Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Garðabær | Íbúum í Garðabæ hefur
fjölgað hratt undanfarið og á dög-
unum náði íbúafjöldinn loks yfir
9.000 íbúa markið. Það gerðist þegar
þriggja manna fjölskylda flutti í Sjá-
landshverfi, og þótti Ásdísi Höllu
Bragadóttur bæjarstjóra við hæfi að
bjóða þessa nýju íbúa velkomna.
Þessir nýju Garðbæingar eru
hjónin Ingólfur Eyfells og Hrafn-
hildur Eyfells, og sonur þeirra Eyj-
ólfur Eyfells. Þeir buðu bæjarstjóra
inn á nýtt heimili sitt við Norðurbrú í
gær og færði Ásdís Halla þeim góðar
gjafir frá ýmsum fyrirtækjum í bæn-
um.
Þessir nýju íbúar Garðabæjar
hyggjast setja sitt mark á umhverf-
ið, því Ingólfur er þegar farinn að
undirbúa upsetningu á listaverki eft-
ir föður sinn, Jóhann Eyfells, í hverf-
inu. Listaverkið stendur nú fyrir ut-
an gamla heimili fjölskyldunar á
Seltjarnarnesi og vonast Ingólfur til
þess að samþykki fáist í hverfinu fyr-
ir því að hann flytji listaverkið með
sér á nýjar slóðir.
Hvenær kemur ylströndin?
Ingólfur sagði þessar móttökur
bæjarstjóra mjög ánægjulegar, og
sagði að þessi íbúð væri á óskastað
fjölskyldunnar. Hann segir að þau
hafi leitað mikið að staðsetningu sem
hentaði þeirra þörfum, og sagði
þetta nýja bryggjuhverfi passa þeim
einstaklega vel. Undir það tók Eyj-
ólfur sonur hans, en hann sagðist
vera mikill baðstrandakall og notaði
því tækifærið og spurði Ásdísi Höllu
hvenær væri reiknað með því að yl-
ströndin sem áætlað er að verði við
hverfið verði tilbúin til notkunnar.
Ekki stóð á svörum Ásdísar Höllu,
og sagðst hún vona að ströndin verði
tilbúin á næsta ári.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Góðar móttökur Hrafnhildur, Eyjólfur og Ingólfur tóku á móti Ásdísi
Höllu bæjarstjóra með japönsku sælgæti og indversku tei.
9.000 íbúar í Garðabæ
Nýir íbúar setja mark sitt á hverfið
AKUREYRI
Garðabær | Snjórinn og klakinn eru
á hröðu undanhaldi þessa dagana
og krakkarnir sem ljósmyndari
rakst á á skautasvelli fyrr í vikunni
hafa nú misst þá góðu skemmtun að
renna sér á svellinu. Væntanlega
frýs þó aftur fljótlega og geta þá
Garðbæingar haldið áfram að iðka
vetraríþróttir. Auk skautasvellsins
verða lagðar gönguskíðabrautir og
boðið upp á dorg á Vífilstaðavatni
þegar það frýs.
Kuldinn á undanhaldi og svellið horfið
Morgunblaðið/Kristinn
Reykjavík | Hugmynd Andra Snæs
Magnasonar rithöfundar um að láta
slökkva á götuljósum borgarinnar í
stutta stund þannig að borgarbúar
gætu notið stjörnubjartrar nætur
yfir vetrartímann virðist loks verða
að veruleika, en Andri segist hafa
gengið með hugmyndina í maganum
í um 10 ár. Fyrirhugað er að fram-
kvæma hana á Vetrarhátíð Reykja-
víkur í lok febrúar á næsta ári að
sögn Andra og Svanhildar Konráðs-
dóttur, forstöðumanns Höfuðborg-
arstofu. Vonast Andri til þess að
hugmyndin verði að árvissum við-
burði.
Andri segist hafa lagt inn form-
lega tillögu um ljósagjörninginn í
fyrra og hugmyndinni hafi verið vel
tekið. Hann útfærði hugmyndina
fyrir um tveimur árum og var hún
samþykkt af Reykjavíkurborg. Að
sögn Andra hefur mikill tími farið í
undirbúningsvinnu t.a.m. með lög-
reglu, almannavörnum og öðrum
sem koma að öryggisþáttum.
Andri og Svanhildur kannast ekki
við hugmynd Vignis Jóhannssonar
myndlistamanns þar sem hann hefur
hugsað sér að slökkva öll ljós frá
Reykjanesi upp á Skaga um áramót-
in. Svanhildur segir hugmynd Vignis
í það minnsta ekki hafa verið rædda
með formlegum hætti innan borg-
arinnar þegar hún spurðist fyrir um
hana þar. Hugmyndin sé þó ágæt.
Stjörnubjört Vetrarhátíð
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Stjórnarkjör
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að
kjör stjórnar og trúnaðarráðs fyrir næstu tvö starfsár
fari fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í
samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ.
Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins,
Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00
föstudaginn 3. desember 2004.
Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 48 fullgildra
félagsmanna.
Akureyri, 24. nóvember 2004 .
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.
STÓRSÖNGVARINN Kristján Jó-
hannsson kom í heimsókn til Akur-
eyrar í vikunni. Notaði hann tæki-
færið og heimsótti heimilisfólk á
Dvalarheimilinu Hlíð og tók lagið
ásamt bróður sínum Jóhanni Má og
frænda sínum Erni Viðari Birgis-
syni, við píanóundirleik Arnórs Vil-
bergssonar. Þeir frændur sungu
hver í sínu lagi og einnig saman og
var góður rómur gerður að flutn-
ingi þeirra. Hér heilsar Kristján
upp á Sigríði Schiöth organista,
sem var mætt á fremsta bekk. Sig-
ríði á vinstri hönd má einnig sjá
Fanneyju Oddgeirsdóttur, móður
Kristjáns.
Morgunblaðið/Kristján
Fagnaðar-
fundir í Hlíð
FORYSTUMENN I-listans, Samein-
ingar í Dalvíkurbyggð, hafa lýst yfir
undrun sinni vegna vinnubragða
Framsóknarflokksins og viðræðuslita
vegna myndunar nýs meirihluta í
bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. Þetta
kemur fram í athugasemd sem Óskar
Gunnarsson hjá I-listanum hefur sent
frá sér. Um liðna helgi slitnaði upp úr
meirihutasamstarfi Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks vegna mismun-
andi afstöðu í skólamálum, þ.e. hvort
flytja eigi starfsemi Húsabakkaskóla
í Dalvíkurskóla á næsta skólaári. Í
kjölfarið ræddu fulltrúar Sameining-
ar og Framsóknarflokks saman um
myndun nýs meirihluta, en Samein-
ing gerði m.a. þær kröfur að Svan-
fríður Jónasdóttir, fyrrverandi al-
þingismaður, yrði bæjarstjóri í stað
Valdimars Bragasonar, Framsóknar-
flokki. Framsóknarmenn hittust á
þriðjudagskvöld, en kröfur Samein-
ingar þóttu ekki aðgengilegar og til
þess fallnar að auka útgjöld bæjar-
sjóðs. Í athugasemd Sameiningar
kemur fram að viðræður hafi hafist á
mánudag, en Framsókn sé ekki að
hafna viðræðum heldur slíta þeim.
Einnig er bent á að I-listi hafi lagt
fram vinnuskjal til að afmarka um-
ræðuna. „Engar nýjar útgjaldahug-
myndir koma þar fram en mikil
áhersla á að treysta fjárhagsstöðu
sveitarfélagsins,“ segir í athugasemd-
inni. „I-listinn hlýtur því að álykta að
eitthvað annað búi að baki skyndileg-
um viðræðuslitum en það sem fram
kemur í bréfi Framsóknarflokksins
og telur að flokkurinn skuldi íbúum
sveitarfélagsins skýringu á þessari
óábyrgu framkomu.“
Undrandi
á vinnu-
brögðum
B-listans
Þýskar barnabækur | Sýning á
þýskum barnabókum verður opnuð
á Amtsbókasafninu á Akureyri í dag,
fimmtudag kl. 17. Peter Weiss for-
stöðumaður Goethe Institut í
Reykjavík kemur til Akureyrar af
því tilefni.
Á Akureyri og nágrenni búa fjöl-
margir sem hafa tengsl við Þýska-
land og þýskumælandi lönd vegna
uppruna, náms eða búsetu í þessum
löndum. Að undanförnu hefur verið
rætt um að vekja til lífsins félag
þeirra sem áhuga hafa á að rækta
þessi tengsl, stuðla að samskiptum
við og auka áhuga á málefnum og
menningu þessara landa. Slíkt félag
var starfandi á Akureyri um ára-
tugaskeið en starfsemin hefur legið
niðri um nokkurt skeið.
Menningartorg | UNIFEM á Ís-
landi stendur fyrir hádegisfundi í
Háskólanum á Akureyri í dag,
fimmtudaginn 25. nóvember á al-
þjóðlegum baráttudegi gegn kyn-
bundnu ofbeldi. Hann hefst kl. 12 í
stofu L103 á Sólborg. Birna Þór-
arinsdóttir, framkvæmdastýra UNI-
FEM á Íslandi, mun kynna starf-
semi þróunarsjóðsins og fjalla um
átak gegn kynbundnu ofbeldi. Lilja
Hjartardóttir, varaformaður UNI-
FEM á Íslandi, flytur erindi þar sem
hún reifar helstu baráttumál kvenna
á alþjóðavettvangi.