Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 32

Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN F orfeður okkar og mæður voru yfirleitt sátt ef þau höfðu húsaskjól og mat en þessum grundvall- arþörfum geta nú langflestir full- nægt þótt gæðin séu auðvitað misjöfn. En nú er svo komið að vandinn er fremur að velja á milli aragrúa tilboða. Stundum verð- um við svo þreytt á allri þessari áreitni að við flýjum út í náttúr- una til að þurfa ekki að horfa á auglýsingaskilti. En svona þorir maður varla að tala; einhver gæti skilið þetta svo að best væri að láta blessað ríkið um að velja allt fyrir okkur. Þá yrðu sömu vör- urnar í öllum verslunum, ein teg- und af gallabuxum til í landinu – og vafalaust afspyrnu lé- leg. Íslendingar sem komnir eru á miðjan aldur þekkja vel tíma þegar enginn þjáðist af kvölinni sem fylgir því að þurfa að velja á milli margra tegunda. Mjólkin fékkst bara í Mjólk- ursamsölunni, hægt var að kaupa fjórar gerðir af brauði, bara fjór- ar. Á veturna gengu allir í græn- um Álafoss-úlpum og voru gjarn- an í þjóðlegri lopapeysu innanundir, fótabúnaðurinn var annaðhvort gúmmístígvél eða tékkneskar bomsur. Við seldum Tékkum og Rússum síld en keyptum af þeim marga, ryðgaða bíla. Helsti kosturinn við þetta fyr- irkomulag var að menn höfðu mikinn tíma til að sinna öðrum verkefnum en að fara í búðir til að skoða. Það var ekkert að skoða. Þetta er liðin tíð og fáir sakna hennar en þótt við séum komin vel á veg með að losa okkur við forsjárhyggjuna er daglega lífið ekki laust við allan sálarháska. Svo miklum árangri hefur mark- aðsskipulagið náð að upp er kom- in staða sem á sér engin fordæmi í sögunni; ofgnótt. Nú eru menn farnir að velta því fyrir sér hvort óþrjótandi val- kostir neytandans séu farnir að snúast upp í andhverfu sína, farn- ir að valda sálarangist. Er samt ekki augljóst að ef okkur finnst betra að geta valið á milli nokkurra gerða af sams kon- ar neysluvöru hljóti hamingjan að aukast í takt við enn fjölbreyttara framboð, já óendanlegan fjöl- breytileika? Við fyrstu sýn finnst manni það liggja í augum uppi. Þeir sem vilja bara venjulegt kaffi geta sleppt því að panta latte eða capuccino og allir una glaðir við sitt. Ofstýringarsinn- arnir vilja ráðskast með okkur en við getum alveg valið og hafnað sjálf, segjum við, full af sjálfs- öryggi. Kannski er það út í hött að hægt sé að mæla hamingju, hvað þá að hægt sé að greina vandlega hvað valdi henni og hvað ýti undir óhamingju. Þetta hlýtur alltaf að vera samspil margra þátta og svo einstaklingsbundið að varla er hægt að alhæfa. En David G. Myers, fræðimaður við Hope- háskóla og Robert E. Lane hjá Yale í Bandaríkjunum hafa samt sem áður reynt að komast að nið- urstöðu um það hvaða áhrif allir þessir valkostir hafi á okkur. Skýrt var frá rannsóknum þeirra í ritinu Scientific American í sumar. Þeir segja fullum fetum að ofgnóttin vestanhafs sé farin að draga úr ánægju með lífið. Þótt þjóðarframleiðslan hafi tvö- faldast síðustu 30 árin sýni kann- anir að talsvert færra fólk segist nú vera „mjög sátt“ við lífið en reyndin var fyrir nokkrum ára- tugum. Einnig hafi hlutfall þeirra sem greinist með þunglyndi hækkað. Fræðimennirnir tveir segja að þótt fjölmargt geti valdið verri líðan hafi óþægindin af því að þurfa endalaust að gera upp hug sinn til mismunandi vöruteg- unda og þjónustu verið vanmetin. Það er vandlifað í þessum heimi, við erum óánægð ef okkur skortir eitthvað en líka ef ósk- irnar eru uppfylltar. Freistandi er að afgreiða svona rannsóknir sem hvert annað dútl í auðugu samfélagi þar sem hæfileikinn til að kvarta út af öllu er metinn meira en allt annað. Við viljum helst trúa því að við séum nógu klár til að geta lagað okkur að breyttum tímum og þurfum ekki einhverja barnapíu til að segja okkur hvað við viljum. En þeir sem éta yfir sig geta þjáðst mikið af magapínu og kannski eigum við einhverja sam- úð skilið. Getur verið að ein af or- sökum vaxandi taugaveiklunar og þunglyndis sé áreitið sem við verðum að kljást við sem neyt- endur? Þeir sem fara í stórmark- aðina fyrir jólin vita að stundum er neyslusælan slíkt álag að geð- heilsan er í hættu. Vel getur verið að það sé mannþröngin og hávað- inn sem eigi mesta sök á því en ef eitthvað er hæft í rannsóknum þeirra félaga getur taumlaust framboð á vörumerkjum verið hluti af skýringunni Hér skal varpað fram hug- mynd sem frumkvöðlar ættu að gera að sinni og gæti heillað þá mörgu sem finnst ekkert gaman að búðarápi. Nýtt fyrirtæki gæti tekið að sér að velja fyrir okkur. Hægt er að búa til svolítinn gagnabanka þar sem umræddur viðskiptavinur lýsir sjálfum sér, segir frá smekk sínum og áhuga- málum. Með aðstoð bankans er síðan hægt að segja honum hvaða tegund af tannkremi hann eigi að kaupa, hvar hann eigi að kaupa sér föt og svo frv. Og veitt yrði aðstoð við jólagjafakaup þegar viðskiptavinurinn væri búinn að lýsa þörfum ástvina sinna. Einhverjir myndu segja að þarna væri verið að kaupa sér forsjá og það er hárrétt. En kaupin væru gerð af fúsum og frjálsum vilja, engin ríkisstofnun eða velmeinandi ofstýringarfauti skipar okkur að kaupa þjón- ustuna. Forsjáin væri klæð- skerasaumuð handa ein- staklingnum, hann myndi greiða nokkra fjárhæð fyrir að losna undan oki hins eilífa vals, kvöl magapínunnar sem fylgir því að allt of margt er til. Við verðum frjáls og getum farið að sinna ein- hverju sem okkur finnst skemmtilegra en að kaupa, kaupa, kaupa… Eilíft val er óhollt Nú eru menn farnir að velta því fyrir sér hvort óþrjótandi valkostir neytandans séu farnir að snúast upp í andhverfu sína, farnir að valda sálarangist. VIÐHORF eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÍSLENSKI þjóðsöngurinn hefur verið óvenjulega mikið milli tann- anna á landsmönnum undanfarna daga. Ástæða þess eru hugmyndir sem enn og aftur hafa skotið upp kollinum um að söngurinn sé þunglamalegur og erfiður í flutningi og það beri að taka upp annan söng á hátíð- arstundum, léttari og einfaldari. Fyrir tæpum tíu árum varð ég þess heiðurs aðnjótandi að kynnast enskum heið- ursmanni sem vissi sitthvað um þjóð- söngva veraldarinnar og reyndar tónlist al- mennt. Þá sótti ég fyrirlestur um enska tónlistarsögu í London hjá manni að nafni William Reed. Reed, sem lést fyrir tveimur ár- um, var tónskáld og tónlistarfræð- ingur, víðsigldur maður og lífs- reyndur. Okkur varð vel til vina þrátt fyrir mikinn aldursmun (Reed fæddur 1910 en undirrit- aður 1976). Þar kom til sameig- inlegur áhugi á tónlist sem við ræddum m.a. í bréfum um nokk- urt skeið. Eins og enskra heldri manna er siður bauð Reed mér til tedrykkju einn eftirmiðdaginn í íbúð sinni í einu af hverfunum í suðurhluta London, eftir að við tókum spjall saman. Þar sátum við innan um stafla af hljómplötum og nótna- heftum og á plötuspilara snerust merkar upptökur af klassískum tónverkum. Meðal alls þess merki- lega varðandi lífshlaup Williams Reeds sem kom upp í samtali okk- ar þann daginn var að hann hafði til margra ára staðið í að ritstýra bók, við annan mann, um þjóð- söngva veraldarinnar. Bókin, sem heitir National Anthems of the World, kom út í tíu útgáfum á ára- bilinu 1960 til 1997. Að síðustu hafði hún að geyma útgáfur af hátt í 200 þjóð- söngvum fyrir söng- rödd og með píanó- undirleik. William Reed var gríðarlega vinamarg- ur og lagði sig eftir því að kynnast fólki víða að úr veröldinni, einkum ungu fólki. Þar sem ég var fyrsti Íslendingurinn sem Reed kynntist á lífs- leiðinni var hann gríð- arlega áhugasamur þegar hann bað mig að lesa upp ljóð Matthíasar Jochumssonar, Ó Guð vors lands, og bað hann mig að lesa hægt og vanda til fram- burðar. Einnig bað hann mig að syngja fyrir sig sönginn og það gerði ég, þó að e.t.v. hafi það verið af veikum mætti. Þá, rétt eins og oftar, léku háu nóturnar söng- manninn grátt. Þegar ég ræddi við Reed um sí- gildar hugmyndir sumra landa minna um að þjóðsöngurinn væri of erfiður í flutningi og um hann bæri að skipta, brá þessum enska þjóðsöngvasérfræðingi nokkuð í brún. Reed tjáði mér að lengi hefði hann verið þeirrar skoðunar að þarna væri á ferðinni einn allra fallegasti og hátíðlegasti þjóð- söngur sem hann hefði heyrt. Eitt er víst að vinur minn William Reed hafði samanburðinn til að mynda sér þá skoðun og ekki var íslensk þjóðernisglýja að sljóvga dómgreind hans. Tveir varaþingmenn á Alþingi við Austurvöll, Sigríður Ingvars- dóttir og Hilmar Gunnlaugsson, hafa nýlega lagt fram þingsálykt- unartillögu um nýjan þjóðsöng sem „hentaði betur til almennrar notkunar, svo sem í skólum, á íþróttakappleikjum og við önnur svipuð tækifæri.“ Í tillögunni er tekið fram að almenningur hafi gripið til annarra ættjarðarsöngva til að minnast lands síns vegna þess hve þjóðsöngurinn er erfiður í flutningi. Sá sem þetta ritar sér ekki betur en að þetta sé hið besta mál. Þjóðsöngurinn sjálfur er hins vegar langt frá því að vera létt og hressilegt dægurlag. Þetta viðurkenna allir, en hann er hátíð- legur og virðulegur. Íslendingar eru oft sagðir miklir söngmenn. Hér er annar hver kjaftur í kór eða í söngtímum og er það vel. Á mannamótum þykir ekkert sjálfsagðara en að standa fyrir öflugum fjöldasöng sem oft getur verið skemmtilegur. Per- sónulega er ég þó feginn því að þjóðsöngurinn okkar er svo strembinn að okkur reynist það ekki auðvelt verk að útvatna hann með síendurteknu gauli. Það er þá betra að við reynum bara að taka hraustlega undir sönginn þegar þjóðsöngurinn er sunginn við há- tíðleg tækifæri og vonandi alls ekki of oft. Teboð til varnar þjóðsöngnum Guðni Tómasson fjallar um íslenska þjóðsönginn ’Reed tjáði mér að lengihefði hann verið þeirrar skoðunar að þarna væri á ferðinni einn allra fal- legasti og hátíðlegasti þjóðsöngur sem hann hefði heyrt. ‘ Guðni Tómasson Höfundur er listsagnfræðingur. Í UMRÆÐU um skattalækkanir hefur komið berlega í ljós að á Al- þingi er bullandi þverpólitískur meirihluti fyrir því að lækka mat- arskattinn um helm- ing eins og Samfylk- ingin hefur lagt til. Ef Alþingi bæri gæfu til að samþykkja tillög- una myndi mat- arreikningur íslenskra heimila lækka um 5 milljarða á ári. Þver- girðingsháttur eins flokks, Framsókn- arflokksins, kemur þó í veg fyrir að meiri- hlutavilji Alþingis nái að koma fram í þessu mikilvæga máli. Allir aðrir flokkar styðja málið. Andstaða Framsóknar kemur því í veg fyrir að hægt sé að lækka verð á brýnustu nauð- þurftum landsmanna með því að lækka matarskattinn um samtals fimm millj- arða. Besta skattalækkunin Allir þurfa að verja hluta af ráð- stöfunartekjum sínum til að kaupa sér það sem skilgreina má sem brýnar nauðþurftir. Allir, jafnt bankastjórinn sem láglaunakonan, þurfa að kaupa sér kjöt, mjólk, grænmeti, fisk, brauð og mjölvöru til að draga fram lífið. Eftir því sem menn hafa minni ráðstöf- unartekjur og fleiri munna að metta hækkar það hlutfall af ráð- stöfunartekjum fjölskyldnanna sem þarf að verja í lífsnauðsyn- legan varning af þessu tagi. Lækk- un matarskattsins myndi því koma öllum til góða, ekki síst barnafjöl- skyldunum. Hún gagnast þeim hlutfallslega mest sem hafa úr minnstu að spila. Lækkun matarskatts- ins hefur það framyfir flestar aðrar skatt- breytingar sem nú eru í umræðunni að hún kemur þeim ákaf- lega vel sem eru svo tekju- og eignalitlir að þeir greiða lítinn sem engan tekju- og eignaskatt. Það er það besta við þessa áhrifaríku skatta- lækkun. Neysluvísitalan og skuldirnar lækka Það er fleira sem mælir eindregið með lækkun matarskatts umfram aðrar skatta- lækkanir.Verðbólga er um þessar mundir komin á skrið um- fram það sem hollt er þjóðarbúinu. Hlut- lausir sérfræðingar hafa bent á að nái menn ekki tökum á henni sé líklegt að verðbólgan fari á næsta ári fram úr forsendum kjarasamninga. Verkalýðshreyf- ingin kunni þá að íhuga að segja þeim upp eins og rætt var í tengslum við ársfund ASÍ. Lækkun matarskattsins dregur úr líkum á þessu. Ástæðan er sú, að lækkun matarskattsins úr 14% í 7% mun lækka neysluvísitöluna um allt að 0,8% skv. upplýsingum sem Rannveig Guðmundsdóttir al- þingismaður, fékk frá Hagstofu Ís- lands í tengslum við þingmál um orsakir hás matarverðs á Íslandi. Um leið lækkar skuldabyrði lands- manna. Þessar upplýsingar voru af hálfu Samfylkingarinnar lagðar fram á Alþingi og ekki vefengdar. Bullandi meirihluti á þingi, en… Í síðustu kosningabaráttu voru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylk- ingin sammála um að það bæri að lækka matarskattinn um helming, eða úr 14% í 7%. Samfylkingin hefur af þeim rökum sem ég hef hér rakið lagt mesta áherslu á þá skattaaðgerð. Það verður ekki annað ráðið af málflutningi þing- manna Sjálfstæðisflokksins á Al- þingi í vetur en flokkurinn telji enn að lækkun matarskattsins sé mikilvæg og brýn aðgerð. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einmitt bent á að lækkun matarskattsins sé þjóðþrifaaðgerð í núverandi ástandi, því hún dragi úr verð- bólgu og treysti forsendur kjara- samninga. Forystumenn úr bæði Frjálslynda flokknum og Vinstri hreyfingunni – grænu framboði hafa lýst fylgi við málið á Alþingi. Þrátt fyrir bullandi meirihluta er það Framsóknarflokkurinn sem af óskiljanlegum ástæðum kemur í veg fyrir að svigrúmið sem nú er til skattalækkana sé nýtt til að lækka matarskattinn. Þjóðin getur því þakkað Framsókn að hún þarf að greiða samtals um fimm millj- örðum meira fyrir matinn á næsta ári en ef meirihluti þingmanna fengi að ráða. Framsókn stendur gegn lækkun matarskatts Össur Skarphéðinsson fjallar um skattamál ’Samfylkinginhefur af þeim rökum sem ég hef hér rakið lagt mesta áherslu á þá skattaaðgerð.‘ Össur Skarphéðinsson Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.