Morgunblaðið - 25.11.2004, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
fyrrverandi, Ramush Haradinaj.
Var samið um að Rugova yrði áfram
forseti Kosovo en Haradinaj yrði
forsætisráðherra.
Fyrir liggur hins vegar að stríðs-
glæpadómstóll SÞ hefur undanfarið
kannað ásakanir á hendur Harad-
inaj en hann var einn af helstu leið-
togum Frelsishers Kosovo (UCK) í
átökum við serbneska herinn 1998
og 1999. Segja Serbar Haradinaj
m.a. hafa fyrirskipað morð á
óbreyttum serbneskum borgurum.
Myndu bregðast ókvæða við
Fyrr í þessum mánuði var Harad-
inaj kallaður til yfirheyrslu en ekki
TAFIR hafa orðið á því að ný stjórn
tæki til starfa í Kosovo í kjölfar
þingkosninga, sem haldnar voru í
síðasta mánuði, vegna gruns um að
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu
þjóðanna í Haag muni senn leggja
fram ákæru á hendur manninum,
sem samið hefur verið um að verði
næsti forsætisráðherra í héraðinu.
Í kosningum sem fram fóru í
október vann Lýðræðisbandalag
Ibrahims Rugova nokkuð öruggan
sigur, hlaut um 45% atkvæða.
Flokkurinn náði hins vegar ekki að
tryggja sér meirihluta á þingi og hóf
því viðræður við þriðja stærsta
flokkinn, flokk skæruliðaforingjans
er vitað hvort málinu er þar með
lokið eða hvort vænta megi ákæru.
Yfirsaksóknari dómstólsins, Carla
del Ponte, hefur þó sagt að hún
muni leggja fram ákærur á hendur
einhverjum leiðtoga UCK fyrir árs-
lok.
Ljóst er að Kosovo-Albanar munu
taka því illa ef Haradinaj verður
ákærður en þeir líta á sig sem fórn-
arlömb í hildarleiknum 1999. Javier
Solana, utanríkismálastjóri Evrópu-
sambandsins, sagði hins vegar í
fyrradag, að sá maður, sem sætti
rannsókn stríðsglæpadómstóls væri
líklega „ekki heppilegastur“ for-
sætisráðherra í Kosovo.
Haradinaj, fyrrverandi skæruliðaforingi, tilnefndur forsætisráðherra í Kosovo
Hugsanlega sekur um stríðsglæpi
Pristina, Brussel. AFP.
Ramush Haradinaj
ÚKRAÍNSK kona stingur blómi í skjöld óeirðalögreglu-
manns fyrir utan skrifstofu Úkraínuforseta í Kíev í gær.
Þúsundir Úkraínumanna settu þá upp tjöld fyrir utan
skrifstofu forsetans og bjuggu sig undir mótmæli þriðju
nóttina í röð. Fólkið kvaðst ætla að halda áfram mótmæl-
um allan sólarhringinn þar til yfirvöld viðurkenndu að
forsetaefni stjórnarandstöðunnar, Viktor Jústsjenkó,
hefði sigrað í forsetakosningunum á sunnudag.
Reuters
Mótmæla allan sólarhringinn
BANDARÍSKI
fréttamaðurinn
Dan Rather, eitt
af þekktustu and-
litum á sjón-
varpsskjánum
vestra, hefur til-
kynnt að hann
muni láta af störf-
um sem aðal-
fréttalesari CBS-
sjónvarpsstöðvarinnar í mars á
næsta ári. Rather, sem er 73 ára,
hefur farið fyrir fréttastofu CBS síð-
ustu 24 árin, lengur en nokkur annar
maður. Hyggst hann nú m.a. ein-
beita sér að störfum sínum fyrir
fréttaþáttinn „60 mínútur“.
Tilkynningin um brotthvarf
Rathers kemur viku áður en annað
þekkt andlit, Tom Brokaw, aðal-
fréttalesari fréttastofu NBC-sjón-
varpsstöðvarinnar, lætur af störfum.
Þá er aðeins Peter Jennings hjá
ABC eftir af stóru nöfnunum þrem-
ur, sem svo hafa verið kallaðir.
Rather á langan feril að baki í
fréttamennsku. Eftirminnilegustu
augnablik ferils hans eru þó sjálfsagt
rimma hans við Richard Nixon á
fréttamannafundi í Hvíta húsinu og
rifrildi sem hann átti við George
Bush eldri í beinni útsendingu í for-
setatíð þess síðarnefnda.
Í yfirlýsingu Rathers kom fram að
hann hefði síðasta sumar komist að
þeirri niðurstöðu að rétt væri að
hætta eftir forsetakosningarnar í
nóvember. Mörgum þykir þó líklegt
að atvik, sem átti sér stað í septem-
ber, hafi haft áhrif á ákvörðunina en
þá neyddist Rather til að biðjast af-
sökunar á umfjöllun sinni um her-
þjónustu George W. Bush Banda-
ríkjaforseta í „60 mínútum“. Kom á
daginn að Rather hafði stuðst við
vafasamar heimildir fyrir þeirri full-
yrðingu að Bush hefði verið vikið úr
flugsveit þjóðvarðliðsins í Texas í
Víetnam-stríðinu.
New York. AFP.
Dan Rather
hættir í mars
Dan Rather
DEILAN um forsetakosningarnar
í Úkraínu hefur magnað spennuna
í samskiptum Bandaríkjanna og
Rússlands sem takast nú greini-
lega á um áhrif í fyrrverandi lýð-
veldum Sovétríkjanna þótt leiðtog-
ar beggja ríkjanna hafi oft neitað
því.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
var fljótur að senda Viktor Jan-
úkóvítsj, forsætisráðherra Úkr-
aínu, skeyti með hamingjuóskum
þegar úkraínsk yfirvöld tilkynntu
að hann hefði sigrað í kosning-
unum þrátt fyrir ásakanir um viða-
mikil kosningasvik. Stuðningur
Pútíns við Janúkóvítsj í deilunni
olli embættismönnum í Wash-
ington miklum áhyggjum.
Sendiherra Rússlands í Banda-
ríkjunum, Júrí Júshakov, var kall-
aður á fund í bandaríska utanrík-
isráðuneytinu þar sem
aðstoðarráðherrann Elizabeth Jon-
es, sem fer með málefni Evrópu,
gerði honum grein fyrir áhyggjum
bandarískra stjórnvalda. „Jones
áréttaði þá afstöðu okkar að eng-
inn ætti að fella dóm um kosning-
arnar fyrirfram eða þar til kosn-
ingasvindlið hefur verið
rannsakað,“ sagði heimildarmaður
fréttastofunnar AFP í bandaríska
utanríkisráðuneytinu.
Gagnrýnin sögð geta
stuðlað að óeirðum
Bandaríkin og Evrópusam-
bandið hafa gagnrýnt framkvæmd
kosninganna og krafist þess að
ásakanirnar um kosningasvikin
verði rannsakaðar. Hundruð þús-
unda Úkraínumanna hafa tekið
þátt í götumótmælum til stuðnings
forsetaefni stjórnarandstöðunnar,
Viktor Jústsjenkó, sem lýsti yfir
sigri í kosningunum.
Pútín virtist draga í land í fyrra-
dag, sagði að hamingjuóskirnar
sem hann sendi forsætisráð-
herranum hefðu ekki byggst á
endanlegum kjörtölum og enginn
ætti að viðurkenna atkvæðataln-
inguna eða hafna henni fyrr en úr-
slitin yrðu staðfest. Skömmu síðar
sagði Sergej Lavrov, utanrík-
isráðherra Rússlands, að stjórnin í
Moskvu myndi ekki skipta sér af
innanríkismálum Úkraínu.
Pútín fór hins vegar hörðum
orðum um gagnrýni Vesturlanda
og alþjóðlegra eftirlitsmanna á
kosningarnar í Úkraínu, sagði
hana óþolandi afskipti af innanrík-
ismálum landsins. Rússneska utan-
ríkisráðuneytið sagði að gagnrýnin
gæti stuðlað að óeirðum í landinu.
Telja Bandaríkin seilast
inn á áhrifasvæði Rússa
Rússneska stjórnin hefur áður
staðið með valdfrekum ráðamönn-
um í fyrrverandi lýðveldum Sov-
étríkjanna á síðustu árum, til að
mynda þegar hún snerist á sveif
með stjórnvöldum í Hvíta-
Rússlandi í deilum þeirra við
Bandaríkin og Evrópusambandið.
Stjórnin í Moskvu viðurkenndi
með semingi „rósabyltinguna“ í
Georgíu í fyrra þegar Edúard
Shevardnadze, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna,
hrökklaðist frá og vék fyrir ungum
umbótasinna sem nam við háskóla
í Bandaríkjunum.
Rússum svíður enn innganga
Eistlands, Lettlands og Litháens í
Atlantshafsbandalagið og líta á
hana sem sönnun fyrir því að vest-
ræn ríki seilist inn á áhrifasvæði
Rússlands.
Þegar Jústsjenkó lýsti yfir
stuðningi við inngöngu Úkraínu í
Evrópusambandið og jafnvel
NATO leist stjórnvöldum í Kreml
ekki á blikuna. Pútín fór í heim-
sókn til Úkraínu nokkrum dögum
fyrir fyrri umferð kosninganna og
átti fund með Janúkóvítsj forsætis-
ráðherra og Leoníd Kútsjma, frá-
farandi forseta.
Daginn fyrir síðari umferð for-
setakosninganna á sunnudag
ræddi George W. Bush Banda-
ríkjaforseti við Pútín og kvaðst
hafa áhyggjur af „of mikilli valda-
samþjöppun í Kreml“. Hann skír-
skotaði m.a. til afnáms beinna
kosninga til héraðsstjóraembætta
og einmenningskjördæma í kosn-
ingum til dúmunnar, neðri deildar
rússneska þingsins.
Bandarískir embættismenn hafa
einnig gagnrýnt saksókn rúss-
neskra yfirvalda á hendur olíu-
fyrirtækinu Yukos og aðgerðir
gegn óháðum fjölmiðlum.
„Núna bætist Úkraína við allt
það sem er að gerast í Rússlandi,“
sagði háttsettur embættismaður í
utanríkisráðuneytinu í Wash-
ington. „Ég tel engan vafa leika á
því að þetta mál reyni mjög á þol-
rifin í okkur og Rússum.“
Úkraína nýtt þrætuepli
Rússa og Bandaríkjanna
Washington. AFP.
’Þegar Jústsjenkó lýstiyfir stuðningi við inn-
göngu Úkraínu í ESB
og jafnvel NATO leist
stjórnvöldum í Kreml
ekki á blikuna.‘
!"
#
$ % & '
!"#$
%&''(#)
*+
((#
) %&''(#)
%&,-!#
()* + "
,.()+ #
/ 0
& /012
"
3
6/ 6
6/01
/01
5/3 ,
& 7$
08/-.)
%9 //-)
#/0)
6 /:8 0
/ 0
,
;
8
<=
<
$
/0
#
,20>
- 2?$
@/
'12
A<8 1$ 6
' :@:/:@$
8 80B>
CD/ 1 12
& 7
!"# $
C
@
D
$
E D $
"1
2+#
2
!
3
2"
4
21
DANSKIR vísindamenn hafa ráðist í
að rannsaka Vínlandskortið og von-
ast til, að með nýjum aðferðum verði
unnt að skera úr um það í eitt skipti
fyrir öll hvort það er falsað eða ófals-
að.
Deilur um kortið hafa staðið í 30 ár
og sýnist sitt hverjum um uppruna
þess. Að því er fram kemur í Berl-
ingske Tidende hafa sérfræðingar
frá dönsku þjóðarbókhlöðunni og
forvörsluskólanum í Kaupmanna-
höfn fengið leyfi Yale-háskóla í
Bandaríkjunum til að kanna kortið
og ætla þeir sér viku til verksins.
Kortið sýnir eins og kunnugt er
Norður-Ameríku.
Vínlands-
kortið
rannsakað