Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 53

Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 53
RAFHLJÓMSVEITIN Worm is Green hefur verið að gera það gott vestan hafs upp á síðkastið og leik- ið á ófáum tónleikum þar á árinu. Sveitin er nýkomin úr mikilli tónleikaferð þar sem hún lék á yfir 30 tónleikum í öllum helstu borg- um Bandaríkjanna og Kanada í slagtogi við aðra listamenn hjá út- gáfufyrirtæki sveitarinnar þar vestra. Sveitin lék á viðlíka mörg- um tónleikum þar vestra í sept- ember og ætti því að vera komin í ansi góða æfingu. Það kemur í ljós í kvöld þegar Worm is Green stígur á svið í Bíó- höllinni á Akranesi og leikur þar efni af væntanlegri plötu í bland við eldra. „Tónleikaferðin gekk vonum framar, m.a. var talsvert um það að fólk ferðaðist langt að til að sjá okkur,“ segir Árni Ásgeirsson í Worm is Green. „Má þar helst nefna mikinn aðdánda í Austin, Texas, sem þótti það ekki tiltöku- mál að keyra í 4 tíma(!) til að sjá okkur. “ Árni segir að framundan sé að klára plötu sem sé á lokastigi og ætti að verða tilbúin fyrir áramót. Megi því búast við nýrri plötu á vormánuðum næsta árs. Þá á Worm is Green nýtt lag á safn- plötu til styrktar æskulýðsstarfi í Balata-flóttamannabúðunum, þeim fjölmennustu á Vesturbakka Pal- estínu. Tónlist | Worm is Green með tónleika á Akranesi Liðast um Bandaríkin Þórhallur í Thule og fleiri koma fram á tónleikunum með Worm is Green. Tónleikarnir eru í Bíóhöllinni í kvöld kl. 20.30. Miðaverð 899 kr. www.wormisgreen.com Nánari upplýsingar um söfninina fyrir ungliðahreyfinguna í Palestínu: www.palestina.is/frjalspalestina MYND Hjálmars Einarssonar, Löglegir krimmar, fékk fyrstu verðlaun sem besta alþjóðleg stuttmyndin á Famufest, árlegri stuttmyndahátíð Kvikmyndahá- skólans í Prag. Myndin er í léttum dúr og segir frá tveimur vinum sem eru litaðir af amerísku sjón- varpsglápi. Þeim finnst þeir hafa verið arðrændir af hvítflibbum samtímans og ákveða að gera eitt- hvað í því. „Þetta er annar veturinn sem ég er hérna. Það er mjög gott að vera hérna, þetta er draumaborg,“ seg- ir Hjálmar en fleiri Íslendingar hafa verið við nám í skólanum, til dæmis Börkur Gunnarsson (Sterkt kaffi) og Grímur Hákonarson (Síð- ustu orð Hreggviðs). Hann segir verðlaunin opna ýmsa möguleika. „Það er búið að bjóða mér á nokkrar hátíðir og svo var hringt í mig frá stærsta fram- leiðslufyrirtækinu hérna, Stillking. Vonandi kemur eitthvað út úr því.“ Keppnin var stór í sniðum og sýndar alls 200 myndir, þó að ekki allar hafi verið í keppninni. „Þetta var fjögurra daga prógramm og ágætlega stór umgjörð í kringum þetta. Það kemur fólk úr brans- anum til að fylgjast með,“ segir hann en þetta er í 21. sinn sem keppnin er haldin. Sterk bíóhefð í Prag Stuttmyndin var tekin upp á Ís- landi. „Þessi mynd var gerð mjög snögglega. Ég skrifaði hana í skól- anum í fyrra en kom heim í sumar og sá að það væri sniðugt að skjóta hana þá. Hún átti að vera frekar fljótgerð og ég hóaði í nokkra félaga. Við fengum að loka götum í kringum Lyngháls og skutum þar í tvo daga. Svo vatt þetta upp á sig og tók lengri tíma. Ég var mjög heppinn með sam- starfsfólk og allir sem komu að þessu eiga miklar þakkir skildar,“ segir hann og býst við að myndin verði sýnd hérna heima eftir ára- mót. „En það er ekkert komið á hreint með það.“ Helstu hlutverk voru í höndum leikaranna Atla Þórs Albertssonar og Jóhannesar Hauks Jóhannes- sonar. Um kvikmyndatöku og klippingu sá Þórður Karl Einars- son og um hljóð sáu þeir Halldór Snær Bjarnason og Pétur Harðar- son. Meðframleiðandi var Ingvar Sigurðsson en Hjálmar sjálfur skrifaði handrit, framleiddi og leik- stýrði. „Myndin er á íslensku og alveg gerð af Íslendingum og var sýnd með texta úti. Fólk hérna er miklu móttækilegra fyrir erlendum myndum en heima. Það er mjög sterk bíóhefð hérna og það eru leifar af kommúnismanum því hér var nánast frítt í bíó. Fólk er vant að horfa á talsettar myndir og textaðar. Það er ekki þessi Kana- væðing hér eins og hefur verið í ís- lensku sjónvarpi heima,“ segir hann og útskýrir hvernig sögu- þráður myndarinnar fléttast inn í þessa hugmynd. „Myndin er um tvo menn sem eru algjörlega litaðir af ameríska sjónvarpinu sem við sjáum heima. Þeir fara að athuga hvort þeir komist upp með það sem gerist í amerískum bíómyndum. Hvort það virkar í raunveruleikanum er ann- að mál. Þetta er grínmynd með smáhasar,“ segir Hjálmar. „Ég er ekkert á móti amerískum myndum en stundum er nóg kom- ið. Það er leiðinlegt hvað það er framleitt lítið af íslensku efni. Ég held það sé raunveruleg löngun hjá fólki að sjá íslenskt efni í sjón- varpi.“ Hjálmar, sem er 29 ára gamall, hefur áður gert stuttmyndina Gildruna, sem er frá árinu 2001. „Ég hoppaði beint í djúpu laugina árið 1999 og fór að gera auglýs- ingar og var sjálfstætt starfandi. Á sama tíma gerði ég mynd sem heitir Gildran, sem var erfið fæð- ing. Það tók tvö ár að gera og þrjú ár að borga,“ segir Hjálmar um upphafið. Hann segir nauðsynlegt að hafa stuttmynd í fórum sínum til að koma sér á framfæri. „Það er al- veg nauðsynlegt. Stuttmynd er frá- bær vettvangur fyrir fólk sem er að koma sér af stað í bransanum. Á móti kemur að þær hafa engan vettvang,“ segir Hjálmar, sem er að huga að gerð lengri myndar. Vinnur að handriti í fullri lengd „Ég er að vinna við að skrifa handrit í fullri lengd. Ég verð alla- vega út þennan vetur og svo kem- ur í ljós hvað framhaldið verður,“ segir hann um dvölina í Prag. Hjálmar segist umfram allt hafa haft gaman af því að gera Löglega krimma. „Það skín í gegnum myndina að það voru allir að hafa gaman af þessu. Þetta var gert ánægjunnar vegna. Í þessum bransa gleymist stundum að hafa gaman af hlutunum því þetta er svo mikið basl.“ Kvikmyndir | Stuttmyndin Löglegir krimmar eftir Hjálmar Einarsson fær verðlaun í Prag Kanavæðing Íslendinga Hjálmar tekur við verðlaununum á Famufest, árlegri stuttmyndahátíð Kvikmyndaháskólans í Prag, fyrr í mánuðinum.Helstu hlutverk voru í höndum leikaranna Atla Þórs Albertssonar og Jóhannesar Hauks Jóhannessonar. ingarun@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 53 SHARON Stone hefur verið vígð sem „hálfgildings prestur“ – til þess að geta gefið saman vini sína. Og Hollywood-leikkonan hefur þegar gefið saman ein hjón, veit- ingastaðaeigandann Michael Bourseau og stílistann Brendu Swanson, við athöfn sem fór fram á glæsiheimili Stone í Coldwater Canyon. Leikararnir Jack Nichol- son og Robert Wagner voru vottar. Brúðguminn á að hafa látið þau orð falla að það muni enginn trúa því að hann sé giftur þegar hann sér brúð- arvottorðið. Stone náði sér í réttindin – til að gefa saman hjón – í gegnum póst- þjónustu. Fleira frægt fólk hefur hlotið einhvers konar „tækifær- isprestsvígslu“; Robbie Williams hlaut sín réttindi í gegnum Netið til að geta gift vin sinn á meðan Sin- ead O’Connor er vígður kaþólskur prestur. Fólk í fréttum | Fræga fólkið gefur vini sína saman Séra Sharon Sharon Stone er nýskilin við Phil Bronstein.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.