Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 11
FRÉTTIR
Hálsmen
verð: kr.5.990.-
í dag: 4.792.-
Einstakt tæki færi í dag.
Frábærir demantss l ípaðir
SWAROVSKI skar tgr ipir
með 20% afs læt t i .
Ofnæmisprófaðir skartgripir
fyrir þig og hinar stjörnurnar.
Eyrnalokkar
verð: kr.3.750.-
í dag: 3.000.-
Hringir 3saman
verð: kr. 7.990.-
í dag: 6.392.-
Hálsmen
verð: kr.6.990.-
í dag: 5.592.-
Hálsmen
verð: kr. 7.990.-
í dag: 6.392.-
Kringlunni S:568 9955 - Faxafeni S:568 4020
Opið í Faxafeni til 6
og Kringlunni til 9 í kvöld.
fallegt fyrir þig
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Vertu þú sjálf!
Vertu bella donna
Erum að
taka upp jólafötin
Opið mán.-föst. 11-18 • laug. 11-15
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Ís-
lands samþykkti ályktun um fyrir-
hugaðar skattalækkanir á fundi sín-
um í gær. Bendir miðstjórn á að
verðbólga sé nú langt umfram for-
sendur kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði. Þær umfangsmiklu
skattalækkanir sem ríkisstjórnin
boði nú muni enn auka á hagstjórn-
arvandann og geti leitt til vaxandi
verðbólgu á næstu misserum. Gangi
það eftir séu forsendur kjarasamn-
inga um stöðugleika í efnahagsmál-
um og kaupmátt launa brostnar.
Þá er það mat miðstjórnar ASÍ, að
ítrekað hafi verið kallað eftir sam-
starfi við stjórnvöld um mótun sam-
þættrar stefnu í efnahags-, atvinnu-
og félagsmálum en stjórnvöld hafi
ekki sýnt vilja til slíks samráðs. ASÍ
muni því þurfa í samráði við aðild-
arfélög sín að endurskoða samskipt-
in.
Tekjutap ríkissjóðs rúmir
29 milljarðar króna
Hagdeild ASÍ hefur komist að
þeirri niðurstöðu að uppsafnað ár-
legt tekjutap ríkissjóðs vegna
skattabreytinganna á árunum 2005,
2006 og 2007 nemi samtals 29,256
milljónum kr.
„Samtals er gert ráð fyrir því að
tekjuskattar einstaklinga, eigna-
skattar einstaklinga og lögaðila og
barnabætur leiði til þess að tekjur
ríkissjóðs geti orðið rúmum 29 millj-
örðum lægri árið 2007 en ef skatta-
reglur ársins 2004 héldust óbreytt-
ar. Hér hefur ekki verið gert ráð
fyrir veltuáhrifum af skattalækkun-
um. Þetta hefur þau áhrif að ráðstöf-
unartekjur einstaklinga aukast um-
talsvert,“ segir í minnisblaði sem
hagdeild ASÍ hefur tekið saman um
skattafrumvarpið.
Skattbyrði þeirra tekjuhæstu
lækkar meira en annarra
ASÍ kemst að þeirri niðurstöðu að
sú leið sem ríkisstjórnin hefur valið,
að lækka tekjuskattsprósentuna um
4% og láta skattleysismörk hækka
sjálfkrafa af þeim sökum, leiði til
þess að hlutfallsleg skattbyrði allra
tekjuhópa sem á annað borð greiða
tekjuskatt, lækki um sama hlutfall.
„Ávinningur þeirra tekjuhærri
verður meiri í krónum talið en þeirra
tekjulægri. Að auki má búast við því
að tekjur flestra einstaklinga hækki
umfram hækkun persónuafsláttar-
ins og af þeim sökum mun hlutfalls-
leg skattbyrði þeirra sem eru með
lægstu tekjurnar lækka minna en
þeirra tekjuhærri. Þegar tillit er
tekið til þess að hátekjuskatturinn
verður afnuminn, þá er verið að
lækka skattbyrði þeirra tekjuhæstu
meira en annarra tekjuhópa. Hluti
breytinganna er því hlutlaus gang-
vart tekjujöfnun, þ.e. hvorki dregur
úr tekjujöfnun né heldur eykst hún,
en þegar tekið er tillit til breyting-
anna í heild þá dregur úr tekjujöfn-
un,“ segir á minnisblaðinu.
Hækkun barnabóta leiðir
til tekjujöfnunar
Að mati hagfræðinga ASÍ munu
þær breytingar sem kynntar hafa
verið á barnabótakerfinu fela í sér
aðgerðir til tekjujöfnunar.
„Hækkun skerðingarmarka kom
þeim með lægstu tekjurnar og lægri
millitekjur helst til góða. Skerðing-
armörkin hafa í raun verið mjög lág,
tæp 60.000 kr., þannig að ólíklegt er
að margir einstaklingar hafi í raun
fengið óskertar tekjutengdar barna-
bætur. Lækkun skerðingarpró-
sentna um 1% stig kemur þeim
tekjuhærri af þeim sem á annað
borð fá barnabætur til góða. Þegar
haft er í huga að í raun eru það helst
þeir tekjulægstu sem fá tekjutengd-
ar barnabætur vegna þess hve
tekjuskerðingar kerfisins eru miklar
og byrja við lágar tekjur, verður
ekki annað séð en að lækkun skerð-
ingarprósentnanna sé í raun tekju-
jafnandi aðgerð. Hækkun ótekju-
tengdra barnabóta verður líka að
teljast tekjujafnandi þar sem þær ná
einungis til barna að 7 ára aldri. Al-
mennt má búast við að foreldrar
ungra barna séu yngri en foreldrar
eldri barna. Þegar það er haft í huga
að tekjur þeirra yngri á vinnumark-
aði eru almennt lægri en þeirra
eldri, þá er hér um tekjujöfnun að
ræða.
Erfitt er að fullyrða um áhrif af-
náms eignaskatts á einstaka tekju-
hópa. Búast má við því að nettóeign
þeirra tekjuhærri, þ.e. eignir að frá-
dregnum skuldum, séu meiri en
þeirra tekjulægri. Hér verður þó að
hafa í huga að margir eldri borgarar
eiga skuldlausar eignir og borga því
eignaskatt en hafa lágar tekjur,“ er
mat hagfræðinga sambandsins.
Hagdeild ASÍ er ósammála þeirri
ráðstöfun ríkisstjórnarinnar að
vegna hættu á ofþenslu í hagkerfinu
samhliða stórframkvæmdum komi
þunginn af skattkerfisbreytingunum
fram á síðari hluta tímabilsins eða
árið 2007.
„Þetta væri skynsamleg ráðstöfun
ef rétt væri, en svo er ekki,“ segir á
minnisblaði hagdeildarinnar. „Verð-
bólga nú þegar er umtalsvert yfir
2,5% verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans og hefur verið það um
nokkurra mánaða skeið. Seðlabank-
inn hefur brugðist við og hækkað
vexti um 1,95% stig frá því í maí.
ASÍ hefur ítrekað bent á nauðsyn
þess að aðhalds sé gætt í ríkisfjár-
málunum. Það hefur Seðlabankinn
einnig gert...,“ segir ennfremur á
minnisblaði hagdeildar þar sem vís-
að er til tilkynningar Seðlabankans í
lok október sl.
Benda hagfræðingar ASÍ á að að-
haldsstig fjárlagafrumvarps fyrir
næsta ár sé minna en aðhaldsstig
ríkisfjármálanna árin 1999 og 2000
og er rifjað upp að á þeim árum hafi
verðbólga farið úr böndunum.
Auka aðhaldsleysi
ASÍ vísar einnig til nýs álits Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins um íslenskt
efnahagslíf í umfjöllun sinni og
bendir á að fyrir liggi að það sé sam-
dóma álit hagdeildar ASÍ, Seðla-
bankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins að aðhaldsstig ríkisfjármálanna
við núverandi aðstæður í efnahags-
lífinu sé ekki nægilegt og að skatta-
lækkanir muni auka á aðhaldsleysið,
nema til komi verulegur viðbótarnið-
urskurður ríkisútgjalda. Hætt sé við
að slíkt geti ekki gerst nema með
sársaukafullum niðurskurði á vel-
ferðarkerfinu.
Þá kemst hagdeild ASÍ að þeirri
niðurstöðu að flöt lækkun á tekju-
skattsprósentunni og afnám há-
tekjuskatts á næsta ári sé í litlu sam-
ræmi við áherslur sem samþykktar
voru um skattamál á nýafstöðnum
ársfundi ASÍ. Hækkun barnabóta sé
þó það atriði sem helst sé í samræmi
við áherslur ársfundarins. Verka-
lýðshreyfingin hefði þó kosið að út-
færa þær með nokkuð öðrum hætti.
Í stað þess að draga út skerðing-
arprósentunni sé æskilegra að
tekjutengdu bæturnar yrðu hækk-
aðar sérstaklega auk þess sem bæt-
urnar ættu að ná til barna að 18 ára
aldri.
Miðstjórn Alþýðusambandsins gagnrýnir frumvarp ríkisstjórnar um skattabreytingar
Auka hagstjórnarvandann og
geta valdið enn meiri verðbólgu
!
" #
$%#
&'
()(*
+,
-.
+
) +,
+
/+,0
/+.
-.
/+1
/+1
/+,
/+.
!
" #
$%#
&'
()(*
+,
-.
+
) //+
+
/+,0
/+.
-
/+
/+1
/+1
+
/+,0
+
-
/+
1+
GUÐRÚN Kjarval, tengdadóttir Jó-
hannesar S. Kjarvals listmálara hef-
ur fallið frá málsókn á hendur Pétri
Þór Gunnarssyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Gallerís Borgar, sem
hún höfðaði vegna meintrar fölsunar
og sölu á málverki sem eignað var
Kjarval. Með samkomulagi féllst
hún á að borga málsvarnarlaun lög-
manns Péturs vegna málsókn-
arinnar, 125 þúsund krónur.
Guðrún situr í óskiptu búi eftir
eiginmann sinn, Svein Kjarval sem
lést árið 1981, en hann var sonur Jó-
hannesar S. Kjarval.
Sveinn var réttbær handhafi höf-
undarréttar að listaverkum föður
síns eftir lát listamannsins en Guð-
rún fer með höfundarréttinn nú.
Guðrún krafðist þess að Pétur
Þór yrði dæmdur til að greiða henni
eina milljón í miskabætur fyrir brot
á höfundarréttarlögum fyrir að hafa
falsað og selt málverk sem ranglega
var eignað Jóhannesi Kjarval. Um
er að ræða málverk sem ber titilinn
„Vorkoma.“ Dani keypti það hjá
Galleríi Borg 1. maí 1994 og var
kaupverð 396 þúsund krónur. Rík-
islögreglustjóri ákærði ekki vegna
þessa verks í málverkafölsunarmál-
inu.
Sátt gerð um greiðslu
málsvarnarlauna
Hvorki Pétur Þór né lögmaður
hans mættu fyrir héraðsdóm þegar
málið var tekið fyrir og var stefnan
því árituð af dómara um að hægt
væri að gera fjárnám hjá Pétri Þór
upp í kröfur Guðrúnar. Áritun telst
ígildi dóms. Eiginlegur dómur var á
hinn bóginn ekki kveðinn upp og
sönnunarfærsla um hvort myndin
væri fölsuð eða ekki fór aldrei fram.
Stefnan var árituð 13. maí í vor, sex
dögum áður en Hæstiréttur sýknaði
Pétur Þór og Jónas Freydal Þor-
steinsson af öllum ákæruliðum í
málverkafölsunarmálinu. Þar sem
Pétur mætti ekki fyrir héraðsdóms
vegna stefnu Guðrúnar hafði hann
rétt á að krefjast þess að málið yrði
tekið upp á nýjan leik, sem hann og
gerði.
Hyggst stefna Pétri Þór aftur
Þegar málið var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjaness á þriðjudag
lýsti Jóhannes Albert Sævarsson
lögmaður Guðrúnar því yfir að fallið
væri frá málsókn og var gerð sátt
um að hún myndi greiða málsvarn-
arlaun Péturs Þórs. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Jóhannes að
ástæðan væri einkukm sú að ekki
hefði gefist tími til að afla álits dóm-
kvadds matsmanns á málverkinu
áður en 10 ára fyrningarfrestur
hefði runnið út. Í öðru lagi hefð-
ivantað ítarlegri gögn um kaup Pét-
urs Þórs á því verki sem stefnandi
telur að væri undir yfirmálun á
verkinu. Án þessara gagna væri
ekki forsvaranlegt að halda málinu
áfram. Þegar gagnanna hefur verið
aflað stendur að stefna Pétri Þór
aftur vegna hinnar meintu fölsunar
og til þess hefur Guðrún Kjarval sex
mánuði.
Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl. var
til varnar fyrir Pétur Þór.
Fellur frá
málsókn
vegna
Kjarvals-
málverks
Þetta er falsaða myndin, sem seld
var hjá Galleríi Borg árið 1994.