Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 16
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Rjúpur á húnvetnskum heimilum | Ís-
lenskar rjúpur verða í matinn um þessi jól á
allmörgum húnvetnskum heimilum þrátt
fyrir ríkjandi veiðibann að því er heimildir
Húnahornsins herma. Ástæðan mun vera
sú að mikið er um fuglinn í Húnaþingi og
sækir hann mjög í vegi með þeim afleið-
ingum að menn keyra einfaldlega á hann. Í
fyrra voru einnig margir með íslenskar
rjúpur um jólin og var skýringin þá að um
væri að ræða „eldri birgðir“ úr frystikist-
unni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gaf harmonikku | Louise Kr. Theodórs-
dóttir gaf á dögunum Tónlistarskóla Siglu-
fjarðar litla harmoniku af Delicia-gerð.
Gjöfin var til minningar um eiginmann
hennar, Ragnar Má Hansson rafvirkja en
hann lést í október á liðnu ári. Athöfn var
tónlistarskólanum af þessu tilefni en þar
þakkaði Elías Þorvaldsson skólastjóri þann
hlýhug sem Louise sýndi skólanum. Helen
S. Hraunberg spilaði því næst eitt lag á
hina nýju harmonikku. Frá þessu er sagt á
vef Siglufjarðarbæjar.
Menningarhátíðverður á Lauga-landi í Holtum
sunnudaginn 28. nóv-
ember kl.13–18. Þar verð-
ur m.a.: handverksmark-
aður, handverkssýning,
kynningar og tónlistar-
atriði fyrir unga sem
aldna, s.s. Kammerkór
Rangæinga, unglinga-
sönghópur undir stjórn
Ninu Maríu Morávek,
sönghópurinn Góðir
grannar og hljómsveitin
Nylon. Kynning á bókinni
Vængjatök, hugverk
sunnlenskra kvenna og
Árni Johnsen kynnir nýja
bók sína. Kveikt verður á
jólatré við Laugaland og
þar mæta jólasveinar,
einnig verður flutt hug-
vekja.
Menningarhátíð
á Laugalandi
Félagar í Lions-klúbbnum Ægibuðu heimilisfólki á
Sólheimum í Grímsnesi að
skreppa í borgarferð og
njóta veitinga og skemmt-
unar. Tilefnið var hinn ár-
legi Sólheimadagur klúbbs-
ins, 21. nóvember. Þessi
nýjung hjá Ægismönnum
bætist við önnur verkefni
þeirra til stuðnings Sól-
heimum. Góð stemmning
var í hópnum og vakti
framtakið ánægju og
þakklæti heimilisfólksins.
Sólheimar í borgarferð
Engilráð Sigurð-ardóttur fannstlítt til karl-
mennskunnar koma í vís-
um sem birtust í gær,
einkum borið saman við
Norður-Þingeyinga:
Af Sunnlendinga hrolli að heyra
hlægir mig.
– Þingeyingar þola meira
en þrettán stig.
Sigrún Haraldsdóttir
veltir því fyrir sér áhrif-
um þingeyska loftsins:
Varðar ekki um vetrarél,
veðri lítt er háður.
Þingeyingur þolir vel
þrettán mínusgráður.
Friðrik Steingrímsson
átti upptökin að þessu
öllu saman. Nú segir hann
erfitt að meta hvort um
karla eða konur hafi ver-
ið að ræða, – í kuldanum.
Þegar allt er upp í kvið
erfitt kyn að meta,
heilabrotum bjargað við
bringuhárin geta.
Karlar eða konur?
pebl@mbl.is
Akureyri| Starfsmenn bæjarins
eru í óðaönn að skreyta þessa
dagana, byrjuðu í liðinni viku og
ljúka verkinu í lok þeirrar
næstu. „Þetta er ansi mikið verk
og fjöldi manns að vinna í
þessu,“ sagði Tryggvi Mar-
inósson hjá Framkvæmda-
miðstöð.
Morgunblaðið/Kristján
Keppast við að skreyta bæinn
Jóla-
stjarna
Grundarfjörður | Nemendum í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga líður vel í skólanum. Þessi
niðurstaða fékkst í viðhorfskönnun sem gerð
var meðal nemenda og greint er frá á heima-
síðu skólans. Fram kom í könnuninni að tæp-
lega 70% nemenda líður mjög vel í skólanum
og tæplega 30% ágætlega eða sæmilega.
Enginn nemandi svaraði því til að sér liði
illa í skólanum.
Könnunin var gerð í lok október og svör-
uðu 99 af 133 nemendum, eða 74,4%.
Flestir nemendanna eru fæddir árin 1987
og 1988, eða um 70%. Fram kom í könn-
uninni að rúmum 40% nema líkar vel eða
mjög vel við kennsluhætti og um 40% sæmi-
lega.
Nokkuð vel virðist hafa gengið að venja
nemendur á að nota vefpóst, því rúmlega
70% þeirra segjast opna hann á hverjum
degi eða oftar og rúmlega 90% nemenda lík-
ar mjög vel, vel eða sæmilega við að fá upp-
lýsingar í gegnum vefpóstinn.
Þegar spurt er hvort nemendur vinni
verkefnavinnuna í skólanum eða heima kem-
ur í ljós að 70% nemenda vinna að mestu
leyti í skólanum og innan við 3 klukkustundir
á viku heima.
Öllum líður
vel í skólanum
Reykholt | Sveitarstjórn Bláskógarbyggðar
hefur ákveðið að auglýsa nýtt deiliskipulag
íbúðarbyggðar syðst í byggðinni í Reykholti í
Biskupstungum. Þar er gert ráð fyrir 72
íbúðum.
Skipulagstillagan er unnin af Pétri H.
Jónssyni arkitekt. Byggðin verður á flatlendi
vestan Kistuholts. Það er sjö hektarar að
stærð og er í eigu Bláskógabyggðar, að því er
fram kemur í frétt á vef sveitarfélagsins.
Tillagan gerir ráð fyrir 72 íbúðum, þar af
34 einbýlishúsalóðum, 20 íbúðum í parhúsum
og 18 í raðhúsum. Vegtenging verður frá
Miðholti og frá Skólabraut.
Skipuleggja svæði
með 72 íbúðum
♦♦♦
Skagaströnd | Ánægja ríkir meðal
félagsmanna í björgunarsveitinni
Strönd á Skagaströnd með nýjan bíl
sem þeir fengu afhentan á útilífs-
sýningu á Akureyri um síðustu
helgi. Með þessu er gamall draum-
ur sveitarinnar að rætast en fyrir á
sveitin tvo gamla bíla sem lifað hafa
tímana tvenna.
Bíllinn er nýr Toyota Land-
cruiser, upphækkaður á stórum
dekkjum og búinn fjarskipta- og
leiðsagnartækjum af bestu gerð. Þá
er á bílnum öflugt spil til að bjarga
sér úr festum og öðrum ógöngum.
Mikill hugur er í félögum sveit-
arinnar því á næstunni er svo vænt-
anlegur stór björgunarbátur frá
Englandi sem verður staðsettur og
gerður út frá Skagaströnd. Bíður
báturinn nú flutnings heim frá
Plymouth þaðan sem hann er
keyptur og vonast björgunarsveit-
armenn eftir að fá bátinn fyrir jól.
Morgunblaðið/Kristján
Nýtt tæki Ernst Berndsen, formaður slysavarnadeildarinnar á Skaga-
strönd, tekur við lyklunum að nýja bílnum úr höndum starfsmanns Toyota.
Með á myndinni eru nokkrir félagar úr björgunarsveitinni Strönd.
Hugur í björgunarsveitarmönnum
HÉÐAN OG ÞAÐAN
40 nýjar bækur frá Póllandi | Bæjar-
og héraðsbókasafnið á Ísafirði fékk nýlega
40 nýjar bækur frá Póllandi. Á fjórða
hundrað bóka þaðan er nú til á safninu en
Pólverjar og íbúar af pólskum uppruna eru
duglegir að nýta sér bókasafnið sem og
einnig útibú þess á Flateyri. Þetta kemur
fram í viðtali við Jóhann Hinriksson for-
stöðumann safnsins á vef Bæjarins besta.
Þar segir hann að bækurnar hafi verið
keyptar fyrir styrk frá Fiskvinnslunni
Kambi, að upphæð 100 þúsund krónur sem
veittur var síðastliðið sumar.
Að mestu er um að ræða skáldsögur,
barnabækur og fræðirit almenns eðlis, en
að sögn Jóhanns er mikilvægt að hafa á
boðstólum pólskar barnabækur „svo fólk
missi ekki tengslin við uppruna sinn í bók-
menntum“ eins og hann orðar það.
Þineyjarsveit | Sorpsamlag Þingeyinga
ehf. stefnir að því að reisa nýja flokkunar-
og endurvinnslustöð fyrir úrgang þar sem
sorp verður brennt til orkuframleiðslu. Til-
gangur framkvæmdarinnar er að auka
endurvinnslu og bæta meðferð úrgangs
með tilliti til umhverfisáhrifa, auk þess að
skapa aðstæður til að uppfylla ákvæði laga
og framfylgja stefnu stjórnvalda um með-
ferð úrgangs, aukna endurvinnslu og end-
urnýtingu. Að Sorpsamlagi Þingeyinga
standa, Húsavíkurbær, Tjörneshreppur,
Kelduneshreppur, Aðaldælahreppur,
Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur.
Framtíðarlausn
í sorpmálum
♦♦♦