Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VERNDA UMHVERFIÐ
Fulltrúar þeirra átta ríkja, sem
aðild eiga að Norðurskautsráðinu,
undirrituðu Reykjavíkuryfirlýsingu
í gær en í henni skuldbinda ríkin sig
til þess að stuðla að áframhaldandi
þróun og verndun umhverfisins á
norðurslóðum
Heildarlausn í boði
Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi
Avion og stjórnarformaður, hyggst
bjóða upp á „heildarlausn í flug-
rekstri“; félag sem sér um leigu flug-
véla með áhöfn, þjálfun áhafnar, við-
hald og tryggingar fyrir þá sem vilja
stunda flugrekstur – allt annað en
sölu farseðla, en slíkt félag á engan
sinn líka í veröldinni.
Ásakanir um valdarán
Fulltrúar stjórnar og stjórnar-
andstöðu í Úkraínu sökuðu hver
annan um tilraun til valdaráns í gær
og sögðu landið á barmi borgara-
styrjaldar. Fulltrúar Evrópusam-
bandsins og Bandaríkjanna hvöttu
til þess að deiluaðilar beittu ekki of-
beldi. Vestræn ríki gagnrýna hart
framkvæmd forsetakosninganna um
sl. helgi og segja þær ekki hafa verið
lýðræðislegar.
Grunur um stríðsglæpi
Ný stjórn í Kosovo-héraði hefur
ekki getað hafið störf vegna þess að
væntanlegur forsætisráðherra,
Ramush Haradinaj, verður ef til vill
ákærður um stríðsglæpi. Er hann
sagður hafa fyrirskipað morð á
óbreyttum, serbneskum borgurum
er hann var skæruliðaforingi árið
1999.
Y f i r l i t
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgja tvö auglýsingablöð; frá Ráð-
stefnuskrifstofu Íslands og Gleðileg
jól frá Vero Moda.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Erlent 14 Umræðan 32/36
Höfuðborgin 18 Minningar 37/41
Akureyri 18 Dans 44
Austurland 20 Dagbók 46/48
Landið 20 Menning 49/51
Neytendur 24/25 Fólk 52/57
Daglegt líf 26 Bíó 54/57
Listir 28 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
LITHÁI sem kom til landsins með
falsað vegabréf og ökuskírteini fyrir
annan mann situr nú í gæsluvarð-
haldi meðan reynt er að grafast fyrir
um hver átti að fá skilríkin. Ekki er
enn vitað hvort sá maður er staddur
hér á landi.
Áður komið til landsins
Samkvæmt upplýsingum frá
sýslumanninum á Keflavíkurflug-
velli kom maðurinn til landsins frá
Kaupmannahöfn á sunnudagskvöld.
Tollvörður stöðvaði hann við grænt
hlið við komusal og þegar leitað var í
vösum hans fundust skilríkin. Þau
eru útgefin af yfirvöldum í Litháen
og í nafni litháísks karlmanns en
skipt hafði verið um myndir í þeim.
Myndirnar sem settar voru í staðinn
voru af sama karlmanninum.
Maðurinn sem var handtekinn
hefur a.m.k. einu sinni áður komið til
landsins en hann hefur afar lítið gef-
ið upp við yfirheyrslur. Héraðsdóm-
ur Reykjaness hefur úrskurðað hann
í gæsluvarðhald fram á föstudag.
Ung litháísk kona sem var með
honum í för var ekki handtekin þar
sem hún tengdist málinu ekki.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
hefur m.a. haft samband við alþjóða-
deild ríkislögreglustjóra vegna rann-
sóknar málsins en deildin hefur sam-
skipti við erlend lögregluyfirvöld,
m.a. Europol og Interpol.
Verði gefin út ákæra í málinu er
það í fyrsta skipti sem ákært er
vegna þess að maður hefur fölsuð
skilríki í fórum sínum en það var
gert refsivert með breytingum á út-
lendingalögum í vor.
Með fölsuð skilríki
fyrir annan mann
NIÐURSTÖÐUR úr rannsókn lögreglunnar í
Reykjavík á upptökum brunans í Hringrás mun
að öllum líkindum ekki liggja fyrir fyrr en eftir
nokkra daga. Sem fyrr er helst talið að eldurinn
hafi kviknað út frá hleðslutæki fyrir lyftara sem
var í einu horni skemmunnar þar sem eldurinn
kom upp en aðrir möguleikar eru einnig rann-
sakaðir. Ekkert hefur komið fram sem bendir til
íkveikju, að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlög-
regluþjóns í Reykjavík. Tæknideild lögregl-
unnar var á vettvangi í gær en aðstæður voru að
sögn Harðar frekar erfiðar.
Morgunblaðið/Júlíus
Brunasérfræðingar tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík unnu að rannsókn á svæði Hringrásar við Klettagarða í Reykjavík.
Aðstæður á vettvangi erfiðar
RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur óskað
eftir því við lögreglu, að hún rann-
saki hvernig á því stóð að sjón-
varpsmóttakari á Hallgrímskirkju-
turni féll skyndilega út í auka-
fréttatíma í hádeginu sl. þriðjudag,
með þeim afleiðingum að bein út-
sending rofnaði frá vettvangi elds-
voðans hjá Hringrás.
Sambandið rofnaði skyndi-
lega á slaginu klukkan tólf
Elín Hirst, fréttastjóri Sjón-
varpsins, segir þetta mjög ein-
kennilegt atvik og grafalvarlegt,
ekki síst vegna þess hlutverks sem
Ríkisútvarpið gegnir þegar alvar-
legir atburðir eiga sér stað.
,,Við höfðum verið með beina út-
sendingu fyrr um morguninn sem
gekk ágætlega og vorum með gott
samband við fréttamann okkar á
staðnum, en á slaginu klukkan tólf
rofnaði skyndilega sambandið,“
segir Elín.
Að sögn hennar eru bæði RÚV
og Stöð 2 með móttakara í Hall-
grímskirkjuturni og vitað var að
tæknimaður frá Stöð 2 fór upp í
turninn kl. hálf tólf, þar sem Stöð
2 var einnig með beina útsendingu
vegna eldsvoðans.
„Í mínum huga er þrennt sem
getur hafa gerst. Í fyrsta lagi að
það hafi orðið bilun, sem mér
finnst þó fremur ólíklegt, þar sem
allt var í lagi þar til sambandið
rofnaði og þarna er um búnað að
ræða sem skipt var út af öryggis-
ástæðum fyrir hálfum mánuði. Í
öðru lagi að starfsmaður Stöðvar 2
hafi af misgáningi tekið vitlausa
snúru úr sambandi, sem leitt hafi
til þess að útsending okkar rofn-
aði. Í þriðja lagi að þetta hafi verið
viljaverk en ég vil alls ekki trúa
því.
Við lítum þetta mál grafalvar-
legum augum vegna þess að Rík-
isútvarpið er hluti af almanna-
varnakeðju ríkisins og við tökum
það hlutverk mjög alvarlega. Þess
vegna fannst okkur nauðsynlegt að
grípa til þessara úrræða til að
ganga úr skugga um hvað gerðist,“
segir Elín.
Að sögn hennar hefur ekki kom-
ið í ljós nein bilun í móttakaranum,
sem hefur virkað með eðlilegum
hætti síðan atvikið átti sér stað.
Móttakari RÚV í Hallgrímskirkjuturni féll út þegar hefja
átti beina fréttaútsendingu frá brunanum hjá Hringrás
Lögregla rannsaki af
hverju útsending rofnaði
MIKILL skortur en nú á blóði í
Blóðbankanum. Í tilkynningu frá
Blóðbankanum segir að skapast
hafi mikil og rík þörf fyrir blóð-
hluta hjá sjúkrahúsunum vegna
sjúkdóma, bráðra veikinda, að-
gerða og slysa á síðustu dögum og
vikum.
„Þegar Blóðbankinn sendir
áskorun af þessu tagi, eru ríkar
ástæður að baki. Blóðbankinn sinn-
ir heilbrigðisstofnunum um land
allt. Á þessum árstíma reynist Blóð-
bankanum oft erfitt að halda uppi
nægum blóðhlutabirgðum.
Mikið hefur verið notað af rauð-
kornum, blóðvökva (plasma) og
blóðflögum síðustu dagana. Rauð-
korn og blóðvökvi eru notuð við að-
gerðir og slys. Blóðflögur eru
gjarnan notaðar í stórum aðgerð-
um, en ekki síst sem stuðnings-
meðferð við krabbameinssjúka. Það
er því mikilsvert að Blóðbankinn
eigi nægar birgðir þessara blóð-
hluta á hverjum tíma.
Blóðbankinn leggur sérstaka
áherslu á að fá virka blóðgjafa í öll-
um blóðflokkum til að koma.“
Mikill skortur
á blóði