Morgunblaðið - 25.11.2004, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Efasemdir um vin læðast að þér. Eitt-
hvað sem hann lætur út úr sér vekur
með þér grunsemdir um það hvað vaki
fyrir honum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á
neinu bera út á við. Einhver gæti tekið
upp á því að notfæra sér það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt ekki gott með að einbeita þér að
flóknum verkefnum í dag, hugurinn fer
út og suður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er ekki rétti dagurinn til þess að
ganga frá skuldum eða peningamálum,
því hætta er á ringulreið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Annað fólk hefur mikil áhrif á þig í dag,
sem getur bæði verið gott og slæmt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þó að þig langi til þess að halda þig til
hlés verður þú líklega að axla þína
ábyrgð í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ekki lána eitthvað sem þér er kært í
dag, það gæti auðveldlega orðið fyrir
hnjaski.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tilfinningasemi gerir vart við sig í dag
og annað fólk á gott með að hafa áhrif á
þig. Ef einhverjum líður illa er allt eins
líklegt að þú finnir til samúðar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú dregst varla úr sporunum um þessar
mundir, reyndu að taka þér pásu og end-
urnæra þig. Varastu nagandi sam-
viskubit í kjölfarið, það er ekki víst að þú
komist yfir allt sem þú ætlar þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú lítur mjög upp til einhvers í dag, en
spurningin er sú hvort það sé að ástæðu-
lausu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hafðu gætur á eigum þínum, ef eitthvað
týnist er allt eins víst að þú þurfir að
eyða óratíma í að leita. Þú ert eitthvað
annars hugar núna og upptekinn af for-
tíðinni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Farðu varlega, það er ekki ólíklegt að þú
missir þráðinn í því sem þú ert að gera.
Þú ert eitthvað viðutan og gleyminn
núna, fiskur, og hætta á að þú munir
ekki hvar þú setur hlutina.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Viðhorf þitt til lífsins og sjónarhorn er
óvenjuvítt og stundum gerir rútína hvers-
dagsins bogmanninn brjálaðan. Þá fær
hann útrás í því að ferðast, láta sig
dreyma, ímynda sér og velta vöngum um
heimspeki.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 flækingar, 8
flaska, 9 les, 10 drepsótt,
11 bik, 13 peningar, 15
sokkurinn, 18 varpa hlut-
kesti, 21 fæða, 22 smjað-
urs, 23 slæmt hey, 24 ligg-
ur í makindum.
Lóðrétt | 2 hamingja, 3
heimting, 4 hindra, 5 ann-
ríki, 6 viðbót, 7 skjótur, 12
sefa, 14 reyfi, 15 bryggju-
svæði, 16 ís, 17 bátaskýli,
18 harðneskja, 19 furða,
20 fædd.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 skafl, 4 Hekla, 7 kollu, 8 álman, 9 Týr, 11 rann,
13 hríð, 14 Iðunn, 15 fátt, 17 étur, 20 gat, 22 rifna, 23 rúð-
an, 24 afræð, 25 rímur.
Lóðrétt | 1 sekur, 2 allan, 3 laut, 4 hrár, 5 kamar, 6 annað,
10 ýsuna, 12 nit, 13 hné, 15 farga, 16 tófur, 18 tíðum, 19
Ránar, 20 garð, 21 trúr.
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. g3 b6 4. Bg2 Bb7 5.
O-O c5 6. Rc3 d6 7. He1 Be7 8. e4 a6 9.
d4 cxd4 10. Rxd4 Dc7 11. Be3 Rbd7 12.
Hc1 Hc8 13. f4 Db8 14. Rd5 exd5 15.
exd5 Kf8 16. Rc6 Bxc6 17. dxc6 Rc5 18.
b4 Re6 19. f5 Rc7 20. Bf4 Hd8 21. Hc3
d5
Staðan kom upp í flokki drengja 18
ára og yngri á heimsmeistaramóti barna
– og ungmenna sem lauk fyrir nokkru á
Krít. Rússinn Evgeny Tomashevsky
(2523) hafði hvítt gegn Georg Meier
(2354). 22. Hxe7! Kxe7 23. cxd5 Kf8 24.
d6 Dc8 25. d7! Rxd7 26. Dd6+ Kg8 27.
cxd7 Dxd7 28. Dxd7 Hxd7 29. Hxc7 eft-
ir mikið vopnaskak stendur hvítur með
pálmann í höndunum enda hefur hann
biskupapar gegn hróki svarts. Hann
lýkur skákinni með fallegri fléttu.
29...Hd1+ 30. Kf2 h5 31. Be4 Hd4 32.
Kf3 Hxb4 33. Hc8+ Kh7 34. f6+ g6 35.
Bxg6+! og svartur gafst upp enda fokið
í flest skjól eftir 35... fxg6 36. Hc7+ Kg8
37. Hg7+ Kf8 38. Bd6+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Tónlist
Austurbær | Útgáfutónleikar Í svörtum
fötum. Hefjast kl. 20. Miðaverð 1200 kr.
Forsala í Austurbæ og á midi.is.
Bíóhöllin | Akranesi. Tónleikar með hljóm-
sveitinni Warm is Green. Þórhallur í Thule
og JónFri koma einnig fram.
Café Rosenberg | Ruth Reginalds, Rósa
Guðmundsdóttir og Seth Sharp. Hefst kl.
20.
Gaukur á Stöng | Fræbbblarnir, Brúð-
arbandið og Dilemma klukkan 22:00, að-
gangur aðeins litlar 500 krónur.
GlæpadjassÍslenskir glæpasöguhöfundar
lesa við undirleik djasshljómsveitar á
Grand Rokk. Hefst kl. 21.
Hallgrímskirkja | Jólatónleikar til styrktar
krabbameinssjúkum börnum verða í Hall-
grímskirkju kl. 20. Fram koma: Kristján Jó-
hannsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Birgitta
Haukdal, Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Karlakórinn Fóstbræður og Karlakór Kjal-
nesinga o.fl.
Fíladelfía | Forsala aðgöngumiða á jóla-
tónleika Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
hefst í dag kl. 10, á skrifstofu Hvítasunnu-
kirkjunnar Fíladelfíu, Hátúni 2. Tónleikarnir
eru haldnir til styrktar þeim sem minna
mega sín, dagana 7. og 8. des. Á tónleik-
unum koma m.a. fram: Gospelkór Fíladelf-
íu, Sigrún Hjálmtýsd., Egill Ólafsson o.fl.
Hitt húsið | Fimmtudagsforleikur kl. 20–
22.30. Fram koma Mammút, Benny Creps-
os Gang, Future Future og Isidor. Frítt inn
og 16 ára aldurstakmark.
Hótel Borg | Kontrabassaleikarinn Tómas
R.Einarsson leikur ásamt félögum sínum í
tilefni af útgáfu fyrstu íslensku djass-
biblíunnar, nýrrar nótnabókar með lögum
Tómasar.
Hveragerðiskirkja | Jón Ólafsson tónlist-
armaður flytur eigin lög. Trúbadorinn Helgi
Valur Ásgeirsson hitar upp.
Kaffitár | Guðrún Gunnarsdóttir og Valgeir
Skagfjörð flytja lög af nýútkominni plötu
Guðrúnar, auk Ellyjarlaga í kaffihúsi Kaffi-
társ í Njarðvík.
Salurinn | Vinir Indlands halda styrkt-
artónleika kl. 20 í Salnum. Á dagskrá er
söngur og hljóðfærasláttur og sögur frá
Indlandi í máli og myndum. M.a. koma
fram: Arnar Jónsson, Eivör Pálsdóttir, Elín
Ósk Óskarsdóttir, Snorri Wium, Óperukór-
inn og Tríó Reykjavíkur.
Ýmir | Samkór Reykjavíkur heldur jóla-
tónleika í Ými sunnudaginn 28. nóvember
kl. 16. Stjórnandi kórsins er John Gear.
Miðaverð er 1.200 kr.
Þjóðleikhúskjallarinn | Útgáfutónleikar
með Hæstu hendinni.
Myndlist
Gallerí 101 | Daníel Magnússon myndlist-
armaður – Matprjónagerð lýðveldisins
kynnir: Innihald heimilisins.
Gallerí Dvergur | Anke Sievers – Songs of
St. Anthony and Other Nice Tries.
Gallerí Fold | Guðrún Indriðadóttir, Ingunn
Erna Stefánsdóttir og Áslaug Höskulds-
dóttir – „Þrjár af okkur“. M.J. Levy Dick-
inson – Vatnslitaverk.
Gallerí i8 | Kristján Guðmundsson sýnir
„Arkitektúr“.
Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteins-
son – Ókyrrar kyrralífsmyndir.
Gallerí Tukt | 9 listamenn sýna. Hópurinn
og sýningin ber heitið Illgresi.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir –
„Efnið og andinn“.
Hafnarborg | Sýning á ljósmyndum Jónu
Þorvaldsdóttur og Izabelu Jaroszewska.
Nánari upplýsingar á heimasíðum lista-
mannanna: www.jaroszewska.eaf.com.pl
og www.jonathor.is.
Hafnarborg | Sýning á verkum Boyle-
fjölskyldunnar frá Skotlandi.
Hrafnista, Hafnarfirði | Sólveig Eggerz
Pétursdóttir sýnir í Menningarsalnum.
Hrafnista, Reykjavík | Listakonurnar Guð-
leif Árnadóttir, Guðrún Elíasdóttir, Guðrún
Karítas Sölvadóttir, Jóna Stefánsdóttir,
Kristjana S. Leifsdóttir, Sólveig Sæmunds-
dóttir sýna á fjórðu hæð Hrafnistu.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir sýnir ol-
íumálverk – „Leikur að steinum“.
Listasafn ASÍ | Erling Þ.V. Klingenberg og
David Diviney – „Ertu að horfa á mig / Are
you looking at me“. Sara Björnsdóttir – Ég
elska tilfinningarnar þínar.
Gerðarsafn | Listasafn Kópavogs. Þrjár
sýningar: Ný íslensk gullsmíði í Austursal,
Salóme eftir Richard Strauss í Vestursal
og úrval verka úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur á neðri hæð safnsins.
Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán
listamanna og -kvenna.
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir „Inni í
kuðungi, einn díll“. Björk Guðnadóttir „Ei-
lífðin er líklega núna“.
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir sýnir
–Kæti–.
Bækur
Lindasafn | Bubbi Morthens les úr bók
sinni Djúpríkið á Lindasafni í Kópavogi kl.
17. Djúpríkið er saga af ævintýrum, bar-
áttuþreki og samstöðu, ótta og kátínu. Allir
velkomnir.
Súfistinn | Höfundar Eddu útgáfu lesa úr
nýjum bókum á Súfistanum kl. 20. Þor-
steinn Guðmundsson les úr Fífli dagsins,
Birna Anna Björnsdóttir úr Klisjukenndum,
Haukur Ingvarsson úr Niðurfalli, Inga Dóra
Björnsdóttir úr Ólöfu eskimóa og Kristín
Steinsdóttir úr Sólin sest að morgni.
Þjóðmenningarhúsið | Skáldin fimm, nú-
verandi eða fyrrverandi skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsi; Jóhann Hjálmarsson,
Matthías Johannessen, Vilborg Dagbjarts-
dóttir, Þórarinn Eldjárn og Sjón lesa úr nýj-
um verkum í veitingastofunni kl. 12–13.
Söfn
Kringlan | Sýning á vegum Borg-
arskjalasafns Reykjavíkur á 2. hæð Kringl-
unnar þar sem sýnd eru skjöl tengd jóla-
haldi landsmanna og sérstaklega fjallað
um jólin 1974, m.a. sýnd jólakort frá ýms-
um tímum. Einnig fjallað um hvað var að
gerast í Reykjavík árið 1974.
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og
héraðsskjalasöfn um land allt hafa samein-
ast um vefinn www.skjaladagur.is þar sem
er að finna fróðleik og sýningu um árið
1974 í skjölum.
Þjóðskjalasafn Íslands | Þjóðskjalasafn Ís-
lands er með sýningu um „Árið 1974 í
skjölum“ í lestrarsal safnsins á Laugavegi
162. Sýnd eru skjöl sem tengjast þjóðhátíð-
inni 1974, skjalagjöf Norðmanna og opnun
hringvegarins.
Skemmtanir
Gaukur á Stöng | Fræbbblarnir, Dáða-
drengir, Brúðarbandið og Dilemma. Að-
gangseyrir 500 kr.
Kaffi Sólon | Dj Tommi White niðri, Magni
og Sævar uppi með partístemm.ingu, ísl.
og erl. partýslagarar.
Rauða ljónið | Karaoke kl. 21.30 alla
fimmtudaga í vetur.
Veitingahús
Naustið | Jólahlaðborð með 30–40 mis-
munandi réttum.
Fréttir
Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands |
Aðstoð við börn innflytjenda á aldrinum 9–
13 ára við heimanám og málörvun er veitt í
Alþjóðahúsinu á mánudögum kl. 15–16.30.
Kennarar á eftirlaunum og nemar við HÍ
sinna aðstoðinni í sjálfboðavinnu. Skráning
í síma 545 0400. Kl. 15–16.30.
Fyrirlestrar
Karuna Búddamiðstöð | Hugleiðsla kl.
12.10–13 að Ljósvallag. 10. www.karuna.is.
Opni listaháskólinn | Fyrirlestur Annu
Vertanen, sem féll niður þriðjudaginn 23.
nóvember vegna bruna við Sundahöfn,
verður fluttur fimmtudaginn 25. nóvember
kl. 12.30 í LHÍ í Laugarnesi, stofu 024.
Sögufélag | Fyrirlestur verður á vegum
Nafnfræðingarfélagsins laugardaginn 27.
nóvember kl. 13.30, í Sögufélagi í Fischer-
sundi í Reykjavík. Jónína Hafsteinsdóttir
cand.mag. heldur fyrirlestur er hún nefnir:
Tölur í örnefnum.
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Mathieu
Fauvel, Signal and Image Lab (LIS),
Grenoble France, heldur fyrirlestur um úr-
vinnslu myndgagna með mikilli rúm-
fræðilegri upplausn. Fyrirlesturinn verður
haldinn í húsakynnum Verkfræðideildar
Háskóla Íslands VR-2, stofu VR-158, kl.
16.15.
Málstofur
Neskirkja | Fyrirlestur kl. 12.15–12.30.
Ágústa Þorbergsdóttir málfræðingur ræð-
ir um trúarlegt tungutak, málfar í Biblíunni
og í prédikun samtímans. Er aðeins talað til
karla í Biblíunni og í boðskap kirkjunnar?
Að fyrirlestri loknum verða umræður.
Málþing
Umferðarstofa | Umferðarþing Umferð-
arstofu og Umferðarráðs á Grand hóteli,
Reykjavík, í dag, fimmtudag, og á morgun,
föstudag. Skráning á www.us.is/page/
umferdarfraedsla.
Fundir
GSA á Íslandi | Fundur í kvöld kl. 20.30, í
Tjarnargötu 20. www.gsa.is.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut 58–60. Fund-
urinn er í umsjá Kjellrúnar Langdal og
hefst kl. 17. Allar konur velkomnar.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin
gengur frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur í
Fossvogi kl. 18.
Stafganga í Laugardalnum | Stafganga í
Laugardalnum kl. 17.30. Gengið er frá
Laugardalslauginni. Upplýsingar á
www.stafganga.is.
Kynning
Maður lifandi | Boðið er upp á ráðgjöf í
hómópatíu kl. 13–15. Kristín Kristjánsdóttir
hómópati aðstoðar viðskiptavini og svarar
spurningum. Ráðgjöfin er ókeypis.
Demantsbrúðkaup | 60 ára brúð-
kaupsafmæli eiga í dag, 25. nóvember,
hjónin Halldóra Ó. Guðlaugsdóttir og
Guðmundur Valur Sigurðsson, Skúla-
götu 40, Reykjavík. Þau njóta dagsins
með afkomendum sínum í Kaupmanna-
höfn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
ALDA Ármanna opnar í dag myndlist-
arsýningu í Sparisjóðnum á Garðatorgi 1,
Garðabæ.
Myndefni Öldu hefur mikið til verið mann-
eskjan, landið og trúin. „Konan er þar
ríkjandi og það yndi sem ég hef af því að
mála konur er hin mannlega tenging og
það að nálgast persónuleikann, form lík-
amans í afstöðu við önnur form, ávexti,
mat eða annað stúss kvenna. Hlusta á
þær tala og segja frá lífi sínu.
Landið kom aftur sterkt inn á þessu sól-
arsumri 2004. Birtan, hlýjan, speglunin,
form landsins, mjúk, hlý og aflíðandi.
Beittir fjallatindar, heitir eða kaldir og
sjórinn, stilltur og friðsæll. Og gleðin af að
vera úti í sól og yl og tengjast landinu. Svo
kemur konan líka inn á landið, dansar og
dregur inn heilandi orku.
Trúarlegar tengingar eru allt síðan úr
bernsku þegar gömul stór plaköt úr kirkju-
listinni voru á herbergjunum í sveitinni, á
Barðsnesi. Orgelspilið hjá pabba, kvöld-
bænir,“ segir Alda.
Myndirnar eru unnar í olíu á striga eða
plötu, með pensli eða spaða, og akvarell,
eða vatnslitur, á pappir. Einnig hefur hún
unnið collageverk, eða klippimyndir. Sýn-
ingin verður opin alla virka daga á af-
greiðslutíma Sparisjóðsins 9:15 - 16:00 til
16. desember.
Alda Ármanna
sýnir í Garðabæ
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is