Morgunblaðið - 25.11.2004, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
ÍSLENSKUR karlmaður á þrítugsaldri
var í fyrrakvöld handtekinn á Keflavík-
urflugvelli með um 140 grömm af kókaíni
sem hann hafði falið í endaþarmi. Mann-
inum var sleppt að loknum yfirheyrslum
og hafa aðrir ekki verið handteknir vegna
málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá sýslumann-
inum á Keflavíkurflugvelli var maðurinn
að koma frá Amsterdam og var stöðvaður
við hefðbundið tolleftirlit.
Með 140 grömm af
kókaíni innvortis
„LÍFEYRISSJÓÐAKERFIÐ hefur um það
bil tvöfaldast á fimm til sjö ára fresti og
ávaxtar sífellt meira af eignum sínum er-
lendis en einstaklingar eru sömuleiðis
farnir að fjárfesta í auknum mæli erlend-
is,“ segir Sigurður Atli Jónsson, sem starf-
ar fyrir Credit Suisse First Boston-
bankann á Íslandi.
Þá segir Robert Parker, yfirmaður al-
þjóðlegrar eignastýringar stofn-
anafjárfesta hjá bankanum, í viðtali við
Viðskiptablað Morgunblaðsins í dag að
ekki verði lengur hjá því komist að ís-
lenskir fagfjárfestar alþjóðavæði eigna-
söfn sín enda hafi verið mikill vöxtur í
fjárfestasamfélaginu hér á landi á síðustu
árum.
Lífeyrissjóða-
kerfið tvöfaldast
SAMEINING HB Granda, Tanga á Vopna-
firði og Svans RE styrkir stöðu HB Granda
í harðnandi samkeppni við fiskvinnsluna í
Kína, að mati Árna Vilhjálmssonar, stjórn-
arformanns fyrirtækisins. Stjórnir félag-
anna þriggja samþykktu á fundum sínum á
þriðjudag að sameina félögin undir nafninu
HB Grandi hf. Við sameininguna eykst
hlutdeild HB Granda í uppsjávartegundum
verulega. T.a.m. eykst hlutdeild félagsins í
loðnukvótanum um 23%, verður 18,68%. Þá
mun félagið ráða nærri 20,73% kolmunna-
kvótans eftir sameininguna, sem er
þriðjungsaukning.
Árni segir að sameiningin breyti í raun
gerð fyrirtækisins. „Við höfum frekar farið
halloka í samkeppninni við Kínverja, enda
hafa þeir þrengt að okkur á mörkuðum fyr-
ir karfa og ufsa á meginlandi Evrópu. Með
sameiningunni minnkar vægi þess hluta
fyrirtækisins sem á í beinni samkeppni við
Kínverja.“/D4
Styrkir stöðuna
gagnvart Kína
FÉLAG sem á engan sinn líka í
veröldinni verður til um áramótin
þegar Avion Group verður til við
samruna m.a. Atlanta-flugfélags-
ins, Íslandsflugs og Excel Air-
ways. Magnús Þorsteinsson, að-
aleigandi Avion og stjórnar-
formaður, hyggst þá bjóða upp á
„heildarlausn í flugrekstri“; félag
sem sér um leigu flugvéla með
áhöfn, þjálfun áhafnar, viðhald og
tryggingar fyrir þá sem vilja
stunda flugrekstur – allt annað
en sölu farseðla. Þetta kemur
fram í samtali við Magnús í auka-
blaði Morgunblaðsins um „inn-
rás“ íslenskra athafnamanna í
breskt viðskiptalíf undanfarin
misseri.
Starfsmenn hjá „Baugsfélög-
um“ í Bretlandi eru nú orðnir
11.000 í rúmlega 1.000 verslunum
og velta fyrirtækjanna verður ríf-
lega 100 milljarðar króna á þessu
ári, samkvæmt frásögn Gunnars
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
erlendra fjárfestinga Baugs, í
blaðinu. Greint er frá miklum
vexti Bakkavarar við framleiðslu
fersks þægindamatar en fyrir-
tækið rekur nú fjórar verksmiðj-
ur í Bretlandi og sú fimmta verð-
ur væntanlega tekin í notkun á
næsta ári, vegna síaukinnar eft-
irspurnar og þrýstings frá
stærstu viðskiptavinum fyrirtæk-
isins um að það framleiði meira.
Einnig er greint frá auknum
umsvifum íslensku skipafélag-
anna í Bretlandi, frá íslenskum
sjávarútvegsfyrirtækjum, m.a.
Coldwater sem fyrir tveimur og
hálfu ári hóf framleiðslu á kæld-
um sjávarréttum á breska mark-
aðnum og hefur náð góðum
árangri á því sviði. Rætt er við
forráðamenn íslensku bankanna
þriggja í London og m.a. sagt frá
fyrirtækjum í eigu Íslendinga,
sem lítt eða ekki eru þekkt hér á
landi. Það eru Strax, sem starfar
á farsímamarkaði og veltir um
sjö milljörðum króna á þessu ári,
hugbúnaðarfyrirtækið Kudos, en
lausnir fyrirtækisins drífa nú
áfram auglýsinga- og snertiskjái
þekktra fyrirtækja víða um heim,
og svo Logo69.
Avion býður „heildar-
lausn í flugrekstri“
Innrásin í Bretland/B-blað
LJÓSMYNDABÓK Ragnars Axelssonar; Andlit norðursins, kom út í
gær og af því tilefni efndi Ragnar til ljósmyndasýningar í Reyn-
ishelli til heiðurs Guðjóni Þorsteinssyni, en mynd af honum er á
forsíðu bókarinnar. Á myndinni er Ragnar að segja Guðjóni sögu
myndanna, en skömmu síðar batt brimið í fjörunni enda á sýn-
inguna./30
Morgunblaðið/Einar Falur
Brimið batt enda á sýninguna
STARFSHÓPUR Verslunarráðs
Íslands í orkumálum setur í nýrri
skýrslu fram gagnrýni á ákveðna
þætti raforkulaganna, m.a. að þau
sníði arðsemi flutningsfyrirtækis
raforku of þröngan stakk. Einnig
sé skortur á skýrum leiðbeiningum
um veitingu rannsókna- og virkj-
unarleyfa ef fleiri en einn aðili eru
um hituna.
Hópurinn telur lögin engu að
síður hafa breytt umgjörð raforku-
iðnaðarins á Íslandi á svo stórfelld-
an hátt að ekki verði staðar numið.
Án frekari umbóta og skipulags-
breytinga sé setið uppi með hálf-
klárað verk sem óvíst sé að þjóni
hagsmunum notenda betur en það
skipulag sem áður var. Að fara
hálfa leið geti reynst dýrkeypt.
Þá telur starfshópur Verslunar-
ráðs óheppilegt að bráðabirgða-
ákvæði í raforkulögum skuli setja
takmarkanir á framsal hlutafjár í
flutningsfyrirtæki í þá veru að eig-
endum hlutafjár sé aðeins heimilt
að framselja hlutafé sitt til annarra
eigenda í fyrirtækinu.
Starfshópurinn telur að til að
stuðla að hagkvæmni í uppbygg-
ingu flutningskerfis raforku sé
nauðsynlegt að flutningsfyrirtækið
njóti góðs af aukinni hagkvæmni í
aukinni arðsemi. Í raforkulögun-
um sé gert ráð fyrir lágri arðsemi
að jafnaði. Nær sé að leggja fag-
legt mat á eðlilega arðsemi af
flutningsfyrirtækinu og ganga út
frá því við ákvörðun tekjumarka.
Hópurinn lýsir áhyggjum af því að
smávirkjanir séu undanþegnar því
að tengjast flutningskerfinu. Þetta
muni kynda undir áhuga víða um
land á að reisa litlar virkjanir.
Talið er heppilegast að raforku-
fyrirtækjum verði breytt í hluta-
félög og þau síðan skráð á markað.
Það auðveldi breytingar á eignar-
haldi og greiði aðgang að fjár-
magni til vaxtar.
Verslunarráð gagnrýnir nokkur ákvæði í raforkulögunum í nýrri skýrslu
Mikilvægt að ljúka mark-
aðsvæðingu orkukerfisins
Eðlilegt/4
KLEIFARVATN, skáldsaga Arn-
aldar Indriðasonar, er söluhæsta bók-
in dagana 16.–22. nóv., samkvæmt
samantekt Fé-
lagsvísindastofnunar
fyrir Morgunblaðið.
Bók Jóhönnu Krist-
jónsdóttur, Arab-
íukonur, er í öðru
sæti og Útkall – Týr
er að sökkva eftir
Óttar Sveinsson í því
þriðja. Öðruvísi fjöl-
skylda eftir Guðrúnu
Helgadóttur er í fjórða sæti og Sig-
mundur Ernir Rúnarsson á bókina í
fimmta sæti, Barn að eilífu.
Söluhæstu skáldverkin eru Kleif-
arvatn, Englar og djöflar eftir Dan
Brown og Dauðans óvissi tími eftir
Þráin Bertelsson. /28
Kleifarvatn
söluhæst
Arnaldur
Indriðason