Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN INNRÁSIN í Írak var í upphafi réttlætt með því að Írakar ættu gereyðingarvopn og að þáverandi ráðamenn landsins tengdust Al Kaida, og þar með hryðjuverk- unum á Bandaríkin í september 2001. Hvort tveggja reynd- ist rangt, en þá er í umræðu hér á landi vísað til víðtæks stuðnings við innrás- ina í báðum lönd- unum, Bandaríkjunum og Írak og sérstaklega við það að velta Sadd- am Hussein úr valda- stóli. Það er því full ástæða til þess að skoða sannleiksgildi þessara fullyrðinga og það verður best gert með því að athuga kannanir sem virt fyrirtæki hafa gert í báðum löndum og varpa ljósi á viðhorf al- mennings. Bretar eru einnig ger- endur í þessu stríði ásamt Banda- ríkjamönnum, en þar hefur almenn andstaða verið við stríðið eiginlega frá upphafi og er ekki skoðað frek- ar hér. Ekki réttlætanleg, skaðleg og herinn fari Gallup gerði könnun í Írak í mars og apríl síðastliðnum fyrir USA Today og CNN. Alls voru 3.444 Írakar spurðir, viðtalið fór fram heima hjá hverjum og einum og tók það að meðaltali um 70 mín- útur. Alls voru spurningar 23 og varpa svörin skýru ljósi á afstöðu írösku þjóðarinnar til ýmissa mála tengdum innrásinni. Skýr meiri- hluti svarenda, eða 57%, telur að herlið Bandaríkja- manna og Breta eigi að fara strax (á næstu mánuðum) og aðeins 36% vilja að það verði lengur. Að öllu sam- anlögðu telja 46% að innrásin hafi verið skaðleg (unnið meiri skaða en það gagn sem af innrásinni hef- ur leitt) en 33% telja að hún hafi verið til góðs. Þá segja 39% að á engan hátt sé hægt að réttlæta siðferði- lega hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna og Breta og 13% segja að afar litla réttlætingu sé hægt að finna. Aðeins 12% telja að aðgerðirnar séu réttlætanlegar og 19% eru á þeirri skoðun að aðgerð- irnar séu að einhverju leyti réttlæt- anlegar. Úr þessu má lesa að meirihluti Íraka telur skorta sið- ferðilega réttlætingu fyrir hern- aðaraðgerðunum. Til viðbótar þá lítur 71% Íraka á herlið bandalags- þjóðanna sem hernámslið en aðeins 19% telja það frelsisher. Þegar inn- rásin var gerð voru jafnmargir sem litu á innrásarherinn sem frelsislið og sem hernámslið, þannig að breytingin er mikil á viðhorfi Íraka til herliðsins. Fáir Íraka styðja Saddam Hussein og 61% svarenda telur að þrátt fyrir erfiðleikana, sem þeir hafi mátt þola síðan inn- rásin var gerð, sé það þess virði að vera lausir við hann. Meginniðurstöður könnunarinnar eru þessar: meirihluti Íraka vildi losna við Saddam Hussein, en telur ekki hægt að réttlæta innrásina og á heildina litið hafi hún verið skað- leg, litið er á herinn sem her- námslið og hann eigi að fara strax. Þetta eru hinir skýru megin- drættir, sem koma fram þegar Írakar meta málið í heild. Innrásin verður ekki réttlætt að mati Íraka, með því að koma Saddam Hussein frá völdum, það er athyglisverð niðurstaða. Ólíklegt er að stuðn- ingur Íraka við innrásina hafi vaxið síðan könnunin var gerð, fremur er líklegt að andstaðan hafi aukist hjá almenningi. Meirihlutinn ósammála innrás Viðhorf almennings í Bandaríkj- unum verður æ neikvæðara til inn- rásarinnar og stríðsrekstursins eft- ir því sem átökin standa lengur. Nýlegar skoðanakannanir staðfesta það. Í könnun sem Gallup gerðir fyrir CNN/USA Today í þessum mánuði mælast þeir í fyrsta skipti í meirihluta sem eru ósammála þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að fara í stríð við Írak í marsmán- uði 2003. Alls er 51% ósammála en 48% sammála. Mælingar Gallup hafa til þessa sýnt að um 61–63% hafa verið sammála því að fara í stríðið. Þá eru 47% á þeirri skoðun að staða Bandaríkjamanna í Írak hafi versnað frá því fyrir ári, en að- eins 20% telja að staðan hafi batn- að. Tvær kannanir nú í desember sýna að Bandaríkjamenn telja stríðið ekki þess virði að heyja það. ABC/Washington Post létu gera könnun og spurðu hvort menn teldu að öllu samanlögðu, kostnað Bandaríkjanna borinn saman við ávinning þeirra, að það væri þess virði að heyja stríðið í Írak. Já svöruðu aðeins 42%, en nei sögðu 56%. Í apríl síðastliðnum sögðu 70% já en aðeins 27% nei. Á aðeins 8 mánuðum hefur rúmur fjórð- ungur þjóðarinnar skipt algerlega um skoðun. NBC News/Wall Street Journal spyr hvort manntjónið og kostnaðurinn við stríðið hafi verið þess virði að steypa Saddam Huss- ein af stóli. Aðeins 43% svarenda telja svo vera en 48% ekki. Þar með eru bæði Bandaríkjamenn og Írakar sammála um það að það réttlæti ekki innrás að koma Sadd- am Hussein frá völdum. Að lokum, í framhaldi af þessu sýnir könnun Quinnipac University, sem gerð var 7.–12. desember, að 52% Banda- ríkjamanna telja að það hafi verið rangt að fara í stríð við Írak. Að- eins 42% telja það rétta ákvörðun. Meginniðurstaðan er sú að Banda- ríkjamenn eru komnir á þá skoðun að rangt hafi verið að gera innrás og eru ósammála því að fara í stríð við Írak og að tilkostnaður sé svo mikill að ávinningur, sem vera kann, svo sem að að koma Saddam frá völdum, réttlæti ekki hann. Þetta er í raun sama viðhorf og fram kemur hjá Írökum. Kjarninn í viðhorfi almennings í báðum lönd- unum er þessi: að öllu samanlögðu var það röng ákvörðun að fara í stríðið. Það verða menn að horfast í augu við. Innrásin í Írak var röng ákvörðun Kristinn H. Gunnarsson fjallar um stríð ’Meginniðurstaðan ersú, að Bandaríkjamenn eru komnir á þá skoðun að rangt hafi verið að gera innrás …‘ Kristinn H. Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Í MÖRGUM vestrænum ríkjum hefur stjórnunarlegt umhverfi há- skóla breyst mikið á síðustu árum (OECD, 2004). Í opinberri umræðu er fjallað um hvort þessar breytingar hafi áhrif á hlutverk há- skóla sem er einkum þrenns konar, þ.e. kennsla, rannsóknir og þjónusta við sam- félagið. Sjálfstæði há- skóla og frelsi innan þeirra í rannsóknum, kennslu og námi er for- senda fyrir því að þeir ræki hlutverk sitt sem best. Háskólar eiga að vera siðferðilega og fræðilega óháðir sér- hagsmunum og taka langtímahagsmuni fram yfir skammtíma- hagsmuni. Hugmyndir um breytingar á hlut- verki háskóla eru m.a. afleiðing af kröfum um að taka á móti auknum fjölda nemenda en einnig koma til sög- unnar auknar vænt- ingar til háskóla. Fjöldi háskólastúdenta tvö- faldaðist í Írlandi, Sví- þjóð og Íslandi frá 1990 til 2000. Þessi þróun virðist halda áfram hér á landi, t.d. jókst fjöldi nemenda við Háskól- ann á Akureyri um 100% á árunum 2000 til 2003. Stjórnvöld líta í auknum mæli til há- skóla til að aðstoða við að uppfylla sam- félagsleg markmið. Hér er m.a. átt við markmið sem fást við sí- og end- urmenntun, samfélagslega þátttöku almennings, þróun efnahagslífs, byggðaþróun og menningar- starfsemi. Að sjálfsögðu er jákvætt fyrir háskólasamfélagið að væntingar almennings og stjórnvalda til þess aukist en vandi fylgir vegsemd hverri. Starfsumhverfi háskóla verð- ur flóknara en áður var. Hér gætu leynst hættur fyrir háskólann sem stofnun. Er t.d. hætta á að háskólar reki af leið, frá meginstarfsemi sinni sem er rannsóknir og kennsla, til að uppfylla væntingar stjórnvalda um pólitísk og efnahagsleg markmið? Er hætta á að háskólar slaki á hefð- arhelguðum fræðilegum kröfum til að mæta óskum nemenda um menntun sem strax verði í askana látin? Breytingar á fjármögnun Á síðustu öld voru flestir háskólar undir stjórn og fjármagnaðir af rík- isvaldinu. Sú er ennþá raunin en í sumum ríkjum er verið að draga hlut- fallslega úr fjárveitingum hins op- inbera til háskóla. Í Ástralíu minnk- aði framlag hins opinbera til háskóla sem hlutfall af tekjum þeirra úr 69% árið 1990 í 43% árið 2001. Kostnaður á hvern nemenda í Háskólanum á Ak- ureyri hefur lækkað úr 1 mkr árið 1997 í 580 þúsund árið 2003. Háskólar afla í auknum mæli tekna með því að leita eftir styrkjum til rann- sóknaverkefna og selja þriðja aðila rannsóknaverkefni eða aðra þekk- ingu. Þessi leið er þó takmörkunum bundin t.d. fjármagna rann- sóknasjóðir yfirleitt aðeins bein út- gjöld vegna rannsókna en ekki það sem stofnunin kostar sjálf til af innra starfi sínu til þeirra. Í alþjóðlegu samhengi er tilhneig- ingin sú að auka sjálfstæði háskóla. Samhliða þessu hefur ríkisvaldið gert auknar kröfur til háskólanna um meiri ábyrgð sem felur í sér kröfur um meiri upplýsingagjöf, öflugra gæðaeftirlit, heilsuvernd og öryggi starfsmanna, að jafnrétti sé tryggt o.s.frv. Áður fyrr var háskóla- menntað fólk að finna, fyrst og fremst, innan háskólanna sjálfra og í þröngum hópi embættismanna. Nú er fjöldi háskólamenntaðs fólks á vinnumarkaði í fyrirtækjum og stofn- unum utan háskóla og vinnur rann- sókna- og sérfræðistörf sem oft jafnast á við vinnu fræðimanna í há- skólum. Mikil sam- keppni ríkir á mark- aðnum í dag um háskólamenntað starfs- fólk, fyrirtæki og stofn- anir sjá sér hag í að tengjast háskólum m.a. til að afla sér nýrrar þekkingar og til að auka framboð á vel menntuðu fólki á starfssviði fyr- irtækisins. Hið mik- ilvæga hlutverk, þjón- usta háskóla við samfélagið, felst ekki í því að bíða eftir áreitum frá umhverfinu til að bregðast við. Þjónusta háskóla felst í því að velja þá þætti úr kennslu og rannsóknastarfsemi sem líklegastir eru til að hafa áhrif og gera al- menningi kleift að nýta sér þá. Á þennan hátt getur háskólastarfsemin haft mótandi áhrif á samfélagið. Í síbreyti- legum heimi verða há- skólar að stýra starf- semi sinni þar sem markmið verða flóknari, fjármögnun óvissari en um leið þurfa þeir að halda fram sérstöðu sinni í umhverfi þar sem samkeppnin eykst sí- fellt. Endurskoðun laga Sú krafa samtímans að aðlaga stjórn- un háskóla að breyttum aðstæðum kallar á nýtt lagaumhverfi þar sem afstöðu þarf m.a. að taka til eftirfar- andi atriða: Auka fjárhags- og rekstr- arlegt sjálfstæði opinberra háskóla annaðhvort með breyttum laga- ákvæðum eða með því að breyta op- inberum háskólum í sjálfseign- arstofnanir. Háskólar þurfa að geta átt eigin sjóði og ráðstafað þeim og stofnað fyrirtæki eða átt hluti í fyr- irtækjum í eigin nafni. Háskólum þarf að vera gert kleift að innheimta skólagjöld, m.a. af erlendum nem- endum, nemendum í framhaldsnámi og í greinum þar sem markaðslegar forsendur eru til þess að innheimta slík gjöld. Greina þarf á milli innri og ytri stjórnar háskóla. Innri stjórn sem stýrt er af fulltrúum háskóla- samfélagsins stýrir málefnum og stoðkerfi kennslu og rannsókna. Ytri stjórn er skipuð áhrifafólki úr þjóðlífi sem Háskólinn tilnefnir sjálfur með eða án samráðs við stjórnvöld. Hlut- verk ytri stjórnar er stefnumótun til langtíma, umsjón með fjáröflun og fjármálastýringu og tengsl við þjóð- lífið. Starfsmannamál opinberra há- skóla heyri ekki lengur undir lög um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna en starfsöryggi og frelsi hæfra háskólakennara til kennslu og rannsókna hvort sem er í opinberum eða einkaháskólum verði tryggt í lög- um um háskóla. Gæðakröfur allra skóla á háskólastigi í landinu lúti við- urkenndum viðmiðunum. Til að gera samanburð mögulegan verða háskól- ar að starfa eftir sambærilegu gæða- eftirlitskerfi sem er á vegum þriðja aðila. Samhliða þessari endurskoðun þarf að aðlaga innri starfsemi háskóla að breyttum aðstæðum án þess að missa sjónar á meginhlutverkum há- skóla. Stjórnun háskóla, breytt hlutverk, breyttar kröfur Þorsteinn Gunnarsson fjallar um stjórnun háskóla Þorsteinn Gunnarsson ’Í síbreyti-legum heimi verða háskólar að stýra starf- semi sinni þar sem markmið verða flóknari, fjármögnun óvissari en um leið þurfa þeir að halda fram sérstöðu sinni í umhverfi þar sem samkeppn- in eykst sífellt.‘ Höfundur er rektor við Háskólann á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.