Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 51 MENNING ☎ 552 3000Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is EKKI MISSA AF KÓNGINUM! AÐEINS ÞRJÁR SÝNINGAR EFTIR: • Fimmtudag 25/11 kl 20 NOKKUR SÆTI LAUS • Sunnudag 12/12 kl 20 AUKASÝNING • Sunnudag 26/12 kl 20 LOKASÝNING eftir LEE HALL Miðasalan er komin á internetið. Af því tilefni bjóðum við eldheitt tilboð á eina vinsælustu leiksýningu ársins. Kíktu á www.loftkastalinn.is og tryggðu þér tvo miða á verði eins. Tilboðið gildir aðeins í nokkra daga. Takmarkaður miðafjöldi! • www.loftkastalinn.is TVEIR FYRIR EINN “EINSTÖK SÝNING sem gengur upp að öllu leyti. Leikararnir fara á kostum” SS Rás 2 “ÞVÍLÍK SNILLD! Ég skora á alla að sjá þessa stórkostlegu sýningu” AK Útvarp Saga Valtýs- verk í Listmuna- húsinu RAMMAMIÐSTÖÐIN opnaði í gær nýtt myndlistargallerí í húsnæði sínu Síðumúla 34 og hefur það fengið nafnið List- munahúsið. Fyrsta sýningin er sölusýning á verkum Valtýs Péturssonar listmálara. Valtýr fæddist á Grenivík árið 1919. Hann lærði versl- unarfræði og stundaði listnám jöfnum höndum. Jafnframt því að vera í Verslunarskóla Íslands í tvo vetur stundaði hann nám í teikningu hjá Birni Björnssyni, teiknikenn- ara í Reykjavík. Hann fór síð- an utan og stundaði versl- unarnám og nam mósaíkgerð hjá G. Severini í París 1956– 1957. Valtýr var í hópi þekkt- ustu myndlistarmanna hér á landi um og eftir miðja öldina. Hann var einn af brautryðj- endum í abstraktlist á Íslandi og einn af stofnendum Sept- emberhópsins og tók þátt í sýningum hópsins á óhlut- bundinni myndgerð. Hann vann steinfellumyndir með ís- lenskum grjótflísum. Valtýr lést árið 1988. Opið verður í Listmunahús- inu Rammamiðstöðinni, Síðu- múla 34, alla virka daga á venjulegum afgreiðslutíma verslana, milli 11 og 16 á laug- ardögum og milli 13 og 17 á sunnudögum fram að jólum. Nútímalistasafn New York-borgar, Museum of ModernArt eða MoMA, opnar dyr sínar við 53. stræti aftur fyrir al- menningi í dag. Safnið var hið fyrsta í heiminum sem einbeitti sér eingöngu að sýningu og menntun á sviði nútímamyndlistar og fagnar um þessar mundir 75 ára afmæli sínu.    Safninu var lokað í maí árið 2002til þess að endurbæta húsnæðið og flutti þá til hluta af sýning- arstarfsemi sinni til Queens. Flestir voru sammála um að það væri ágætis lausn tíma- bundið, en auðvitað getur aðstaða lengst úti í úthverfi fyrir utan Manhattan alls ekki komið í staðinn fyrir hina frá- bæru staðsetningu sem safnið hef- ur, rétt við 5th Avenue, steinsnar frá Rockefeller Center, Times Square og suðurenda Central Park. Það var því til mikils að vinna að koma húsnæðinu aftur í sæmilegt horf, en það þótti komið nokkuð til ára sinna eftir 65 ára veru í húsinu.    Það var japanski arkitektinnYoshio Taniguchi sem sá um breytingarnar á húsinu. Víst er að salir hússins hafa stækkað til muna – heildarfermetrafjöldi hússins hef- ur nær tvöfaldast – sem þótti orðið tímabært þar sem safneignin hafði fyrir löngu sprengt utan af sér gamla húsnæðið. En margir hafa líka skotið fram þeirri pælingu, hvort safnið geti stækkað endalaust. Því í takt við tímann mun safneign MoMA pottþétt stækka enn meir, og nýir myndlistarmenn bætast í hóp- inn, án þess að aðrir verði úreltir.    Endurbæturnar kostuðu um 425milljónir dollara að sögn AP- fréttastofunnar, rétt rúma 28 millj- arða íslenskra króna. En á heima- síðu sinni segist MoMA hafa vonast til að safna tæpum 860 milljónum dollara fyrir breytingunum, og hafi náð að safna 700. 860 milljónir doll- ara eru tæpir 57 milljarðar króna. Ótrúlegt hvað það er til mikið af peningum í Bandaríkjunum! 57 milljarðar í listasafn eru mjög mikl- ir peningar, svo ekki sé meira sagt, þó svo að um sé að ræða eitt af höf- uðvígjum myndlistarinnar í dag.    Í dag verður víst ókeypis aðgang-ur að safninu, en frá og með morgundeginum mun aðgangur kosta 20 dollara, eða um 1.300 krón- ur. Það er 8 dollara hækkun frá því sem var áður en safnið lokaði og eru margir listunnendur New York ævareiðir yfir hækkuninni. Ég tek undir að 20 dollarar eru nokkuð mikið fé í þessu samhengi. Raunar finnst mér að söfn ættu helst alltaf og alls staðar að vera ókeypis. En hafandi komið í þetta safn, og það jafnvel áður en allar breytingarnar voru gerðar á því, get ég af fullum þunga sagt að það er peninganna virði að borga sig þangað inn. Að sjá öll þessi tímamótaverk sem maður er sílesandi um, hljóðfæraleikarana hans Picasso, dansinn hans Matisse, stóru vatnaliljurnar hans Monets og glugga/speglainnsetningu Ólafs Elíassonar sem ég var svo heppin að sjá síðast þegar ég var þar – ég myndi borga mig inn hvenær sem ég væri svo heppin að standa við vestanvert 53. stræti í New York. Stærra, betra og dýrara MoMA ’Það var til mikils aðvinna að koma húsnæð- inu aftur í sæmilegt horf, en það þótti komið nokkuð til ára sinna eft- ir 65 ára veru í húsinu. ‘ AF LISTUM Inga María Leifsdóttir ingamaria@mbl.is AP Nútímalistasafnið í New York, MoMA, verður opnað á ný í dag eftir að hafa verið lokað í tvö ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.