár verða sýndar myndir úr nær fjörutíu bókum eftir tuttugu og sjö myndskreyta svo að börn og aðrir barnabókaunnendur fá sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð. Fjöldi listamanna tekur þátt í sýningunni, en þar gefst börnum kostur á að velja þá myndskreytingu sem þeim þykir best. Úr- slit verða kunngerð þegar sýningunni lýk- ur. Viltu lesa fyrir mig! hefur verið árlegur viðburður í Gerðubergi og að þessu sinni munu þau Björk Bjarkadóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigrún Eldjárn, Lár- us Jón Guðmundsson, Ólafur Gunnar Guðlaugsson og Áslaug Jónsdóttir lesa úr bókum sínum og Benedikt Búálfur sér um kynningar. Þá munu ballerínur frá Klass- íska listdansskólanum sýna dans. Sýning á barnabóka- myndskreytingum og upplestur í Gerðubergi Sýningin stendur frá 20. nóv- ember 2004 til 9. janúar 2005 og er opin mán-föst frá 11–19 og um helgar frá 13–17. LISTAKONURNAR Áslaug Höskulds- dóttir, Ingunn Erna Stefánsdóttir og Guð- rún Indriðadóttir opna í dag kl. 15 sýningu í Baksalnum í Galleríi Fold við Rauð- arárstíg. Þær reka saman leirlist- arvinnustofuna Okkur ásamt fleirum og nefna því sýninguna Þrjár af Okkur. Verkin á sýninguni eru öll unnin á þessu ári í steinleir eða postulín, enda er leirinn aðalviðfangsefni þeirra. Form og vinnslu- aðferðir eru þó mjög ólík. Þá verður einnig opnuð á sama tíma í Hornstofunni sýning á vatnslitaverkum bandarísku listakonunnar M.J. Levy Dick- son. Þrjár af Okkur í Galleríi Fold Sýningarnar standa til 5. desem- ber. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10 til 18, laugardaga frá kl. 11–17 og sunnudaga frá kl. 14–17. STÍLL 2004, fatahönnunar-, hár- greiðslu- og förðunarkeppni á veg- um Samfés verður haldin í Íþrótta- húsi Digranesskóla í Kópavogi á morgun. Í þetta skipti taka 44 fé- lagsmiðstöðvar þátt og er búist við að þúsund manns verði í Digranes- inu á morgun. „Dagskráin er þétt og skemmtileg frá klukkan 15 til 19. Meðal góðra gesta sem kíkja í heimsókn eru stúlkurnar úr Nylon, Kalli Bjarni og síðast en ekki síst Vignir og Birgitta úr Írafári,“ segir í tilkynningu frá Samfés en líka verða haldnar tísku- sýningar. Keppendur taka til starfa uppúr kl. 15, sýning á afrakstri dagsins verður kl. 17.25 og svo kemur í ljós kl. 18.50 hvaða félagsmiðstöðvar hreppa helstu verðlaun. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu fimm sætin, auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir hár, förðun og fatahönn- un. Kynnir á keppninni verður Mar- grét Eir Hjartardóttir. Búist við þúsund manns á Stíl 2004 Morgunblaðið/Kristinn Félagsmiðstöðin Vitinn Lækjó fékk verðlaun fyrir förðun í fyrra. Háskólabíó kl. 17.30: Undir stjörnuhimni. Frumsýning. Leikstjórarnir Helgi Felixson og Titti Johnson svara fyrirspurnum úr sal ásamt fulltrúm Rauða krossins. Hafnarhús kl. 12–16: Málþingið Kvik- myndir og samfélag. Rætt um hlutverk og gildi kvik- myndahátíða, íslenska kvikmyndamenn- ingu og rödd Íslands í hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi. Erindi flytja Sturla Gunnarsson kvikmyndaleikstjóri, Li Ping meistaranemi, Helga Stephenson, einn stjórnenda Kvikmyndahátíðarinnar í To- ronto, Jannike Ahlund stjórnandi Gauta- borgarhátíðarinnar og Þorfinnur Óm- arsson. Leikstjórar sitja fyrir svörum, og fjöldi fagfólks og áhugafólks um kvik- myndir tekur þátt í pallborðsumræðum. Helstu viðburðir á Alþjóðlegri kvik- myndahátíð í Reykjavík Tíu ára alheimshrein- gjörningur í Ketilhúsinu ANNA Richardsdóttir opnar í dag kl. 16 sýningu í Ketilhúsinu, sem hún kallar Al- heimshreingjörning. Anna hefur und- anfarin tíu ár ferðast á ýmsa staði í heim- inum til að hreingera og eignast sam- starfsfólk á hinum ýmsu stöðum, sem tekur þátt í að þrífa heiminn með henni, en þó eingöngu einn dag á ári, nefnilega á af- mælisdegi hennar, 10. október. Þann dag á hún frí. Verkið í heild fjallar einnig um skuldbind- ingu því allir þátttakendur þurfa að gera samning við Önnu og skuldbinda sig til þátttöku í 10 ár. Skuldbinding er flókið fyrirbæri og kemur ýmislegt í ljós um það á sýningunni. Sam- starfshreingjörningafólk hennar hefur sent henni myndir, texta, myndbönd og skyggnumyndir af gjörningum sínum, sem hafa verið framdir úti um allan heim hinn 10. október. Anna hefur skuldbundið sig til að halda sýningar á myndverkum þeirra einu sinni á ári í 10 ár. Eitt verk bætist við á hverju ári frá hverjum þátttakenda, en nýir þátttakendur geta bæst við á hverju ári. Sýningin verður opnuð með hreingjörningi barna. JPV útgáfa býður til samkomu í Salnum í Kópavogi í dag milli kl. 15 og 16. Þar mun Jónas Ingimundarson lesa upp úr ævi- sögu sinni, leika á slaghörpuna og flytja nokkur lög ásamt Ólafi Kjartani Sigurð- arsyni. Þau nýmæli eru við þessa útgáfu að tveir geisladiskar fylgja bókinni. Kaffi og meðlæti verður í boði á meðan Jónas áritar bókina sem verður fáanleg á staðn- um. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jónas Ingimundarson og Ólafur Kjartan Sigurðarson munu telja í nokkur væn sönglög á léttu nótunum í dag. Jónas Ingimundarson kynnir ævisögu sína í Salnum BÓKAFORLAGIÐ Bjartur efnir til jóla- bókahátíðar í versluninni Iðu, Lækjargötu, í dag frá kl. 11 til 19. Lesið verður úr nýjum og nýútkomnum bókum í heilar sex klukkustundir auk þess sem gestum verð- ur boðið upp á Blíðfinnslummur og pip- arkökur. Jólabókahátíð Bjarts

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.