24 stundir - 27.11.2007, Síða 11
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 11
Félag áfengis- og vímuefna-
ráðgjafa leggst eindregið gegn
frumvarpi um áfengi í mat-
vöruverslunum.
„Fyrir okkur snýst þetta ekki
um frelsi því þetta frelsi kost-
ar peninga og það kostar
hörmungar,“ segir Magnús
Einarsson, ritari félagsins.
Hann segir þá forvörn sem
dugar best gegn ofneyslu
áfengis vera hert aðgengi að
því. Verði frumvarpið að lög-
um muni neyslan færast í
yngri aldurshópa því það hafi
sýnt sig í rannsóknum erlend-
is að börn eigi auðveldara með
að kaupa vín í stórmörkuðum
en áfengisverslunum. aak
Ný undirbúningsnefnd um
byggingu Landspítala við
Hringbraut gerir nú heildar-
úttekt á undirbúningi. Þótt
stefnu um að byggja við
Hringbraut hafi ekki verið
breytt getur margt orðið
öðruvísu en ætlað var. Í svari
heilbrigðisráðherra á Alþingi,
segir hann að ætlunin sé að
skoða hvort unnt sé að reisa
sjúkrahúsið með hagkvæmari
hætti en núverandi áætlanir
miðast við. Eftir úttekt nefnd-
arinnar verði kannað hvort
ástæða sé til að breyta fyrri
áætlunum.
bee
Flugfélagið Ernir hefur ákveð-
ið að bæta við flugi á fimmtu-
dagsmorgnum til Sauðárkróks
frá og með 1. desember. Segir
félagið að þetta sé gert vegna
mikillar aukningar á flugi á
Sauðárkrók og muni þessi
aukaferð að öllum líkindum
haldast út veturinn.
Félagið segir að það sem af er
nóvember sé sætanýtingin á
Sauðárkrók rúmlega 75%.
Farþegum þangað hafi sífellt
verið að fjölga frá því Ernir
hóf að fljúga á Sauðárkrók ef
marka má tölur frá árunum
2005 og 2006. mbl.is
Áfengisfrumvarpið
Frelsið kostar
hörmungar
Bygging í endurskoðun
Hagkvæmari
hátæknispítali
Flugfélagið Ernir
Fleiri ferðir til
Sauðárkróks
Meira jafnrétti er á meðal yngra fólks en
þeirra eldri, sem bendir til þess að jákvæðar
breytingar séu að eiga sér stað á íslenskum
vinnumarkaði. Þetta kom fram í máli Hrafn-
hildar Stefánsdóttur, yfirlögfræðings Samtaka
atvinnulífsins, á fundi Landssambands sjálf-
stæðiskvenna í gær.
Hrafnhildur telur óljóst að frumvarp félags-
málaráðherra um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna muni breyta einhverju um hlutfallslega
stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði. Sú
breyting sé þegar farin af stað.
Hrafnhildur vísaði meðal annars til könnun-
ar Lögmannablaðsins sem sýndi að konur sæktu
á í stétt lögfræðinga.
„Það er auðvitað mjög jákvætt að konum er
að fjölga í hefðbundnum karlastéttum, en þær
eru líka með lægstu launin,“ segir Valgerður H.
Bjarnadóttir, sem sat fyrir hönd Vinstri grænna í
nefndinni sem undirbjó frumvarpið að jafnrétt-
islögum.
Valgerður undrast ekki þá gagnrýni sem Sam-
tök atvinnulífsins hafa sett fram á frumvarpið.
„Nefndin fékk bæði formlega aðila og fagaðila á
fundi. Það voru auðvitað skiptar skoðanir um
ýmsa hluti, en sjónarmið SA var svo algjörlega á
skjön við sjónarmið allra hinna, að það er auð-
vitað ekki hægt í slíku tilviki að taka eitthvert
megintillit til þeirra.Við tókum hins vegar tillit
til allra.
Ef ég þyrfti að vega og meta hagsmuni jafn-
réttis annars vegar og markaðar hins vegar er ég
ekkert í vafa um hvort ég vel,“ segir Valgerður.
„Það er samfélaginu til bóta að þar ríki jafnrétti
og fólk fái störf sín metin að verðleikum, hvort
sem það eru karlar eða konur.“
andres@24stundir.is
Samtök atvinnulífsins telja jákvæðar breytingar eiga sér stað á vinnumarkaðnum
Jafnrétti meira meðal yngra fólks
Ungar konur Í sókn á vinnumarkaði.
THM Iceland ehf - Toyota vörulausnir
Vesturvör 30B
200 Kópavogur
S: 563 4500
tmh@tmh.is
tmh.is
LIPUR
Toyota Traigo er einstakur rafmagnslyftari sem hannaður hefur verið til að athafna
sig við mjög þröngar aðstæður. Þetta er smár, lipur og öflugur þriggja hjóla lyftari
sem fæst í þremur útfærslum með lyftigetu upp að 1500 kílóum. Toyota Traigo er
raunhæfur kostur sem hjálpar þér að fullnýta lagerrými þitt. Hafðu samband við
okkur og við munum með ánægju veita þér nánari upplýsingar um Toyota Traigo.