Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 25

Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 25 NEYTENDUR Suðurlandsbraut 32 Sími 577 5775 Fundur eða veisla framundan? útbúum girnilega brauðbakka fyrir stórar veislur sem smáar LANDSSAMBAND bakarameist- ara, Labak, efnir til átaks á að- ventunni undir kjörorðinu „Velj- um íslenskt í bakaríum um jólin“. Átakið, sem er liður í landsátakinu „Veljum íslenskt og allir vinna“, hefst laugardaginn 27. nóvember og stendur til mánudagsins 20. desember. Á þessu tímabili verður jólabragur í bakaríum um allt land. Bakaríin verða skreytt á samræmdan hátt og á boðstólum verða Fullveldiskaka og úrval jólavara. Auk þess eiga við- skiptavinir kost á að taka þátt í landsleik átaksins þar sem fjöldi vinninga er í boði. Í tilefni af fullveldisdegi Íslend- inga, miðvikudaginn 1. desember, kynnir landslið færustu bakara Fullveldisköku í bakaríum. Upp- skriftin hefur þegar verið send öll- um bakaríum innan vébanda La- bak. Bakarar hvetja landsmenn til að draga íslenska fánann að húni á fullveldisdaginn, gæða sér á full- veldisköku og minnast þannig hinna merku tímamóta í sögu þjóðarinnar. Auk Fullveldiskökunnar bjóða bakaríin nýbökuð brauð, laufa- brauð og annað jólalegt góðmeti undir kjörorðunum „Brjótum brauð um jólin“.  BAKARÍ | Íslenskt átak á aðventu Fullveldiskaka TÆKNI í símamálum er í sífelldri þróun. Ekki mun vera langt að bíða þess að ADSL-símar komi á mark- að. Ólafur Ragnarsson hjá iPnet segir að það næsta sem fyrirtækið muni bjóða upp á sé ADSL-sími. Þá er borguð viss upphæð á mánuði fyrir vissa þjónustu og getur til dæmis falist í henni ókeypis innan- bæjarsímtöl svo dæmi sé tekið. Hann segir stóru farsímaframleið- endurna nú vera að þróa síma sem sé bæði GSM- og IP-sími sem hægt er að nota sem þráðlausan síma heima jafnt sem venjulegan GSM- síma, en slíkir símar nefnast Gsm/ Wifi. „Við erum í rauninni tilbúnir með þessa þjónustu, segir hann.“ Þróun- in er svo hröð og það er nauðsynlegt fyrir okkur að fylgjast með ef við ætlum að vera fyrst til að bjóða upp á nýja þjónustu. Fyrirtækið iPnet ehf. var stofnað árið 2000 en þróun og uppbygging hafði staðið frá 1997. Fyrirtækið vinnur að svokölluðum IP-lausnum fyrir fyrirtæki og heimili hér og landi og erlendis en var auk þess frumkvöðull í að koma á markað fyrirframgreiddum símakortum fyrir símtöl til útlanda er Heims- frelsi kom á markað. Ólafur Ragnarsson hjá iPnet ehf. segir að verð á Heimsfrelsisþjón- ustunni sé í stöðugri endurskoðun og varla taki því að setja það inn í bæklinga. Því sé best að skoða verð- ið á Netinu til að fá nýjustu upplýs- ingar, www.heimsfrelsi.is. En fyrirtækið býður upp á ýmis- legt fleira. Þar á meðal þjónustu til nokkurra stórra fyrirtækja sem hafa mikil samskipti við útlönd. Með því að nýta Netið fyrir símatæknina sé hægt að ná kostnaði við símtöl til útlanda niður svo um munar. „Með- al þeirra sem iPnet þjónusta er varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og vorum við fyrsta fyrirtækið í heim- inum til að fá að setja upp slíkan fjarskiptabúnað upp á herstöð,“ segir Ólafur. „Við settum upp sér- stakt símakerfi fyrir stöðina en þjónustum einnig Navy Exchange- verslunina hjá varnarliðinu með út- gáfu heimsfrelsiskorta undir heitinu „NEX International Calling Card“. Þessu hefur verið vel tekið og fara nú um 80– 90% símtala í gegnum kortin.“ Heimsfrelsiskortin með til Bandaríkjanna Ólafur segir að Pólverjar sem bú- settir eru hér á landi hafi tekið Heimsfrelsinu fagnandi og eru nú orðnir einir af stærstu viðskipta- vinum þeirra ásamt þeim stóra hópi fólks sem hringir til Bandaríkjanna, Bretlands og Dan- merkur. „Heims- frelsið er notað í síauknum mæli og nú fer um þriðj- ungur af símtölum til útlanda í gegn- um það. En við bjóðum einnig upp á þessa þjónustu í Danmörku og nota íslenskir námsmenn kortið mikið. Nú stendur til að setja upp slíka þjónustu einnig í Banda- ríkjunum og Bret- landi og mun þá fólk geta tekið Heimsfrelsis- kortin með sér til þessara landa og notað þau þar. Einnig höfum við áhuga á að sækja um á Spáni og í Færeyjum. Þangað til ráðleggjum við fólki að kaupa sambærileg kort í útlöndum og nota þau þegar hringt er heim eða til annarra landa úr heimasímum eða hótelsímum. “  TÆKNI | Símtöl til útlanda hafa lækkað í verði undanfarin ár Munu bjóða upp á ADSL- síma innan skamms Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ólafur Ragnarsson hjá iPnet segir að ekki sé langt að bíða þess að fólk geti notað Heimsfrelsiskortin sín frá bæði Bandaríkjunum og Bretlandi. BLÓMAVAL býður uppá ljósa- kvöld í annað sinn í kvöld frá klukkan 21-23. Hefðbundin verslunarlýsing verður dempuð og jólaljós og kerti lýsa upp verslunina. Boðið verður uppá heitt súkkulaði og piparkökur í bland við jólatónlist. Allir verða leystir út með gjöf frá Blómavali og síðast en ekki síst verður boðið uppá 20% afslátt af öllum vörum milli kl. 21.30 og 23. Ljósakvöld í Blómavali

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.